Morgunblaðið - 20.04.2000, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Stórviðburður í líkams-
rækt í Iþróttahöllinni
Morgunblaðið/Einar Guðmann
Guðrún Gísladdttir, núverandi íslandsmeistari, er á meðal keppenda í
Iþróttahöllinni um heigina.
ÞAÐ verður ýmislegt um að vera
fyrir áhugafólk um íþrdttir og lík-
amsrækt í Iþróttahöllinni á Akur-
eyri á föstudaginn langa og laugar-
dag. Stofnað hefur verið til svo-
nefndrar „Fitness“-helgar þar sem
keppt verður um Islandsmeistara-
titilinn í „fltness“ auk fleiri uppá-
koma.
Gífurlegur áhugi er á keppninni
en keppendafjöldi hefur þrefaldast
frá síðasta ári. Um 50 keppendur
mæta til leiks og koma þeir víðs
vegar af landinu. í þeim hdpi eru
Islandsmeistararnir frá í fyrra,
Guðrún Gísladdttir og Gunnar Már
Sigfússon, sem ætla sér eflaust að
verja titla sína. Á föstudaginn kl. 16
hefst forkeppnin, en úrslitakeppnin
fer fram á Iaugardagskvöld og
hefst kl. 19.30. Keppni sem þessi
hefur verið haldin hér á landi frá
árinu 1994. Gerðar eru miklar kröf-
ur til keppenda, sem þurfa að vera
fjölhæfir og í mjög gdðu líkamlegu
ástandi til þess að ná árangri.
Sigurvegararnir í hvorum flokki
fara ekki tómhentir heim, því auk
fjölmargra vinninga fá þeir afnot af
Toyota Yaris-bifreiðum fram á
næsta ár. Þá vinnur sigurvegarinn í
kvennaflokki sér þátttökurétt á
Evrdpukeppnina á Spáni í lok mai
nk. og heimsmeistaramdtið í Pdl-
landi fhaust. Yfirddmari í keppn-
inni í IþrdttahöIIinni er Lisser Frost
Larsen frá Danmörku, en hún er
æðsti ddmari hjá IFBB, stærsta lík-
ams- og vaxtarræktarsambandi
heims.
Vörusýning og uppákomur
í Höllinni
Á laugardaginn verður íþrdtta-
höllin opnuð kl. 13.30 með vörusýn-
ingu þar sem ýmis fyrirtæki kynna
starfsemi sína. Þar verða m.a. nak-
in módel máluð frá toppi til táar,
boðið verður upp á bldðþrýstings-
og fitumælingar og á staðnum
verða bdka- og fæðubdtakynning-
ar. Einnig verður á laugardeginum
haldið nýstárlegt júddmdt, þar sem
keppt verður eftir nýjum reglum
og reynt við Islandsmet í „spinn-
ing“, þar sem settur verður upp 75
hjdla timi. Siðla dags verður haldið
bikarmdt íþolfimi, þar sem Hallddr
B. Jdhannsson þolfimikappi verður
meðal keppenda. Þá mun kraftajöt-
unninn Torfi Ólafsson reyna við
heimsmet í steinalyftu.
Miðstöð sjúkra-
flugs verður
á Akureyri
SJÚKRAFLUG verður boðið út á
næstunni og hefur Ingibjörg Pálma-
dóttir heilbrigðis- og tryggingaráð-
herra ákveðið að miðstöð þess verði
á Akureyri. Styðst sú ákvörðun ráð-
herrans við sérstaka úttekt sem
ráðuneytið lét gera á sjúkraflugi í
landinu. Ráðherra hefur ákveðið að
fela Ríkiskaupum að bjóða út sjúkra-
flugið í samstarfi við samgönguráðu-
neytið. Ráðuneytin tvö munu vinna
saman að útboði á áætlunar- og
sjúkraflugi á tiltekna staði á landinu.
„Þetta er ánægjuleg ákvörðun,"
sagði Halldór Jónsson framkvæmda-
stjóri Fjórðungssjúkrahússins á Ak-
ureyri. „Við höfum reynt að tala fyrir
þessu máli enda teljum við skynsam-
legt að haga málum á þennan veg.
Það er stutt að fljúga til flestra staða
frá Akureyri og styttra til fleiri staða
en ef allt væri flogið að sunnan. Það
eru tiltölulega fáir staðir á landinu
sem lengra er að íljúga til frá Akur-
eyri en Reykjavík.
Halldór sagði að þessi ákvörðun
hefði einnig áhrif á uppbyggingu
heilbrigðisþjónustunnar að miðstöð
sjúkraflugsins verði á Akureyri. „Við
höfum allan vilja til að leggja af
mörkum það sem við getum,“ sagði
hann. Hann sagði almenna ánægju
með þessa niðurstöðu en það hefði
haft víðtækan stuðning og margir
ályktað með því. Gerði hann ráð fyrir
að í kjölfarið myndu vélar lenda í
auknum mæli við Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri og væri starfsfólk
þess tilbúið að takast á við þau auknu
verkefni sem því fylgdu.
„Þetta er áfangasigur,“ sagði
Sveinbjörn Dúason sjúkraflutninga-
maður sem hefur mikla reynslu af
sjúkraflugi. Hann sagði miklu skipta
að staðsett yrði á Akureyri í tengsl-
um við sjúkraflugið sérhæfð sjúkra-
flugvél. „Við erum búnir að húkka í
fiskinn en vitum ekki fyrr en við er-
um búnir að draga hann að landi
hvort þetta er þorskur eða marhnút-
ur.“
Tónleikar
í Vín
HELGI og hljóðfæraleikaramir
bjóða til fermingarveislu, eins og
þeir kalla tónleika, í íslandsbænum í
Vín laugardagskvöldið 22. apríl og
hefst veislan klukkan 21 um kvöldið.
Sérstakir boðsgestir í veislunni
eru Norðanpiltar, auk þess sem
George Hollanders mun gefa tón-
dæmi. Húsið verður opnað kl. 20.30
og eru allir velkomnir meðan hús-
rúm leyfir en aðgangseyrir er 650
krónur.
Síðasta kvöldmáltíðin
í Samlaginu
SÍÐASTA kvöldmáltíðin er yfir-
skrift sýningar sem opnuð verður
í Samlaginu, listhúsi við Kaup-
vangsstræti 12 á Akureyri á skír-
dag, 20. apríl, kl. 14:
Anna S. Hróðmarsdóttir og
Guðrún Hadda Bjarnadóttir hafa
lagt á borð fyrir síðustu kvöldmál-
tíðina í fremra rými Samlagsins
en í innra rými þess verða sýnd
verk eftir aðra listamenn Sam-
lagsins, þá Guðmund Armann,
Elsu Maríu Guðmundsdóttur,
Einar Helgason, Ragnheiði Þórs-
dóttur, Rósu Kristínu Þórsdóttur,
Sigurveigu Sigurðardóttur og
Önnu Maríu Guðmann, Amí.
Sýningin er aðeins opin á skír-
dag og á laugardag, 22. apríl, frá
kl. 14 til 18 báða dagana.
Lúkas 24 í
Deiglunni
ÁRNI Rúnar Sverrisson býður
heimamenn og gesti á Akureyri
velkomna á málverkasýningu sína
„Lúkas 24“, jjar sem fjallað er um
upprisuna. A sýningunni eru olíu-
málverk unnin á vinnustofu í Pal-
ermo á Sikiley á sl. ári og í Lista-
miðstöðinni Straumi í Hafnarfirði.
Um páskana verður opið frá kl.
14-18 skírdag, föstudaginn langa,
laugardaginn 22. apríl, páskadag
og annan í páskum. Sýningin
stendur til 28. apríl, opin virka
daga frá ki. 13-15.
Bítlakvöld
KARLAKÓR Akureyrar-Geysir
stendur fyrir Bítlakvöldi á Odd-
vitanum í kvöld, skírdag/sumar-
daginn fyrsta og hefst það kl. 21.
Liðlega helmingur kórsins tek-
ur þátt í því að endurvekja Bítla-
stemmninguna frá 7. áratugnum
og er útsetning laga The Beatles
sem næst frumútgáfunni og gerð
af stjórnandanum, Roar Kvam.
Með kórnum koma fram söngv-
ararnir Pálmi Gunnarsson og Hel-
ena Eyjólfsdóttir og einnig kemur
fram fjölskipuð hljómsveit
þekktra hljómlistarmanna.
Skógrækt á ís-
landi í hnatt-
rænu samhengi
í TILEFNI af alþjóðlegum Degi
jarðarinnar þann 22. aprfl og ís-
lenskum Degi umhverfisins þann
25. apríl mun dr. Þröstur Ey-
steinsson, fagmálastjóri Skóg-
ræktar ríkisins, flytja fyrirlestm-
um efnið Skógrækt á Islandi í
hnattrænu samhengi.
Fyrirlestui-inn er á vegum
Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar
og verður fluttur í Deiglunni í
Kaupvangsstræti næstkomandi
þriðjudag 25. aprfl kl. 20 og er öll-
um opinn.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Fundarmenn fylgjast með erindum en aftast lengst til vinstri eru tveir af framsögumönnum, Gísli Benediktsson
og Anna Margrét Jóhannesdóttir.
Fundur fyrir frumkvöðla
FRUMKVÖÐLUM og forsvars-
mönnum lítilla fyrirtækja var sér-
staklega boðið að sitja fund sem
haldinn var í Ólafsfirði nýverið.
Fundurinn var haldinn fyrir til-
stilli atvinnumálanefndar Ólafsfjarð-
ar, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins
og Impru, þjónustumiðstöð frum-
kvöðla og fyrirtækja hjá Iðntækni-
stofnun.
Þrír fyrirlesarar voru á fundinum,
Gísli Benediktsson, sérfræðingur
hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífisins,
Njáll Ingólfsson, forstöðumaður
Impru, og Anna Margrét Jóhannes-
dóttir, verkefnisstjóri hjá Impru.
Þátttaka var mjög góð en um það
bil þrjátíu manns mættu, frá Ólafs-
firði, Dalvík og Akureyri. Góður
rómur var gerður að fundinum en
þátttakendur áttu ennfi-emur þess
kost að panta einkaviðtöl hjá fram-
sögumönnum og fengu dýrmæta
ráðgjöf.
REYKJAVIK-AKUREYRI-REYKIAVIK ...fljúgðufrekar
Attasirniuma
Bókaðu í síma 570 3030 og 460 7000
^9| verð ffð 8.73® h. meíflujvallarsköttum
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is