Morgunblaðið - 20.04.2000, Page 22

Morgunblaðið - 20.04.2000, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Uthlutun úr starfsmenntasjóði félagsmálaráðuneytisins Alls hlutu 55 verk- efni styrki í ár STARFSMENNTARÁÐ félags- málaráðuneytisins hefur úthlutað styrkjum að upphæð 30 milljónir króna vegna 55 verkefna. Páll Pét- ursson félagsmálaráðherra gerði grein fyrir úthlutun úr starfs- menntasjóði á fundi á Akureyri en hann sagði að í ár hefði verið lögð áhersla á að styðja annars vegar verkefni sem ætlað er að efla starfsmenntun á landsbyggðinni og hins vegar starfsmenntun sem stuðlar að nýsköpun og hagræð- ingu. Þá var að þessu sinni sér- staklega hvatt til þess að samstarf tækist milli ólíkra fyrirtækja, stofnana eða félaga og bent á að gerð námsefnis og kennslugagna nyti forgangs umfram rekstur námskeiða. Að þessu sinni bárust alls 66 umsóknir um framlag úr starfs- menntasjóði vegna 155 verkefna og var sótt um styrki að upphæð 225 milljónir króna. Til ráðstöfun- ar voru 30 milljónir króna og var þeim deilt niður á 55 verkefni og kenndi þar margra grasa að sögn félagsmálaráðherra. Styrkþegarnir eru 34 talsins. Óvenjumörg verk- efni af landsbyggðinni hlutu styrk nú og hafa þau aldrei verið íleiri á þeim tæpa áratug sem liðinn er frá því úthlutun úr starfsmenntasjóði félagsmálaráðuneytisins hófst. Þá sagði Páll að ákveðið hefði verið að setja 15 milljónir króna í sérstök þróunarverkefni og eins verður 5 milljónum króna varið til rannsókna og kynningar á starfs- menntun á árinu 2000. Halldór Grönvold formaður stjórnar starfsmenntaráðs sagði að þau verkefni sem nú hlutu styrk væru fjölbreytt og um mjög áhugaverð verkefni væri að ræða, en verkefni á sviði nýsköpunar, náms- og kennslugagnagerðar og námskeiðshalds væru einkennandi fyrir úthlutunina nú. Sérstaklega var miðað við það nú að þeir fjár- munir sem starfsmenntaráð legði til verkefna nýttust sem best og að þeir næðu að hrinda verkefnum af stað um leið og áhersla var lögð á að fleiri aðilar kæmu að fjármögn- uninni. Þannig væri vonast til þess að styrkir ráðsins hefðu ákveðin margfeldiáhrif. Styrkir koma að góðum notum Davíð Stefánsson frá Samtökum atvinnulífsins sagði listann óvenju litríkan í ár og verkefni mjög fjöl- breytt og undirstrikaði vel mikil- vægi starfsmenntunar á öllum sviðum samfélagsins. Þrír heimamenn á Akureyri, VISA/EORO Ri HUSQVARNA AFTUR A ISLANDI TE 610/410 verð. 595.000. Með einstökum samningum við HUSQVARNA býðst nú takmarkað magn hjóia á kynningarverði til 27.04. 2000. Láttu ekki happ úr hendi slepp^ og upplifðu fullkomið frelsi á HUSQVARNA mótor^joli Val um tvígengis- eða fjórgengisvél, Verðum við símann yfir páskana. Símar 555 0528, 461 4025 & 894 8063 HUSKY BOY frá. 110.000,- Morgunblaðið/Kristján Halldór Grönvold formaður stjórnar starfsmennasjóðs, Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Gissur Pétursson forstöðumaður Vinnumála- stofnunar og Sjöfn Sigurbjörnsdóttir formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, Hákon Hákonarson, formaður Félags málmiðnaðar- manna, og Valgerður Bjarnadóttir, sem stýrir Menntasmiðju kvenna á Akureyri, hafa öll fengið styrki úr sjóðnum og sögðu að þeir hefðu gert kleift að halda námskeið af ýmsu tagi sem ella hefði ekki verið hægt. Þannig hefðu styrkirnir komið að góðum notum og oft væri um að ræða einu peningana sem hægt væri að fá til að standa fyrir fjölbreyttu námskeiðshaldi. Vetraríþróttahátíð ÍSÍ í Hlíðarfjalli Keppt í göngu og sam- hliðasvigi um páskana UM páskahelgina verður ýmislegt um að vera í Hlíðarfjalli í tengslum við Vetraríþróttahátíð ÍSÍ. Laugar- daginn 22. apríl kl. 10 verður keppt í samhliðasvigi 14 ára og yngri, en um er að ræða árlegt mót á vegum Skíðaráðs Akureyrar, þar sem páskaegg era í verðlaun. Skíðastaðagangan, sem er liður í Islandsgöngu Bakkavarar, fer fram kl. 13 á laugardag og verða gengnir 5, 10 og 20 km. Að lokinni göngu verður svo slegið upp veislu. Sunnudaginn 23. apríl kl. 14, páskadag, fer fram árlegt Flugfélags Islands-trimm við gönguhúsið í Hlíð- arfjalli, sem er ganga fyrir alla, unga sem aldna. Verðlaun verða dregin út og því eiga allir keppendur mögu- leika á ferðavinningum. Bifreiðastjórar Hafið bílabænina í bílnum og orð hennar hugföst þegar þig akið. Fæst í Kirkjuhúsinu Laugavegi 31, Hljómveri og Shellstöðinni v/Hörgárbraut, Akureyri, Litla húsinu, Strandgötu 13B, Akureyri. Verð kr. 200. Orð dagsins, Akureyri Mánudaginn 24. apríl kl. 14, annan í páskum, fer fram Akureyrarmót í göngu í öllum flokkum og verður gengið með hefðbundinni aðferð. Akurey rarkirkj a Passíu- sálmarnir lesnir PASSÍUSÁLMAR Hallgríms Péturssonar verða lesnir í Akureyrarkirkju á föstudag- inn langa og hefst lesturinn kl. 12 á hádegi og stendur fram til kl. 17. Alls munu 25 lesarar taka þátt og eru þeir á ýmsum aldri. Þráinn Karlsson mun hefja lesturinn en hann hefur átt heiðurinn af skipulagn- ingu lestranna undanfarin ár. Björn Steinar Sólbergsson mun leika á orgel kirkjunnar eftir 10. hvern sálm. Hefð er komin á lestur sálmanna og leita margir í kirkjuna meðan á lestrinum stendur til að eiga hljóða stund og íhuga krossdauða Krists. Allir eru velkomnir og geta kirkjugestir komið og farið að vild meðan á lestrin- um stendur. / ' " -.............. ............ \ Starfsfólk óskast í Blómalist / Garðyrkjufræðing eða fólk með áhuga og þekkingu á pottaplöntum og sumarblómum. / Blómaskreytingafólk eða fólk með kunnáttu á afskornum blómum og ríka sköpunargáfu. / Starfsfólk í veitingar og ís, um er að ræða fullt starf. Til greina kemur að ráða veitingasjóra. Uppl. á staðnum þar sem umsóknareyðublöð fást. Ath. Upplýsingar EKKI veittar í síma. Blómalist, Hafnarstrœti 26 Akureyri. ^....... —....................--..- ..............

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.