Morgunblaðið - 09.04.2000, Page 18

Morgunblaðið - 09.04.2000, Page 18
18 SUNNUDAGUR 9. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Mikilvæg við- horf í íslenskri myndlist Úr slippnum eftir Snorra Arinbjarnar, málverk frá 1936. MYNDLIST Listasafn íslands SNORRI ARINBJARNAR, JÓN ENGILBERTS OG JÓHANN BRIEM MÁLVERK Sýningin er opin frá 11 til 17 alla daga ncma mánudaga og stendur til 14. maí. Á F JÓRÐA áratug tuttugustu ald- ar kom fram ný kynslóð myndlistar- manna á Islandi sem boðaði önnur viðhorf en ríkt höfðu í list frumkvöðl- anna svokölluðu - þeirra Þórarins B. Þorlákssonar, Ásmundar Jónssonar, Jóns Sveinssonar og Jóhannesar Kjarval. List þeirra fjögurra átti sér rætur í nítjándu öldinni þótt allir færu þeir síðan sínar eigin leiðir, en nýja kynslóðin sótti sér innblástur í stefnur sem komu upp á umbrota- tímunum um aldamótin. Þegar þeir Snorri Arinbjamar, Jón Engilberts og Jóhann Briem koma að þessum listrænu hugleiðingum seint á þriðja áratugnum eru þær reyndar ekki lengur nein nýlunda á meginlandinu en hafa samt haft yfir sér ferskan blæ bomar saman við þá akademísku list sem kennd hafði verið í listaskól- um Norðurlandaum árabil. Þetta var expressjónisminn sem fyrst hafði ratt sér tii rúms undir lok nítjándu aldarinnar og náð mestum áhrifum á fyrsta áratug þeirrar tuttugustu þegar hann varð kveikjan að gagn- gerri endurnýjun í málaralist, til dæmis þegar Kandinskí fór fyrstur manna að mála óhlutbundin málverk. I Frakklandi vora Gauguin og Matisse helstu forvígismenn þessar- ar stefnu en þó hafði hún meiri áhrif í Þýskalandi þar sem Kirchner, Pechstein, Kokoschka og fleiri urðu til að taka hana upp. En einn fyrsti listamaðurinn til að kanna möguleika hins nýja stíls var þó Norðmaðurinn Edvard Munch sem strax um miðjan níunda áratug nítjándu aldar var far- inn að búa til myndir í expressjónísk- um stíl. íslendingamir kynntust ýmsum hliðum stefnunnar. Þeir Snorri og Jón drakku af sama branni og lærðu báðir hjá norska málaran- um Axel Revold sem sjálfur hafði verið við nám hjá Matisse á árunum 1908 til 1910. Þannig kynntust þeir í náminu bæði frönsku stefnunni og norskri hefð. Jóhann fór hins vegar til Dresden til náms, en þar átti þýski expressjónisminn upphaf sitt í starfi hópsins „Die Bracke“ sem Kirchner, Schmidt-Rottluf og Nolde störfuðu í ásamt öðram. Sér þess stað í verkum Jóhanns að hann hefur tileinkað sér notkun sterkra framlita og ögrandi andstæðna að hætti þessa skóla. Þessir þrír ungu málarar mótuðu þó allir sinn sérstæða stíl þrátt fyrir erlend áhrif á námsárunum og tókust af krafti á við íslensk viðfangsefni, ekki síst fátæktina og doðann sem einkenndi íslenskt samfélag á fjórða áratugnum og var fylgifískur kreppu og atvinnuleysis. Bæði Jón og Snorri mála drangalegar götumyndir þar sem umkomulaust fólk ráfar um í verk- og vonleysi. Þessa viðfangsefn- is gætir ekki eins í verkum Jóhanns heldur mátar hann sig við fjölbreytt viðfangsefni fyrstu árin eftir heim- komuna. Á sýningunni í Listasafni Islands eru verk eftir þessa þrjá málara frá ýmsum tímum, enda var ferill þeirra allra langur, þótt Snorri hafi reyndar látist árið 1958, aðeins fimmtíu og sjö ára gamall. Verkin sýna því ólík við- fangsefni og áherslur og ólík tímabil í stílþróun listamannanna. Margar myndirnar hafa sjaldan sést á sýn- ingum eða að minnsta kosti ekki í langan tíma og meðal annars eru þar tvær myndir sem lengi hafa hangið í sendiráði íslendinga í Moskvu og fáir Islendingar hafa séð. Hér gefst því betra tækifæri en við höfum lengi haft til að skoða list þessara merku málara sem um áratuga skeið vora með þeim atkvæðamestu í íslensku myndlistarlífi. Með því að skoða þroskaferil listamannanna má líka sjá vel hvernig persónulegur stíll hvers og eins þróast. Af götumynd- um Snorra frá fjórða áratugnum get- um við séð hvernig hann leggur sí- fellt mehn áherslu á vægi lita- Gulur riddari og blá jómfrú eftir Jóhann Briem frá 1945. flatanna, en á síðustu áram ævinnar málaði hann myndir, meðal annars landslagsmyndir, þar sem þessi úr- vinnsla var orðin svo ráðandi að myndirnar m-ðu nánast afstrakt. Við kynnumst því hvernig munúð- arfull meðferð Jóns á konulíkaman- um breytist úr gáskafullum leik í eins konar sáran trega og sjáum hvernig hin ýmsu tímabil og viðfangsefni í list Jóhanns tengjast gegnum úrvinnslu hans á litasamsetningum og spennu- þrunginni myndbyggingu, en þar hefur vart nokkur íslenskur málari verið honum fremri. Sýningin er með öðram orðum áhugaverð og fróðleg kynning á mik- ilvægum viðhorfum í íslenski’i myndlist sem ekki er laust við að yngri listamenn hafi oft misskilið og vanmetið. Það er afar vandasamt að setja upp sýningar á safnaeign og reyna að tefla saman verkum svo úr verði heild sem talai’ til áhorfenda og vekur hjá þeim áhuga og skilning. I þetta sinn verður þó ekki annað sagt en það hafi tekist vel. Jón Proppé Heiðríkja í vesturheimi Lúterska kirkjan Gardar er staðsett í miðhluta smábæjarins Gardar um tíu kílómetra suður af Mountain í Norður-Dakota ríki. Lúterska kirkjan Thingvalla er staðsett í Pembína-sýslu um 5 km suður af Mountain í Norður-Dakota ríki. Fyrir framan kirkjuna er stórt minn- ismerki um Káin, Kristján Níels Júlíus. Kirkjan er sveitakirkja og stend- ur ein og afskekkt þar sem áður var lítið samfélag Eyfjord. LIST OG IIÖ]\n\lJ]\ Lislasafn Kúpavugs — Gerðarsafn LjÓSMYNDA- OG SÖGUSÝNING KIRKJUR I' VESTURHEIMI GUÐMUNDUR VIÐARSSON/ JOHN RUTFORD Opið alla daga frá 12-18. Lokað mánudaga. Til 24. apríl. Aðgangur 300 krónur. Sýningarskrá 100 krónur. HÁTÍÐARHÖLDIN í tilefni þess að þúsund ár era frá kristnitöku á Is- landi era óðast að taka á sig form og einn þáttur þeirra er sýningin Is- lenzkar kirkjur í Vesturheimi, í öllum sölum Listasafns Kópavogs. Um er að ræða ljósmyndasýningu, hverrar aðdraganda má rekja til starfsnáms- dvalar ljósmyndarans Guðmundar Viðarssonar í Bandaríkjunum árið 1994, með styrk frá Fulbright-stofn- uninni. Guðmundur nam við háskól- ann í Minneapolis/St Paul og bjó þá hjá John nokkram Rutford (Hrút- fjörð), þriðju kynslóðar Islendingi, sem var hafsjór fróðleiks um vestur- ferðir Islendinga, sem hann miðlaði af til leigjanda síns af mikilli rausn. Hugmyndin að Ijósmyndun íslenzkra kirkna mótaðist hins vegar líkast til á ferðalagi með Rutford og Donnu, konu hans til Norður-Dakota, en þá urðu á vegi þeirra margar íslenzkar kirkjur sem Guðmundur ljósmyndaði í bak og fyrir, eiginlega allar í ríkinu. Rann um leið upp fyrir honum, hve ís- lenzkar kirkjur era fjölmargar í Vest- urheimi, og hófst þá frekari upplýs- ingaleit með dyggri aðstoð Johns Rutford, en verkefnið var í biðstöðu á tímabilinu 1995-1998. Fjarlægur draumur, þar til einn góðan veðurdag að Guðmundur sá auglýsingu frá kristnihátíðamefnd, vai’ðandi hug- myndir um viðburði fyrir hátíðarhöld- in og þróuðust mál svo gæfulega að nefndin samþykkti að styrkja verk- efnið myndarlega svo það gæti orðið að veraleika árið 2000. Gæfulega, er rétta skilgreiningin, því hér hefur verið unnið afar þarft verk og er hreint stórfurðulegt ef eng- um hefur dottið þetta í hug fyrr, því hér er um að ræða hluta af íslenzkri sögu, ekki einungis trúarsögu heldur, og kannski mun frekar, þjóðarsögu. Það er álit mitt að hið sanna eðli Is- lendinga speglist afar vel í þessum kirkjum, og að þær séu í hæsta máta gild sagnfræði, og um leið verkefni fyrir íslenzka mannfræðinga og mun mikilvægara en að rannsaka erlenda þjóðflokka. Brennur kannski ekki á að vita hið raunsanna eðli Islendinga, hveijh' þeir vora og hvaða væntingar menn höfðu til lífsins á áram áður og gæti það ekki jafnframt gert menn færari um að skilja stöðuna í dag? Þennan þátt íslenzkrar örlagasögu hafði ég alla tíð verið mjög vel meðvit- aður um, en einungis séð í hillingum, aldrei komið nær en til Toronto í Ont- ario, þá að vísu einnig á leið til ætt- ingja í Regina Saskatchewan, en ekki varð úr í það sinnið. Á hinu stórmerka Vesturfarasetri á Hofsósi blossaði áhuginn upp úr öllu valdi og enn frek- ar við minnisstæðan lestur hinnar snjöllu bókar Böðvars Guðmundsson- ar um vesturfarana á Kjarvalsstofu í París síðla árs 1998. Enn er mér í fersku minni, að í gamla daga var það viðkvæði margs eldra fólks, að blómi íslenzku þjóðarinnar hafi fluzt til Vest- urheims, var þá ekki laust við að það setti sig í hátíðlegar stellingar og legði í róminn til áherslu, var svo að skilja sem hinir lítilsgildari ónytjungai- og úrhrök hefðu orðið eftir! Vitaskuld var hér fulldjúpt tekið í árinni, frekar til vitnis um að því var meira en ljós hin mikla blóðtaka sem þessar vesturferð- ir vora lítilli þjóð á hjara veraldar. Raunar var það svo, að ekki síst fá- tæku fólki, hreppsómögum og þurfa- lingum var smalað á skipsfjöl, ekki örgi'annt um að stundum hafi verið beitt óheiðarlegum áróðri og hörku af hálfu sveitarfélaga til að losna við það. íslendingar höfðu enn ekki borið gæfu til að yrkja landsins gæði sökum afturhaldssemi og þröngsýni og hefur ekki tekist enn, allur uppgangur kemur sem fyrr að utan og efniviður burðarstoðanna er ótraustur. Ekki biðst ég afsökunar á þessu persónulega og orðmarga forspjalli, því Guðshúsin er við blasa á veggjum safnsins bókstaflega æpa af sögu í þögn sinni og látlausri reisn og mörg- um mun verða líkt farið og mér við skoðun þeirra. Mann langar strax að vita meira um þau en myndimar og skilvirkir textamir segja gestinum, jafnframt um fólkið sem þar safnaðist saman í bæn og flestir íslendingar sækja einhver venslabönd til. Húsin standa eins og minnisvarðar um landnámið og mikið era þau fögur smíð mörg hver, þótt ekki séu þau mikil um sig, trúarleg útgeislan þeirra meiri ýmsum gervibáknum og himinstigum skinhelginnar. Þá er eft- irtektarvert hve mörg þeirra minna á íslenzkar hefðir í kirkjubyggingu líkt og landnemamir hafi með því viljað finna fyrir hluta af heimaslóðum, í smíð, útliti, nafngift og heiðríkju... Guðshúsin segja okkur frá duglegu og ósérhlífnu fólki sem hélt hópinn þótt fámennur væri, og vora enda kjörinn vettvangur til þess. Hreint og tært ytra byrði þeirra og vönduð smíð yzt sem innst upplýsa að án efa býr ís- lenzk þjóð að ííkari formrænni arf- leifð frá heiðni og kaþólsku en marg- an granar. Frekar klénar skreyting- ar hið innra má rekja til tilskipunar siðbótar um minna vægi slíki-a, einnig að mála yfir og rífa burt eldra skraut, er hafði víða hörmulegar afleiðingar á Norðurlöndum og þá væntanlega ekki síst íslandi. Að valta yfir eldri gildi er enn í dag landlægt, og telst til muna skyldara grannhyggni og minnimáttarkennd hins einangraða útkjálkabúa en beinni og jarðtengdri ást á nýsköpun. Fleira mikilvægt op- inbera kirkjur vestuifaranna, eins og það að landnemamir höfðu gott veg- nesti að heiman sem var athafnasemi og gjörvileiki, og að það þurfti ein- ungis rétt umhverfi og viðhorf til að sú hlið íslenzks mannauðs íosnaði úr viðjum. Þeir viðhéldu ekki aðeins málinu í fleiri kynslóðir heldur auðg- uðu tunguna jafnt af dýram kveðskap sem óborganlegum kersknivísum, sem enn leika á vöram manna í heimalandinu. „Þótt þú langförall legðir...“ Stephans G. snerth- fínu strengina í hveijum sönnum íslend- ingi sem les, ekki síður en kviðlingar Káins lyfta undh' geð guma. Þá er söknuðurinn eftir heimahögunum, þrátt fyrir erfitt líf kulda og harð- ræði, nokkuð sem nútímamaðurinn ætti að staldra við, og hugsa um í þessu yfirborðslega og fánýta lífs- gæðakapphlaupi seinni tíma. Svipað- ar en þó fjölþættari sýningai' hafa vakið óskipta athygli meðal annarra norrænna þjóða, en eitthvað hefur farið úrskeiðis hér, aðsóknin í Arna- stofnun, sem geymir handritin fornu, þjóðargersemarnar, staðfestir það sömuleiðis. Það er svipur heiðríkju yfir mörg- um þessum kirkjum og ljósmyndar- anum, Guðmundi Vigfússyni, hefur tekist að höndla einhvem sérstakan og hreinan tón sem gengur eins og rauður þráður gegnum sýninguna alla. Það er styrkur hennar ásamt því að myndimar era vel teknar og frá- gangur góður, lesmál skýringartext- anna kemst vel til skila og menn skyldu gefa sér góðan tíma á staðn- um. Þótt mögulegt hefði verið að gera sýninguna forvitnilegri með því að bregða upp fleiri mjmdum úr lífi vest- urfaranna er hún samt meira en heimsóknar virði. Við brottför saknar maður þess helst að hafa sýninguna ekki alla í bók og hér er komið verð- ugt verkefni fyrir metnaðarfulla og þjóðholla útgefendur. Bragi Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.