Morgunblaðið - 09.04.2000, Side 21

Morgunblaðið - 09.04.2000, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/Kristinn Þorgerður Ingólfsdóttir og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð búa sig undir vortónleikana í góða veðrinu. Hamrahlíðarkór- arnir kalla á vorið KÓRARNIR í Hamrahlíð, Hamra- hlíðarkórinn og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð, koma saman til að kalla á vorið, undir stjórn Þorgerð- ar Ingólfsdóttur, í hátíðarsal Menntaskólans við Hamrahlíð, í dag, sunnudag. Þeir halda tvenna sameiginlega tónleika með ólíkum efnisskrám kl. 14 og kl. 16. A fyrri tónleikunum verður eingöngu flutt íslensk tónlist og í nokkrum lag- anna verða gestir hvattir til að taka undir sönginn. Á síðari tónleikun- um verða flutt verk frá ýmsum löndum auk íslenskrar tónlistar. Einnig verða ýmsar uppákomur, s.s. hljóðfæraleikur, einsöngsatriði, skylmingasýning. Það munar ekki um það LEIKLIST II ugl e i ku r sjn i r f Mögnlcikliúsinu ÉGSÉEKKIMUNIN Tíu leikþættir eftir Sævar Sigur- geirsson, Þorgeir Tryggvason, Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu Óskarsdóttur, Unni Guttormsdótt- ur, Fríðu B. Andersen, Árna Hjart- arson, Hildi Þórðardóttur, Þórunni Guðmundsdóttur, Ármann Guð- mundsson, Hjördísi Hjartardóttur, Sigríöi Láru Siguijónsdóttur og Öddu Steinu Björnsdóttur. Tónlist: Þorgeir Tryggvason. Leikstjóri: Þór Tulinius. HUGLEIKUR er áhugaleikfélag með hugsjón. Þar er ekki einasta unn- ið útfrá þeirri hugsun að allir sem vilja geti leikið. Þar er einnig unnið útfrá þeirri hugsun að allir sem vilja og áhuga hafa geti' skrifað. Trúir þessari hugsun hafa hugleikarar sett saman leiksýningu byggða á Háva- málum þai- sem á annan tug höfunda leikfélagins hafa sest við skriftir og skrifað eina tíu leikþætti hvem með sínu sniði og era þeir ekki tengdir saman að öðru leyti en því að Háva- mál eru innblásturinn og Hugleikur hvatningin. Utkoman er býsna skrautleg, oftast fyndin, stundum vel skrifuð, oftast vel leikin, stundum vel sungin og ágætlega leikstýrt. Allt er þetta eins og við er að búast og gæði leikþátta eðlilega misjöfn en þó minna misjöfn en fyrirfram hefði mátt ætla. Það er fjöður I hatt Hugleiks og til marks um hversu góðum árangri höf- undasmiðja leikfélagins hefur skilað. Reynsla höfundanna sem semja leikþættina er mjög misjöfn. í hópn- um era bæði byrjendur, sem aldrei hafa samið áður og einnig höfundar sem hófu ritferilinn með Hugleik fyiir vel meira en áratug og hafa gert garð- inn frægan víðar síðan, sumir skrifað fyrir atvinnuleikhúsin með góðum árangri. Þeir félagar Sævar Sigur- geirsson og Þorgeir Tryggvason era höfundar íyrsta þáttarins þar sem birtast hrafnarnir Huginn og Mun- inn. Gervi þeirra minnir á trúða frem- ur en hrafna en hrafnslegt eðli þeirra fer ekki á milli mála og síðar kemur á daginn að gamlh- hrafnar eru enn em- ir. Þeir gegna síðan því hlutverki að tengja saman öll atriðin, era sviðs- menn og skemmtikraftar í senn og ljá þessari annars sundurleitu sýningu þann sameiningarblæ sem nauðsyn- legur er til að allt losni ekki úr reipun- um. Þetta tekst vel og er jafnframt leikræn lausn sem gerir sýninguna í heild að skemmtilegri leikhúsupplif- un. Jóhann Davíð Snorrason og Unn- m- Guttormsdótth' fara á kostum í þessum sérkennilegu hlutverkum. Ekki verður innihald allra þáttanna rakið enda sumt með þeim ólíkinda- blæ sem einkennir Hugleikshöfunda að ósanngjamt er gagnvart væntan- legum áhorfendum að ræna þá þeirri upplifun. Hulda B. Hákonardóttir og Sævar Sigurgeirsson áttu frábæran leik í þættinum „Gáttir allar“. Hulda gerði hinni heimsku ljósku endanleg skil og leikstjórinn nýtti möguleikana út í æsar þar sem Sævar bögglaðist með fót í fötu meðan Ijóskan sinnti viðskiptavinum. Jógúrtþátturinn vai' skemmtileg útlegging á þeirri speki Hávamála að ekki skuli eta á sig gat. Þá kom skemmtilegt innlegg Arna Hjartar- sonar til nýsköpunar í ferðamálum. Ylfa Mist Helgadóttir og Þórann Guðmundsdóttir voru bráðfyndnar þýskai- ferðakonur í ævintýraleit. Adda Steina Björnsdóttir rak smiðs- höggið á sýninguna með ágætum þætti sem gerðist væntanlega árið 1000. Kennslustund í heiðnum sið leystist skyndilega upp vegna trúarskipta, en ótvíræður kostur að áfram mátti blóta á laun og eta hrossaket. Leikstjórinn hefur í upphafi ekld verið öfundsverður af því hlutskipti að gera úr þessum sundurleita efni- viði heildstæða sýningu. Það hefur þó tekist, að því leytinu til að yfír öllu er heildarsamræmi, en þó fær stíll hvers þáttar og höfundar að njóta sín, þann- ig að ljóst er að höfundar Hugleiks eru giska ólíkir þótt sprottnir séu úr sama jarðvegi. Verður að vona að sú ræktun sem hér er sýnd í blóma fái áfram nauðsynlega vökvun. Það mun- ar um minna. Hávar Sigurjónsson ------------------- Garðar Jök- ulsson með tvær sýningar GARÐAR Jökulsson hefur opnað tvær málverkasýningar: I Áningu við Reykjanesbraut í Kópavogi og í Eden í Hveragerði. í Áningu sýnh' Garðar 20 málverk, sem öll eru til sölu. Sýningin stendur fram í maí. I Eden er vorsýning Garðars. Þetta er í fyrsta sinn sem hann sýn- ir fyrir austan fjall og er fyrsta sýningin í Eden á þessu ári. Garðar ætlar að vera í Eden í dag og næstu tvær helgar. Sýningunni, sem einn- ig er sölusýning, lýkur 17. apríl. SUNNUDAGUR 9. APRÍL 2000 21 HÁTÍÐLEGUR í BRAGÐI TPegar íslenski osturinn er kominn á ostabakkann, þegar kann kórónar matargerðina — brceddur eða djúpsteiktur — eða er einfaldlega settur beint í munninn — Ipá er kátíð! Vlú er eisluþjónustan komin á vefinn. hfeimsœktu okkm á www.ostur.is og skoðaðu krœsingarnar. www.ostur. HVÍTA HÚSIÐ / SÍA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.