Morgunblaðið - 20.04.2000, Síða 12

Morgunblaðið - 20.04.2000, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Æ fleiri einstæð- ar mæður leita sér aðstoðar Æ FLEIRI einstæðar mæður leita sér aðstoðar hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna að því er fram kemur í ársskýrslu Ráðgjafarstof- unnar fyrir árið 1999. Einstæðar mæður voru 38% allra þeirra sem sóttust eftir aðstoð á árinu 1999 en til samanburðar voru þær 29% allra umsækjenda á árinu 1998 og 25% all- ra umsækjenda á árinu 1997. Þegar skoðuð er sérstaklega þessi aukning á umsóknum einstæðra mæðra kem- ur fram að stærsti hlutur þeirra er ungar konur á aldrinum 20 til 30 ára með eitt barn á framfæri. Flestar einstæðu mæðumar eru í vinnu, eða 49% þeirra, 29% þeirra eru öryrkjar og 23% á skrá yfir atvinnulausa. Heildarfjöldi umsókna um aðstoð hjá Ráðgjafarstofunni á síðasta ári var 599, en sé tekið tilliti til þess ef um hjón eða sambúðarfólk var að ræða náðu umsóknimar yfir alls 826 aðila. í upphafsorðum Elínar Sigrúnar Jónsdóttur, forstöðumanns Ráðgjaf- arstofunnar, í skýrslunni er bent á að það fólk sem leitað hefur aðstoðar Ráðgjafarstofunnar, frá því hún var stofnuð fyrir tæpum fjóram áram, á í miklum fjárhagslegum vanda; tekjurnar era lágar, framfærslu- kostnaðurinn hár og skuldabyrði mikil. „Við sem störfum við að veita heimilum aðstoð í greiðsluvanda verðum vör við mikla fordóma í garð skuldsettra. Margir virðast halda að ástæður greiðsluvanda séu einungis neyslusukk og óhófleg eyðsla. í þeirri umræðu alhæfinganna gleym- ast sjúkdómar, dauðsföll og félags- legir erfiðleikar af ýmsum toga. Tekjur margra heimila era svo lágar að þær duga ekki til að fram- fleyta fjölskyldu hvað þá að borga af húsnæðislánum eða öðram nauðsyn- legum skuldbindingum. Þá skal þeim ekki gleymt sem verða íyrir breyt- ingu á atvinnu- og eða fjölskyldu- stöðu. Lítill gaumur hefur verið gef- inn að afleiðingum fjölda hjónaskilnaða og sambúðarslita hér á landi. Það kostar mikið að reka tvö heimili í stað eins á sömu tekjum,“ segir forstöðumaðurinn m.a. í inn- gangsorðum sínum. Sé litið á stöðu og starfsheiti þeirra sem sóttust eftir ráðgjöf á Ráðgjafarstofunni á síðasta ári kem- ur fram að flestir þeiira era öryrkj- ar, eða samtals 21%. Því næst eru at- vinnulausir, eða 20% og 15% era það sem kallað er ósérhæft starfsfólk. Þá kemur fram þegar litið er á aldurs- samsetningu að flestir umsækjendur era fólk á aldrinum 30-39 ára, eða 38% umsækjenda. Fólk í þessum aldurshópi er með mestu vanskilin, eða rúmar 1,4 milljónir króna að meðaltali. Meðaltekjur umsækjenda um að- stoð á síðasta ári vora rúmlega 145 þúsund krónur á mánuði og er þar átt við heildar ráðstöfunartekjur eft- ir greiðslu skatta og annarra gjalda að teknu tilliti til bóta og lífeyris- greiðslna. Lítið samræmi milli lántöku og greiðslugetu í skýrslunni er m.a. bent á að ýmis dæmi sem komið hafa á borð Ráð- Yfírlýsing frá aðstandend- um Sýnisbókar íslenskrar alþýðumenningar MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Kára Bjarnasyni, ritstjóra Sýnisbókar ís- lenskrar alþýðumenningar, Sigurði Gylfa Magnússyni, ritstjóra Sýnis- bókar íslenskrar alþýðumenningar og Jörandi Guðmundssyni, forstöðu- manni Háskólaútgáfunnar „Erlingur Þorsteinsson læknir ber ritstjóra Sýnisbókar íslenskrar alþýðumenningar þungum sökum í Morgunblaðinu 15. apríl síðastliðinn. Ekki verður hjá því komist að draga fram eftirfarandi staðreyndir varð- andi aðdraganda að gerð bókarinnar Orð af eldi. Við sem stóðum að útgáfu bókar- innar Orð af eldi töldum okkur hafa fulla vissu fyrir því að afkomendur Þorsteins Erlingssonar stæðu ein- huga að baki útgáfu bréfa Þorsteins Erlingssonar til Ólafar á Hlöðum (sjá yfirlýsingu erfingja Asthildar Erlingsdóttur hér í Mbl.). Það kem- ur okkur jafnframt í opna skjöldu að Erlingur skuli ekki hafa vitað um til- urð bréfasafnsins, eins og fram kem- ur í yfirlýsingu hans í Morgunblað- inu, og það þrátt fyrir að Asthildur dóttir hans hafi fengið þau í hendur árið 1966. Það er ógjömingur fyrir okkur aðstandendur ritraðarinnar, ritstjóra og forstöðumann Háskóla- útgáfunnar, að vita ástæður þess enda era þær okkur óviðkomandi. Ritstjórar Sýnisbókar íslenskrar alþýðumenningar hafa ávallt lagt sig fram um að byggja upp traust milli almennings og handritasafna með það í huga að fólk geti óhikað afhent gögn sín þangað til varðveislu. Við ritstjórarnir stóðum til dæmis fyrir Degi dagbókarinnar, hinn 15. októ- ber 1998, ásamt fleira góðu fólki, til þess að hvetja landsmenn til að af- henda bréf, dagbækur og aðrar pers- ónulegar heimildir sem gætu orðið fræðimönnum að gagni í framtíðinni við rannsóknir. Öll atburðarásin í sambandi við nýjustu bókina Orð af eldi hefur komið starfi okkar í mikið uppnám (sjá formála að bókinni Orð af eldi). Það að bornar hafa verið brigður á heiðarleika ritstjóranna og að sam- hliða útgáfu bókar okkar hefur önn- ur bók verið gefin út með sama efni, setur útgáfu Sýnisbókar íslenskrar alþýðumenningar í mikla óvissu. Staðreyndin er einfaldlega sú að ekki er hægt að standa í útgáfu við- kvæmra heimilda ef útgáfan nýtur ekki fullkomins trausts. Við sem gef- um út ritröðina höfum lagt okkur fram við að standa að gerð hverrar bókar fagmannlega, þannig að við hefðum sóma af. Við teljum okkur hafa unnið að heilindum að þessari bók sem og að öllum öðram sem við höfum komið nálægt. Nauðsynlegt er að taka fram að í síðari hluta marsmánaðar settu rit- stjóramir sig í samband við Erling Þorsteinsson að beiðni Helgu Guð- rúnar Jónasdóttur barnabams hans, til að koma til hans próförk að bók- inni. Við skýrðum út fyrir honum í smáatriðum tildrög bókarinnar og efnistök. Síðar var Erlingi bent á að ekki væri gerlegt að hægja á útgáfu hennar ekki hvað síst vegna þess að önnur bók var þá nýkomin í verslanir með sama efni. Það var með öðram orðum útilokað, eins og mál höfðu þróast, að bíða með útgáfuna til þess að Erlingur Þorsteinsson gæti gefið álit sitt á henni. Taka verður skýrt fram að þetta var honum bent á þrá- faldlega og það var sömuleiðis oft- sinnis afsakað hvernig mál hefðu þróast. Við erum tilbúnir til að end- urtaka það hvenær sem er en við hljótum jafnframt að harma að Erl- ingur skuli hafa kosið að færa þetta fjölskyldumál inn á vettvang dag- blaða.“ Yfírlýsing frá erfíngjum Ásthildar Erlingsdóttur MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Helgu Guðrúpu Jónasdóttur fyrir hönd erf- ingja Ásthildar Erlingsdóttur: ,Á vordögum ársins 1999 leituðu erfingjar Ásthildar Erlingsdóttur til Háskólaútgáfunnar um útgáfu bréfa Þorsteins Erlingssonar skálds til Ólafar Sigurðardóttur á Hlöðum. Bréf afa síns fékk Ásthildur Erlings- dóttir að gjöf frá Steindóri heitnum Steindórssyni, frá Hlöðum. Ásthildi auðnaðist ekki fyrir and- lát sitt, árið 1993, að koma þeirri ætl- un sinni í verk, að fá bréf Þorsteins Erlingssonar gefin út, og afhenda þau að því búnu Landsbókasafni Is- lands til varðveislu. Fyrir Ásthildi vakti að gera fræðimönnum og áhugafólki bréfin aðgengileg. Erf- ingjar Ásthildar, og núverandi eig- endur bréfanna, höfðu af þessum sökum framkvæði að útgáfu þeirra og afhendingu, í minningu hinnar látnu. Fyrir milligöngu Háskólaútgáf- unnar var gert samkomulag við Sig- urð Gylfa Magnússon og Kára Bjarnason, ritstjóra ritraðarinnar Sýnisbók íslenskrar alþýðumenning- ar, og hinn 8. aprfl sl. birtust bréf Þorsteins Erlingssonar til Ólafar Sigurðardóttur á Hlöðum, sem hluti fjórðu sýnisbókar ritraðarinnar, Orðs af eldi. Bréfin bíða þess að verða afhend landsbókaverði við fyrsta tækifæri. Erfingjar Ásthildar töldu að um- rædd bréf væra gefin út í þökk Erl- ings Þorsteinssonar, læknis og föður Ásthildar, ekki hvað síst fyrir þá sök að útgáfan er tileinkuð minningu hins látna ástvinar, auk þess sem hún er merk heimild um skáldið Þor- stein Erlingsson, hugarheim hans og samtíð. Af þessum sökum kom yfirlýsing Erlings Þorsteinssonar, sem birtist í Morgunblaðinu hinn 15. aprfl sl., okkur erfingjum Ásthildar í opna skjöldu. Við hörmum að þar er að ósekju veist að orðstír þeirra er síst skyldi, Sigurðar Gylfa Magnússonar og Kára Bjamasonar, ritstjóra rit- raðarinnar og vandaðra fræðimanna. Jafnframt hörmum við að sú leið hafi verið valin að gera fjölskyldumál að opinberu blaðamáli. Samskipti okkar erfingja Ásthild- ar og ritstjóranna og Háskólaútgáf- unnar hafa verið með miklum ágæt- um. Við þökkum þeim samstarfið við útgáfu bókarinnar Orðs af eldi, sem við eram sannfærð um að muni halda uppi merki skáldanna um langan aldur.“ gjafarstofunnar sýni að mikil þörf séu á því að betur sé vandað til út- lána lánastofnana; banka, sparisjóða og allra þeirra aðila sem stunda út- lánastarfsemi svo sem tryggingafyr- irtæki og greiðslukortafyrirtæki. „Dæmin sýna þörfina á því að tekið sé tillit til launa, framfærslukostnað- ar og annarra skuldbindinga lántaka áður en til lántöku kemur. í flestum tilvikum er lítið samræmi milli lán- töku og greiðslugetu. Dæmi era um að umsamdar mán- aðarlegar afborgarnir séu allt að tvöfalt hærri en mánaðarlaun,“ segir í skýrslunni, en þar er þeim tilmæl- um beint til viðskiptaráðherra að hann hlutist til um að samræmdar verði reglur allra þeirra er veita lán til einstaklinga þannig að kannaðar verði betur greiðslugeta og við- skiptasaga áður en til lánveitinga er stofnað. Kaupsýslu- konur framtíð- arinnar HVER veit nema að þær Hanna, María og Þórdís verði öflugar kaupsýslukonur og reki eigin verslanir þegar þær eru orðnar fullorðnar. Að minnsta kosti stóðu þær sig vel við rekstur hlutaveltu sinnar við Freyjugötu í Reykjavík. Þær létu stress hinna úti- vinnandi ekki ná tökum á sér en sátu afslappaðar yfir framtaki sínu og leyfðu sólinni að skína á sig á meðan þær tóku í spil. Morgunblaðið/Kristinn Hanna, María og Þórdís héldu hlutaveltu á Freyjugötunni til styrktar Raða krossinum. Á meðan beðið var eftir nýjum viðskiptavini voru spil- in tekin upp og Olsen Olsen spilaður. Yfirlýsing frá Mannvernd PÉTUR Hauksson, formaður Mann- verndar, sendi í gær frá sér eftir- farandi yfirlýsingu fyrir hönd félags- ins vegna nýrra siðareglna íslenskrar erfðagreiningar: „Mpnnvernd fagnar stefnubreyt- ingu íslenskar erfðagreiningar hvað varðar upplýst samþykki, en spyr um leið: Hvers vegna vora þá öll læt- in? Hingað til hefur stefnan verið að yfirvöld ákveði að rannsókn megi gera án samþykkis sjúklinga, þ.e. með svokölluðu ætluðu samþykki þeirra. Þannig er um stefnubreyt- ingu að ræða. I Morgunblaðinu í gær kom fram að með nýju reglunum væri gengið lengra en krafist væri. Hins vegar hefur upplýst sam- þykki sjúklings verið meginreglan í vísindastarfi hingað til. Þeta er tryggt í lögum um réttindi sjúklinga og reglugerðum, sem vísa í Helsinki-yfirlýsingu Alþjóða lækna- félagsins. Sjúklingur skal fyrirfram samþykkja rannsókn, segir í lögun- um. Hann skal uppfræddur um mögulegar áhættur sem rannsóknin kann að hafa í för með sér, segir í al- þjóðlegu siðareglunum. Þannig ganga nýju siðareglur IE ekki lengra en þær siðareglur sem hingað til hafa verið í gildi, einnig hér á landi. Einnig skal bent á að hingað til hefur það sem ÍE hefur kallað upp- lýst samþykki ekki talist vera það samkvæmt hefðbundnum viðmiðun- um. Þegar smáaletrið er skoðað í eyðublaði því sem sjúklingar undir- rita fyrir rannsókn kemur í ljós að þeir era að samþykkja meira en rannsókn á tilteknum sjúkdómi, þeir veita einnig heimild til að sýni og gögn frá þeim verði notuð til ein- hverra annarra rannsókna. Slíkt samþykki getur ekki talist upplýst. Eldri vísindasiðanefndin var að út- búa reglur sem kæmu í veg fyrir þetta opna leyfi þegar hún var sett af á einu bretti með reglugerðarbreyt- ingu í fyrra. Þetta opna samþykki kemur fram á eyðublöðum sem sjúklingar era beðnir um að undir- rita vegna rannsókna og einnig í skráningargögnum fyrir Nasdaq- markaðinn bandaríska og er útskýrt nánar á vefsíðunni mannvernd.is. Þess vegna vill Mannvernd sjá nánari skilgreiningu á fyrirhuguðu upplýstu samþykki og að þessi álita- mál verði höfð í huga við afgreiðslu framvarpa um persónuvernd og um lífsýnasöfn sem nú era til umræðu á Alþingi. Eðlilegast er að kveðið verði sérstaklega á um meginregluna um upplýst samþykki í framvörpunum. Þannig yrði hún lögfest eins og í lög- um um réttindi sjúklinga, í stað þess að lögfesta ætlað samþykki sem meginreglu, eins og fyrirhugað er í lífsýnafrumvarpinu og kveðið er á um í gagnagrannslögunum."
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.