Morgunblaðið - 20.04.2000, Blaðsíða 15
MORGÚNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. APRÍI. 20Ó0 15
FRÉTTIR
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri og Ólafur Sigurðs-
son arkitekt og formaður Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkur und-
irrita þjónustusamning milli
borgarinnar og Skógræktarfé-
lagsins.
Skógræktarfélag
Reykjavíkur og
Rey kj avíkurborg
Undirrita
samning um
rekstur
Heiðmerkur
SKÓGRÆKTARFÉLAG Reykjavík-
ur og Reykjavíkurborg hafa gert
með sér formlegan samning þess
efnis að Skógræktarfélagið taki að
sér umsjón og rekstur útivistar- og
friðlandsins Heiðmerkur ásamt
þeim fasteignum og mannvirkjum
þar í eigu borgarinnar sem tengjast
rekstri svæðisins. I samningnum er
m.a. kveðið á um að umsjónarmað-
ur Heiðmerkur hafí fasta búsetu að
Elliðavatni og að daglegt eftirlit
með Rauðhólafólkvangnum skuli
vera í höndum Skógræktarfélags-
ins eftir því sem við geti átt.
Að sögn Sigurðar G. Tómasson-
ar, framkvæmdastjóra Skógrækt-
arfélags Reykjavíkur, hefur Skóg-
ræktarfélagið séð um reksturinn í
Heiðmörk allt frá vígslu svæðisins
árið 1950 en hið sama ár var undir-
ritaður samningur upp á nokkrar
línur milli Reykjavíkurborgar og
Skógræktarfélagsins um að hinn
si'ðarnefndi aðili sæi um skóg-
græðslu í Heiðmörk. Að sögn Sig-
urðai1 nær Heiðmörk nú yfir sam-
tals um 2800 hektara svæði en þar
af eru um sex hundruð hektarar af
skóglendi.
í samningnum, sem hefur verið
gerður til fimm ára og framlengist
um sama tíma verði honum ekki
sagt upp með árs fyrirvara, er
kveðið á um ýmis atriði m.a. um að
Skógræktarfélagið geri árlega til-
lögur um rekstur, viðhald og fram-
kvæmdir á Heiðmörk til borgar-
ráðs og að þar skuli koma fram
áætlað sjálfsaflafé svo sem af skóg-
arhöggi, leigu sumarhúsalanda og
tekjur af sölu veiðileyfa við Elliða-
vatn. Þá segir að félagið skuli ann-
ast rekstur, viðhald og fram-
kvæmdir á Heiðmörk í samræmi við
fjárhagsáætlun sem borgarráð hef-
ur samþykkt og að kostnað vegna
reksturs, viðhalds og framkvæmda
á Heiðmörk greiði borgarsjóður til
félagsins í tólf jöfnum hlutum
fyrsta virka dag hvers mánaðar
samkvæmt áður samþykktum áætl-
unum.
Vatnaheiðarvegnr
Lægsta boð
55% af kostnað-
aráætlun
SUÐURVERK hf. átti lægsta tilboð,
rúmar 194 milljónir króna, í Vatna-
heiðarveg á Snæfellsnesi.
Tilboðið er 55% af kostnaðaráætl-
un, sem er rúmar 356 milljónir.
Þrettán tilboð bárust í verkið.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
AÐALFUNDUR 2000
Aðalfundur Keflavíkurverktaka hf. verður haldinn í veitingahúsinu
Ránni, Hafnargötu 19, Reykjanesbæ, föstudaginn 5. maí 2000 kl.
18.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 14. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga um breytingu á 3. gr. samþykkta félagsins.
3. Tillaga um heimild til félagsstjórnar til kaupa á hlutabréf-
um í Keflavíkurverktökum hf.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Arsreikningur félagsins, endanlegar tillögur og dagskrá liggja
frammi á skrifstofu félagsins á Keflavíkurflugvelli, hluthöfum til
sýnis, viku fyrir fundinn.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað.
Óski hluthafar eftir því að ákveðin mál verði tekin til meðferðar á
fundinum, þarf skrifleg beiðni um það að hafa borist félagsstjórn
með nægum fyrirvara þannig að unnt sé að taka málið á dagskrá
fundarins.
Hluthafar sem ekki geta mætt á fundinn, en hyggjast gefa umboð,
þurfa að gera það skriflega.
Eftir fimdinn verða bornar fram léttar veitingar.
Stjóm Keflavíkurverktaka hf.
( iar ðv er kl íæri
E Einhver bestu verðin í bænum
Skeifan 7 • Simi S25 0800
Opið skírdag, laugardag og annan í páskum frá 9-21
Lokað föstudaginn langa og páskadag
Snjó-
bræðslurör
Vönduð 25mm
snjóbræðslurör
44 kr/m
A/á msgreinar
indowsj
Farið verður í Windows stýrikerfið, helstu stillingar og sýnt
verður hvernig hægt er að aðlaga skjáborðið (Desktop) að
persónulegum þörfum hvers og eins. Einnig verður farið f
tækjastikuna (Taskbar) og forritastikuna (ProgramBar). Lögð
verður mikil áhersla á uppbyggingu skráarkerfisins og notkun
Windows Explorer, þar sem skilningur á skráarkerfinu er
undirstaða tölvuvinnu í dag. Windows Explorer er notaður í
öllum forritum í einni eða annarri mynd og því er nauðsynlegt
að hafa a.m.k. grunnþekkingu á því hvernig hann virkar.
Kennt verður á ritvinnsluforritið Microsoft Word. Eftir
námskeiðið eiga nemendur að geta búið til skjöl, eytt þeim,
sett upp skjal, breytt letri, jafnað texta og sett inn ramma, töflur
og myndir, neðanmálsgreinar, síðuhausa og síðufætur,
sjálfvirkt blaðsíðutal, sjálfvirkt efnisyfirlit og atriðisorðaskrá,
svo eitthvað sé nefnt.
Hvað er Internetið? Tölvupóstur, vefráparar, Internet Relay Chat
(IRC), telnet, FTP, www og HTML. Hvaða merkingu hafa þessi
hugtök? Farið verður í hvað þau þýða og hvernig nota skal
helstu Internetforritin (Outlook, Eudora, Internet Explorer,
Netscape Navigator) á markaðnum í dag. Einnig verður farið í
hvernig leita skal upplýsinga á Internetinu.
( Samtals 24 kennslustundir)
Tími: 8.—31. maí.
Kennt verður mánudaga kl. 18.00-20.00
míðvikudaga kl. 18.00-20.00
Staður: Menntaskólinn við Hamrahlíð. Stofa 25. Innritun í síma 595 5200.
Kennari: Sigurður Haraldsson.
netstjóri Menntaskólans við Hamrahlíð.
Nómskeíðsgjald: kr. 15.900,- Takmarkaður fjöldí