Morgunblaðið - 05.03.2000, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.03.2000, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 5. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR ■ KLAUS Agenthaler, fyrrverandi heimsmeistari og aðstoðarþjálfari hjá Bayern og nú síðast þjálfari Gras í Austurríki, hefur tekið við þjálfun l.FC Niirnberg nú þegar. Augenthaler leysti upp samning sinn við Gras og mun hann stjórna leik Niirnberg um helgina. ■ MÖRG lið í Þýskalandi höfðu reynt að fá Augenthaler til sín en hann ekki verið til viðræðu fyrr en nú. Hann mun gera tveggja ára samning við liðið, til ársins 2002. Mikil umræða hefur verið í Þýska- landi um leik Bayern Miinchen og Real Madrid. Þjóðverjar halda ekki vatni af ánægju með sína menn og lofa liðið í hástert. Loksins er komið fram al- vöru þýskt lið, sem skákar þeim bestu í heimi. Frans Beckenbauer, forseti Bayern, segir að um hreina knattspymusýningu hafi verið að ræða sérstaklega í fyrri hálfleik, og að leikaðferð þjálfarans Ottmar Hitzfejd hafí verið fullkomin. ■ BLÖDIN í Þýskalandi ræða einnig mikið um frammistöðu vandræðagemlingsins Stefan Ef- fenberg og mörg blöð vilja að hann komi aftur í landsliðið. Þó eru margir sem vilja ekki sjá þennan erfiða leikmann og Bild biður hann í guðs bænum að fara heldur í frí á þeim tíma sem lands- liðið leikur í Hollandi. „Það er nóg komið af Stefan Effenberg," segir blaðið. ■ BERND Krauss, þjálfari Dort- mund, var æfur af bræði yfir getu- leysi sinna manna gegn tyrkneska liðinu Galatasary í Evrópukeppn- inni á fimmtudagskvöld. Hann sagði liðið vera eins og lélegt skóla- lið. ■ EKKI bætti úr skák fyrir Dort- mund að um 35.000 Tyrkir voru á heimavelli liðsins og yfirgnæfðu hina 25.000 heimamenn sem voru reyndar búnir að yfirgefa leikvan- ginn áður en leiknum lauk, 0:2. ■ ELSTI maður vallarins, Georg Hagi, fór á kostum með Galatasary og lék vamarmenn Dortmund sundur og saman. Tyrkimir héldu svo mikla hátið eftir leikinn og fylltust götur Dortmund af Tyrkj- um enda ekki mikil vinátta milli hinna fjölmörgu Tyrkja sem búa í Þýskalandi og Þjóðveija. ■ ÞÝSKA skattalögreglan gerði mikla rassíu hjá þýska stórliðinu Hamburger. Meðal annars var gerð húsleit heima hjá Uwe Seeler sem áður var forseti félagsins. Tal- ið er að félagið hafi stundað skatt- svik á árum áður vegna félaga- skipta nokkurra leikmanna og nú lét skatturinn til skarar skríða. Það er ekki tekið neinum vettlingatök- um á skattsvikum í Þýskalandi og sannist slíkt á liðið verður um gíf- urlegar sektarfjárhæðir að ræða. ■ NOKKRIR foreldrar unglinga sem æfa hjá Duisburg hafa kært einn unglingaþjálfara liðsins - Uwe Schubert heitir þjálfarinn, og er hann sakaður um að hafa kúgað fé út úr unglingunum þannig að að- eins þeir sem borguðu þjálfaranum fé fengu að leika. Mikill slagur er meðal unglinga sem æfa í elsta unglingaflokki að vekja á sér at- hygli svo hinir stóru geri þeim til- boð. Þetta á sem sagt þjálfarinn að hafa nýtt sér í mörg ár og haft af því miklar tekjur. ■ ANDREAS Möller, leikmaður Dortmund, er með lausan samning eftirt þetta tímabil. Dortmund hef- ur lýst yfir að félagið vilji semja við Möller áfram, en Möller segir að liðið hafi sýnt sér dóna- skap og varla rætt við sig, hvað þá gert sér beint tilboð. ■ BILD greinir frá því að Rainer Calmund, framkvæmdastjóri Leverkusen, hafi gert Möller stór- tilboð og er ekki talið ólíklegt að Andreas Möller muni leysa Emer- son af hólmi á miðju Leverkusen- liðsins. Kristinn Björnsson skíðamaður segist vera bjartsýnn eftir misjafnt gengi „ÉG er að skíða betur en í fyrra og er öruggari með mig en áð- ur,“ segir Kristinn Björnsson, skíðamaður úr Leiftri og kepp- andi í heimsbikarnum í svigi, aðspurður um stöðu í heimsbik- arkeppninni í svigi í vetur. Held- ur hefur hallað undan fæti hjá Kristni upp á síðkastið eftir að hafa gengið vel á fyrri hluta keppnistímabilsins. Hann hefur aðeins skilað sér niður í báðum ferðum í einu móti af síðustu fimm Þrátt fyrir ákveðið mótlæti er ég öruggari en áður. Nú hef ég komist í gegnum fyrri ferð á sex mót- um, en aðeins á þremur í fyrra. Eins IvarBene- er Þeknin betri en diktsson áður þannig að ég er bjartsýnn, en auðvit- að þykir mér leitt að ná ekki að kom- ast í gegnum fleiri mót en raun ber vitni um. Til dæmis á mótinu í Suður- Kóreu. Þá leið mér vel, æfingar voru góðar og eins fann ég mig vel í upp- hitun, brautin var hörð og góð þann- ig að ég var afar óánægður með sjálf- an mig þegar ég féll úr keppni.“ Af mótum frá áramótum Kristinn segist vera ánægðastur með frammistöðu sína í Camonix í Frakklandi og þokkalega sáttur við sinn hlut í Wengen þótt hann hafi ekki náð að ljúka keppni í síðari ferð. „Síðan veiktist ég fyrir mótið í Kitzbiihel og lá veikur í viku og það hafði veruleg áhrif á þrekið með þeim afleiðingum að ég var svo gott sem í einn mánuð að ná mér á strik aftur. Ég var orðinn hress og sterkur þegar kom að mótinu í Yongpyong og því var útkoman þar vonbrigði." Gott samstarf við Svía Tvö mót eru eftir í svigkeppni heimsbikarsins og sagðist Kristinn vera bjartsýnn á þau. Næst verður keppt að kvöldlagi í Schladming í Austurríki á fimmtudag og loks í Bormio á Ítalíu hinn nítjánda. „Ég horfi björtum augum fram á veginn því ég finn að ég er betri en í fyrra þrátt fyrir að ég hafi verið að falla úr keppni. í fyrra var ég að skíða illa og það hafði slæm áhrif á mig.“ Reuters Kristinn Björnsson keyrir hér á fullri ferð I Kranjskagora í vetur. Samstarfið við sænska skíða- landsliðið hefur gengið vel á keppn- istímabilinu, að sögn Kristins, og mun betur en í fyrra. Einkum kemur það til að nú eru menn farnir að þekkja hver annan betur. „Það hefur hjálpað mér mikið. Auk þess eru Svíarnir komnir með nýjan þjálfara og hann og Haukur Bjarnason, þjálf- ari minn, ná vel saman og bera sam- an bækur sínar. Þá hafa orðið íram- farir hjá Svíunum sem verða til þess að að ég fæ meiri keppni og um leið meira út úr æfingum. Ég vona að framhald verði á samstarfi okkar við sænska liðið, það hefur komið vel út.“ Kristinn kom til landsins á mið- vikudaginn og dvelur hér í nokkra daga, en hann segist ekki hafa verið hér á landi síðan í júní í fyrra. Hefur hann m.a. farið norður í Olafsfjörð til þess að hitta ættingja, vini og stuðn- ingsmenn sína og síðast en ekki síst unga skíðamenn í heimabænum. Segir Kristinn það veita sér mikinn styrk að finna þann stuðning sem hann hefur orðið var við. „Ég geri mér grein fyrir að vel er fylgst með mér hér heima og að það eru beinar útsendingar frá heimsbik- arnum. Það íþyngir mér ekki og mér hefur betur og betur tekist að létta þeirri „pressu“ af mér og reyna að nota hana frekar á jákvæðan hátt þannig að athyglin og áhuginn sem er fyrir mér verkar hvetjandi á mig, fremur en hitt. Mér þykir gott að finna íyrir stuðningnum og vera um leið óhræddur við að gera mistök og læra af þeim í stað þess að láta þau vinna gegn mér.“ Keppir í Skálafelli Kristinn segist síður en svo vera af baki dottinn og hann ætli sér óhikað að vera með í keppni þeirra bestu áfram. „Það tekur sinn tíma að kom- ast í gang, öðlast reynslu og ná í hóp þeirra allra bestu. Eins og er horfi ég til Ólympíuleikana í Salt Lake City eftir tvö ár, en þótt ég geri áætlanir til þess tíma eru þeir leikar alls ekki hugsaðir sem einhver endapunktur á mínum ferli síður en svo.“ Að heimsbikarkeppninni lokinni kemur Kristinn til íslands og keppir á nokkrum alþjóðlegum mótum sem fyrirhuguð eru hér á landi í lok þessa mánaðar og í byijun apríl auk þess sem hann verður að vanda með á skíðalandsmótinu sem að þessu sinni fer fram í Skálafelli. „Eftir Landsmótið hefur mér ver- ið boðið á árlegt mót í samhliðasvigi sem Norðmaðurinn, Finn Christian Jagge, stendur fyrir og er til stuðn- ings krabbameinssjúkum börnum í Noregi. Þetta er annað árið í röð sem mér er boðið að vera mér. Það er skemmtilegt mót þar sem flestir þeir bestu eru með. Síðan fer maður að huga að næsta keppnistímabili," seg- ir Kristinn Björnsson, skíðamaður úr Leiftri. Betri en ífyrra Slær Vala Evrópumet? STÓRMÓT ÍR í frjálsum íþróttum fer fram í fjórða sinn í Laugar- dalshöll kl. 20 í kvöld og að venju verður mótið stjörnum prýtt. Allir helstu frjálsíþróttamenn landsins taka þátt, auk þess sem fjölmargir erlendir keppendur verða á mótinu, þar á meðal bæði gull- og silfurverðlaunahafi á Evrópumeistaramótinu innanhúss, sem fram fór í Gent í Belgíu um síðustu helgi. Ivar Benediktsson skrifar fær verðuga meistaranum Flestra augu munu beinast að stangarstökki enda mætir þar til leiks einvala lið stangarstökkvara eins og ævinlega á íyrri mótum. ís- lands- og Norður- landamethafinn Vala Flosadóttir, ÍR, •keppni frá Evröpu- Pavla Hamackovu, Tékklandi og löndu hennar Danielu Bartovu sem kemur til Stórmótsins í þriðjasinn. Vala er greinilega í framúr- skarandi æfingu um þessar mundir. Hún- hefur sjaldan stokkið jafn vel og í vétur og er enn að bæta sig. Vala undirstrikaði með því að stökkva 4,40 metra á móti í Landau í Þýska- landi á fóstudagskvöldið að hún er til alls líkleg. Þá var hún hársbreidd frá því að bæta Norðurlandamet sitt þegar gerði þrjár tilraunir við 4,50 m. Heitið hefur verið á Völu að bæti hún Evrópumetið muni hún aka frá LaugardaJshöllinni á nýrri bifreið. Evrópumetið er 4,56 m og verður fróðlegt að fylgjast með því hvort hún kemur til með að ógna metinu. Pavla Hamackova hefur tekið stórstígum framförum á fáeinum misserum og á Evrópumótinu um síðustu helgi kom það berlega í ljós. Hún hefur hæst stokkið 4,43 m inn- anhúss og hefur væntanlega epgan hug á að gefa eftir að ..þessu sinni þótt hún hafi mátt sjá á eftir sigur- laununum tíl Völu í Landau á föstu- dag. Hamackova er nú í fjórða sætí heimlistans. Daniela Bartova hefur verið í fremstu röð í stangarstökki síðan það varð almenn keppnisgrein í kvennaflokki fýrir fáeinum árum. Hún hefur bæði sett heims- og Evrópumet á ferli sínum og varð silfurverðlaunahafí á EM innanhúss 1998. Bartova hefur hæst stokkið 4,51 m innanhúss en 4,40 m í vetur og hún stökk 4,30 m á mótinu í Lind- au á föstudag. Það er því ljóst, að Vala, Hama- ckova og Bartova hafa um þessar mundir allar burði tíl þess að stökkva hátt í Laugardalshöllinni í kvöld. íslandsmet í hástökki? Islandsmethafinn í hástökki karla, Einar Karl Hjartarson fær verðuga samkeppni. Irski methaf- inn, Brendan Reilly, mætir til leiks en hann hefur hæst stokkið 2,32 m innanhúss þótt hann hafi aðeins far- ið yfir2,25 m á yfirstandandi keppn- istímabili, en það er einum sentím- etra hærra en Islandsmetíð. Hann komst í úrslit á EM á dögunum, en ætíaði sér uin of og kojnst ekki í bar- áttu um verðlauri: Kristján Olsson frá Svíþjóð er Evrópumeistari unglinga í hástökki og þrístökld. Hann er einn efnileg- asti hástökkvari Evrópu og jafnaldri Einars og hefur stokkið hæst 2,22 m innanhúss. Finninn Mikka Polku ætti einnig að geta haldið Einari Karli við efnið. Finninn hefur hæst stokkið yfir 2,27 m en 2,21 m á þessum vetri. Fimmtí keppandinn í hástökkinu er Þjóð- verjinn Roman Fricke. Hann hafn- aði í fjórða sæti á þýska meistara- mótínu á dögunum, er hann lyfti sér yfir 2,20 m. Jón Arnar gegn Sebrle Annað árið í röð mætir Tékkinn Roman Sebrle til leiks á Stórmóti ÍR. Hann reið ekki feitum hestí frá viðureign sinn við Jón Amar Magn- ússon, Tindastóli, í þríþrautinni á sl. ári og ætlar sér eflaust að ná fram hefndum nú, enda silfurverðlauna- hafi í sjöþraut á EM. Jón hefur æv- inlega unnið þríþrautina á Stórmót- inu og vill halda því áfram. Þótt lítilsháttar bakkvilli hafi plagað hann á EM er ekkert því til fyrir- stöðu, að Jón sýni sínar bestu hliðar í þríþrautinni, en þar er keppt í 50 m grindahlaupi, kúluvarpi og lang- stökki. Auk Jóns og Sebrle mæta OÍ- afur Guðmundsson, Svíinn Michael Hoffer og Norðmaðurinn Tom Erik Olsson til leiks. Guðrún í góðri æfingu Guðrún Arnardóttir, Armanni, setti tvö íslandsmet á EM í Gent um sl. helgi, í 60 m grindahlaupi og 400 m hlaupi og er greinilega í góðri æf- ingu. Á Stórmótinu í fyrra bætti hún hálfs annars áratugsgamalt Islan- dsmet Helgu Halldórsdóttur í 50 m grindahlaupi og gerir eflaust tilraun til að bæta eigið met að þessu sinni, enda fær hún verðuga keppni frá Susanna Kallur, Svíþjóð. Kallur er fremsti 60 m grindahlaupari Svía um þessar mundir og varð í sjötta sæti á EM innanhúss í greininni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.