Morgunblaðið - 02.03.2000, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000 35
LISTIR
Laugavegi 62, sími 511 6699
Dropinn holar
steininn
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson,
Grænukinn 20, slmi 555 15 50. Hvammstangi: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17. Isafjörður: Bílagarður ehf.,Grænagarði, sími 456 30 95.
Keflavlk: BG bilakringlan, Grófinni 8, slmi 421 12 00. Selfoss: Bflasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00.
BÆKUR
F r æ ö i r i t
HAGVÖXTUROGIÐN-
VÆÐING
Þróun landsframleiðslu á Islandi
1870 -1945 eftir Guðmund Jónsson.
Þjóðhagsstofnun. 399 bls. 1999.
SENNILEGA hafa fá íslensk rit að
geyma jafnmikið af talnaupplýsing-
um fýrir aðra fræðimenn að vinna úr
og miðla til almennings og þetta rit
Guðmundar
Jónssonar um
efnahagslíf á ís-
landi 1870 -1945.
Ritinu svipar
helst til Hag-
skinnu, sem
Guðmundur og
Magnús S.
Magnússon tóku
saman og gefin
var út af Hag- Guðmundur
stofunni árið Jónsson
1997. Þetta rit er
nokkuð smærra í sniðum og hér er
eingöngu horft á efnahagslífið en rit-
ið er ekki síður fróðlegt.
Hagvöxtur og iðnvæðing er nær
fjögur hundruð blaðsíður og þar af
er ríflega helmingurinn töflur með
talnarunum um þróun einstakra at-
vinnugreina á því tímabili sem verið
er að skoða, tölur um framleiðslu,
fjölda starfsmanna, verð og svo
mætti lengi telja. Nær jafnmikið
rými fer svo í að útskýra hvernig
þessar niðurstöður eru fengnar, lýsa
verklagi og bera saman við aðferðir
sem áður hafa verið notaðar. Einn
kafii fer í stutta samantekt á helstu
niðurstöðum, einkum um hagvöxt.
Aðferðafræðin er á köflum ansi
snúin, það er enginn hægðarleikur
að taka saman yfirlit um efnahagslíf
löngu liðins tíma og byggja á mjög
takmörkuðum heimildum. Fyrir
áhugamenn um hagsögu er gaman
að skoða þær leiðir sem Guðmundur
hefur farið og lýsingin á þeim er for-
senda þess að aðrir geti metið trú-
verðugleika niðurstaðnanna.
Slíkt rit er augljóslega ekki ski-if-
að fyrir almenning, þetta er skýrsla
fyrir aðra sérfræðinga að vinna úr.
Enginn vafi er á því að ritið mun nýt-
ast vel sem slíkt.
Þegar fram líða stundir verða nið-
urstöðumar kynntar almenningi t.d.
í kennslubókum í Islandssögu og til
þeirra verður vitnað í rannsóknum í
greinum eins og sagnfræði og hag-
fræði.
Þótt Guðmundur komist að nokk-
uð annarri niðurstöðu um sumt en
þeir sem áður hafa skoðað efnahags-
líf þessa tímabils er fátt sem kemur
mjög á óvart. Sjá má hvernig vægi
landbúnaðar fór sífellt minnkandi,
vægi sjávarútvegs jókst í fyrstu en
mestu skiptir að aðrar atvinnugrein-
ar fóm að skipta sífellt meira máli.
Hlutverk hins opinbera stækkaði.
Smám saman varð hagkerfið nú-
tímalegra og afkastageta þess jókst
Linsuvökvará
tilboðsverði
til muna. Á einum mannsaldri fengu
íslendingar að reyna breytingar sem
víða annars staðar höfðu tekið marg-
ar kynslóðir. Verkaskipting og
markaðsviðskipti urðu reglan, nýjar
stéttir og stofnanir urðu til, þéttbýli
myndaðist, íslendingum fjölgaði til
muna, samgöngur bötnuðu og svo
mætti lengi telja.
Islendingar fóra úr hópi fátæk-
ustu ríkja Evrópu í hóp þeirra rík-
ustu. Á þeim þremur aldarfjórðung-
um sem Guðmundur skoðar
fimmfaldaðist verg landsframleiðsla
á mann. Þótt landsframleiðsla á
mann sé ekki fullkominn mælikvarði
á lífskjör er þetta óumdeilanlega
ótrúleg breyting eftir þúsund ára
stöðnun. Fimmföldun á 75 áram þýð-
ir um 2,2% vöxt á hverju ári að jafn-
aði. Það kann að þykja lítið en sýnir
vel hvemig dropinn holar steininn,
smávöxtur á hverju ári í langan tíma
skilar gjörbreyttum lífskjöram.
Þegar á heildina er litið er Hag-
vöxtur og iðnvæðing hið vandaðasta
rit. Þótt ritið verði ekki metsölubók
er við því að búast að ýmsir hafi gam-
an af að kynna sér efni þess.
Ljóst er að mikil vinna liggur að
baki og að sú vinna mun nýtast vel.
Gylfi Magnússon
Morgunblaðið/Sverrir
Frá Bókamarkaði Félags íslenskra bókaútgefenda í Perlunni.
Bókaflóð í skugga Heklu
BÓKAMARKAÐUR Félags ís-
lenskra bókaútgefenda stendur nú
sem hæst í Perlunni í Reykjavík
og versluninni Blómalist á Akur-
eyri.
Að sögn Særúnar Óskar
Gunnarsdóttur, framkvæmda-
stjóra markaðarins, syðra eru um
tuttugu þúsund bókatitlar á mark-
aðinum, þar með talinn bás Braga
Kristjónssonar fornbókasala. Auk
þess má þar finna tölvuleiki, DVD-
myndir og barnamyndbönd.
Aðsókn hefur verið þokkaleg en
mætti, að mati Særúnar, vera
meiri. „Við höfum verið í sam-
keppni við Heklu, hún hefur dreg-
ið fólk til sín frá því á laugardag,
auk þess sem veðrið hefur spilað
inn í. Þetta hefur samt verið í lagi.
Gaman væri þó að sjá fleiri ung-
linga. Ég lýsi eftir þeim!“
Markaðurinn í ár er sá þrettándi
sem Særún kemur að og segir hún
hann óvenju veglegan að þessu
sinni. „Það sögðu að minnsta kosti
bókasafnsfræðingarnir sem fengu
forskot á sæiuna siðastliðinn mið-
vikudag. Óvenju mikið væri um
eftirsótta titla.“
Særún segir alltaf jafngaman að
vinna á bókamarkaði, vakna
snemma og vera að fram á kvöld.
„Ég veit ekki hvað það er en þetta
er alltaf jafnskemmtilegt - að
hitta fólk og finna adrenalínið
streyma um æðar.“
Markaðurinn er opinn frá 10-19
og lýkur á sunnudag.
ULL
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is
Jimny -
TEGUND:
Jimny JLX 1.3
Sjálfskipting
ekta jeppi
VERÐ
1.459.000 KR.
130.000 KR.
Af hverju ekta
fjórhjóladrifsjeppa?
Jimny er ódýrasti alvöru jeppinn á
markaðnum og eins og aðrir jeppar
frá SUZUKI er hann grindarbyggður
og með hátt og lágt drif. Grindarbygg-
ing Jimny gefur honum ótvíræða kosti
umfram jepplinga með sídrifi, dregur
t.d. úr veghljóði og gerir það mjög
einfalt að hækka hann upp.
Með Jimny færð þú ekta jeppa á
verði smábíls. Auk þess er rekstrar-
kostnaðurinn líka eins og á fólksbíl,
hann eyðir litlu, tryggingar eru ódýrar
og bifreiðaskattur lágur miðað við
aðra alvöru jeppa. Þetta telur allt.
$ SUZUKI