Morgunblaðið - 05.03.2000, Blaðsíða 42
42 SUNNUDAGUR 5. MARS 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
GUÐLA UG BJARNEY
ELÍASDÓTTIR
+ Guðlaug Bjamey
Elíasdóttir fædd-
ist í Hólshúsum í
Gaulveijabæjar-
hreppi 13. september
1928. Hún lést á
Hrafnistu í Reykjavík
23. febrúar síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru hjónin Guð-
rún Þórðardóttir, f.
29.8. 1885, d. 9.3.
1969, og Elías Áma-
son, f. 31.12. 1884, d.
(25.9. 1966, bóndi í
Hólshúsum. Guðlaug eða Lauga
eins og hún var alltaf kölluð, ólst
upp í föðurhúsum. Hún var yngst í
hópi níu systkina. Þau em Mar-
grét, f. 1914, Þórður, f. 1915, Ámi,
f. 1917, d. 1995, Guðrún Júlía, f.
1918, Elih, f. 1920, d. 1992, Júlía
Svava, f. 1922, Guðrún, f. 1923, d.
1990, og Bjami, f. 1926, d. 1927.
Lauga giftist 4.12. 1954 Reyni
Geirssyni frá Klængsseii í Gaul-
veijabæ. Reynir lést 24. maí 1994.
Elsta bam Laugu er Þórdís Hulda
Hreggviðsdóttir, f. 8.10. 1948, og
gekk Reynir henni í föðurstað, son-
ur hennar er Bjami Þór, f. 5.4.
1988. 2)Margrét Eyrún, f. 18.5.
^J955, maki Jón Geirsson, böm
þeirra Sonja, f. 7.11.1976, sambýl-
ismaður Sveinn Sigfinnsson, Reyn-
ir, f. 7.1. 1980, og Geir, f. 28.4.
1985.3) Bjami Ómar,
f. 15.10. 1956, maki
Ásdís Sigurðardóttir,
dætur Bjarna úr
fyrri sambúð em Iris,
f. 11.8. 1978, maki
Stefán J. Svansson,
bam þeirra er Bryiy-
ar Steinn, f. 3.10.
1999, Freydís, f. 21.1.
1982, Guðlaug Eydís,
f. 27.2.1988, og Aldís
Sif, f. 10.11. 1992,
fósturböm Bjama,
börn Ásdísar, em
Sólveig Ósk, f. 18.5. 1978, sambýl-
ismaður Sveinbjörn Þ. Einarsson,
Óskar Bjöm, f. 11.9.1982, og Helgi
Fannar, f. 16.1. 1988. 4) Elías Rún-
ar, f. 17.4. 1958, maki Rúna Björg
Þorsteinsdóttir, dóttir þeirra Lára
Björk, f. 5.12.1988.5) Sólrún Lára,
f. 5.5.1961, maki Magnús Ingi Guð-
mundsson, synir þeirra Guðmund-
ur Jón, f. 18.11. 1980, Birkir, f.
13.7.1983, og Reynir, f. 17.9.1985.
6) Björk, f. 31.3.1968, maki Sigurð-
ur Magnússon, synir þeirra Magn-
ús Stefán, f. 10.11. 1990, og Elías
Amþór, f. 28.11. 1994. Guðlaug
vann lengst af sem gæslukona á
gæsluvöllum Reykjavíkurborgar.
Úför Guðlaugar fer fram frá
Áskirkju á morgun, mánudaginn 6.
mars, og hefst athöfnin klukkan
13.30.
Fögursálerávalltung
undirsilfurhærum.
(Steingr.Thorst)
í dag, þegar við kveðjum Laugu
tengdamóður mína, langar mig til að
rita nokkur kveðjuorð. Þau voru ekki
mörg árin sem ég fékk að njóta sam-
vista við hana, en þau voru góð. Eg
:mm þegar ég kom inn í fjölskyldu
Laugu og Reynis sumarið 1993 að þá
var haldin ein af þeirra mörgu fjöl-
skylduútilegum og komum við Bjarni
Omar þangað og var auðvelt að hitta
ykkur öll svona saman á léttri stundu.
Því miður lést Reynir aðeins ári
seinna, 24. maí 1994, og er óhætt að
segja að fjölskyldan var harmi slegin
en Lauga hélt áfram að halda heimili í
Áiftamýri 52 þar sem þau bjuggu
lengst af. Fljótlega fór þó að bera á
því að minni Laugu var farið að bila,
en hún hélt sinu striki með stuðningi
bama sinna og vina. En það kom að
því í nóvember 1996 að hún hætti að
vinna úti þá 68 ára. Hafði hún þá
lengst af starfað sem forstöðukona á
pæsluvöllum borgarinnar. Vorið 1997
^frjaði Lauga í dagvistun í Hlíðarbæ
og undi hún sér þar vel við söng, fönd-
ur og önnur störf. Þó svo að Lauga
hafi tapað niður talmáli þá gat hún
sungið og vakti söngur og spil ávallt
mikla gleði hjá henni. Það var svo 12.
mars 1998 að við fórum með hana á
Hrafnistu í Reykjavík þar sem fjöl-
skyldan hafði fengið vistun fyrir hana
því að það var einsýnt að hún gat ekki
lengur verið ein eða séð um sig á
neinn hátt. Það voru erfið spor hjá
systkinunum að sjá á eftir móður
sinni inn á Hrafnistu en það var bót í
máli að við sáum strax hversu frábært
starfsfólkið á deild A-3 var og við sá-
um að þama var hún í góðum hönd-
um. Lauga var einstaklega falleg og
■pássileg kona og ávallt vel til höfð.
Starfsfólkið á A-3 stóð sig frábærlega
við að viðhalda þessum glæsileik
hennar. Þó svo að Lauga hafi ekki tal-
að við okkur síðasta eina og hálfa árið
þá hló hún oft að spaugilegum hlutum
og ef við sungum íyrir hana þá reyndi
hún að taka undir. í janúar á síðasta
ári lærbrotnaði Lauga og eftir það
gekk hún ekki óstudd. Það kom svo að
því að hún var komin í hjólastól en var
á fótum alla daga og horfði mikið á
sjónvarp. Það var alltaf gott að koma í
heimsókn til Laugu, þó svo við gætum
skipst á orðum, ég talaði þá bara
fyrir okkur báðar. Þegar Lauga veikt-
ist af flensu núna í janúar á þessu ári
var hún lengi veik og með hita en svo
virtist sem henni ætlaði að batna og
fannst okkur það henni líkt, enda var
hún með eindæmum hraust og mikil
útivistarkona. En um 19. febrúar dró
mjög snögglega af henni og vom
bömin hennar og tengdaböm yfir
henni þar til yfir lauk hinn 23. feb. Þó
svo að Lauga hafi verið svona veik síð-
ustu árin þá er sorgin mikil í hjörtum
okkar, við reynum þó að hugga okkm-
með orðum barnanna okkar sem tala
um að nú sé amma frísk, komin til afa
og geti nú bæði gengið og talað. Samt
hellist yfir mig þessi sannleikur að
Lauga er öli, og fínn ég nú hversu háð
ég er orðin þessum heimsóknum mín-
um til hennar því bara það að sitja hjá
henni og horfa í síkvik og lifandi aug-
un hennar gaf mér mikið. Ég er hepp-
in að tengdafjölskyldan mín er stór og
þegar við emm samankomin em þau
systkinin dugleg að minnast pabba og
mömmu og segja frá öllu því sem á
dagana dreif og líka er mjög gaman
að fletta öllum myndamöppunum sem
Lauga og Reynir áttu því myndimar
segja oft meira en orð fá sagt. Ég held
að ég geti sagt að Lauga og Reynir
vom alla tíð ung og ástfangin og ólu
upp sinn stóra bamahóp með mynd-
arbrag í litlu íbúðinni sinni í Alfta-
mýri, þar var alltaf nóg pláss og
hjartarými mikið. Elsku tengda-
mamma, það er gott að hafa átt þig
að. Ég og bömin mín þrjú þökkum
þér fyrir árin með þér og þakka þér
fyrir að vera amma þeirra, einnig vilja
sonardætur þínar fjórar þakka íyrir
öll góðu árin. Við vottum öðmm að-
standendum samúð okkar og biðjum
guð að geyma góða ömmu.
Þín tengdadóttir,
Ásdfs Sig.
Elsku Lauga amma. Ég þakka þér
fyrir þau stuttu kynni sem ég hafði af
þér og vona að þetta ljóð sem ég
samdi handa þér geti tjáð á einhvem
hátt það sem þú varst ef til vill að
hugsa áður en þó lagðir aftur augun.
Eigðu gott líf á himninum.
Umleiðogégsegi
„góðanótt"
mun ég verða vakin með kossi
í nýjum heimi
og andlit sem hafa beðið mín
munu gleðjast yfir endurfundunum.
Þó tár hafi læðst
niðurvangaminn
þávarsálinbrosandi
og þetta aðeins mín aðferð
tilaðkveðjaþennanheim
við hittumst öll síðar
áhimnihamingjunnar
og riQum upp góðar stundir
ámeðanbiðégykkur
að geyma þær í hjarta ykkar.
(Sólveig Ósk.)
Þín sonardóttir,
Sólveig Ósk.
.Ægx Dagbók
Háskóla
íslands
DAGBÓK Háskóla íslands 5.-11.
mars. Allt áhugafólk er velkomið á
fyrirlestra í boði Háskóla Islands.
Itarlegri upplýsingar um við-
burði er að fínna á heimasíðu Há-
skólans á slóðinni: http:/Avww.hi.is/
stjorn/sam/dagbok.html
Sunnudaginn 5. mars verður síð-
ari hluti málþings um Islan-
dsklukkuna í Skálholtsskóla. Kl. 9
Morguntíðir í Skálholtskirkju.
9:30-12:30 Fyrirlestrar og um-
ræður. Matthías Viðar Sæmunds-
son dósent: Böðlar og skálkar. Már
Jónsson lektor: Bæli kerlingar og
brókin hans Jóns: Handritasafnar-
arnir Arnas Arnæus og Arni
Magnússon. Guðrún Ása Gríms-
dóttir cand. mag.: Lærður íslend-
ingur á Tumi: Af Jóni Ólafssyni
Gmnnvíkingi. Gísli Gunnarsson
prófessor: Hagspeki gálgafuglsins
Jóns Marteinssonar: Islandsklukk-
an, einokunarverslun og stétta-
skipting. 12:30 hádegisverður, 14
messa í Skálholtsdómkirkju 15:30
kaffi, 16 umræður, lok málþings.
Mánudaginn 6. mars kl. 16:15
flytur James T. Jenkins prófessor
fyrirlesturinn: „Dense flows of
Granular Materials Down Inclines"
(Þétt kornaflæði niður halla) í mál-
stofu umhverfis- og byggingar-
verkfræðiskorar í stofu 158 í VR-II
við Hjarðarhaga
Mánudaginn 6. mars 2000 kl.
17:15 verður haldinn fyrirlestur á
vegum lagadeildar á sviði lögfræði,
einkum refsiréttar og réttarfars.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
stofu L-102 í Lögbergi, og ber yfir-
skriftina: „Current Trends in U.S.
Criminal Law and Proceedings“.
Fyrirlesarar verða tveir mjög
þekktir bandarískir lögfræðingar
og prófessorar í lögum, Victor L.
Streib og John M. Burkoff.
Þriðjudaginn 7. mars: kl. 17
verður fyrirlestur í tilefni ösku-
dags í stofu 301, Árnagarði. Danski
þjóðfræðingurinn Carsten Bergen-
hoj flytur erindið: „Masks in
Action - Nordic Christmas
Mumming" um bakgrunn, tilgang
og skipulag dulbúningasiða barna
á Norðurlöndum.
Miðvikudaginn 8. mars kl. 12:30
leika Finnbogi Óskarsson, túba, og
Þórhallur Ingi Halldórsson, túba,
félagar í Túbuleikarafélaginu, verk
eftir Bach, Mozart, Wennerberg,
Stevie Wonder, Lennon &
McCartney og Henry Mancini á
Háskólatónleikum í Norræna hús-
inu. Tónleikarnir taka um það bil
hálftíma. Aðgangseyrir er 500 kr.,
en ókeypis er fyrir handhafa stú-
dentaskírteinis.
Fimmtudaginn 9. mars frá kl.
12-13 í stofu 201 í Odda verður
Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntaf-
ræðingur með rabb á vegum Rann-
sóknastofu í kvennafræðum. Rabb-
ið ber yfirskriftina „Sjá:öld augna.
Sjónarspil og sjónræn menning“.
Fimmtudaginn 9. mars kl. 12:05
til 13 flytur Ragnheiður Fossdal
líffræðingur erindi á hádegisfundi
Lífeðlisfræðistofnunar um erfða-
rannsókn á MS (multiple sclerosis)
á íslandi, í kaffistofu á 5. hæð í
Læknagarði, Vatnsmýrarvegi 16.
Fimmtudaginn 9. mars kl. 16:15
flytur Jón Hallsteinn Hallsson fyr-
irlesturinn: „Microphthalmia í mús
og boðflutningur" í málstofu
læknadeildar. Málstofan fer fram í
sal Krabbameinsfélags Islands,
efstu hæð. Kaffiveitingar verða frá
kl. 16.
Námskeið á vegum Endur-
menntunarstofnunar HI vikuna
5.-11. mars
6. mars kl. 9-16.
Kyngingartregða. Umsjón: Sig-
ríður Magnúsdóttir M.S., talmeina-
fræðingur á endurhæfingardeild
Landspítala, Þóra Másdóttir M.A.,
talmeinafræðingur á Reykjalundi.
Þóra Sæunn Ulfsdóttir M.S., tal-
meinafræðingur á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur.
Éyrirlesarar: Sigríður Magnús-
dóttir M.S., talmeinafræðingur á
endurhæfingardeild Landspítalans,
Þóra Másdóttir M.A. talmeina-
fræðingur á Reykjalundi, Þóra
Sæunn Úlfsdóttir M.S. talmeina-
fræðingur á Sjúkrahúsi Reykjavík-
ur, Berglind Ásgeirsdóttir, iðju-
þjálfi á endurhæfingardeild
Landspítalans, Kolbrún Einars-
dóttir, næringarráðgjafi á Næring-
arstofu Landspítalans, Helga
Hansdóttir, öldrunarlæknir á öldr-
unardeild Sjúkrahúss Reykjavíkur
og Úlfur Ágnarsson, meltingar-
læknir barna.
6.-25. mars; mán., þri., mið. og
fim. kl. 17-19:45 og lau. kí.
9:30-12:30, alls 45 st.
Hraðnámskeið í ítölsku - byrj-
endanámskeið.
Kennari: Roberto Tartaglione
forstöðumaður Scuola Italiana í
Róm.
6.-25. mars; mán., þri., mið. og
fim. kl. 20-22:45 og lau. kl. 13-
16:00, alls 45 st.
Hraðnámskeið í ítölsku - fram-
haldsnámskeið.
Kennari: Roberto Tartaglione,
forstöðumaður Scuola Italiana í
Róm.
6.-30. mars; mán. og fim. kl. 20-
22 (8x).
Spænska III? framhaldsnám-
skeið, kennari: Margrét Jónsdóttir,
lektor í spænsku við HÍ.
6. og 8. mars kl. 8:30-12:30.
Unix 2, kennari: Sveinn Ólafsson
ráðgjafi hjá Teymi hf.
6., 8., 9. og 14. mars kl. 17-21 (4
x 4 klst.).
Vefsmíðar fyrir kennara, kenn-
ari: Gunnar Grímsson, viðmóts-
hönnuður og vefsmiður hjá Engu
einkahlutafélagi.
6., 8. og 9. mars kl. 12:45-16:45.
Vefsmíðar II, Þróaðra HTML og
myndvinnsla, kennari: Gunnar
Grímsson viðmótshönnuður og
vefsmiður hjá Engu einkahlutafé-
lagi.
7. mars kl. 16-19.
Bindandi álit í skattamálum,
kennari: Kristján Gunnar Valdi-
marsson, lögfræðingur skrifstof-
ustjóri við embætti skattstjórans í
Reykjavík og stundakennari í
skattarétti við lagadeild HÍ.
7. og 8. mars kl. 16-19.
Verðbréfaréttur helstu reglur á
verðbréfamarkaði, kennari: Helga
Hlín Hákonardóttir, lögfræðingur
hjá Markaðsviðskiptum Fjárfest-
ingarbanka atvinnulífsins hf.
7. mars kl. 9-16.
Konur, áfengissýki og með-
virkni, kennari: Páll Biering MSN,
geðhjúkrunarfræðingur á Rann-
sóknastofnun í hjúkrunarfræði HÍ.
8. mars kl. 9-16.
Upplýsingar til bættrar ákvarð-
anatöku. Uppbygging og hagnýt-
ing Vöruhúss gagna, kennarar: Jón
Vilhjálmsson, rafmagnsverkfræð-
ingur hjá Verkfræðistofunni AFL,
og Atli Guðmundsson, sérfræðing-
ur hjá Skýrr.
8. og 9. mars kl. 8:30-12:30.
Virkjun upplýsingatækni í mark-
aðssetningu. Umsjón: Kristján Jó-
hannsson rekstrarhagfræðingur og
framkvæmdastjóri hugbúnaðar-
sviðs Nýherja. Kennarar auk
Kristjáns: Aðrir sérfræðingar á
sviði upplýsingatækni.
9. mars kl. 9-16 og 10. mars kl.
9-12.
Nýjar áherslur - meiri árangur
- styttri tími! Hvað er lausnamiðuð
fjölskyldumeðferð? kennari: Helga
Þórðardóttir, forstöðumaður á fjöl-
skylduráðgjafarstöð á vegum Fé-
lagsþjónustunnar í Reykjavík.
10. mars kl. 9-16 og 11. mars kl.
9:30-12:30.
Fötlun, langvarandi veikindi og
meðvirkar fjölskyldur - nálgun
fagfólks, breyttar áherslur, nýjar
hugmyndir, kennarar: Andrés
Ragnarsson og Wilhelm Norðfjörð
sálfræðingar.
10., 11. og 13. mars kl. 8:30-
12:30.
Uppeldi ungra barna, kennari:
dr. Sigurlína Davíðsdóttir, lektor
við HÍ. Vísindavefurinn Hvers
vegna? Vegna þess! Vísindavefur-
inn býður gestum að spyrja um
hvaðeina sem ætla má að vísinda-
og fræðimenn Háskólans og stofn-
ana hans geti svarað eða fundið
svör við.
Leita má svara við spurningum
um öll vísindi, hverju nafni sem
þau nefnast. Kennarar, sérfræð-
ingar og nemendur í framhalds-
námi sjá um að leysa gáturnar í
máli og myndum. Slóðin er:
www.visindavefur.hi.is
Sýningar
Árnastofnun Stofnun Árna
Magnússonar, Árnagarði við Suð-
urgötu. Handritasýning er opin kl.
14-16 þriðjudaga til föstudaga, 1.
sept. til 15. maí og kl. 13-17 dag-
lega, 1. júní til 31. ágúst. Unnt er
að panta sýningu utan reglulegs
sýningartíma sé það gert með dags
fyrirvara.
Þjóðarbókhlaða Stefnumót við
íslenska sagnahefð. Farandsýning í
Þjóðarbókhlöðu 1. mars-30. apríl.
Á sýningunni er dregið fram
hvernig bókin og textinn hafa verið
örlagavaldar í sögu íslensku þjóð-
arinnar. Varpað er ljósi á þróun
prentlistar á Islandi og hina sér-
stöku hefð handritauppskrifta til
nota á heimilum er hélst allt fram
á þessa öld. Brugðið verður ljósi á
sagnaritun frá upphafi og sýnd
tengsl hennar og nýjustu miðlun-
artækni nútímans.
Orðabankar og gagnasöfn
Öllum er heimill aðgangur að
eftirtöldum orðabönkum og gagn-
söfnum á vegum Háskóla Islands
og stofnana hans.
íslensk málstöð. Orðabanki. Hef-
ur að geyma fjölmörg orðasöfn í
sérgreinum: http://www.ismal.hi.is/
ob/
Landsbókasafn Islands-Háskóla-
bókasafn. Gegnir og greinir. http://
www.bok.hi.is/gegnir.html
Orðabók Háskólans. Ritmáls-
skrá: http://www.lexis.hi.is/
Rannsóknargagnasafn íslands.
Hægt að líta á rannsóknarverkefni
og niðurstöður rannsókna- og þró-
unarstarfs: http://www.ris.is
Árshátíð FB
Málstofa um siðfræði og
álitamál við virkjanir
MÁLSTOFA um siðfræði og álita-
mál við virkjanir verður haldið
mánudaginn 6. mars kl. 16-17.30, í
Háskóla íslands, í stofu 101 í Lög-
bergi. Verkefnisstjórn um gerð
rammaáætlunar um nýtingu vatns-
afls og jarðvarma, Siðfræðistofnun
Háskólans og Landvernd standa
fyrir málstofu um siðfræði og álita-
mál við virkjanir.
Á málstofunni verða flutt fjögur
stutt framsöguerindi. Jón Ásgeir
Kalmannsson kynnir helstu stefn-
ur og strauma í náttúrusiðfræði.
Þorvaldur Árnason náttúrufræð-
ingur fjallar um umhverfis- og
náttúruvernd á grundvelli náttúru-
hverfrar sýnar og Jakob Björnsson
fyrrverandi orkumálstjóri um sið-
ferði í samskiptum manns og nátt-
úru. Að lokum mun Þorsteinn
Hilmarsson heimspekingur fjalla
um það hvort afleiðingar gerða
okkar hafi siðferðilegt gildi. Að af-
loknum framsöguerindum verða
opnar umræður.
Málstofan er öllum opin og að-
gangur ókeypis.
FJÖLBRAUTASKÓLINN í Breið-
holti heldur árshátíð sína7. mars eða
á sprengidaginn, eins og hefð er fyr-
ir. Þá verður einnig frumsýnt árshá-
tíðarleikritið. ,
Tónlist og söngur er fyrirferðar-
meiri í þessu leikriti en hefur verið
síðustu árin og kalla má stykkið
söngleik með réttu. Tónlistin er
þýdd af plötunni „Bat out of hell“.
Handritshöfundur og leikstjóri er
Guðmundur Rúnar Kristjánsson, en
hann leikstýrði og samdi handritið
að Með fullri reisn, FB-sýningunni í
fyrra. Tónlistarstjóri verksins er að
þessu sinni Matthías Matthíasson.
Sýnt verður í Loftkastalanum.