Morgunblaðið - 09.04.2000, Blaðsíða 1
85. TBL. 88. ÁRG.
SUNNUDAGUR 9. APRÍL 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Bankaleynd í ESB
Bretar
vilja
afnám
Lissabon. AP.
DEILUR milli stjórnar Bret-
lands og Lúxemborgar á fundi
fjármálaráðherra ríkja Evrópu-
sambandsins, ESB, í Lissabon í
gær virtust ætla að koma í veg
fyrir áætlanir um hert eftirlit
með skattsvikurum.
Talið er að sum aðildarríkin
tapi milljörðum evra árlega
vegna þess að einstaklingar not-
færa sér mismunandi reglur í
ríkjunum um skattlagningu
sparifjár og vijja Bretar aflétta
bankaleynd til að klófesta skatt-
féð.
„Bankaleyndinni verður ekki
haggað hjá okkur,“ sagði tals-
maður stjómvalda í Lúxem-
borg, Guy Schuler. Lúxemborg-
arar vilja þess í stað að lagður
verði samræmdur, 20% fjár-
magnstekjuskattur á sparifé
sem fólk á annars staðar en í
heimalandi sínu. Flest aðildar-
ríkin eru sammála hugmyndinni
en Bretar eru á móti. Þeir benda
á að slíkar reglur myndu ógna
alþjóðlega skuldabréfamark-
aðnum í London.
KVIAELDIS-
DEILUR
Reuters
Leyfa flutning matvæla
STJÓRNVÖLD í Eritreu hafa að
sögn sjónvarpsstöðvarinnar BBC
fallist á að leyfa flutning matvæla
um hafnir landsins til Eþiópíu en
þar er óttast að allt að átta millj-
ónir manna geti farist úr hungri.
Ríkin tvö hafa um skeið átt í
blóðugu landamærastríði. Miklir
þurrkar í norðausturhluta Afrfku
valda því að matur er af skornum
skammti en mest er hættan talin
vera í Eþíópiu sem ekki liggur að
sjó. í Ogaden-héraði einu deyja
nú að jafnaði átta börn daglega
úr hungri. Búpeningur er víða
fallinn úr hungri og þorsta.
Stjórnvöld í Peking gagnryna Taivana
V araforsetaefni
„þjóðarskömm44
Peking. AFP, AP.
STJÓRNVÖLD í Peking gagnrýndu
í gær harkalega ummæli væntanlegs
varaforseta Taívans, Annette Lu, um
sjálfstæði eyjarinnar í viðtölum við
fjölmiðla í Hong Kong. Lu hefur eins
og nýkjörinn forseti, Chen Shui-bian,
sagt að hún muni leggja til að Taívan-
ar lýsi yfir sjálfstæði ef Kínverjar
gera hernaðarái-ás á eyjuna. Lu
gagnrýndi í viðtölunum kommúnista-
stjómina fyrir að hóta valdbeitingu í
deilunum um samband Kína og Taív-
ans. Einnig hélt hún því fram að bilið
milli sjónarmiða deiluaðila hefði
breikkað að undanfornu.
Stjórnvöld í Peking höfðu fyrir for-
setakosningamar uppi stór orð um að
yrði Chen fyrir valinu gæti afleiðingin
orðið styrjöld. Eftir sigur Chens 18.
mars hefur á hinn bóginn verið kyrrt
og hafa báðir aðilar virst reyna að
lægja öldurnar þar til nú.
„Ólæknandi
sjálfstæðissinni“
Lu sagði í gær að kommúnista-
stjómin væri enn í losti yfir niður-
stöðu kosninganna, ráðamenn í Pek-
ing vissu ekki hvernig þeir ættu að
bregðast við og reyndu því að nota
gamlar aðferðir, auðmýkja og valda
sundrung meðal ráðamanna á Taívan.
í yfirlýsingu kínverskra stjóm-
valda sagði að Lu hefði andmælt
kenningunni um að Taívan væri hluti
af einu og óskiptu Kína og ýtt undir
miskh'ð beggja vegna sundsins sem
skilur eyríkið frá meginlandinu.
Sýndi þetta að hún væri „öfgasinnuð
og ólæknandi sjálfstæðissinni. I
reynd er hún orðin þjóðarskömm
Kínverja,“ sagði í yfirlýsingunni sem
að nafninu til var gefin út af tveimur
opinberam stofnunum er fást við mál-
efni Taívans. Lu var einnig sögð hafa
notað umræður um hótanir af hálfu
Kína til að letja þá Taívana sem vildu
sameiningu við Kína og að hún reyndi
að eitra hugarfar manna í eyríkinu
gagnvart Kína.
Ljóst þykir að svo mikilvæg skila-
boð séu aðeins birt að undirlagi
stjórnvalda enda greindi ríkisfrétta-
stofan Xinhua vandlega frá þeim og
þau vora birt í öllum helstu dagblöð-
um Kína.
Óljóst er að sögn stjórnmálaskýr-
enda hvort um sé að ræða stefnu-
breytingu í Peking með það að
markmiði að herða á ný baráttuna
gegn sjálfstæðistilburðum á Taívan.
Chen hefur lýst yfir vilja til að ræða
málamiðlun í deilunum um stöðu
Taívans en hefur ekki viljað fallast á
að fyrirfram verði slegið föstu að eyj-
an sé hluti Kína.
Mugabe hvetur hvíta
til að yfírgefa Zimbabwe
Bindura í Zimbabwe. The Daily Telegraph.
ROBERT Mugabe, forseti Zimb-
abwe, lýsti í gær enn á ný yfir stuðn-
ingi við þúsundir blökkumanna sem
hafa að undanförnu lagt undir sig um
800 búgarða hvítra manna í landinu
og hrakið eigenduma burt. Þing
landsins hefur samþykkt aðgerðirn-
ar og sagt að ekki beri að greiða
gömlu eigendunum skaðabætur en
hæstiréttur landsins telur yfirtökuna
ólöglega.
Forsetinn sagði á fundi með
nokkrum þúsundum stuðnings-
manna sinna í Bindura, um 80 km
norðan við höfuðborgina Harare, að
þeir sem hefðu lagt jarðirnar undir
sig myndu ekki verða fjarlægðir.
„Ég styð þá,“ sagði forsetinn við
mikinn fögnuð viðstaddra. Hann fór
niðrandi orðum um hvíta íbúa
Zimbabwe og sagði að ef þeir gætu
ekki sætt sig við að svartir færa með
völdin gætu þeir einfaldlega farið.
Hvítu bændunum ráðlagði hann að
reyna ekki að verjast þeim sem legðu
undir sig búgarðana og kenndi hann
hinum fyrrnefndu um átökin sem
hafa orðið sums staðar. A föstudags-
morgun slösuðust hjón á áttræðis-
aldri á litlum búgarði er þau reyndu
að verja staðinn.
„Enginn mun stöðva ykkur, allar
dyr standa opnar,“ sagði Mugabe og
taldi upp ýmsar landamærastöðvar
sem þeir hvítu
gætu farið um.
Einnig væri sjálf-
sagt að veita þeim
lögreglufylgd á
flugvöllinn í Har-
are.
Margir af hús-
tökumönnunum
svörtu era fyrr-
verandi liðsmenn
Mugabe í skæra-
liðastríðinu og segja þeir að hvitir
menn hafi lagt undir sig bestu jarðir
landsins á nýlendutímanum en
Zimbabwe var lengi bresk nýlenda
og nefndist þá Suður-Rhodesía.
Robert Mugabe
Sðnouf f OKIcuf l«l«ndlngu»n hlart-
tðkjnn'-wnpnðvll.vwai.u
ar<»U»»mf IM«n*uWfi»af-
m pwiBat
lrMtn«ijl annnð wm hOn hfuf
Útflutningstekjur Zimbabwe
byggjast að miklu leyti á framleiðslu
búgarðanna en alls era hvítu bænd-
urnir um 4.500.
„Mugabe er svo óútreiknanlegur
að ég er mjög áhyggjufull,“ sagði
hvítur bóndi, Michelle Conner. „Svo
gæti farið að hann vaknaði einn
morguninn og tæki þá ákvörðun að
beita þjóðarhreinsun gegn okkur.“
Þrátt fyrir þetta sagðist hún ekki
vera á föram.
Breska stjórnin hefur mótmælt
stefnu Mugabe og era samskipti ríkj-
anna afar stirð en þing Zimbabwe vill
að sögn BBC að Bretar bæti hvítu
bændunum tjónið vegna missis
búgarðanna. Hvíti minnihlutinn, sem
að mestu er ættaður frá Bretlandi,
fór með stjórn landsins í meira en tvo
áratugi, eftir að hafa sagt skilið við
Bretland og var þá háð mannskætt
skæraliðastríð milli hvítra og svartra
sem vildu fá kosningarétt. Arið 1980
létu hvítir loks undan og Mugabe var
kjörinn forseti.
Vinsældir hans hafa hins vegar
minnkað mjög síðari ár enda er efna-
hagurinn slæmur og atvinnuleysi
mikið.
MORGUNBLAÐHD 9. APRÍL 2000
5 690900 090000