Morgunblaðið - 20.04.2000, Side 1
STOFNAÐ 1913
94. TBL. 88. ÁRG. FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
„Mafíu-
drengur-
inn“ hand-
tekinn
Montreal. AP.
FIMMTÁN ára kanadískur
tölvuþrjótur hefur verið kærð-
ur fyrir að lama vefsetur CNN
sjónvarpsstöðvarinnar og
1.200 vefsíður því tengdar í
febrúar sl., að þvi er kanadíska
lögreglan greindi frá í gær.
Ekki má greina frá nafni
drengsins vegna aldurs, en á
Netinu gekk hann undir nafn-
inu Mafíudrengurinn. Að sögn
Yves Roussel, í kanadísku lög-
reglunni, var það þörf drengs-
ins fyrir að stæra sig af afrek-
um sínum á spjallrás sem
tölvuþrjótar sækja, sem leiddi
til handtöku hans.
I kjölfar handtökunnar
gerði lögregla tölvu hans og
hugbúnað upptækan. Hann
hefur nú verið látinn laus gegn
tryggingu og því skilyrði að
hann dvelji annað hvort hjá
móður sinni eða föður. Þá er
honum einnig gert að forðast
að hafa tengsl við þrjá vini
sína, vera kominn heim fyrir
átta á kvöldin og að nota ekki
Netið.
Morgunblaðið/RAX
Deilan um jarðir hvítra í Zimbabwe
Samþykkt að
heíja samninga-
viðræður
London, Harare, Nairobi. AP, AFP.
ROBERT Mugabe, forseti Zimbabwe, greindi frá því í gær að landtökumenn
og hvítir bændur hefðu samþykkt að hefja samningaviðræður um skiptingu
bújarða í landinu, en sagði jafnframt að jarðimar yrði ekki látnar af hendi í
bráð. Fyrr um daginn hafði Morgan Tsvangirai, leiðtogi stjórnarandstöðu-
flokksins Hreyfing til stuðnings lýðræðislegum breytingum (MDC), hvatt
leiðtoga annarra Afríkuríkja til að fordæma ofbeldisaðgerðir landtökumanna.
„Þátttaka leiðtoga Afríkuríkja er
mjög mikilvæg og það er auðveldara
fyrir þá að fordæma manréttinda-
brot Mugabes heldur en fyrir
Evrópubúa, sem yrðu sakaðir um
kynþáttafordóma," sagði Tsvangir-
ai. MDC ógnar stjórn Mugabes og
segja sumir stjórnmálaskýrendur
ofbeldisaðgerðir landtökumanna
eiga rætur í ótta stjómarflokksins
við að tapa í þingkosningum sem
fram eiga að fara í maí.
Leynilegar viðræður
Aðgerðir landtökumanna í
Zimbabwe hafa víða vakið athygli og
hefur Amos Wako, ríkissaksóknari
Kenýa, hótað að grípa til aðgerða
taki íbúar Kenýa upp á því að sölsa
undir sig land með svipuðum hætti.
Þá segja suður-afrísk dagblöð að
Thabo Mbeki, forseti landsins, hafi
átt í leynilegum viðræðum við leið-
toga Afríkuríkja um ástandið í
Zimbabwe.
Robin Cook, utanríkisráðherra
Breta, varaði síðan við að áfram-
haldandi átök í Zimbabwe kynnu að
ógna stöðugleika í allri suðurálfu
Afríku.
AP
Sprengjuárás
á McDonald’s
LÖGREGLA sést hér girða af
McDonald’s skyndibitastað í gær
eftir að sprengja sprakk á staðnum
með þeim afleiðingum að einn
starfsmannanna fórst. Atburðurinn
gerðist í verslanakjama í bænum
Dinan á Bretagneskaga í Norðvest-
ur-Frakklandi. Talið er að fámenn-
ur hópur aðskilnaðarsinna, Upp-
reisnarher Bretagneskaga, hafi
staðið fyrir árásinni.
Berlusconi krefst
þingkosninga
MASSIMO D’Alema, forsætisráð-
herra Ítalíu, baðst í gær lausnar frá
embætti og samþykkti Carlo Azeglio
Ciampi, forseti
landsins, lausnar-
beiðnina eftir að
hafa hafnað henni
sl. mánudag. For-
setinn ræðir við
leiðtoga stjórn-
málaflokka í dag
um myndun nýrr-
ar ríkisstjórnar,
en honum er einn-
ig heimilt að boða
til þingkosninga nú, eða að skipa
ópólitískan umsjónarmann til að fara
fyrir ríkisstjórninni þar til kosningar
fara fram næsta vor.
Afsögn D’Alema kemur í kjölfar
mikils ósigurs stjórnarflokka mið- og
vinstrimanna í héraðs- og sveitar-
stjómarkosningum á sunnudag.
Stj órnarmynd-
unarviðræður
hefjast í dag
Flokkabandalag auðkýfingsins og
hægrimannsins Silvios Berlusconis,
íyrrverandi forsætisráðherra, fór
með sigur af hólmi. Berlusconi sagð-
ist í gær munu krefjast þess að Ci-
ampi boðaði þegar til þingkosninga,
því óviðunandi væri að næsti forsæt-
isráðherra yrði skipaður úr sama
stjómarsamstarfi. „Það era engin
gild mótmæli við þessari beiðni,"
sagði Berlusconi.
Verði boðað til þingkosninga nú
mun það hins vegar koma í veg fyrir
að breytingar verði gerðar á kosn-
ingakerfinu í maí líkt og til stendur.
Ólíklegt er þó talið að Ciampi boði
strax til kosninga þar sem hann hef-
Elian kyrrsettur
Washington. AFP.
DÓMARAR við alríkisdómstól í
Atlanta staðfestu í gær að „Kúbu-
drengurinn“, Elian Gonzalez, skuli
dvelja í Bandaríkjunum þar til
áfrýjunardómstóll hefur úrskurðað
í máli ættingja drengsins í Miami,
sem vilja að honum verði veitt
dvalarleyfi í Bandaríkjunum.
Kyrrsetning Elians kemur þó, að
mati Janet Reno, dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, ekki í veg
fyrir að Elian fái að dvelja hjá föð-
ur sínum á meðan að réttað er í
máli hans. „Við munum hlýða úr-
skurði dómstólsins, en hann brýtur
ekki í bága við ákvörðun mína. Það
segir hvergi að drengurinn geti
ekki dvalið hjá föður sínum í þessu
landi,“ sagði Reno eftir að úrskurð-
urinn lá fyrir.
ur áhuga á að breytingarnar nái að
gangaígegn.
Amato talinn líklegur
Líklegastur til að taka við embætti
forsætisráðherra, verði framhald á
stjórnarsamstarfi mið- og vinstri-
flokka, þykir Giuliano Amato,
óflokksbundinn fjármálaráðherra
sem áður tilheyrði flokki jafnaðar-
manna. Einnig þykir Antonio Fazio,
bankastjóri ítalska seðlabankans,
líklegur.
Ciampi mun í dag ræða við forseta
efri og neðri deildar þingsins, sem og
helstu stjórnmálaleiðtoga. Hann
mun þar, að sögn talsmanna sinna,
fara þess á leit að nýr þingmeirihluti
verði myndaður. Þingið verður að
samþykkja ríkisstjórn nýs forsætis-
ráðherra innan tíu daga. Hljóti hann
ekki stuðning þingmeirihluta getur
Ciampi boðað til kosninga á ný, en þó
ekki fyrr en að 45 dögum liðnum
D’Alema hvatti í gær til að ekki
yrði efnt til nýrra kosninga þegar að-
eins ár væri eftir af kjörtímabilinu.
„Það er ekki sanngjamt að kosninga-
ósigri fylgi þingrof, sagði D’Alema
og endurspegluðu orð hans áhyggjur
stjórnarflokkanna að þeirra bíði ann-
ar ósigur verði boðað til kosninga nú.
MOROUNBLAÐIÐ 20. APRÍL 2000