Morgunblaðið - 05.03.2000, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. MARS 2000 11
stofnun myndi vilja koma að slíkri
rannsókn með fiskifræðingunum og
það kom fram að þeir Sigurður og
Þórólfur eru sjálfir og óumbeðnir að
reyna að öngla saman styrlgum til að
standa straum af rannsóknunum.
Þeir segja að þeir vildu gjarnan að
hlutirnir væru þannig að þeir væru
beðnir um að annast slíka rannsókn
og að fjármagnið væri tryggt, en eins
og haldið væri á málum væri það
nánast unnið í frístundum þeirra að
reyna að fjármagna slíka rannsókn.
„Það þarf að hreinsa ósasvæðið
upp og finna út hvað laxinn er lengi á
því svæði, á því er ekki nokkur vafi.
Veiði hefur mjög dregist saman í án-
um síðustu árin og það er erfitt að
átta sig á því hvaða þættir það eru
sem vega þyngst. Margir þættir geta
spilað saman. Heimtur hafa verið
mun lélegri en áður síðustu sumur og
þar sem svipaða sveiflu er ekki að
finna í öðrum ám í nágrenni Reykja-
víkur, t.d. Ulfarsá, Leirvogsá og
Laxá í Kjós, minnka líkumar á því að
slæmt ástand í hafinu valdi því laxa-
stofni ánna hafi hnignað. Þá er það
ástandið í ánni sjálfri, fara göngu-
seiðin verr undirbúin til hafs úr þess-
ari á en öðrum og hvers vegna? Ým-
islegt bendir til að það sé áin sjálf eða
ósinn, eða bæði. Aðrir þættir geta
síðan spilað inn í, kýlaveikin sem
kom fyrst upp 1995 gæti leikið hlut-
verk óg við vitum ekki nema að laxa-
stofninn hafi einnig orðið íyrir erfða-
fræðilegu áfalli. Við getum þannig
byrjað á því að draga svona verndun-
arstrik við ósinn, sagt hér er stopp og
við byrjum að vinna til baka, t.d. með
því að finna út hvort seiðin eða full-
orðni laxinn verði fyrir fjörtjóni í
ósnum. Þegar vitneskjan liggur fyrir
er hægt að grípa til aðgerða."
Er ekki kostnaður alltaf líklegur
til að koma í veg fyrir að bætt verði
úr þvísem aflaga hefur farið?
„Náttúru- og umhverfisvernd
verður væntanlega alltaf einhvers
konar þymir í augum þeirra sem
halda um budduna. Þá greinir á við
hina um hvað sé nauðsynlegt og hvað
ekki. Þetta er eilífðarvandamál, en
allir virðast þó sammála um að reyna
að bjarga Elliðaánum," segja þeir
félagar.
Hvað með Korpu?
Lengi hefur mest verið talað um
Elliðaámar, „Perlu Reykjavíkur“ og
hversu merkilegt það sé að gjöful
laxveiðiá renni innan borgarmark-
anna. Og seinni árin nánast í miðri
borginni. Raunin er hins vegar sú, að
laxveiðiár Reykjavíkur em tvær en
ekki ein. Úlfarsá, eða Korpa eins og
hún er gjaman kölluð manna í mill-
um. Korpa litla er með merkilegustu
laxveiðiám landsins og óvenjugjöful
miðað við smæð hennar. Langt er
síðan það fór að þrengja verulega að
henni og vart hafa farið framhjá
nokkmm manni umræður um gatna-
málagjöld og lóðaútboð í nýju hverfi
á Grafarholti. Þar mun sum sé rísa
íbúðabyggð sem teygir sig langleið-
ina niður á Korpubakka með tilheyr-
andi frárennsli af götum. Mosfells-
bær á eitthvað land norðan að Korpu
og það land verður nýtt í náinni
framtíð, m.a. undir iðnaðarhverfi.
Þeir Sigurður og Þórólfur em þvi
ekki þeir einu sem sjá fyrir sér að
farið gæti fyrir Korpu eins og Elliða-
ánum. Þó sé ekki of seint að bregðast
við og koma í veg fyrir slíkt slys, en
þá verði að hafa hraðann á og nýta
reynsluna af Elliðaánum.
„Þarna er nýtt hverfi í vændum, en
það er til marks um breyttan þanka-
gang að það ber nú á tilraunum til að
stemma stigu við mengun. Þannig er
gert ráð fyrir svokölluðum settjöm-
um sem frárennslisvatn af götum
verður leitt út í. I tjömunum verða
dúkar og möl sem munu sía eiturefn-
in út vatninu áður en það rennur út í
ána. Þetta er sænsk aðferð sem ekki
hefur verið reynd hér á landi áður og
þótt við vitum ekki hvemig hún muni
koma út hér á landi þá er þetta til
marks um nýja hugsun. Það er bæði
gleðilegt og lofsvert. Menn gætu
haldið að það væri vont fyrir ána að
fá vatnið, jafnvel þótt búið sé að sía
mikið af eitrinu úr, en áin er vatnslitil
og þarf að fá vatnið. Nú þegar er
mikill hluti árvatnsins tekinn við
stíflu Aburðarverksmiðjunnar fyrir
neðan Vesturlandsveg og notað sem
kælivatn fyrir verksmiðjuna. Það er
síðan leitt til sjávar í lögn. Ain tapar
á þennan hátt miklu af vatni sínu og
ber þess merki neðan stíflu, hún er
þar afar vatnsh'til, svo mjög að í
þurrkum á laxinn mjög erfitt með að
ganga í ána úr sjónum," segja þeir
Þórólfur og Sigurður.
Um þetta atriði og önnur varðandi
stöðu Korpu gagnvart vaxandi byggð
segir Friðþjófur Ámason fiskifræð-
ingur, sem unnið hejur skýrslu um
búsvæði laxfiska í Úlfarsá (Korpu)
fyrir Borgarverkfræðing, eftirfar-
andi:
„Helsta röskunin sem orðið hefur
á vatnasviði Úlfarsár til þessa er
vatnstaka áburðarverksmiðjunnar
með tilheyrandi mannvirkjum. Þó
nokkur rýrnun varð á laxveiðinni í
kjölfar byggingar stíflu áburðar-
verksmiðjunnar. Vatnstaka hennai-
hafði áhrif á seiðabúskap vegna tap-
aðra uppeldissvæða í kjölfar aukinna
sveiflna í vatnsmagni fyrir neðan
stíflu og tilfærslu á veiði frá einum
veiðistað til annars. Með aukinni
byggð í nágrenni árinnar er vissu-
lega hætta á að frekari neiðkvæðra
áhrifa gæti. Sérstaða árinnar miðað
við margar aðrar laxveiðiár er
hversu lítið vatnasviðið er og þar af
leiðandi lítið rennsli. Fyrir vikið er
áin viðkvæmari fyrir hvorutveggja,
mengandi efnum vegna afrennslis
frá íbúðabyggð og minnkandi rennsli
ef rigningarvatni er veitt burt frá
ánni. Til að halda vatnsmagni árinn-
ar í sem upprunalegustu horfi er því
mikilvægt að veita sem mestu af
rigningarvatni svæðisins aftur til ár-
innar en samhliða því að gæta þess
vel að öli mengun sé í lágmariri ann-
aðhvort með því að hreinsa vatnið af
mengunarefnum á leiðinni eða veita
því vatni sem mest hætta er á að sé
mengað, t.d. affalli af götum, beina
leið til sjávar.“
Síðar bætir Friðþjófur við þetta
eftirfarandi orðum: „Miklar fram-
kvæmdir eru hafnar vegna fyrirhug-
aðrar íbúðabyggðar í norðurhlíðum
Grafarholtsins og vafalaust eiga þær
eftir að aukast á komandi árum. Mik-
Uvægt er að gera sér grein fyrir
heUdaráhrifum allra framkvæmd-
anna því þó einstakar framkvæmdir
hafi ekki teljandi áhrif á vistkerfi
Úlfarsár geta samanlögð áhrif
margra slíkra framkvæmda haft
óbætanlega röskun í för með sér.
Mikilvægt er að draga lærdóm af
þeim rannsóknum sem gerðar hafa
verið í Elliðaánum og nýta þær í
þágu Úlfarsár í framtíðinni."
Hundrað skurðir
Þeir félagar segja, að ástæða sé til
að hafa áhyggjur af gangi mála við
Korpu, því dæmið sé fullkomlega
sambærilegt því sem menn þekkja
við EHiðaámar að því leyti að landið
beggja vegna árinnar muni verða
jafnmikið notað, áin sé enn viðkvæm-
ari heldur en EUiðaámar, ekki síst
vegna þess að byggðin við Korpu sé
og verði öU á vatnasviðinu sjálíu, en
ekki í jöðmnum eins og við EUiða-
ámar. Þá sé alltaf erfiðara um vik
þegar tveir þurfi að taka ákvarðan-
irnar, í þessu tilviki Reykjavík og
Mosfellsbær. Þá séu fleiri hagsmunir
þama á ferðinni, m.a. svínabú,
gróðrastöð og fleira.
„Það þarf að gefa orðum Friðþjófs
gaum þegar hann talar um að mikil-
vægt sé að gera sér grein fyrir heild-
aráhrifum allra framkvæmdanna.
Það er einmitt umhverfismat sem
þama þarf að gera. Okkur skUst að
slíkt sé ekki á döfinni og kemur það
okkur og fleiram spánskt fyrir sjónir
að heil íbúðarbyggð í nábýU við við-
kvæmt náttúrafar sé ekki sett í um-
hverfismat á sama tíma og vegspotti
með brú uppi við Hafravatn þarf í
mat. Við þurftum að gefa umsögn
vegna umhverfismats vegna bygg-
ingar Gullinbrúar, en tvö stór hverfi í
Grafarvogi og nú það þriðja á Grafar-
holti þurfa ekki slíkt mat. Svona
ósamræmi getur ekki verið af hinu
góða. Við getum tekið sem dæmi
settjamirnar. Reynslan kann að
leiða í Jjós að þær muni skila vatninu í
viðunandi ástandi tU árinnar, þ.e.a.s.
undir mengunarmörkum. En svo
stækkar byggðin og fleiri tjarnir
bætast við. Þá vita menn ekkert
nema að samanlögð áhrif tjarnanna
verði banvæn fyrir lífríki áiinnar.
Þetta er vandinn í hnotskurn. Við er-
um að berjast við eitt vandamál í
einu. Við eram kannski spurðir um
einn skurð og hvað eigum við að
segja? Einn skurður, jú það getur
ekki skaðað. En svo era skurðirnir
orðnir hundrað," segja þeir Sigurður
Guðjónsson og Þórólfur Antonsson.
Kynningarmiðstöð Evrópurannsókna
IMámsstefna um fimmtu rammaáætlun
Evrópusambandins
Mánudaginn 13. mars n.k. kl. 10:00 -17:00 í Háskóla íslands, Tæknigarði, Dunhaga 5
Námsstefna um gerð umsókna og fjármögnun rannsókna- og tækniþróunarverkefha úr rannsóknarsjóðum
Evrópusambandsins, ásamt yfirliti yfir rekstur og þátttöku í slíkum verkefhum.
Námsstefnan er ætluð þeim sem eru að huga að umsóknum á næstunni og er sambærilegt námsstefnu
sem haldin var í september á síðasta ári. Fjallað verður almennt um skilyrði umsókna og hvemig gerð
þeirra skuli háttað. Rætt verður um samningagerð vegna verkefna og þann lagagrunn sem þau byggja
á, auk þess sem mismunandi samningsform verða skoðuð. Einnig verða tekin fyrir helstu atriði sem huga
þarf að í rekstri sUkra fjölþjóðaverkefna og hvaða kröfur em gerðar til þeirra af hálfu Evrópusambandsins.
• Fyrirlesari verður Óskar Einarsson,
sérfrceðingur hjá DG Information Society hjá ESB
Helstu efnisþættir til umræðu og kynningar:
t Stutt umfjöllun um 5. rammaáætlun Evrópusambandsins
© Ferill umsókna og mat þeirra
• Gerð umsókna og uppbygging
© Mikilvœg atriði sem þörf er að huga að í undirbúningi umsókna
• Val umsókna
@ Samningur um verkefni og rekstur þeirra
Umsóknarferli em óháð fagsviðum, þannig að allir sem hafa hug á að sækja um
í rannsóknarsjóði Evrópusambandsins geta haft gagn af umfjöUuninni. Hins vegar
mun „Upplýsingaþjóðfélagið" (IST -Information Sociefy Technologies) verða
notað sem dæmi, þegar þörf er á ákveðnum tilvísunum.
Rannsóknaþjónusta
• Námsstefhan er öllum opin sem em að huga að umsóknum í fimmtu rammaáætlun
Evrópusambandsins en fjöldi þátttakenda verður takmarkaður við 25 manns.
© Þátttökugjald er 1.500 kr., innifalið í þátttökugjaldi er léttur hádegisverður.
Tekið er á móti skráningum hjá Rannsóknaþjónustu Háskóla íslands í síma 525
4900 og er skráningarfrestur tíl 9.mars. Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Bergmann
Einarsson; netfang: ee@rthj.hi.is
Tæknigarði, Dunhaga 5, 107 Rvk., sími 525 4900, fax 552 8801, netfang rthj@hi.is, vefsíða www.rthj.hi.is
Ferðakynning
Heimsferða
og góugleði
H
Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni
verður haldin í Ásgarði, Glæsibæ,
föstudaginn 10. mars nk.
Hiisið opnað kl. 18:00 — Borðhald hefst kl. 19:00
Skemmtunin sett:
Veislustjóri;
Skemmtiatriði;
Heimsferðir:
Ólafur Ólafison fbrmaður FEB.
Sigurður Guðmundsson
fararstjóri Heimsferða.
Kvennakórinn Glæður syngja
undir stjórn Sigurbjargar Hóhngrímsdóttur.
Skopsögur: Amljótur Sigurjónsson les.
Iþróttavika: 6 mín. söngleikur sem
konur úr Snúði og Snældu flytja.
Kynning á sólarlandaferðum.
Kanaríkvartettinn syngur og leikur.
Sigurbjörg Hólmgrimsdóttir sér um „dinnertónlist“
og Sigurður Guðmundsson um fjöldasöng.
Matseðill:
Forréttur: Humarsúpa.
Aðalréttur: Lamba „prime“-steik með
(ylltum bökuðum kartöflum.
Eftirréttur: Kaffl og konfekt.
Hljómsveit Hjördísar Geirs leikur fyrir dansi.
Allir eldri borgarar velkomnir. Aðgangseyrir aðeins kr. 2.900.
— Aðgöngumiði gildir sem happdrættismiði — vinningar: innanlandsdagsferð á vegum FEB í
sumar, og á vegum Heimsferða, ferð til London og aðalvinningur: SOLARLANDAFERÐ.
Upplýsingar og skráning á skrifstofu FEB Reykjavík, sími: 588-2111
^PfFELAG
Öét ELDHI
BORGARA