Morgunblaðið - 09.04.2000, Side 39

Morgunblaðið - 09.04.2000, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. APRÍL 2000 39 MINNINGAR MARGRÉT CHRIS TENSEN + Margrét. Christ- ensen (áður Mar- grét Wium Sigurð- ardóttir), fæddist á Fáskrúðsfirði hinn 18. maí 1963. Hún lést á Líknardeild Landspftalans í Kópavogi hinn 3. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Guðfinna Jóns- dóttir, f. 4. júlí 1944 og Sigurður Wium Árnason, f. 5. janúar 1935. Systkini Mar- grétar eru: Lilja Sigurdís Sigurðardóttir, f. 10. september 1955, maki Egill Óm- ar Grettisson, f. 7. febrúar 1954. Þau eiga tvö börn; Albert Wium Sigurðsson, f. 5. apríl 1966, sam- býliskona Sigrún Valgeirsdóttir, f. 3 október 1959; Ágúst Wium Sigurðsson, f. 1. ágúst 1968, d. 11. mars 1986; Jón Hlífar Sig- urðsson, (Guðfinnuson), f. 6. apríl 1970, maki Nina Berggren Guðfinnuson, þau eiga þrjú börn; Steinar Sigurjón Sörensson, f. 24. júlí 1972, ókvæntur. Hann á eitt barn; Amalia Vilborg Sörensdótt- ir, f. 16. apríl 1974, sambýlismaður Ein- ar Gunnar Her- mannsson, f. 26. september 1966. Þau eiga eitt barn. Margrét lætur eftir sig fimm börn: Hrein Hlífar Gottskálksson, f. 17. apríl 1984, faðir Gottskálk Ágúst Guðjónsson, f. 11. júli 1955 (skilin 1986). Með seinni manni sinum Her- manni Osteby Christcnsen, f. 15. október 1963 (skilin 1997) eign- aðist hún dæturnar Lindu Rós Christensen, f. 7. september 1990; Fanný Adelu Christensen, f. 29. september 1992; Iris Lydiu Christensen, f. 17. febrúarl994 og Ágústu Laufey Christensen, f. 4. júlí 1996. Útför Margrétar fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 10. apríl og hefst athöfnin klukkan 13.30. Ef þú ættir þér ósk. Værirþú hérenn. Lífið býður uppá möguleika En dauðinn skildi eftir sporin þín. Örlögunum ráðum við ekki. En lifum við alla ævi okkar? Elsku systir mín, ég get í raun ekki annað en fundið fyrir þakklæti fyrir þá hvfld sem þér hefur hlotn- ast, eftir langa og stranga með- göngu þessa hræðdega sjúkdóms sem við köllum krabbamein. Eg er þakklát fyrir að hafa fengið að vera með þér þessa síðustu daga. Við átt- um saman stundir sem ávallt verða greyptar í huga minn. Þetta var mesta þolraun sem ég hef upplifað til þessa, að horfa á hvernig þig þraut kraftinn smám saman og það var ekkert sem ég gat gert nema haldið í hönd þína og reynt að sýna styrk. Ég dáist að krafti þínum og baráttuvilja og vonin yfirgaf þig aldrei. Sú von að einhvern daginn kæmist þú aftur heim til barnanna þinna, því hjarta þitt var alltaf hjá þeim það leyndi sér ekki í geislandi brosinu sem ljómaði sem aldrei fyrr í hvert sinn er þú talaðir um og sást þau. Móðurástin er sterkasta afl í heiminum og af henni áttir þú nóg þó ekki gæfist alltaf tækifæri á að rækta hana sem skyldi. Ég get að- eins til þess hugsað að núna sértu laus úr þjáningum þínum og að þú munir vaka yfir okkur öllum um ókomna tíð. Elsku Magga mín, ég mun ávallt varðveita minningu þína í hjarta mér, og ég bið algóðan Guð að vernda og styrkja börnin þín og feð- ur þeirra í þessari miklu sorg, þau eru svo yndisleg og ég veit að þú varst afar stolt af þeim. Ef einhvern tímann reynir á vin- áttu og styrkir böndin þá er það á svona stundum og vini áttir þú svo sannarlega því þeir stóðu við hlið þér þessar síðustu vikur ævi þinnar, þannig vinir eru ómetanlegir og bið ég guð að standa við bakið á þeim í sorginni og leggja blessun sína yfir þá. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir égbið að þú sofirrótt Þó svíði sorg mitt hjarta, þásælteraðvitaafþví þú laus ert úr veikinda viðjum þínveröld erbjörtáný. (Þórunn Sig.) Minning þín lifir. Þín systir, Amý. Öllu er afmörkuð stund, og sér- hver hlutur undir himninum hefir sinn tíma. Að fæðast hefir sinn tíma og að deyja hefii' sinn tíma, að gróðursetja hefir sinn tíma og að rífa það upp, sem gróðursett hefir verið, hefur sinn tíma. Að deyða hefir sinn tíma og að lækna hefir sinn tíma, að kveina hefir sinn tíma og að dansa hefir sinn tíma, að kasta steinum hefir sinn tíma og að tína saman steina hefir sinn tíma, að faðmast hefir sinn tíma og að halda sér frá faðmlögum hefir sinn tíma, að leita hefir sinn tíma og að týna hefir sinn tíma, að geyma hefir sinn tíma og að fleygja hefir sinn tíma, að rífa í sundur hefir sinn tíma og að sauma saman hefir sinn tíma, að þegja hefir sinn tíma og að tala hefir sinn tíma, að elska hefir sinn tíma og að hata hefir sinn tíma, ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstofan sér um stóran hluta af útförum á höfuðborgarsvæðinu og er samkvæmt verðkönnun Mbl. með lægstu þjónustugjöldin v. kistulagningar og/eða útfarar. Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Svcrrir Einarsson útfararstjóri. sími 896 8242 Sverrir Olsen útfararstjóri. Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is / ófriður hefir sinn tíma, og friður hefir sinn tíma. Hvern ávinning hefir starfandinn af öllu striti sínu? Ég virti fyrir mér þá þraut, sem Guð hefir fengið mönnunum að þreyta sig á. Allt hefir hann gjört hagfellt á sínum tíma, jafnvel eilífðina hefir hann lagt í brjóst þeirra, aðeins fær maðurinn ekki skilið það verk, sem Guð gjörir, frá upphafi til enda. (Pd.3.1-3.13.) Elsku Hreinsi minn, Linda, Fanný, Iris og Ágústa, guð veri með ykkur og styrki ykkur nú ogalltaf. Ágúst. Mig langar að minnast Möggu vinkonu minnar, við kynntumst árið 1988 er við bjuggum í sama húsi um nokkurra mánaða skeið. Sú vinátta hefur haldið alla tíð síðan þótt leiðir hafi skilið um nokkur ár þegar hún flutti til Svíþjóðar. Þó skrifuðumst við á fyrstu árin eftir að hún flutti. Við hittumst svo aftur af tilviljun niðri í Mjódd þegar hún var komin heim aftur og vorum þá orðnar nágrannakonur á ný í Breiðholtinu. Hún bauð mér í kaffi og fljótlega í afmælið sitt og þráðurinn var tekinn upp að nýju. Það hafði aldeilis fjölg- að hjá henni sem átti Hrein Hlífar þegar við kynntumst, en var búin að bæta við fjórum yndislegum dætr- um. Þau Hermann höfðu skilið, en höfðu sameiginlega forsjá dætranna og hefur hann ekki látið sitt eftir liggja við umönnun þeirra. Magga var afskaplega hlý mann- eskja, einstaklega alúðleg og aldrei heyrði ég hana hallmæla nokkurri manneskju. Börnin sín fimm annað- ist hún af alúð og umvafði þau elsku sinni og hlýju. Það var alltaf gott að heimsækja Möggu, hún hafði yndi af að bjóða í mat og eldaði sérlega Ijúf- fenga rétti. Barnaafmælin hjá henni voru sér- staklega skemmtileg og ekki var fárast yfir þótt bömin drösluðu svo- lítið út. Því tók hún með stökustu ró og alltaf fengu allir nóg að borða og drekka þótt fjárhagurinn hefði oft verið þröngur. Það er margs að minnast, en ég vil ekki fara út í að rifja upp hennar erfiða veikindastríð hér. Það var þyngra en tárum taki að horfa á eftir svona ungri konu yfir móðuna miklu frá 5 ungum börnum sínum. Ég og börnin mín geymum minningu henn- ar í hjarta okkar um ókomna tíð. Bömum hennar, systkinum, Her- manni og öðrum aðstandendum vottum við okkar dýpstu samúð. Eitt orð, eitt ljóð eitt kvern frá kvaldri sál er kveðja mín. Ég veit þú fyrirgefur, en seinna gef ég minningunum mál á meðan allt á himni og jörðu sefur. Þá flýg ég yfir djúpin draumablá. í dimmum skógum sál mín spor þín rekur. Þú gafst mér alla gleði sem ég á. Þú gafst mér sorg sem enginn frá mér tekur. (Davíð Stefánsson.) Guð geymi þig, elsku Magga mín. Brynhildur (Binna), Sigurður, Eydís og Ingibjörg. Blómustofa Friðjtnns Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík, sími 553 1099. Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Skreytingar fyrir öll tilefni. Gjafavörur. % + Bróðir okkar og vinur, INGIMUNDUR KRISTJÁNSSON, frá Svignaskarði, lést föstudaginn 7. apríl á Sjúkrahúsi Akraness. Vandamenn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FRIÐRIKA HALLGRÍMSDÓTTIR, sambýlinu Bakkahlíð 39, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánu- daginn 10. apríl kl. 13.30. Hjörleifur Hailgríms Herbertsson, Hallbjörg Þórhallsdóttir, Örn Herbertsson, Nanna Kristín Jósepsdóttir, Rafn Herbertsson, Svala Tómasdóttir, Sveinbjörn Smári Herbertsson, Hansína Sigurgeirsdóttir, Hjörtur Herbertsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Útför ástkærrar dóttur okkar, systur og unnustu, ÖNNU SIGRÚNAR WIIUM KJARTANSDÓTTUR, Övre Holmegade 9a, Stavanger, Noregi, fer fram frá Hveragerðiskirkju miðvikudaginn 12. apríl kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið. Sigfríður Inga Wiium, Kjartan Smári Bjarnason, Kristján Smári Wiium Kjartansson, Chris Backman. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin- áttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, INGA R. HELGASONAR hæstaréttarlögmanns, Hagamel 10, Reykjavík. Ragna M. Þorsteins, Álfheiður Ingadóttir Sigurmar K. Albertsson, Ragnheiður Ingadóttir, Steinunn Ásmundsdóttir, Stefán I. Bjarnason, Eyrún Ingadóttir, Birgir E. Birgisson, Ingi Ragnar Ingason, Eva Rún Þorgeirsdóttir, Magnús Ingi, Ingi Kristján og Áslaug Ragna. + Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför ástkærs sonar okkar, bróður, barnabarns og frænda, BJARKA RAFNS HALLDÓRSSONAR, Hesthömrum 7, Reykjavík. Hrönn Jónsdóttir, Halldór Ingólfsson, Ingólfur Halldórsson, Ingibjörn Halldórsson, Júlíus Halldórsson, Ingibjörg Halldórsdóttir, Ingólfur Guðjónsson, Ragnheiður Hannesdóttir, Jón Höjgaard, Hafdís Jónsdóttir, Ragnheiður Hjálmarsdóttir, Margrét Hjálmarsdóttir. r.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.