Morgunblaðið - 05.03.2000, Blaðsíða 38
1
38 SUNNUDAGUR 5. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FANNÝ
G UÐMUNDSDÓTTIR
+ Fanný Guð-
mundsdóttir var
fædd í Ólafsvík 12.
desember 1913. Hún
lést á heimili sínu í
Reykjavík 26. febr-
úar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Sólveig
J.P. Kristjánsdóttir
frá Búðum á Snæ-
fellsnesi og Guð-
mundur Björnsson
j, sjómaður, fæddur í
Olafsvík. Börn
þeirra hjóna voru:
Hanna, Karl, Fanný,
Guðlaugur og Guðrún, sem nú er
ein á lífi af þeim systkinum og er
hún búsett í Bandaríkjunum.
Fanný giftist Helga Kristni
Helgasyni frá Ólafsvík, f. 14. júní
1911. Þau slitu samvistir. Börn
þeirra í aldursröð: Óskírð Helga-
dóttir, f. 5. september 1936, dáin
16. nóvember 1936; Sveinbjörn
Helgason, f. 28. nóvember 1937,
maki Aud Merry Batnes Helga-
son; Guðmundur Helgason, f. 23.
A Það eru um 40 ár frá því Helga
dóttir Fannýjar kynnti mig fyrir
móður sinni sem kærasta sinn. Ég
man enn í dag hvað mér fannst hún
horfa óþægilega lengi á mig. Það
var eins og ég væri í nokkurs konar
gegnumlýsingu. Löngu seinna
kynntist ég því, að þessi kona skynj-
aði^og sá meira en margir aðrir.
Á þessum árum var Fanný orðin
fráskilin einstæð móðir með þrjú af
fimm bömum sínu enn á framfæri
og hún vann í eldhúsinu á Gildaskál-
anum, sem var veitingastaður við
..lAðalstræti í Reykjavík. Þar bograði
hún yfir og bar þunga potta og gekk
nær daglega til læknis í sprautur út
af veiku baki.
I vinnuhléum fékk starfsfólkið sér
kaffi saman og spjallaði eins og
mars 1939, sambýl-
iskona Sólveig Bót-
ólfsdóttir; Helga
Kristín Helgadóttir,
f. 20. júli 1940, d.
21. júlí 1944; Helga
Helgadóttir, f. 12.
janúar 1942, maki
Bent Bjarnason;
Sólveig Sjöfn
Helgadóttir, f. 2.
maí 1946, maki Jón
Sören Jónsson;
Birna S. Helgadótt-
ir, f. 8. febrúar
1950, maki Bogi
Ingimarsson.
Ömmubörnin hennar voru sex-
tán en eitt þeirra lést siðastliðið
vor. Langömmubörnin eru tut-
tugu og fjögur.
Fanný vann á yngri árum ým-
iss konar störf, bæði í Ólafsvík
og si'ðar í Reykjavík, jafnhliða
húsmóðurstörfum.
Utför Fannýjar fer fram frá
Fossvogskirkju á morgun, mánu-
daginn 6. mars, og hefst athöfnin
klukkan 15.
gengur. Fór þá Fanný að kíkja í
bolla hjá starfsfélögunum og virtist
þá sjá ýmislegt, sem hafði gerst eða
átti eftir að gerast.
Gildaskálinn brann, en var fljót-
lega endurreistur, en Fanný hætti
þar störfum.
En starfsfólkið gleymdi ekki
Fanný og hæfileikum hennar og
kom í heimsókn og spjallaði við hana
og hún kíkti í kaffibolla þeirra.
Þetta spurðist út og með tímanum
var hún orðin þekkt víða um borgina
fyrir þessa hæfileika sína. Alagið á
símanum hennar var á tímabili eins
og hjá meðalfyrirtæki og það voru
ýmsar þekktar persónur í þjóðfélag-
inu, sem komu í þessum tilgangi.
Mér þótti þetta með ólíkindum og
trúði lítið á þessa hæfileika.
Þegar Fanný var sextug fór hún
með okkur Helgu og bömum okkar
fjómm til Spánar. Þar dvöldum við
saman í fjórar vikur í húsi, sem við
höfðum til umráða.
Þar var oft gert að gamni sínu og
meðal annars að spá í bolla. Að lok-
um tók ég þátt í þessu og að nokkr-
um mánuðum liðnum var allt komið
fram, sem tengdamóðir mín hafði
spáð fyrir mér. Eftir það leyfði ég
mér ekki að efast um þessa náðar-
gáfu hennar.
Það má ef til vill segja um tenga-
móður mína, eins og sagt var um
einn ágætan mann, að hún hafi ver-
ið, að vissu marki, veitul og veislu-
glöð. Árlega hélt hún upp á afmælið
sitt og bauð þá öllum bömunum s£n-
um, mökum þeirra, bamabömum og
undir lokin barnabarnabörnum til
veislu. Og þá „svignuðu borð undan
kræsingum". Það var hennar yndi
að gefa góðan mat að borða.
I þessum boðum átti hún það til
að koma rólega upp að hlið mér og
hvísla, til þess að börnin og ungl-
ingarnir heyrðu ekki: „Benti minn,
viltu ekki fá þér svolítið sterkt í
glas?“ Þegar og ef það var þegið
gengum við í rólegheitum fram í eld-
hús og tengdamóðir mín hellti í glas
og þá var ekki skorið við nögl frekar
en í matnum, en lítið fór fyrir bland-
inu.
Seinna þegar við voram orðnir
fleiri tengdasynirair var hún jafn
kumpánleg við þá. Og þá var stund-
um tekið sporið. Gömlu dansamir
settir á fóninn og dansað á stofugólf-
inu. Þar sveif hún fislétt og fjörag
með okkur karlpeningnum í fjöld-
skyldunni, hverjum af öðram, þar til
við sátum allir eftir kófsveittir, móð-
ir og másandi, en hún stóð ein eftir
skellihlæjandi. Þá gleymdust allir
bakverkir, enda sagði hún að dans-
inn væri allra meina bót.
Síðasta afmælisdaginn sinn hélt
hún upp á þann 12. des. sl. 86 ára
gömul, þrotin að kröftum. Ég hafði
tafist af óviðráðanlegum ástæðum
og kom því seint til hennar um
kvöldið, þegar allir gestirnir vora
farnir.
Við sátum tvö ein í eldhúsinu og
spjölluðum saman og ég borðaði hjá
henni hangikjötið góða og fleira góð-
gæti. Þar var alltaf sama gestrisnin.
Það fór enginn svangur frá hennar
borði.
Um hálfum mánuði fyrir andlát
hennar veiktist hún af flensu og
læknir vildi að hún legðist inn á
sjúkrahús. Hún harðneitaði því og
sagðist eiginlega ekki vera nógu
hress til að leggjast inn á sjúkrahús.
Þar var henni rétt lýst.
Fanný var mótuð af hörðum skóla
lífsins og stundum gætti þess í af-
stöðu hennar og skoðunum, en undir
niðri sló viðkvæmt og gott hjarta og
eitt er víst, að þeir sem minna máttu
sín áttu skjól hjá henni.
Ég kveð Fannýju tengdamóður
mína með virðingu og þökk. Aldrei
frá því að ég, 18 ára unglingurinn,
kom inn á heimili hennar, sagði hún
við mig styggðaryrði, heldur sýndi
hún mér ávallt mikið traust og góð-
vild. Fyrir það þakka ég nú að leið-
arlokum og vil fyrir hönd okkar
Helgu og barnanna okkar, Bjarna,
Helga, Lindu og Sólveigar, biðja
BlónuMstofa
Friðjtnns
Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, sími 553 1099.
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um helgar.
Skreytingar fyrir öll tilefni.
Gjafavörur.
Guð að blessa hana í nýjum heim-
kynnum ljóss og friðar.
Bent Bjamason.
Fyrstu vikur nýbyrjaðs árs hafa
einkennst af óstöðugri veðráttu,
stórviðram og ófærð. Umferðar-
óhöpp era tíð og óvenjumargir hafa
látið lifið fyrir aldur fram af þess
völdum. Hekla byijaði meira að
segja að gjósa síðastliðinn laugar-
dag, 26. febrúar, eftir u.þ.b. 10 ára
hlé. Hver óvæntur viðburðurinn
rekur annan. Segja má að mannlífið
taki á sig hinar margbreytilegustu
myndir.
Aðumefndan laugardag fór ég
langan göngutúr niður í Fossvogs-
dal og gekk vestur í Nauthólsvík í
hæglætis og sólríku veðri. Ég var
einn með sjálfum mér, fylgdist með
mannlífinUj og hugsaði um lífið og
tilverana. I göngulok fannst mér ég
endilega þurfa að hta við hjá Fanný
tengdamóður minni vestur á Holts-
götu og sjá hvemig hún hefði það,
spjalla við hana og drekka með
henni úr svo sem einum kaffibolla.
Hlutur sem ég hef gert oft hin síðari
ár mér til ánægju og gleði.
Þegar vestur á Holtsgötuna kom
sá ég strax að nokkuð var af henni
dregið og átti hún í erfiðleikum með
að komast hjálparlaust um íbúðina
sína. Ég bauðst til þess að færa
henni eitthvað til hressingar, en hún
sagðist ekki hafa lyst á neinu og
sagðist fremur vilja liggja uppi í
rúmi og hvíla sig. Samt tók hún mér
fagnandi eins og venjulega.
Undanfarið ár reyndist tengda-
móður minni fremur erfitt bæði
líkamlega og andlega. Hún var kona
nokkuð við aldur, nýlega orðin 86
ára gömul, farin að kröftum en ákaf-
Iega skýr í hugsun og minnið að
mestu óbrigðult. Ekki vildi hún
leggjast inn á sjúkrahús til aðhlynn-
ingar, þótt henni stæði það ítrekað
til boða, sagðist vera of lasburða til
þess. Ég þykist nú fullviss að hún
hafi skynjað sinn vitjunartíma og
vitað að hverju stefndi. Heima vildi
hún vera þegar kallið kæmi.
Þrátt fyrir það að hún vildi búa
útaf fyrir sig og vera sjálfstæð
leiddist henni einveran á stundum,
því hún var ákaflega félagslynd og
glaðsinna að eðlisfari og bjó yfir
mikilli frásagnargleði, þegar sá gáll-
inn var á henni. Eftir að hafa dvalið
nokkra stund kemur Hanna Bergl-
ind dóttir mín og sest niður hjá
henni ásamt vinkonu sinni. Við það
hresstist gamla konan mikið því hún
hafði mikinn áhuga á að fylgjast
með málefnum yngri meðlima fjöl-
skyldunnar.
Ég kvaddi nú tengdamóður mína
til þess að hún gæti spjallað áfram
við ungu konurnar. Þetta var í síð-
asta skiptið sem ég sá hana á lífi, því
síðla þetta sama kvöld slitnaði lífs-
strengur hennar. Birna kona mín til-
kynnti mér andlát móður sinnar
nokkra áður en nýr dagur rann. Þó
ég hafi innst inni vitað að hveiju
drægi kom fréttin mér að nokkra í
opna skjöldu. Það er því með sökn-
uði sem ég sest niður og hripa þess-
ar línur á blað.
Öllu er ætlaður ákveðinn staður
og stund segir í helgri bók. Enginn
kemst hjá þvi að mæta örlögum sín-
um því öll eram við dauðlegar verar.
Þessar og fleiri hugsanir flögraðu í
hendingskasti í gegnum huga minn
meðan ég var að átta mig á þeirri
Formáli
minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upp-
lýsingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
böm, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram í
formálanum, sem er feitletrað-
ur, en ekki í greinunum sjálf-
um.
staðreynd að tengdamóðir mín hefði
kvatt fyrir fullt og allt.
Það mun hafa verið síðla árs 1973
að ég kynntist Bfrnu konu minni og
fljótlega upp úr því var mér boðið í
heimsókn á Holtsgötu 41 til Fannýj-
ar móður hennar. Ég var hálf óró-
legur í byrjun, því ég skynjaði vel
hvemig verðandi tengdamóðir mín
grandskoðaði mig í bak og fyrir.
Hún var ábyggilega glöggur mann-
þekkjari. Ég mun hafa staðist þetta
inntökupróf. Upp frá því ágerðust
heimsóknir mínar á Holtsgötuna og
alltaf var jafn vel tekið á móti mér af
hennar hálfu. Nú minnist ég margra
ánægjulegra samverustuhda á
heimili hennar og síðar á heimili
okkar hjóna. Hún var stöðugt að
gefa okkur tengdasonunum eitthvað
gott að borða, jafnvel þótt lystin
væri ekki alltaf í samræmi við að-
föngin. Ég held að óhætt sé að segja
að hún hafi staðið sem traustur
klettur á bak við fjölskyldur barna
sinna. Hún vildi ekki að þau lentu í
sömu erfiðleikum og hún hafði orðið
að ganga í gegnum í lífi sínu. Mikið
var skrafað og skeggrætt og kaffi
drakkið. Það var oft gestkvæmt á
heimili hennar. Tengdamóðir mín
naut sín ákaflega vel í hópi glað-
værra fjölskyldumeðlima og vina
sinna. Var þá hrókur alls fagnaðar.
Ég minnist margra skemmtilegra
og litríkra frásagna hennar og lei-
krænna tOburða. Oft fylgdu hlátra-
sköll í kjölfarið þegar rifjuð vora
upp skemmtileg atvik eða góðlátlegt
grín úr lífi fjölskyldunnar.
Eftir að aldurinn fór að færast yf-
ir mig og gráu háranum að fjölga
skynjaði ég betur að undir stundum
lokuðu yfirborði tengdamóður minn-
ar leyndist heildsteypt, sjálfstæð og
trúuð kona, sem hafði ákveðnar
skoðanir á mönnum og málefnum.
Hún talaði oft um upprana sinn
vestur í Ólafsvík og árin sín þar.
Avallt talaði hún með virðingu um
foreldra sína og vænt þótti henni um
systkini sín. Hún var vinnusöm og
útsjónarsöm þegar á móti blés og lét
ekki bugast þó ýmislegt væri henni
mótdrægt á yngri áram. Að sumu
leyti fór hún sínar eigin leiðir en
aldrei glataði hún trúnni á sjálfa sig.
Hún trúði á leiðsögn að ofan. Að
mörgu leyti má segja að hún hafi
verið okkur fyrirmynd fyrir atorku-
semi sína og dugnað. Bömunum
okkar Birnu var hún stóð og stytta,
hjálpsöm og góðviljuð. Samskiptin
þróuðust smám saman upp í vináttu
sem engan skugga bar á þó nokkur
aldursmunur hafi verið á mOli okk-
ar. Ég er þakklátur fyrir að hafa
fengið að kynnast þessari sómakonu
því hún auðgaði mig af reynslu
sinni. Ég vO að endingu þakka henni
samfylgdina fyrir mína hönd og fjöl-
skyldu minnar og um leið bið ég
henni blessunar almættisins.
Bogi Ingimarsson.
Það er laugardagskvöld, Hekla
byrjaði að gjósa fyrir sex tímum og
við Sólveig ó balli þegar við fengum
tilkynningu frá Holtsgötu um að
hún Fanný, tengdamóðir mín, hefði
verið að kveðja þessa jarðvist. Mig
setti hljóðan, en þetta kom ekki á
óvart. A örskotsstundu flaug gegn-
um hugann að þennan tíma hefði
hún Fanný valið, þegar ljúfir tónar
ljósvakans ómuðu, hún dansað með
bros á vör í huganum yfir móðuna
miklu þegar líkaminn neitaði að
fylgja á eftir.
Mín fyrstu kynni af Fanný voru á
fyrri hluta sjöunda áratugarins þeg-
ar ég og Sólveig, dóttir hennar, vor-
um að draga okkur saman. Þá bjó
Fanný í stóra húsi við Suðurlands-
braut sem fjölskyldan hafði byggt.
Þegar ég kem inn á heimilið er
Fanný orðin einstæð móðir, en hún
og maðurinn hennar höfðu slitið
samvistum nokkram áram áður.
Þetta vora erfiðir tímar hjá Fannýju
sem þurfti að vinna langan vinnudag
til að láta enda ná saman. Nokkra
síðar seldi hún húsið við Suður-
landsbraut og keypti litla íbúð við
Hringbraut sem hún flutti í með
tveimur börnum sínum. Nokkra eft-
ir 1970 selur Fanný íbúðina á Hring-
braut og kaupir stóra og bjarta íbúð
við Holtsgötu 41 og þar hafði hún
fallega sýn út á sæinn sem hún mat
mikils. Þar átti Fanný mörg góð ár.
+
Vinur okkar,
STEFÁN RAGNAR ÞORVALDSSON,
er lést á heimili sínu Kumbaravogi föstudaginn 25. febrúar, áður til heim-
ilis í Skipasundi 43, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu þriðjudaginn
7. mars kl. 13.30.
Unnur Þyri Guðlaugsdóttir,
Hörður Ragnarsson.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug
og vináttu sem okkur hefur verið sýnd við
andlát og útför elskulegrar móður minnar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
HREFNU SIGURÐARDÓTTUR,
Laugarnesvegi 37,
áður Höfðavegi 32,
Vestmannaeyjum.
Óskar Einarsson,
Inga Óskarsdóttir,
Hrefna Óskarsdóttir,
Ásta Jóna Óskarsdóttir, Manzo Nunes
og barnabarnabörn
Katla Magnúsdóttir,
Pétur Lúisson,
Páll Arnar Erlingsson,
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og vinarþel við andlát og
útför ástkærs föður og sonar,
JÓNS INGIBERGS SVERRISSONAR,
Aðalgötu 12,
Stykkishólmi.
Gíslí Kr. Jónsson,
Ólöf Guðbjörnsdóttir
og aðrir aðstandendur.