Morgunblaðið - 09.04.2000, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
GYÐA
MA GNÚSDÓTTIR
+ Gyða Magnús-
dóttir fæddist
11. september 1918.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Akraness 25.
mars síðastliðinn.
Foreldarar hennar
voru Guðrún Guð-
mundsdóttir, f. 20.3
1885, d. 22. 12.
1958, og Magnús
Ólafsson, f. 1.10.
1879, d. 3.9. 1974.
Systkini Gyðu voru:
Kristjana Margrét
Jensdóttir (hálfsyst-
ir), Kristján, Þórður
og Valur hárskeri,
eftirlifandi þessara
systkina.
Eftirlifandi eigin-
maður Gyðu er Krist-
ján Bjarnason bif-
vélavirkjameistari, f.
18.3. 1924. Foreldrar
Kristjáns voru Val-
gerður Kristjánsdótt-
ir, f. 1.5. 1898, d.
1976, og Bjarni Guð-
mann Sigurðsson, f.
19.5. 1900, d. 24.11.
1924.
Börn Gyðu og
Kristjáns: 1) Ragn-
heiður, f. 18.10. 1946,
sem einn er eiginmaður (skildu 1984) Ágúst
Hjalti, f. 19.4. 1943. Börn Ragn-
heiðar: Hinrik Valsson, f. 13.12.
1967, Kristín Magdalena Ágústs-
dóttir, f. 12.9. 1972, og Gyða
Björk Ágústsdóttir, f. 13.1. 1978.
2) Valgerður, f. 27.6. 1952, d. 5.7.
1994, eiginmaður hennar:
Trausti Jónsson, f. 20.5. 1950.
Börn þeirra Gyða Margrét, f. 3.9.
1973, Sigrún, f. 15.8. 1975, Krist-
jana Ósk, f. 23.6. 1984. 3) Guð-
rún, f. 20.7. 1959, eiginmaður:
Pétur ísleifur Sumarliðason, f.
12.3. 1961. Börn þeirra: Kristján
Jóhannes, f. 4.10. 1980, Margrét
Hildur, f. 4.8. 1987, Ólafur Magn-
ús, f. 7.6. 1990. 4) Magnús Ólaf-
ur, f. 4.7. 1960, eiginkona hans
Hulda Ragnarsdóttir, f. 19.9.
1959. Börn þeirra: Ragnheiður,
f. 6.5. 1980, Ólöf Lilja, f. 24.4.
1986, Jóhann Bjarki, f. 5.4. 1994.
títför Gyðu fór fram frá Borg-
arneskirkju 3. apríl.
Nú hefur hún Gyða mín kvatt
þennan heim. Hún var kona sem mér
þótti mikið til koma. Ég var svo lán-
söm að kynnast henni er ég 14 ára
fór að heiman til að fara í Gagn-
fræðaskólann í Borgarnesi. Góður
vinskapur tókst með mér og Guð-
rúnu dóttur Gyðu.
Gyða var mikil kærleikskona, sem
opnaði heimili sitt fyrir óhörðnuðum
unglingi úr sveitinni og tók mér sem
sínu eigin barni. Sérstaklega sterkt
og gott samband var með þeim hjón-
um Gyðu og Stjána og börnum
þeirra, tengdabörnum og barna-
börnum. Á heimili þeirra Arabíu eins
og húsið þeirra var nefnt var oft glatt
á hjalla og kynslóðabilið þekktist
ekki á þeim bænum. Allir skemmtu
sér saman og unglingar sóttu í návist
þeirra hjóna.
Gyða var mjög glaðvær kona, en
þó gat gustað af minni og lét hún
engan vaða yfir sig.
Við krakkarnir biðum alltaf eftir
þeim árlega viðburði þegar þau Gyða
og Stjáni tóku sér sumarbústað á
leigu í Ölfusborgum og buðu okkur í
heimsókn.
Einnig áttum við margar ógleym-
anlegar stundir að „Gyðufelli" rétt
fyrir utan Borgarnes.
Umhyggja þeirra hjóna í minn
garð kom meðal annars fram í því
eitt sumarið er ég vann í prjónastof-
unni í Borgarnesi, að Kristján kom
alltaf labbandi til mín niður í vinnu í
hádeginu með sendingu frá Gyðu.
Var það heitur matur því „stelpuna
átti ekkert að skorta". Ég mun ávallt
vera þakklát fyrir þann kærleika
sem Gyða og fólkið hennar sýndu
mér.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
GekkstþúmeðGuði,
Guðþérnúfylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt
(V. Briem)
Guð blessi Kristján og styrki hann
í sorginni og allt hans l'ólk.
Sesselja Björk
Guðmundsdóttir.
Skilafrestur
minningar-
greina
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: I sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útrunninn
eða eftir að útfor hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins
tiltekna skilafrests.
Opið hús í dag
Spóahólar 12-2. Hæð
4ra herb. + balskúr
Nýkomin í sölu björt og falleg 4ra herbergja 90 fm íbúð á 2. hæð í fjölb.
ásamt bílskúr. Blokkin var múrviðgerð og máluð 1998—1999, svalir endur-
steyptar og þak málað. 3 svefnherbergi og stofa. Suð-vestursvalir. Séð um
þrif á sameign. Áhv. 3,3 millj. Verð 10,8 millj.
Björn og Elfa taka á móti ykkur í dag á milli kl. 14.00 og 16.00.
Gimli, Þórsgötu 26, sími 552 5099.
Opið hús í dag
Kleppsvegur 48 — 5 berb.
Nýkomin í einkasölu sérlega falleg 101 fm 5 herb. íbúð á 4. hæð í viðgerðu
fjölbýli. 2 rúmgóðar stofur með eikarparketi, 3 svefnherb. Glæsilegt útsýni.
Áhv. húsbr. 4,1 millj. Verð 10,5 millj.
Jóhann Steinar og Fjóla taka á móti ykkur í dag á milli kl. 14 og 16.
Gimli, Þórsgötu 26, sími 552 5099.
^533 4800
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Símatími milli kl. 12 og 14
TIL SOLU
FAGRABREKKA VIÐ AKRANES
Á býlinu er rekið snyrtilegt kjúklingabú með u.þ.b. 75 tonna framleiðslu
(gæti hentað til annarskonar rekstrar). Húsakostur samanstendur af 213
fm 2ja hæða íbúöarhúsi, mikið standsettu, 90 fm bifreiðageymslu, nýju
480 fm eldhúsi (límtréshús) og eldri útihúsum, samtals 334 fm. Hitaveita,
þriggja fasa rafmagn. Húsin standa á 24 þús. fm eignarlóð. Frábær út-
sýnisstaður. Áhvíiandi hagstæð lán. Söluverð 49 millj.
lIÍNHAMAR
FflSTEIGNASALA
Bæjarhraiini 10 • Hafnarfirði
Sími 520 7500
Hafnarfjörður - nýjar íbúðir í
Áslandi, 2jar 3ja og 4ra herb.
Um er að ræða glæsilegt sex íbúða hús, 2ja 3ja og 4ra herb. íbúðir, sérinn-
gangur í allar íbúðir. Öllum íbúðum verður skilað fullbúnum að utan sem
innan, án gólfefna, hús klætt að utan með áli, viðhaldsfrítt. Lóð frágengin.
Teikningar og nánari upplýsingar á skrifstofu.
SUNNUDAGUR 9. APRÍL 2000 41
ÞARFTU AÐ SELJA, LEIGJA
EÐA KAUPA FASTEIGN?
Hafðu samband arsalir@arsalir.is
Ársalir ehf. - fasteignamiðlun,
Lágmúla 5, Reykjavík.
Símar 533 4200 - 892 0667 - 899 6520
♦ Ársalir- fasteignamiðlun ♦ Ársalir- fasteignamiðlun ♦
Eb! EIGNAMIÐIXMN
liliri«n llilh U thlkll.l Ui jJuit, I -'l —» . KiHiiir_-■! t "-'*■*■ ll7-T*.' .'lfJl'? '■•O M J I » SÍP
."r,X”nVTÍlItLMI llh
QwRtfl RQQnVltlUM(WHMNlMÚ't WáltÍBlL Wttk|H
ní AUU «>0»)0
Opið í dag, sunnudag, milli kl. 12 og 15
Lautasmári 4 -145 fm - OPIÐ HÚS
Falleg 145,2 fm íbúð á tveimur hæðum í nýlegu fjölbýlishúsi við Lautasmára í
Kópavogi. Vandaðar hurðir, skápar og innréttingar úr kirsuberjaviði. Baðherberg-
ið er flísalagt í hólf og gólf. Frábær staðsetning. Fjögur svefnherbergi. Suðursval-
ir. Magnea sýnir íbúðina í dag, sunnudag, miili kl. 14 og 16. V. tilboö. 9374
Eiðistorg 17 - OPIÐ HUS
Vorum að fá i sölu fallega 106,2 fm 3ja herb. íbúð á 2. og 3. hæð i eftirsóttu fjöl-
býli á Eiðistorgi. Eignin skiptist m.a. í eldhús, rúmgóða stofu, tvö herbergi,
sólskála, baðherbergi og gestasnyrtingu. Parket og flísar á gólfum. Sameiginlegt
þvottahús á hæð. Sif (s. 697 9753) sýnir íbúðina í dag, sunnudag, milli kl. 18 og
20. V. 12,9 m. 9400
EINBÝLI
ATVINNUHUSNÆÐI
Látraströnd - glæsilegt ein-
býti með stórum bflskúr.
Tvílyft glæsilegt um 274 fm einbýlishús
með innbyggðum um 63 fm bílskúr á
mjög eftirsóttum stað. Húsið er allt f
mjög góðu ástandi að utan sem innan,
m.a. nýlegt parket o.fl. Falleg lóð og
ákveðin sala. V. 25,5 m. 9409
HÆÐIR
Skipholt - sérhæð m. bíl-
Skúr. 6 herbergja mjög skemmtileg
efri sérhæð ásamt 28 fm bílskúr og um
40-50 fm rislofti, sem hefur verið inn-
réttað á einkar skemmtilegan hátt. Elgn-
in er í litlum, lokuðum botnlanga og með
friðað óbyggt svæði sunnan hússins.
Ákv. sala. V. 15,6 m. 9401
Brávallagata. Falleg 95 fm mikið
endumýjuð íbúð á 3. hæð í góðu húsi.
Tvær stofur og tvö herbergi. Nýtt parket
á allri íbúðinni. Laus fljótlega. 9402
3JA HERB.
1 7-' ....
Álfheimar. 3ja-4ra herbergja 89 fm
íbúð á jarðhæð með suðursvölum. [búð-
in skiptist í stofu/borðstofu, eldhús,
baðherb. og 2 svefnherbergi. Laus fljót-
lega. V. 9,7 m. 9406
lii iiii 1 m 11 rr-r-^—~ttt———
Tryggvagata - Hafnarhvoll -
til leigu. Höfum verið beðnir að sjá
um útleigu á þessari fallegu götuhæð í
Hafnarvoli við Tryggvagötu. Um er að
ræða vandaða u.þ.b. 386 fm hæð sem
nýtist undir ýmiskonar atvinnustarfsemi,
svo sem skrifstofur, verslun, veitinga-
stað, auglýsingastofur o.fl. Húsn. er allt í
mjög góðu ástandi og hefur húsið allt
verið endurn. að utan. Laust 1.08.2000.
Allar nánari uppl. veitir Stefán Hrafn.
Eldshöfði - til leigu eða sölu
(600-1.800 fm). Erum með til leigu
mjög gott lager- og/eða iðnaðarpláss á
jarðh. við Eldshöfðann. Plássið er nánast
einn salur, u.þ.b. 600 fm með lofthæð
u.þ.b. 3,2 m. Tvennar innkeyrsludyr.
Laust nú þegar. Gæti hentað undir
ýmiskonar atvinnustarfsemi. Möguleiki
er að leigja eða kaupa þetta rými, og
jafnvel allt húsið, sem er þá u.þ.b. 1.800
fm, með stórri aðalhæð, (600 fm), og 5-6
metra lofth., auk skrifstofuh. og starfs-
mannarýmis. Mjög gott fmverð i boði og
mjög hagstæð áhvílandi lán fyrir allt að
75% kaupverðs. Húsið gæti losnað allt
mjög fljótlega ef til sölu kemur. Allar
nánari uppl. veitir Stefán Hrafn. 5475
4