Morgunblaðið - 09.04.2000, Blaðsíða 28
28 SUNNUDAGUR 9. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra í opinberri heimsókn til Israels á 7. áratugnum.
Gústaf Adolf, krónprins Svíþjóðar, gæðir sér á
íslenskum banönum í Hveragerði 1975. Fyrir
aftan hann sjást Oddný Thorsteinsson ráðu-
neytisstjórafrú, Halldóra Eldjárn forsetafrú og
dr. Kristján Ekljárn, forseti fslands.
Sveinn Björnsson forseti í New York árið 1944. Með honum á myndinni eru Vilhjálmur Þór utanríkisráðherra
og Helgi P. Briem aðalræðismaður.
60 ár í utanríkis-
þjónustunni
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ stendur fyrir ljósmyndasýningu í Þjóðar-
bókhlöðinni undir yfírskriftinni „Yfirlit yfir þróun íslenskrar utanríkis-
þjónustu" í tilefni af sextiu ára afmæli utanríkisþjónustunnar. Mun sýning-
in standa frá 10. apríl til 10. maí næstkomandi.
íslenska utanríkisþjónustan varð til hinn 10. apríl 1940, daginn eftir að
Alþingi ákvað að konungsveldið Islands tæki meðferð utanrðdsmála í sínar
hendur, í kjölfar innrásar Þjóðverja í Danmörku í síðari heimsstyrjöldinni.
Ljósmyndasýningin sjálf er í aðalatriðum tvíþætt, því annars vegar er
reynt að draga fram helstu viðburði í sögu utanríkisþjónustunnar í texta
og tengja hana myndum en hins vegar hafa verið valdar myndir af starfs-
fólki utanríkisþjónustunnar til að gefa hugmynd um dagleg störf þess.
Megináherslur utanríkisþjónustunnar eru að gæta hagsmuna fslands á er-
lendri grund í pólitiskum málum, öryggismálum, efnahags- og viðskipta-
málum svo og menningarmálum. Hún hefur því komið að öllum helstu mál-
um sem varða samskipti Islands við erlendar þjóðir.
Mikil umskipti hafa orðið í umsvifum utanríkisþjónustunnar á þessum 60
árum. Á fyrsta starfsárinu var opnuð ræðismannsskrifstofa í New York og
sendiráð í London og Stokkhólmi. Samtals voru reknar fjórar skrifstofur
erlendis með sendiráðinu í Kaupmannahöfn. Starfsmenn erlendis voru 15
auk 5 starfsmanna í ráðuneytinu. Nú eru á hinn bóginn 17 skrifstofur er-
lendis og 105 starfsmenn og hér heima fyrir í utanríkisráðuneytinu starfa
80 manns. Ræðismannsskrifstofur Islands eru orðnar 188 í 61 landi og eru
þær skipaðar 225 ólaunuðum ræðismönnum. Island hefur stjórnmálasam-
band við hátt í 120 ríki og er í samstarfi við hátt í 90 alþjóðastofnanir. Ljós-
myndasýningunni er ætlað að gefa nokkra innsýn í þau margbreytilegu
störf sem hún hefur með að gera. Hér birtist ofurlítið brot af þeim mynd-
um sem á sýningunni eru og segja sögu utanríkisþjónustunnar.
Lýðveldisdaginn 17. júní 1944 var skjaldamerki Konungsríkisins Islands
Qarlægj; af veggjum sendiráðsins í Washington. F.v.: Þórhallur Ásgeirsson
(síðar ráðuneytisstjóri viðskiptaráðuneytisins), Hendrik Sv. Björnsson
sendiráðsritari (síðar ráðuneytisstjóri) og Thor Thors sendiherra.
Tíundi ráðherrafundur Atlantshafsbandalagsins 15. desember 1952, sá fyrsti haldinn í París. F.v.: Hans G.
Andersen þjóðréttarráðunautur, Ólafur Thors forsætisráöherra, Hörður Helgason sendiráðsritari og Gunn-
laugur Pétursson, fastafulltrúi Islands hjá NATO.