Morgunblaðið - 20.04.2000, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sjö millilanda-
skip stöðvast
komi til verkfalls
SJÖ flutningaskip í millilandasigl-
ingum og tvö strandferðaskip munu
stöðvast fljótlega, komi til verkfalls
hjá farmönnum innan Sjómannafé-
lags Reykjavíkur á miðnætti aðfara-
nótt 1. maí nk.
Samskip eru með 2 skip í milli-
landasiglingum sem verkfallið mun
hafa áhrif á og stöðvast annað
þeirra 4. maí, en hitt kemur heim
viku seinna og stöðvast þá væntan-
lega að lokinni losun skipsins. Eitt
strandferðaskip er í siglingum hjá
Samskipum og stöðvast það 3. maí,
komi til verkfalls sem mun þá fljót-
lega stöðva allan rekstur Samskipa.
Eimskip hafa alls 9 skip í sigling-
um og þar af eru 3 leiguskip með er-
lenda áhöfn sem öll eru í millilanda-
siglingum. Þorkell Sigurlaugsson,
framkvæmdastjóri þróunarsviðs,
segir að öll skipin með sjómenn í
Sjómannafélagi Reykjavíkur um
borð muni stöðvast um leið og þau
koma til Reykjavíkur, en gert er ráð
fyrir að leiguskipin muni sigla
áfram.
„Við erum alls með níu skip, þar
af eitt á ströndinni og 3 leiguskip
með erlenda áhöfn, þannig að 5 skip
í föstum millilandasiglingum stöðv-
ast þegar þau koma til Reykjavíkur
og búið er að losa þau. Það er síðan
eitt skip í strandsiglingum, en það
er auðvitað allt öðruvísi mál, því það
er heilmikið keyrt af vörum hér inn-
anlands. En þetta hefur alltaf slæm
áhrif.“
Fyrst í stað mun verkfallið fyrst
og fremst hafa áhrif á útflutning,
sem stöðvast strax, en innflutningur
mun halda áfram á meðan skip í
millilandasiglingum koma heim eitt
af öðru og stöðvast að lokinni losun.
Heildarafli íslenskra skipa
í marsmánuði, 1997-2000
Botnfiskafli
° 1997 1998 1999 2000
íslenskri
lögsögu
Botnfiskaflinn
í mars, þúsund tonna
Þorskur
97 98 99 00
Taka þátt í gerð vinsæls sjónvarpsþáttar í Malasíu í sumar
Tækifæri til að upplifa ævin-
týri áður en alvaran tekur við
ÆVINTÝRAÞRÁIN réð meiru en
peningahyggjan þegar Edda
Blöndal (24) og Bjarni Örn Kærne-
sted (26) réðu sig í sumarvinnu.
Þau halda í endaðan maí áleiðis til
Malasíu þar sem þau munu koma
sér fyrir á eyðieyju nærri Singapúr
og taka þátt í gerð sænsks sjón-
varpsþáttar sem kenndur er við
Róbinson Krúsó.
„Þetta er tækifæri til að upplifa
dálítið ævintýri áður en alvara lífs-
ins tekur við,“ segir Edda en þau
Bjarni hyggja senn á húsnæðis-
kaup. „Eg myndi ekki vilja vakna
upp við það eftir nokkur ár að sjá
eftir því að hafa ekki gripið þetta
tækifæri þegar það gafst.“
Gantast hún með að ef samband
þeirra Bjarna lifi af þá prófraun að
búa saman á eyðieyju í Austurlönd-
um §ær hafi þau ekki mikið að ótt-
ast í þeim efnum.
Bjarni, sem er að klára tölvu-
fræðinám við Háskólann í Reykja-
vík, og Edda, sem stundar nám í
sjúkraþjálfun við Háskóla íslands,
munu hafa það verkefni að fylgjast
á nóttunni grannt með hópi fólks
sem á daginn á sér það markmið að
standa uppi sem sigurvegari í
keppni sem snýst um það að jafnast
á við þekktustu sögupersónu Dan-
iels Defoe. Er markmið keppninnar
að finna þann sem best getur bjarg-
að sér á eyðiey án allra hjálpar-
tækja og fjarri allri siðmenningu.
Keppnin er með vinsælla sjón-
varpsefni sem sýnt er í sænsku
sjónvarpi um þessar mundir, svo
vinsæl að Strix-sjónvarpsstöðin,
sem er dótturfyrirtæki Stöðvar 3
og á einkarétt á hugmyndinni, hef-
ur selt norskum, dönskum, belgísk-
um og hollenskum sjónvarpsstöðv-
um rétt tii að nýta sér hana Iíka.
Segir Edda að þeim Bjarna hafi
Morgunblaðið/Golli
Edda Blöndal og Bjarni Örn Kærnested Malasíufarar.
boðist að taka þátt í ævintýrinu í
gegnum Sjöfn, systur Eddu, sem
vinnur hjá Strix.
Keppendur í Róbinson-keppninni
hafast við á eyðieyjunni Pualu
Tenga í Malasíu og eru í upphafi
sextán en fækkar síðan smám sam-
an uns einn stendur uppi sem sigur-
vegari. Starfslið sjónvarpsþáttanna
verður hins vegar með búðir á
nágrannaeyjunni Pulau Besar en
báðar eru eyjarnar í eyjaklasa
nærri Singapúr. Verða Bjami og
Edda í hópi þeirra sem sjá um að
vaka yfir keppendum á nóttunni
þegar sjónvarpsmenn eru fjarri
góðu gamni.
„Edda var þama 1997 þegar
keppnin var haldin í fyrsta skipti
og þá veiktist t.d. einn keppandinn
um miðja nótt,“ segir Bjarni. Þá er
þáð hlutverk næturvarðanna að
koma til aðstoðar, hringja eftir
hjálp og annað þess háttar og munu
þau Bjarni og Edda sækja nám-
skeið í skyndihjálp áður en þau
taka til starfa.
Edda vann sem aðstoðarmaður
við gerð þáttanna árið 1997, sem
var fyrsta árið sem þeir vom fram-
leiddir, og Bjarni hefur komið til
bæði Balí og Indónesíu. Þau ætla að
reyna að nota tækifærið í sumar og
heimsækja t.d. Singapúr og Kúala
Lúmpúr, höfuðborg Malasíu, enda
segist Edda hafa séð eftir því eftir
fyrri dvöl sína á þessum slóðum að
hafa ekki kynnt sér menningu og
sögu svæðisins og áttað sig betur á
þeim möguleikum sem hún hafði.
Segist hún afar ánægð með að fá
annað tækifæri til að gera allt það
sem hún ekki náði að gera í fyrra
skiptið og Bjarni tekur undir það
að þó að launin séu ekki góð þá sé
allt uppihald og ferðalög til og frá
vinnu greitt af Strix og því um frá-
bært tækifæri að ræða.
Starfshópur dómsmálaráðherra vinnur frumdrög að nýju fangelsi
Utboðslýsing liggi fyrir í ár
Metafli í
mars
FISKAFLI landsmanna í marsmán-
uði var alls um 330.173 tonn. saman-
borið við 265.023 tonn í marsmánuði
árið 1999. Munar þar mestu um tæp-
lega 79 þúsund tonna aukningu í
loðnuafla. Botnfiskaflinn dróst hins
vegar saman frá marsmánuði 1999,
fór úr 69.520 tonnum í 56.549 tonn.
Af einstökum botnfisktegundum
var mestur samdráttur í veiðum á
þorski, 5.420 tonn, ýsu, 2.346 tonn og
ufsa, 2.014 tonn.
Fiskaflinn í ár er nokkru meiri nú
en á sama tíma árið 1999, eða 919.775
tonn á móti 790.286 tonnum, sem
skýrist að langmestu leyti af auknum
loðnuafla. Fiskafli á fyrstu þremur
mánuðum ársins varð síðast meiri
árið 1997, en þá komu á land alls
928.745 tonn. Alls veiddust fyrstu
þijá mánuðina rúm 618 þús. tonn af
loðnu árið 1999 en 767 þús. tonn á
þessu ári. Botnfiskaflinn hefur hins
vegar dregist saman um rúm 16 þús.
tonn. Skel- og krabbadýraafli heldur
áfram að dragast saman.
STEFNT er að því að á þessu ári
verði gerð nákvæm útboðslýsing
fyrir nýtt fangelsi sem reist yrði í
Reykjavík og að taka megi það í
notkun árið 2003. Það myndi leysa
af Hegningarhúsið, Kvennafangels-
ið í Kópavogi og hugsanlega fang-
elsið á Akureyri. Gert er þá ráð
fyrir að Hegningarhúsið yrði selt
og hafa komið fram hugmyndir
áhugamanna um að því verði
breytt í veitingahús.
Samkvæmt upplýsingum frá Sól-
veigu Pétursdóttur, dóms- og
kirkjumálaráðherra, eru uppi hug-
myndir um að byggja nýtt fangelsi
á lóð við Tunguháls í Reykjavík
sem er til umráða eða á annarri lóð
sem fengist í skiptum hjá Reykja-
víkurborg. Hafa lóðir á fyrirhuguð-
um byggingarsvæðum við Reynis-
vatn, í Hamrahlíðarlöndum og við
Rauðavatn verið athugaðar sér-
staklega. Nýr starfshópur er nú að
fara yfir frumdrög að nýju fangelsi
og sérfræðingur er að kanna lóða-
málin. Á þessu ári eru 7 milljónir
króna til ráðstöfunar í undirbún-
ingsvinnu, en samkvæmt upplýs-
ingum frá ráðherra er stefnt að því
að nákvæm útboðslýsing verði
samin á þessu ári og byggingin
boðin út í alútboði á næsta ári,
verði fjárveitingar þá tryggðar. Þá
myndi nýtt fangelsi verða tilbúið
árið 2003. Kostnaðaráætlun liggur
enn ekki fyrir.
Lóð fyrir nýtt fangelsi þarf að
uppfylla ýmis skilyrði og vera milli
8.800 og 14.600 fermetrar að stærð.
Hún þarf að vera vel tengd stofn-
brautum borgarinnar, þannig stað-
sett að lítið sjáist inn á hana utan
frá og má ekki valda röskun eða
óþægindum fyrir næsta nágrenni.
Fjölnotafangelsi
Nýtt fangelsi yrði fjölnota og
yrði því ætlað að vera móttöku-
fangelsi, gæsluvarðhaldsfangelsi,
kvennafangelsi, afplánunarfangelsi
fyrir vararefsingu fésekta og al-
mennt afplánunarfangelsi. Auk
fangaklefa yrðu þar einnig dagvist-
arrými svo sem kennsludeild, bóka-
safn, rými fyrir íþróttaiðkun og
vinnusvæði, yfirheyrsluherbergi og
aðstaða fyrir lögmenn og dómara,
ráðgjafarstofur fyrir þá sem starfa
með föngum, þjónusturými og að-
staða fyrir starfsmenn auk útvist-
arsvæðis.
Fangelsinu er ætlað að vera mót-
töku- og gæsluvarðhaldsfangelsi og
kvennafangelsi en fjöldi gæsluvarð-
haldsfanga er breytilegur og því
ráðgert að haga nýtingu fangelsis-
ins í samræmi við það. Taka þarf
tillit til þess að gæsluvarðhalds-
fangar í einangrunarvist mega eng-
in samskipti hafa við aðra fanga
hvorki í innivist né úti við.
Með tilkomu nýs fangelsins yrði
unnt að selja Hegningarhúsið, en
fram hefur komið að nefnd
Evrópuráðsins sem meðal annars
fylgist með aðbúnaði fanga telur
það ekki uppfylla skilyrði um að-
búnað. Þá yrði einnig unnt að
breyta Kópavogsfangelsinu í opið
fangelsi eða selja húsnæðið, en
ekki liggur fyrir úttekt eða spá um
hversu brýn þörf sé fyrir opið fang-
elsi til viðbótar við Kvíabryggju.
Sérblöð í dag
^Mwmm
mmmi
«tiii
ATVINNURAÐ-
OG SWIÁAUGLYSINGAR
KR kjöldró Grindavík í
Frostaskjólinu/C2
pk$wm
bm'intiítf.ii.itiUt
fft'r Uiihfth
umtuuui
Manchester United úr leik í meist-
aradeild Evrópu/C3