Morgunblaðið - 20.04.2000, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fundur S VÞ með hagsmunaaðilum um verðkannanir í verslunum
Sammála um nauðsyn
vandaðra verklagsreglna
SAMTÖK verslunar og þjónustu (SVÞ) gengust
fyrir fundi með hagsmunaaðilum um framkvæmd
og framsetningu á verðkönnunum í gær. Fundar-
menn voru sammála um að nauðsynlegt væri að
fyrir lægju vandaðar verklagsreglur um gerð og
kynningu verðkannana svo þær gætu sem best
þjónað hlutverki sínu. Var ákveðið að skipa nefnd
með fulltrúum SVÞ, Neytendasamtakanna og fleiri
aðila sem hefði það hlutverk að semja slíkar reglur.
Fækkar verðkönnunum á matvöru?
Verðkannanir Neytendasamtakanna og ASÍ
hafa verið harðlega gagnrýndar að undanfömu, en
Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri SVÞ, sagði
að umræðumar í gær hefðu verið bæði jákvæðar
og gagnlegar. Að hans sögn kom m.a. fram á fund-
inum að vegna mikillar samkeppni í matvöraversl-
uninni væri ekki jafn rík ástæða og áður til að gera
tíðar verðkannanir á matvöra.
„Það kom fram bæði hjá Neytendasamtökunum
og Samkeppnisstofnun að vegna þeirrar miklu
samkeppni sem er í matvöraversluninni sé ekki
jafn rík ástæða og var áður að gera verðkannanir
þar, þó eðlilegt væri að gera það af og til. Það kom
íram hjá Neytendasamtökunum að þau hefðu mik-
inn hug á að beina auknum þunga að gerð frekari
verðkannana á ýmsum sérvarningi og þjónustu,“
sagði Sigurður.
Á fnndinn í gær mættu fulltráar samkeppnisyf-
irvalda, Neytendasamtakanna og ASÍ, stærstu
matvöraverslana, m.a. frá Baugi, Kaupási, Sam-
kaupi, Matbæ og Fjarðarkaupi.
Að sögn Sigurðar var viðfangsefni fundarins að
ræða leiðir til að tryggja fagleg og vönduð vinnu-
brögð við verðkannanir í verslunum og þjónustu-
fyrirtækjum. Menn hefðu verið sammála um að
verðkannanir væru mikilvægt tæki til að viðhalda
heilbrigðri samkeppni og upplýsa neytendur.
„Tónninn var mjög góður á fundinum. Það er
greinilegt að menn vilja ekki vera að þrátta um
svona hluti. Menn verða að koma sér niður á vinnu-
reglur sem allir geta lifað við,“ sagði hann.
Vakt á Fréttavef
mbl.is um páska
Vígslusýning Þjóðleikhússins 1950 á Islandsklukkunni. Herdís Þor-
valdsdóttir í hlutverki Snæfríðar íslandssólar.
Pjóðleikhúsið
50 ára í dag
FRÉTTAÞJÓNUSTA verður á
Fréttavef Morgunblaðsins (www.-
mbl.is) um páskana þar sem fluttar
verða fréttir af atburðum liðandi
stundar, svo sem fundi Ingþórs
Bjarnasonar og Haraldar Arnar Ól-
afssonar pólfara á norðurskautsísn-
um, opnun Þjóðmenningarhússins,
öðram menningarviðburðum, íþrótt-
um o.fl.
Þá verður leikdómur um hátíðar-
sýningu Þjóðleikhússins birtur á
mbl.is og sagt verður þar frá hátíðar-
SAMFYLKINGIN bætir við sig
fýlgi miðað við fyrri kannanir og
fengi 21,9% ef kosið væri nú sam-
kvæmt könnun Gallup á fylgi stjóm-
málaflokka sem birt var í gær.
Framsóknarflokkurinn mælist með
13,7% fylgi, Sjálfstæðisflokkurinn
með 42,8%, Vinstrihreyfingin -
grænt framboð með 19,1% og Frjáls-
lyndi flokkurinn 1,9% skv. niður-
stöðum könnunarinnar. Dregið hef-
ur úr fylgi Framsóknarflokksins og
Vinstrihreyfingarinnar frá seinustu
könnun en fylgi Sjálfstæðisflokksins
stendur nokkurn veginn í stað.
Könnunin leiddi í ljós að veralegur
munur er á fylgi flokka eftir kynjum.
Þannig mældist Framsóknarflokk-
urinn með 12,7% fylgi meðal karla
BILUN varð í fyrrinótt í bordælu
sem dælir heitu vatni til Stykkis-
hólms. Kólnaði þá strax í húsum, en
vonast var til að viðgerð lyki fyrir
klukkan 6 á fimmtudagsmorgni.
Gripið var til þess ráðs að tengja
sjúkrahúsið, hótelið og dvalarheimil-
ið inn á gömlu kerfin, sem fyrir era.
Vinna við að ná dælunni upp úr
holunni hófst strax og var unnið alla
nóttina og um hádegisbil náðist hún
dagskrá í tilefni af hálfrar aldar af-
mæli Þjóðleikhússins.
Greint verður frá helstu íþróttavið-
burðum eins og t.d. úrslitakeppni í
handknattleik og körfuknattleik og
víðavangshlaupi IR í dag, sumardag-
inn fyrsta. Blaðamenn Fréttavefjar-
ins verða á vakt frá klukkan 7 að
morgni til 18 á skírdag en föstudaginn
langa, laugardag, páskadag og annan
dag páska frá klukkan 9-18. Hægt er
að hringja inn fréttir í sima 8617970
og 5651026 á ofangreindum tíma.
og 14,8% meðal kvenna, Sjálfstæðis-
flokkurinn með 49,6% meðal karla
og 35,4% meðal kvenna. Samfylking-
in nýtur stuðnings 27,5% kvenna en
17,2% meðal karla. Fylgi Vinstri-
hreyfingarinnar meðal karla er
17,6% en ívið meira meðal kvenna
eða 20,8% og Frjálslyndi flokkurinn
mælist með 2,2% fylgi meðal karla
og 1,3% meðal kvenna.
Fylgistölumar vora fengnar úr
tveimur könnunum sem gerðar vora
á tímabilinu 20. mars til 12. apríl.
Úrtakið var 2.124 manns af öllu
landinu á aldrinum 18-75 ára.
Óákveðnir eða þeir sem neituðu að
svara vora rámlega 19% og 6,4%
sögðust ekki myndu kjósa eða skila
auðu.
upp. Kom þá í Ijós að dælan er ónýt.
Lega hafði eyðilagst og skemmt út
frá sér borholustangir. Hægt var að
útvega aðra dælu hjá Orkuveitu
Reykjavíkur og kom hún vestur síð-
degis í gær.
OIi Jón Gunnarsson, bæjarstjóri
sagði að þetta væri heilmikið tjón
fyrir hitaveituna. Dælan var aðeins
nokkurra mánaða gömul, en áætlað
var að hún entist í mörg ár.
í TILEFNI þess að Þjóðleikhúsið
fagnar 50 ára afmæli í dag, 20. apríl,
er fjallað um sögu þess í máli og
myndum í D-blaði Morgunblaðsins í
dag.
Meðal annars efnis eru viðtöl við
þijá þjóðleikhússtjóra, byggingar-
saga hússins er rakin, sagt frá ís-
lenskum leikritum í leikhúsinu og
margir af helstu listamönnum leik-
hússins velta því fyrir sér hvað þjóð-
leikhús merkir í þeirra huga. Þá er
sagt frá hátíðarfrumsýningu kvölds-
ins, sem er Draumur á Jónsmessun-
ótt eftir William Shakespeare. Verð-
ur leiklistargagnrýni um sýninguna
birt á mbl.is strax á morgun.
í Þjóðleikhúsinu verður vegleg
hátíðardagskrá á Stóra sviðinu í dag
kl. 16. Þar verða flutt ávörp og af-
mæliskveðjur og fjölbreytileg
skemmtidagskrá. Ávörp flytja Björn
Bjarnason menntamálaráðherra,
Matthías Johannessen, formaður
þjóðleikhússráðs, og Stefán Bald-
ursson þjóðleikhússljóri. For-
svarsmenn leikhúsa og leiklistar-
samtaka flytja afmæliskveðjur og
nokkrir listamenn hússins flytja
ljóð, leikatriði og tónlist.
Auk þess verður úthlutað viður-
kenningum úr Menningarsjóði Þjóð-
leikhússins og Egner-sjóði. Hátíðar-
dagskráin er fyrst og fremst fyrir
starfsfólk Þjóðlcikhússins og vel-
unnara, og er þegar húsfyllir.
Sagt verður frá dagskránni á
mbl.is strax að henni lokinni og síð-
an enn frekar í Morgunblaðinu eftir
páskana.
■ Þjóðleikhúsið D-blað
Mikill
umferðar-
þungi á
þjóðvegum
GEYSIMIKIL umferð var út
úr Reykjavík eftir Vesturlands-
vegi í gær og talsverður um-
ferðarþungi var einnig á Suður-
landsvegi austur fyrir fjall.
Umferð fór vaxandi fram eft-
ir degi í gær og lá leið margra
norður í land. Ekki þurfti þó að
grípa til þess að loka Hvalfjarð-
argöngunum tímabundið vegna
álags og að sögn lögreglunnar í
Reykjavík, Borgarnesi og á
Akranesi gekk umferðin greið-
lega fyrir sig. Lögreglan á
Vesturlandi og Vestfjörðum
merkti vaxandi umferð á sínu
svæði og Lögreglan á Blöndu-
ósi sömuleiðis. Sagði hún að
ökumenn ækju of hratt í Húna-
vatnssýslum og yrði strangt
eftirlit haft með ökumönnum á
vegum í dag, skírdag.
Búast má við mikilli jeppa-
umferð á hálendinu um páska-
helgina, ekki síst vegna þess að
Veðurstofan spáir góðu veðri.
Þetta kom fram í samtali Morg-
unblaðsins við Þórarinn Guð-
mundsson, formann Ferða-
klúbbsins 4x4, en þar sem
páskarnir eru fremur seint í ár
era slóðir inn að jöklum og upp
á öræfi víða blautar og við-
kvæmar fyrir umferð.
„Menn þurfa að gæta varáð-
ar þar sem lítill snjór er og aka
ekki utan vega þar sem snjóa-
lög eru þunn,“ sagði Þórarinn.
„Menn þurfa að sýna aðgát til
að hlífa gróðrinum, sem er und-
ir snjónum," sagði Þórarinn.
Orkuveitan
bætir
skaðann
ORKUVEITA Reykjavíkur
hyggst koma til móts við þá
sem sannanlega hafa orðið fyrir
skaða af völdum útfellinga í
hitaveituvatni frá Nesjavöllum.
Þetta kom fram í samtali Morg-
unblaðsins við Guðmund Þór-
oddsson, forstjóra Orkuveit-
unnar.
„Við bætum þann skaða sem
hægt er að rekja til okkar,“
sagði Guðmundur. „Það eru
ekki margir sem hafa orðið fyr-
ir skaða af þessum völdum, en
auk vandamáls hjá Sundlaug
Kópavogs höfum við heyrt um
svona 10 tilfelli í viðbót og eru
þau flest hjá stóram fyrirtækj-
um,“ sagði Guðmundur.
■ Tekur tíma/16
Landspítali
-Háskólasjúkrahús
Tveir fram-
kvæmdastjór-
ar ráðnir
STJÓRN Landspítala - Há-
skólasjúkrahúss samþykkti á
fundi sínum í gær að mæla með
því við heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðhcrra að ráða Önnu
Lilju Gunnarsdóttur hagfræð-
ing í stöðu framkvæmdastjóra
fjáiTeiðna og upplýsinga og
Ingólf Þórisson verkfræðing í
stöðu framkvæmdastjóra tækni
og eigna. Heilbrigðisráðherra
hefur fallist á tillögu stjórnar-
innar um ráðninguna, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu.
FyiT í vetur var samþykkt
nýtt skipurit fyrir spítalann og
skv. því eru 5 framkvæmda-
stjórar í framkvæmdastjórn
spítalans, auk forstjóra. Ráða á
í hinar stöðumar þi'jár á næstu
vikum.
Ræktar þú garðinn þinn?
Sameinaðu kosti Heimilislínu og Heimilisbanka
Með því að vera í Heimilislínu og Heimilisbankanum á Netinu tryggir
þú þér mun hærri innlánsvexti, lægri útlánsvexti og sparar kostnað af
færslum, millifærslum og reikningsyfirlitum, auk þess að spara tíma.
fe*
HEIMILISLÍNAN
®BÚNAÐARBANKINN
Traustur banki
Samfylkingin
bætir við sig fylgi
Bilun í hitaveitu
Stykkishólmi. Morcunblaðið.