Morgunblaðið - 02.03.2000, Side 26
26 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
George Bush sigraði með yfírburðum í forkosningum þriggía ríkja
Segir að repúblikanar
séu nú að sameinast
AP
George W. Bush seilist í bdk sem hann hyggst árita fyrir einn aðdáanda sinn á fundi í gær í Duluth í Georgíu.
Washington, Los Angcles. Reuters, AFP, AP.
GEORGE W. Bush, ríkisstjóri í
Texas, vann sannfærandi sigur á
helsta keppinaut sínum, John
McCain, öldungadeildarþingmanni
frá Arizona, í forkosningum og á
kjörfundum repúblikana á þriðju-
dag og hefur nú fengið 170 kjör-
menn, McCain 105. A1 Gore vara-
forseti sigraði Bill Bradley
örugglega í Washington-ríki, fékk
68% fylgi en Bradley 31%. Skoð-
anakönnun á landsvísu sem gerð
var fyrir Washington Post og
ABC-sjónvarpsstöðina gefur til
kynna að bæði McCain og Bush
myndu sigra Gore í haust.
McCain hafði gert sér vonir um
að hafa betur í Washington og
halda þannig frumkvæðinu sem
hann náði eftir sigur fyrir skömmu
í Michigan og Arizona. „Við eigum
enn á brattann að sækja,“ sagði
McCain í Kaliforníu í gær. „En við
vinnum á þriðjudaginn." Hann
fullyrti að niðurstöðurnar myndu
ekki hafa áhrif á úrslitin á þriðju-
dag en þá verður kosið um alls 613
kjörmenn repúblikana í 13 ríkjum.
Frambjóðendur demókrata slást
þá um 1.315 kjörmenn í 15 ríkjum.
Repúblikanar kusu í þrem ríkj-
um, Washington, Virginíu og
Norður-Dakóta, á þriðjudaginn.
Hlaut Bush 58% atkvæða í Was-
hington, 53% í Virgíníu og 76% í
Norður-Dakóta. Margir repúblik-
anar hafa áhyggjur af því að orra-
hríðin milli Bush og McCains sé
svo hörð að hvor þeirra sem sigri í
baráttunni um að verða forsetaefni
flokksins muni koma sár út úr við-
ureigninni og frambjóðandi dem-
ókrata geti auðveldlega notað ým-
islegt úr slagnum gegn keppinaut
sínum. Og demókratar eru kátir.
„Ég vona að þetta haldi áfram
næstu daga ef ekki vikur,“ sagði
Tom Daschle, leiðtogi demókrata í
öldungadeildinni.
Bush sagði að sannfærandi sigur
sinn í Virginíu ætti að koma að
góðu gagni í væntanlegum for-
kosningum. McCain hefur í próf-
kjörunum haft mun meira fylgi
meðal demókrata og óháðra en í
flestum forkosningunum sem eftir
eru mega aðeins flokksbundnir
taka þátt, þær verða lokaðar.
Bush var sýnilega létt og sagði
að nú væru repúblikanar „einu
skrefi nær sameinuðum flokki og
stjórn Clintons og Gore einu skrefí
nær útgöngudyrunum“. Um
McCain sagði hann að keppinaut-
urinn talaði eins og demókrati.
„Það er brýnt að skilin séu
skörp. Við þurfum ekki frambjóð-
anda sem í kappræðum við Al
Gore hljómar ekki eins og and-
stæðingur hans. Þetta verður eins
og þeir séu að bjóða sig fram sam-
an.“
Bradley á útleið?
Bill Bradley er fyrrverandi öld-
ungadeildarþingmaður frá New
Jersey. Hann hefur nú 27 kjör-
menn en Gore 42. Bradley lagði
mikla áherslu á að standa sig vel í
Washington en hann hefur tapað í
öllum fjórum forkosningunum til
þessa og eru stjórnmálaskýrendur
flestir á því að möguleikar hans
séu nánast úr sögunni. „Margir
sem vinna fyrir hann eru farnir að
huga að því að fást við eitthvað
annað í næstu eða þarnæstu viku,“
sagði einn þeirra, Ron Faucheux, í
viðtali við sjónvarpsstöðina CNN.
Um McCain sagði Faucheux að
hann teldi frambjóðandann ekki
geta hreppt útnefninguna nema
hann fengi fleiri kjörmenn í Kalif-
orníu en þar fær repúblikaninn
sem sigrar alla kjörmennina 162.
Talsmaður Bradleys sagði samt
sem áður í gær að frambjóðandinn
væri ekki reiðubúinn að gefast upp
og Bradley var kokhraustur.
„Slagurinn er rétt að byrja,“
sagði hann á kosningafundi í San
Francisco í Kaliforníu í gær og
bætti við að hann myndi fá vind í
seglin nk. þriðjudag. Þá verður
meðal annars kosið í Kaliforníu,
fjölmennasta sambandsríkinu, og
þessvegna því mikilvægasta í bar-
áttunni um kjörmenn. Samkvæmt
skoðanakönnunum hefur Gore
mun meira fylgi en Bradley í Kali-
forníu og Bush stendur þar betur
að vígi en McCain.
Flokksþing demókrata eru fjöl-
mennari en repúblikana, hin síðar-
nefndu sitja rúmlega tvö þúsund
manns en rösklega fjögur þúsund
hjá demókrötum.
Pútín sakaður
um „endurnýj-
aðan stalínisma44
Bauhaus á minjaskrá
Sameinuðu þjóðanna
VEITTAR verða 20 inilljónir
marka, eða um 740 milljónir króna,
til endurbyggingar Bauhaus-
skólans í Dessau í Þýskalandi, að
því er greint var frá í gær.
En skólinn hefur sl. fjögur ár ver-
ið á skrá Sameinuðu þjóðanna um
menningasögulegar minjar. Bau-
haus-skólinn er talinn hafa haft um-
talsverð áhrif á hönnun nytjahluta
á fyrri hluta 20. aldarinnar. Margt
klassískra muna, sem teljast sjálf-
sagðir í nútíma þjóðfélagi, á upp-
runa sinn Bauhaus að þakka.
Moskvu. AFP.
VLADÍMÍR Pútín er að leiða rúss-
nesku þjóðina inn í myrkviði „end-
urnýjaðs stalínisma". Er því haldið
fram í grein eftir Jelenu Bonner,
ekkju mannréttindafrömuðarins
Andreis Sakharovs.
í greininni, sem birtist í Moscow
Times, blaði, sem gefið er út á
ensku, skora Bonner og fleiri bar-
áttumenn fyrir mannréttindum á
Vesturlönd að „endurskoða afstöðu
sína til Moskvustjórnarinnar og
hætta að loka augunum fyrir villi-
mannlegu framferði hennar, upp-
lausn lýðræðis og kúgun“. Segir
þar, að lýðræðisríkin verði að
leggja sitt af mörkum við að binda
enda á stríðið í Tsjetsjníu og hjálpa
til við að endurreisa málfrelsi í
Rússlandi.
Höfundar greinarinnar segja, að
Pútín sé að leiða „endurnýjaðan
stalínisma“ yfir þjóðina. Valdníðsl-
an fari vaxandi, hernaðarhyggja
gegnsýri samfélagið, hernaðar-
fræðsla hafí verið tekin aftur upp í
skólum og þjóðernisáróður og ár-
óður gegn Vesturlöndum aukist sí-
fellt.
Hófst í
tíð Jeltsíns
Bonner og félagar hennar segja,
að hinn endurnýjaði stalínismi hafi
fyrst séð dagsins ljós í tíð Borís
Jeltsíns en breitt hafí verið yfír
hann með tali um lýðræðislegar og
efnahagslegar umbætur. Segja þau,
að tveir þriðju Rússa vinni fyrir
engin eða einhver málamyndalaun.
„Leiðum hugann að öllum fórn-
arlömbum tveggja Tsjetsjníustríða
og fórnarlömbum glæpaflokkanna.
Valdamiklir auðjöfrar ráða
fjölmiðlunum og kosningar við
þessar aðstæður eru skrípaleikur.
Þeir, sem dirfast að andmæla
Kremlarherrunum, eru ataðir auri
og kosningasvik eru algeng," segir
í greininni en talsmaður Moskvu-
stjórnarinnar vildi ekkert um hana
segja.
Skipi
rænt við
Tailand?
JAPANSKS flutningaskips
með 17 manns um borð er sakn-
að við Taíland og er óttast, að
því hafi verið rænt. Skipið,
Global Mars, tæplega 6.600
tonn, fór frá Port Klang í Mala-
síu 22. febrúar með 6.000 tonn
af pálmaolíu og ætlaði til Haldia
á Indlandi. Síðast var vitað um
það vestur af Taílandi 23. febr-
úar. Eins og íyrr segir er óttast
að skipinu hafi verið rænt, en
sjórán verða nú æ algengari.
Gyðingum
fjölgar
í Þýskalandi
GYÐINGUM hefur fjölgað
mikið í Þýskalandi á síðustu ár-
um og mun hugsanlega fjölga
um 50% á næstu fimm árum. í
stríðinu var þeim svo gott sem
útrýmt en fyrir 10 árum voru
þeir 29.000. Nú eru þeir um
80.000 og verða hugsanlega
120.000 eftir fimm ár. Voru þeir
um hálf milljón er nasistar
komust til valda 1933.
Dumas
segir af sér
ROLAND Dumas, forseti
franska stjórnarskrárréttarins,
sagði af sér í gær en hefur verið
ákærður fyrir spillingu, að hafa
þegið miklar
mútur frá
franska olíu-
félaginu Elf.
Dumas var
náinn sam-
starfsmaður
Francois
Mitterrands
Frakklands-
utanríkisráðherra frá 1984 til
1993 að tveimur árum undan-
skildum.
Betri ein-
kunnir
eða lokun
DAVID Blunkett, menntamála-
ráðherra Bretlands, sagði í
gær, að kennarar og stjórnend-
ur þeirra skóla, sem sýndu lak-
astan árangur, jrðu að taka sig
á, ella yrði skólunum lokað og
öðrum falin kennslan. Tekur
viðvörunin til um 70 skóla og
hafa þeir þrjú ár til að gera bet-
ur. Geta þeir fengið aukin fram-
lög í því skyni. Ýmsir hafa
gagnrýnt þessar fyrirætlanir
og bent á, að ekki sé tekið nægi-
legt tillit til þess, að samfélags-
legar og efnahagslegar aðstæð-
ur ráði miklu um námsárangur.
Þar sé ekki bara við kennara að
sakast.
Dauðadómar
í Rúanda
FJORIR menn voru dæmdir til
dauða í Kigali, höfuðborg
Rúanda, í gær og 13 í lífstíðar-
fangelsi. Voru þeir fundnir sek-
ir um þjóðarmorð, manndráp,
nauðgun og glæpi gegn mann-
kyni. Tóku þeir þátt í drepa
5.500 tútsímenn í apríl 1994.
Allir hinna dæmdu eru hútú-
menn, en þeir eru sakaðir um
að hafa myrt allt að 800.000
manns í morðæðinu þetta ár.