Morgunblaðið - 02.03.2000, Side 22

Morgunblaðið - 02.03.2000, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ við hassa af öllum vörum Fjarðargötu 17 220 Hafnafirði S: 555 0448 Strandgötu 50 735 Eskifirði S: 476 1710 Hafnargata 54 230 Keflavík S: 421 4800 Eyravegi 5 800 Selfossi S: 482 4181 Strandgötu 9 600 Akureyri S: 461 4906 Kirkjuvegi 10 900Vestm.eyjum S: 481 3373 ml bl l.is Ai l T/Kt= GiTTH\J/i£y NÝTl ÚRVERINU Kvótauppboð hefði ekki skert aflahæfi UPPBOÐ á kvóta hefði ekki skert aflahæfi manna til lengri tíma litið. Stjómvöld hefðu hinsvegar jafnvel þurft að greiða einhverjar bætur hefðu þau boðið upp kvótann, enda hefði slíkt verðfellt skip og þekk- ingu. Þetta kom fram í erindi sem Markús Möller, hagfræðingur hjá Seðlabanka íslands, hélt um kvóta- lögin og stjórnarskrána á fundi hjá Félagi viðskiptafræðinga og hag- fræðinga fyrr í vikunni. Markús bar í erindi sínu saman réttindi kvótaþega og kvótaleysingja áður en og eftir að kvótaþegum var veittur framseljanlegur réttur á fisk- veiðum og velti upp þeirri spumingu hvort mismunun fælist í núgildandi reglum um kvótaúthlutun umfram það sem aðstæður krefjast. Markús benti á að því hafi verið haldið fram að útgerðarmenn sem voru við veiðar árið 1983 hafi verið búnir að helga sér atvinnurétt og verið með bundna hagsmuni í útgerð sem aðrir hafi ekki haft. Hinsvegar leiki enginn vafi á því að formlega hafi réttur kvótalausra verið skert- ur. Réttur kvótaþega hafi aftur á móti verið stóraukinn, rétti til að veiða í samkeppni við hvern sem er hafi verið breytt í verðmætan einka- rétt, enda megi meta leiguvirði hans á allt að 30 milljarða á ári. Magnús benti á að aflahæfi manna væri að öllum líkindum stjórnar- skrárvernduð eign. Ef stjórnvalds- ákvörðun dragi úr hæfni manna til tekjuöflunar væri það bótaskylt. Hann velti því síðan fyrir sér hvort uppboð á kvóta gæti þannig skert aflahæfið. Sagði Markús að í frjáls- um veiðum, þar sem kvótinn er ókeypis og allir kepptu menn hver við annan, yrði afkoman að öllum lík- indum engin. A sama hátt yrði engin afkoma af veiðum þar sem kvótinn væri keyptur á uppboði eða aðgang- ur takmarkaður, því kvótaverðið drægi úr hagnaðinum. Munurinn væri aftur á móti sá að færri kæmust að kvótabundnum veiðum. Kvóta- bundnar veiðar þar sem kvótinn er boðinn upp og frjálsar veiðar væru því samskonar til lengri tíma litið. Sagði Markús að því virtust ekki vera sterk efnahagsleg rök fyrir því að kvótauppboð hefði skert aflahæfi manna til langs tíma litið. Til skamms tíma hefði kvótauppboð hinsvegar verðfellt skip, útgerðar- þekkingu og sjómennsku. Verndun aflahæfis gæti því þýtt að ekki hefði verið heimilt að bjóða kvótann upp fyrirvaralaust án þess að greiða ein- hverjar bætur fyrir þann skaða sem menn teldu sig hafa orðið fyrir. Skaðinn væri hinsvegar mjög lítill og því myndi duga stuttur aðlögunar- tími að slíku kerfi. 4,1% hækkun á olíuverði til fískiskipa Eykur kostnað um 200 milljónir OLÍUKOSTNAÐUR útgerðarinn- ar eykst um 200 milljónir króna á ársgrundvelli eftir 4,1% hækkun á verði gasolíu til fiskiskipa í dag. Á einu ári hefur verð á olíu til fiski- skipa hækkað um 66%, farið úr 12,28 krónum á lítrann í 20,44. Þetta er hæsta olíuverð í fjögur ár. Sé á ný miðað við ársgrundvöll hefur olíukostnaður útgerðarinnar því hækkað úr um þremur milljörð- um króna í fimm. Útgerðin notar um 260 milljónir lítra af olíu á ári. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað gífurlega frá því það var lægst í janúar 1999, eða um 151%. Sé miðað við lægsta gildi heims- markaðsverðs á olíu í desember 1998, 5,52, er það komið í 13,87 núna í febrúar. Hlutaskipti útgerð- ar og sjómanna taka mið af þróun verðs á alþjóðamarkaði. Hlutur til skipta minnkar því nú um eitt prósentustig, fer úr 72% í 71%, en þegar olíuverð var sem lægst komu 80% til skipta. Loðnuganga fyrir vestan LOÐNU hefur orðið vart sunnan Víkuráls, vestur af Bjargtöngum, en ekki er talið að um sé að ræða stóra göngu. Hafrannsóknáskipið Árni Friðrikssón Refur undanfarna daga leitað loðnu út af Vestfjörð- um. Sveinn Sveinbjörnsson leið- angursstjóri segir að ekki hafi verið mikið af loðnu á ferðinni en hún hafi þó verið vel veiðanleg og komið alveg upp undir yflrborð sjávar. Hann sagði að ekki væri um að ræða stóra vestangöngu eins og oft hafi sést. „Þetta er hinsvegar stór og falleg kyn- þroska loðna, hrognafyllingin orðin 19-20% og hún því komin fast að hrygningu. Það er alltaf hrygningaloðna á þessum slóðum en í mismiklum mæli. Oft hafa komið stórar göngur inn í Faxa- flóa og í Breiðafjörð en mér sýn- ist að svo sé ekki nú,“ sagði Sveinn. Sveinn vildi ekki segja að svo stöddu hversu mikið magn væri þarna á ferðinni. Óvíst er því hvort loðnuskip munu sækja í loðnu á þessum slóðum, auk þess sem vindasamt er þar á þessum árstíma og erfitt að stunda veið- arnar. Sveinn átti ekki von á að áfram yrði leitað að loðnu á þess- um slóðum, enda væri veðurspá óhagstæð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.