Morgunblaðið - 05.03.2000, Blaðsíða 58
58 SUNNUDAGUR 5. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Leikhópur í Hólmasefi sýnir Bláberjasultu með jaróarberjum
Stangarhyl 3A ■ 110 Reykjavik
Sími: 587 1919 & 567 8545
Fax: 587 0036 ■ www.terranova.is
%hÁ TERRA
Mnova
-Spennandi vaikostur-
Skin og skúrir í lífi
unglinganna
þekkjum þetta ástand ekki pers-
ónulega en maður hefur heyrt ýms-
ar sögur í skólanum í þessa átt.“
Er erfítt að vera unglingur í dag?
Elín: (Hlær) „Ég veit það eigin-
lega ekki.“
Anna: „Það skiptast náttúrlega á
skin og skúrir eins og gengur."
Finnst ykkur kannski stundum
eins og púkinn og engillinn séu að
takast á um ykkur eins og stelpuna
ógæfusöm u í leikritin u ?
Elín: „Já, kannski stundum.“
Anna: „Nei, ekki alveg en ég held
að það sé ósköp eðlilegt."
Haldið þið að leikritið gefí nokk-
uð rétta mynd af lífí sumra ungl-
inga?
augljóslega leiksýning í vændum í
Hólmaseli.
Eftir nokkra eftirgrennslan
komst blaðamaður að því að þarna
er á ferð leikhópur skipaður tíu
hörkuduglegum þrettán ára stelp-
um sem eru í þann mund að fara að
frumsýna leikrit, sem þær meira að
segja sömdu að hluta. Nú var blaða-
maður orðin það forvitinn að hann
varð bara að fá að vita meira. Því
greip hann glóðvolgar tvær úr
hópnum, þær Elínu Aslaugu Orm-
slev og Onnu Hansen.
Sömdu þið Biáberjasultu með
jarðarberjum alveg sjálfar?
Anna: „Nei, þetta var samið og
flutt fyrst af Leikfélagi Keflavíkur
en þá hét það: Erum við á réttu
róii?“
Elín: „Við erum síðan búnar að
breyta því aðeins og aðlaga okkar
skoðunum. Auk þess sem við gáfum
því nýtt og meira grípandi nafn sem
við völdum bara út í loftið.“
Eruð þið búnar að vera lengi að
semja og undirbúa sýninguna?
Elín: „Við byrjuðum á því rétt
eftir áramót og undirbúningurinn
hefur gengið vonum framar.“
Um hvað er svo leikritið?
Anna: „Það fjallar um stelpu sem
fær enga athygli heima fyrir því
foreldrar hennar gefa sér engan
tíma til að sinna henni.“
Elín: „Hún hefur þurft að lifa við
þenna athyglisskort síðan hún var
barn þannig að þegar hún verður
unglingur leiðist hún út í rugl.“
Anna: „Hún lendir þá í slæmum
félagsskap og fer að fíkta við áfengi
og eiturlyf. Púkinn og engillinn
hennar eru því stöðugt að bítast um
hvor hafi meiri áhrif á hana og þær
ákvarðanir sem hún tekur í lífinu."
Elx'n: „Leikritið fjallar þannig á
gamansaman hátt um vandræði
unglingsáranna."
Er þetta saga sem þið þekkið úr
umhverfínu í kringum ykkur?
Anna: „Við stelpurnar í leikritinu
Beint flug til
Þrándheims
£ íNoregi
iSLAmmie
Flugverð
23.900,
Ef greitt er fyrir 31. mars
Afsláttur fyrir böm kr. 4.000
Nú býöst einstakt tækifæri á að fljúga beint tii ÞRÁNDHEIMS.
Vikuferð frá 23.-30.júní.
Dagflug, brottför frá Keflavík kl. 09:00
Komið til baka 30.júní kl.15:00.
Góð kjör fyrir hópa
Flogið verður með glæsilegri Boeing-þotu íslandsflugs.
Aukagjöld: Flugvallargjöld kr.4.500 bætast við.
Þú getur fengið sumarbækling TERRA N0VA í verslunum
Nóatúns, Netto Akureyri og www.terranova.is.
- TERRA N0VA - áður Ferðamiðstöð Austurlands
Morgunblaðið/Ásdís
Leikarahópurinn sem stendur að Bláberjasultu með jarðarberjum.
Elín: „Já, ég held að það séu ör-
ugglega einhverjir krakkar þarna
úti sem eiga við sama vanda að
glíma og stelpan í leikritinu.“
Hvaða lærdóm mega foreldrar
draga af þessari sýningu?
Anna: „Að taka eftir börnum sín-
um og hlusta á þau.“
Elín: „Líta ekki svo á að vanda-
málin eigi sér einungis stað annars
staðar.“
Anna: „Mamma stelpunnar í
leikritinu er t.d. alltaf að hneykslast
á öðrum foreldrum en sér síðan
ekki sjálf hvað hún gerir rangt.“
Hvað með unglingana sem sjá
verkið, hvaða skilaboð eru til
þeirra?
Elín: „Að þau eigi að vera nógu
sterk til að geta sagt nei við áfengi
og eiturlyfjum."
Anna: „Leikritið sýnir vel hvað
er ömurlegt að lenda í þessu dóp-
rugli og við fáum að sjá hversu illa
stelpunni líður. Þetta er líka svo
tímabundin og tilgangslaus gleði.“
Eru þið ekkert hræddar um að
krökkunum fínnist þið bara að
predika yfír sér?
Anna: „Það getur verið að sumir
líti á þetta þannig. Gelgjan fer mis-
jafnlega í krakka.“
Þið látiðþað ekkert á ykkur fá?
Elín: „Nei, nei. Þetta er svo gam-
an.“
Það er greinilega líf og fjör hér í
Hólmaseii?
Anna: „Já, það er alltaf fullt að
gera; böll og skemmtanir.“
Eru krakkarnir alltaf að gera
eitthvað uppbyggiiegt og skemmti-
legt hérna?
Anna: „Stundum en það mætti nú
vera meira um það.“
JEtlið þið stelpurnar að gera eitt-
hvað meira eftir þetta leikrit?
Elín: „Já, okkur langar það allar
mjög mikið.“
Anna: „Við erum samrýndur hóp-
ur, allar saman í skóla og góðar vin-
konur.“
Má segja að í sýningunni séu því
tíu upprennandi leikkonur, sem á
eftir að kveða meira að í framtíð-
inni?
Anna og Elín: (Einróma) „Já!“
Anna: „Við höfum allar mjög
mikinn áhuga á leiklist og langar að
halda áfram að leika.“
Þetta er því aðeins fyrsta leikara-
viðtalið við ykkur af mörgum sem
eftir eiga að fylgja í komandi tíð?
Anna og Elín: (Einróma) „Já!“
UNGA fólkið liggur ósjaldan undir
því ámæli að það sé ekki nógu fram-
taksamt og stundi ekki nægilega
uppbyggilega iðju í frístundum.
Þegar litið er inn í félagsmiðstöðina
s&íólmasel í Breiðholti er erfitt að
sjá hvaða fótur er fyrir slíkum böl-
móði því þar iðar allt af lífi og leik.
Þegar komið er inn í danssalinn
er greinilegt að eitthvað mikið er á
seyði. Tíu eldhressar og uppspennt-
ar stelpur æða um gólfið og eru í
óða önn að klæða sig í skrautlega
búninga og farða hvor aðra. Það er
Sjávarréttadagar
1.-12. mars
Sjávarréttadagar Perlunnar hafa slegið í gegn og hefur
þvi verið ákveðið að framlengja þeim til 12. mars.
Við komum þér á óvart með einstaklega girnilegu og
gómsætu sjávarréttahlaðborði.
Matreiðslumeistararnir Sarino Damiano og Franco
Mentesana frá Sikiley hafa glatt gesti Perlunnar með
sérlega Ijúffengum sjávarréttum en þeir hafa sérhæft
sig í því að matreiða ferskan fisk á einfaldan og
náttúrulegan hátt á Miðjarðarhafsmáta.
Matreiðslumenn Perlunnar hafa nú tileinkað sér hina
einstöku matargerð þeirra og verður því
Sjávarréttadögunum framlengt.
Með matnum verður að sjálfsögðu boðið upp á ítölsk
eðalvín.