Morgunblaðið - 05.03.2000, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 05.03.2000, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MARS 2000 57 FÓLK í FRÉTTUM i* Fyrír 5-12 og 15-17 ára. Ra3a3 i hópa eftír aldrí, mest 5 i hóp. Námskeiðið er 1. klst., einu sinni i viku i 8 vikur og fer fram í Félagsmiðstöðinni Tónaboe. Námskeiðið hefst fyrstu vikuna i mars. Skráning í síma 565 4464 og 897 7922. Attir fara á skrá hjá okkur og munum við vetja nemendur i vcentanteg verkefni. TÓNLISTIN í Englum alheimsins er eftir Ililmar Örn Hilmars- son, utan að Sigur Rós á tvö lög undir lok myndarinnar. Hilmar er afkasta- mikill kvikmyndatónlistarsmiður og hefur meðal annars unnið til verðlauna fyrir tónlist sína; hreppti Felix-vcrðlaunin fyrir tónlistina í Börnum náttúrunnar. Eftir rúma viku kemur úrval tónlistarinnar við myndina út á diski, fimmtán lög eftir Hilmar Örn og lögin tvö með Sigur Rós. í tilefni af því leggja Ililmar Orn og hljómsveitin upp í stutta tón- leikaferð, halda ferna tónleika. Fyrstu tónleikarnir verða á Sauð- árkróki 8. mars næstkomandi, þá koma tónlcikar 9. mars á Akur- eyri, 12. mars í Keflavík og loks verða tónleikar í Menntaskólan- um við Sund 15. mars, sama dag og platan kcmur út. Tónlistin samin með aðalpersónuna í huga Hilmar segist hafa verið búinn að finna nokkuð af hugmyndum áður en myndin var tekin, en hann hitti Friðrik Þór Friðriks- son, leikstjóra myndarinnar, í ' Kaupmannahöfn og fékk hjá hon- um handritið nokkru áður en tök- ur hófust. „Ég samdi tónlistina með tilliti til aðalpersónunnar, reyndi að birta hugarheim henn- ar og upplifanir; einskonar sin- fóníu í hausnum á persónunni. Hún dregur mið af þvi sem hefur áhrif á [aðalsöguhetjuna] Pál, þá tónlist sem hann er að hlusta á og líka hin sífellda umbreyting sem er í gangi þegar allt er að breytast í eitthvað allt annað.“ Hilmar segir að eina sem hann hafi hræðst í handritinu var hversu myndin var hugsuð í ákveðnum tíma, en með því að Friðrik gcrði myndina óháða ákveðnu tímaskeiði var það vandamál úr sögunni. Hilmar segir að þar scm mynd- in hafi vcrið unnin á miklum hraða þurfti hann líka að vinna hratt og fékk í hendurnar allar tökur um leið og búið var að færa þær á band. „Ég fékk að- stöðu þar sem ég gat farið yfir tökurnar jafnóðum og unnið tón- listina í samræmi við það, fellt hana að útliti myndarinnar, áferðinni og leikstílnum. Þegar myndin var síðan klippt hafði ég stuttan tíma til að ljúka mínu verki og forvinnan kom þá að góðum notum og ekki síst einstök samvinna við Kjartan Kjartans- son sem gerði þetta kleift. Hilmar segir að tónlistin hafi eðlilega breyst allmikið frá því sem hann hugsaði sér í fyrstu og þá helst að hann tempraði hana mun meira en hann hafði hugsað Morgunblaðið/Golli Stj órnað að ofan sér í upphafi. „Þegar ég sá loka- gerð myndarinnar fannst mér ég verða að gæta mín á því að segja ekki of mikið með tónlistinni; það eru svo gríðarlega sterkar til- finningar í gangi í myndinni að það var ekki á bætandi að hafa tónlistina eins sterka.“ Hilmar segir að yfirleitt sé málum svo háttað með kvik- myndatónlist hans að tónlistin eigi ekki standa ein og sér, hon- um finnist það oft móðgun við tónlist og kvikmynd að skilja þar á milli. „Tónlistin við Engla al- heimsins finnst mér aftur á móti vel geta staðið ein, enda er hún ekki að segja eins mikla sögu eins og oft er. Á disknum er hún í réttri tímaröð miðað við mynd- ina og það gengur til að mynda vel upp finnst mér og þróunin í henni greinileg. Ekki má þó gleyma því að á disknum er ekki nema um helmingur af tónlistinni í myndinni." Ræturnar á Gauknum Þeir Georg Ilóim, Orri Páll Dýrason og Kristinn Sæmundsson segja stutta sögu þcgar þeir eru spurðir um hvers vegna Sigur Rós eigi lag í myndinni og hvers vegna það séu einmitt þau lög sem falla svo vel að henni: „Þetta á allt rætur að rekja til tónieika sem við hélduin á Gauknuin þar sem okkur langaði að gera eitt- hvað öðruvísi og taka Iög eftir aðra, nokkuð sem við höfðum ekki gert áður. Við lékum þar þrjú lög, Ég fæ jólagjöf, af því þetta var rétt fyrir jól, Bíum- bíumbambaló og dánarfregnastef- ið vegna þess að við höfum haldið upp á það frá því við vorum börn. Þessi lög áttu bara að heyrast á þessum tónleikum, en þegar stóð til að gefa út tólftommu fannst okkur kjörið að setja þau á hana til að vera ekki að setja þrjú eða fjögur lög af stóru plötunni. Við bókuðum okkur því í hljóðver en rétt þegar við vorum búnir að því kom ósk frá Islensku kvikmynda- samstcypunni um að fá lag í myndina, þetta var eins og ein- hver hefði stjórnað þessu að of- an.“ Hilmar segir að upphafleg hug- mynd hafi verið sú að hafa lag í endanum „og Friðrik vissi strax hvaða hljómsveit hann vildi fá til að leggja til lag, enda hafði hann heyrt í Sigur Rós. Þegar hann sagði mér frá því hvað hann væri að pæla sagði hann að þeir Sigur Rósar strákar væru tónlistarlegir launsynir mínir, sem ég tók mjög fagnandi enda hlustaði ég varla á nokkuð annað á síðasta ári en Ágætis byrjun. Það kom líka í ljós að það sem þeir voru að gera passaði einstaklcga vel inn í myndina, eins og það hefði verið samið fyrir hana. Ég breytti þó aðeins röðinni hjá þeim, því þeir byrjuðu á Bíumbíumbambaló og enduðu á dánarfregnum og þannig er það á plötunni. Mér fannst aftur á móti fara betur á því í myndinni að snúa þessu við og því er þetta þannig þar.“ Hljómsveitarverk í stærstu merkingu þess orðs Á tónleikunum í MS 15. mars byggjast þeir Hilmar Örn og Ein- ar Már Guðmundsson, höfundur Engla alheimsins, standa fyrir uppákomu þar sem Einar les úr bókinni en Hilmar leikur undir. f miðjum klíðum koma þeir Sigur Rósar drengir á svið og taka þátt í því sem fram fer og Hilmar Órn segir að það megi líta á það sem einskonar upphaf á samstarfi hans og hljómsveitarinnar. „Við ætlum að semja saman hljómsveitarverk í stærstu merk- ingu þess orðs, verk fyrir rokk- hljómsveit, strengjasveit og kór,-A_ þar sem við tökum fyrir Hrafna- galdur Óðins, sem er Eddukvæði sem var úthýst úr Eddu- kvæðunum fyrir tiltilli einhvers leiðinda Norðmanns og kenninga hans, sem því miður allt of marg- ir hlustuðu á. Þetta kvæði á heima með Eddukvæðunum að mínu mati og verkið er ekki síst samið til að menn taki það aftur inn í Eddu.“ Á tónleikunum verður flutt tónlist Hilmars en síðan tekur Sigur Rós við. Þeir Sigur Rósarv piltar hyggjast leika áþekka dag- skrá og þeir hafa flutt út- lendingum undanfarið en bæta að minnsta kosti við einu lagi áður óspiluðu. „Við hefðum gjaran vilj- að hafa þau fleiri, en það hefur gefist svo l.'till tími til að semja. Það verður þó eitt nýtt lag, meistaraverk Sigur Rósar hingað ta.“ Hægt er að hlusta á nokkur lög af disknum á mbl.is, þrjú lög eftir Hilmar og lög Sigur Rósar. Orbit er sjóðheitur takkastjóri Á ÞVÍ leikur ekki nokkur vafl að William Orbit er heitasti upptöku- stjórinn í tónlistarbransanum í dag. Hann hefur stjórnað tökkunum á nokkrum af bestu og vinsælustu skífum liðinni ára, þar á meðal Blur- skífunni „13“, síðustu Madonnu- skífu „Ray of Light“ og hann er maðurinn á bak við hljóminn í topp- lagi breska vinsældarlistans „Pure Shores" með glæsipíunum í AU Sa- ints. Nú hefur spurst út að ein heitasta rokksveitin í dag, Limp Bizkit, hafi beðið Orbit um að stjórna upptökum á næstu breiðskífu sinni eftir að hafa lent í útistöðum við stúdíógúr- úinn Rick Rubin. Orbit segist afar spenntur fyrir þessu mögulega samstarfi: „Ég er svona týpiskur Englendingur á meðan Fred Durst (forsprakki Limp Bizkit) er hávaðasamur Kani. Það væri því spennandi að sjá út- komuna af slíku samstarfi." Af öðrum verkum Orbits má nefna að Madonna hefur ráðið hann til starfa við gerð næstu breiðskífu sinnar, sem ekki þarf að koma á óvart því vinna hans á „Ray of Lights“ var aldeilis mögnuð og end- urnýjaði hreinlega feril Madonnu sem listamanns. Því til viðbótar sendi Orbit sjálfur frá sér sólóskífu nýverið, „Pieces in a Modern Style“, þar sem hann glímir við sígild meistaraverk og býr þeim nýjan og framandlegan búning. Sannarlega önnum kafinn maður sem kemur færri verkum að en hann vildi og til marks um það verð- ur hann trúlega að hafna beiðni Blur um samstarf á þeirra næsta verki. William Orbit ásamt Madonnu. Sígriaur Beínteínsdóttír íUlaria B(örk Sverrísdóttír ' jfTtj nimsksfi með Aílariu og Síggu QeíntBíns Sungið cr í hljóðnema mcð undirspilí úr Grcase, Bucy Malone, Flikk flakk, Barnabros, Barnaborg, Hryllingsbúðinni og Jabadabadú. YFir 100 önnur lög fyrir cldri hópana. Síðasti tíminn er upptaka í hljóðveri. AUir fá sinn söng með hcim. Nú varstu heppin. Eöa varstu kannski heppinn? Skiptir ekki máli. Þú ert heppnari en margir þvi þú varst aö taka eftir auglýsingu fýrir námsstyrki Landsbankans. Ef þú ert i Námunni skaltu senda inn umsókn fyrir 15. mars nk. Allar nánari upplýsingar um Námustyrk á www.naman.is. Landsbankinn Tónlistin úr kvikmyndinni Englar alheimsins væntanleg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.