Morgunblaðið - 09.04.2000, Side 4
4 SUNNUDAGUR 9. APRÍL 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VTKAN 26/3 -1/4
Dómur Hæstaréttar
► Kvóti íslenskra skipa á
úthafskarfaveiðum á
Reykjaneshrygg er 45.000
tonn eins og í fyrra, en nú
er hann tvískiptur í fyrsta
sinn og miðast við að veitt
sé úr tveimur stofnum.
► Bókaútgáfurnar Mál og
menning og Vaka-Helga-
fell hafa gert með sér sam-
komulag um að sameinast í
vor og stofna félag sem yf-
irtæki rekstur beggja fyr-
irtækjanna. Stefnt er að
því að undirrita endanleg-
an samning í maí.
► Ingþór Bjarnason, annar
norðurpólsfaranna, kom til
landsins tæpri viku eftir að
hann var sóttur út á ísinn
norðan Kanada. Haraldi
Erni Olafssyni, félaga
hans, sækist ferðin vel og
hefur lagt 226 kílómetra
að baki á 29 dögum. Hann
er nú kominn inn á var-
hugavert vakasvæði.
► Flugvirkjar hjá Flug-
leiðum hafa boðað til
ótfmabundins verkfalls frá
13. apríl, semjist ekki fyrir
þann tíma. Komi til verk-
falls stöðvast allt flug til og
frá landinu samdægurs.
► Breytingar á vörugjaldi
bifreiða voru samþykktar
á Alþingi og eru áhrif
þeirra farin að koma í ljós í
lækkandi bflaverði.
► Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra er nú staddur í
opinberri heimsókn til
Kanada. Hann tilkynnti við
upphaf hátíðarhalda í til-
efni afmælis landafund-
anna í Ameríku að stjórn-
völd hefðu ákveðið að opna
sendiráð í Ottawa í mars.
í Vatneyrarmálinu
MEIRIHLUTI Hæstaréttar komst að
þeirri niðurstöðu í Vatneyrarmálinu
svonefnda, að 7. gr. laga um stjórn
fiskveiða, um úthlutun aflaheimilda,
stæðist ákvæði stjómarskrárinnar um
jafnræði og atvinnufrelsi. Útgerð, út-
gerðarmaður og skipstjóri Vatneyrar-
innar BA voru sakfelld fyrir að hafa
gert út til veiða á síðasta ári án afla-
heimilda og dæmd til greiðslu sektar.
FBA og Islandsbanki
sameinast
BANKARÁÐ íslandsbanka og Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins sam-
þykktu samning um að leggja til við
hluthafafundi félaganna að þau yrðu
sameinuð með skiptahlutfallinu Is-
landsbanki 51% og FBA 49%. Sam-
runinn verður með þeim hætti að
stofnað verður nýtt félag undir nafninu
Íslandsbanki-FBA hf. með tvær meg-
instarfseiningar, fj árfestingarbanka-
starfsemi og viðskiptabankastarfsemi.
Flóabandalagið sam-
þykkir samninga
KJARASAMNINGUR Flóabanda-
lagsins og Samtaka atvinnulífsins var
samþykktur naumlega í atkvæða-
greiðslu. 1.348 greiddu atkvæði með
samningnum, en 1.322 á móti. Á kjör-
skrá voru 11.370, en einungis 2.735 at-
kvæðisbærir menn tóku þátt í at-
kvæðagreiðslunni, eða 24%. Halldór
Björnsson, formaður Eflingar - stétt-
arfélags, sagðist vera óánægður með
niðurstöður atkvæðagreiðslunnar,
tæpara hefði það ekki getað orðið. Ari
Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, sagðist hins vegar vera
ánægður með úrslitin; samþykkið
hefði verið aðalatriði.
Umfangsmikil kynning á ís-
lenskum mat í N-Ameríku
I
Hihnar B. Jónsson svarar spurningum gesta á kynningunni.
Ottawa. Morgunblaðiö.
FARIÐ verður út í umfangsmikla
kynningu á íslenskum mat í tengsl-
um við þúsund ára afmæli í landa-
fundanna í N-Ameríku. Hilmar B.
Jónsson matreiðslumeistari stóð
fyrir slíkri kynningu á Chateau
Laurier hótelinu í miðborg Ottawa í
Kanada í vikunni, en hátíðahöld
vegna afmælisins hófust formlega
þar að viðstöddum Davíð Oddssyni
forsætisráðherra.
Yfir eitt hundrað viðburðir verða í
Kanada og Bandaríkjunum í ár sem
tengjast landafundaafmælinu með
einum eða öðrum hætti. Efnt verður
til matvælakynningar í tengslum við
mjög marga af þessum viðburðum.
Islenskur fiskur og íslenskt lamba-
kjöt verða kynnt undir yfirskriftinni
Iceland naturally. Auk Hilmars mun
Siggi Hall matreiðslumeistari sjá
um matreiðslukynninguna.
Hilmar var matreiðslumeistari á
Chateau Laurier í eina viku. Á þeim
tíma var boðið upp á íslenskan mat-
seðil, sem Hilmar útbjó, þar sem
lögð var sérstök áhersla á íslenskan
fisk. Hilmar sagði að kynningin
hefði tekist afar vel og matseðillinn
hefði fengið mjög góðar viðtökur.
Hann sagðist sannfærður um að
kynning eins og þessi skilaði um-
talsverðum árangri. Bæði lærðu
kokkarnir á hótelinu að nýta sér
kosti íslenska fisksins við matargerð
og eins vænti hann þess að við-
skiptavinir hótelsins færu ánægðir
frá borðum og pöntuðu sér aftur ís-
lenskan fisk þegar tækifæri gæfist.
Þekkingu á fiski ábótavant
Hilmar hefur í mörg ár unnið að
kynningu á íslenskum matvælum
erlendis. Undanfarin 10 ár hefur
hann ferðast um Bandaríkin í 26
vikur á ári við kennslu og kynningu
á íslenskum fiski á vegum Icelandic
Seafood. Hann sagði að þessi vinna
væri í meginatriðum tvíþætt. í
fyrsta lagi héldi hann námskeið fyr-
ir kokka þar sem hann kenndi þeim
að að matreiða fisk. Hann sagðist
hafa lagt talsverða áherslu á að
heimsækja kokkaskóla og fræða
kokkanema um kosti íslenska fisks-
ins. Kokkanámið væri mjög dýrt og
flestir sem útskrifuðust yrðu fljót-
lega yfirmatreiðslumenn á hótelum
og veitingahúsum. Þeir útbyggju því
matseðla og réðu innkaupum. I öðru
lagi sagðist Hilmar hafa verið að
ferðast um til að fræða sölumenn
um íslenska fiskinn. í Bandaríkjun-
um væru nokkur þúsund fisksölu-
menn og þeir réðu eðlilega miklu um
hvert þeir beindu viðskiptum sínum.
Hilmar sagði að þekkingu mat-
reiðslumanna í Bandaríkjunum á
fiski væri mjög ábótavant. Þeir
kynnu ekki að meðhöndla hann og
þekktu í mörgum tilvikum ekki
hvernig best væri að matreiða hann.
Meðal annars vegna þessarar van-
þekkingar væri mikið af slæmum
fiski á boðstólum á veitingahúsum
og þetta hefði að sjálfsögðu neikvæð
áhrif á fiskneyslu. Fiskur væri þar
að auki nokkuð dýr matur og raunar
sagðist hann vita þess dæmi að veit-
ingahús hefðu tekið hann út af mat-
seðlum sínum af þeim sökum. Fisk-
neysla hefði samt sem áður örlítið
aukist í Bandaríkjunum á seinni ár-
um. Markaðurinn í Bandaríkjunum
væri hins vegar gríð arlega stór og
tækifærin til að ná betri árangri
mjög mikil. Hann sagðist því telja
fulla ástæðu til að auka kynningar-
starf af þeim toga sem hann hefði
sinnt. „Ég held að ég geti fullyrt að
ég sé eini maðurinn í Bandaríkjun-
um, og þá tel ég kokkaskólana ekki
með, sem hef það að atvinnu að
kenna fólki að elda fisk. Það er full
þörf á því að 50 slíkir séu að störf-
um,“ sagði Hilmar.
Rússar sviptir
atkvæðisrétti
ÞING Evrópuráðsins í Strassborg
samþykkti á fimmtudag að svipta
sendinefnd Rússa atkvæðisrétti vegna
mannréttindabrota herliðs Moskvu-
stjórnarinnar í Tsjetsjníu. Einnig var
samþykkt að semdu Rússar ekki um
vopnahlé við skæruliða myndu þeir
verða reknir úr ráðinu. Sendinefnd
Rússa mótmælti niðurstöðunni með
því að ganga úr þingsalnum.
Stjórn Vladímírs Pútíns Rússlands-
forseta harmaði ákvörðun þingsins en
sagðist áfram myndu reyna að treysta
samskiptin við V-Evrópu.
Forseti dúmunnar í Moskvu,
Gennadí Seleznjov, sakaði Vestur-
Evrópuþjóðir um drottnunarhneigð.
Rússar hefðu haft rétt fyrir sér er þeir
mótmæltu loftárásunum á Júgóslavíu.
Nú væru Vestur-Evrópumenn að
hefna sín á þeim og neyttu færis vegna
þess að Rússar stæðu nú höllum fæti.
Microsoft braut lög
gegn hringamyndun
Bandarískur alríkisdómari úrskurðaði
á mánudag að hugbúnaðarfyrirtækið
Microsoft hefði brotið lög gegn
hringamyndun. Fyrirtækið hafi reynt
að ná einokunaraðstöðu á markaði
með því að tengja Explorer-vafrann
við Windows-stýrikerfi sitt og bola
þannig út keppinautum.
Úrskurðurinn var liður í málaferl-
um sem dómsmálaráðuneytið í Wash-
ington og 19 sambandsríki höfðuðu
gegn Microsoft og fagnaði talsmaður
ráðuneytisins niðurstöðu dómarans.
Talið er hugsanlegt að Microsoft
verði skipt upp í smærrí einingar en
aðaleigandi þess, Bill Gates, sagðist
ætla að áfrýja úrskurðinum. Verð á
hlutabréfum í Microsoft féll um tæp
15% og mikið verðfall varð á Nasdaq-
hlutabréfamarkaðnum er fregnir bár-
ust af úrskurðinum en á Nasdaq eru
skráð bréf hátæknifyrirtækja.
► Nýr forsætisráðherra,
Yoshira Mori, tók við í Jap-
an á miðvikudag eftir að
Keizo Obuchi fékk heiia-
blóðafall. Hann liggur milli
heims og helju á sjúkra-
húsi. Mori er 62 ára og hef-
ur þrisvar gegnt ráðherra-
embætti en er sagður
reynslulaus í utanríkismál-
um. Hann er úr íhaldssöm-
um armi stjórnarflokks
frjálslyndra demókrata.
► Nawas Sharif, fyrrver-
andi forsætisráðherra
Pakistans, var á föstudag
dæmdur í lífstíðarfangelsi
fyrir morðtilraun og fleiri
sakir. Herforingjastjórn
landsins undir forystu
Pervez Musharrafs hafði
áður gefið í skyn að hann
yrði ef til vill líflátinn.
► Miðbær Lilleström í
Noregi var rýmdur á mið-
vikudagsmorgun af ótta
við að sprenging yrði í log-
andi járnbrautarvagni sem
hlaðinn var própangasi.
Eldur varð Iaus er lestin
rakst á kyrrstæða lest á
járnbrautarstöðinni í bæn-
um, líklega vegna hemla-
bilunar.
► Niðurstöður rannsóknar
á vegum bresku neytenda-
samtakanna benda til þess
að handfrjáls búnaður á
farsíma dragi ekki úr ör-
bylgjugeislun við höfuð
notenda. Þvert á móti þre-
faldi hann geislunina, hann
virki eins og eins konar
loftnet og auki þannig
geislunina. Framleiðendur
farsíma draga niðurstöð-
urnar í efa. Umdeilt er
hvort örbylgjugeislun frá
farsímum geti aukið hætt-
una á krabbameini og fleiri
sjúkdómum.
Feðgarnir Jón Kristinn Marteinsson og Jón Kristinn Jónsson með fjóra sjóbirtinga úr Hörgsá.
Á <11111(1(1
(msund lilvil n<mir
i verk I killdórs l <ixncss
scin <1II<11IHT<1 snilld h<ins
VAKA- HELGAFELL
Siótuiiuln (1 ■ Simi SS() 5000
Risabirt-
ingar úr
Hörgsá
SJÓBIRTINGUR gaf sig heldur
betur í Hörgsá á Síðu á föstudag-
inn. Veiðimenn sem þá reyndu fyr-
ir sér fengu þrettán fiska á skömm-
um tíma í tveimur neðstu hyljunum
og voru þeir stærstu sannkallaðir
risabirtingar, eða 17 og 15 punda.
„Þetta er með því besta sem við
höfum lent í og alltaf gaman að fá
svona stóra fiska. Við slepptum öll-
um fiskunum nema fjórum og einn
þeirra sem við slepptum var lengri
heldur en sá 17 punda. Hann var
hins vegar mjög horaður eftir vet-
urinn,“ sagði Jón Kristinn Mar-
teinsson, leigutaki árinnar, í sam-
tali við Morgunblaðið. Hann sagði
talsverðan ís enn á ánni og viður-
eignirnar við þá stóru hefðu verið
mjög tvísýnar þar eð þeir leituðu
stöðugt undir skarir.