Morgunblaðið - 20.04.2000, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Fundur í Astralíu um bindingu koltvísýrings
Landgræðsla sem bindi-
leið til jafns við skógrækt
SIV Friðleifsdóttir
umhverfisráðherra
sótti nú í vikunni ráð-
herrafund sem hald-
inn var í Perth í
Ástralíu um bindingu
koltvísýrings innan
Kyoto-bókunarinnar.
Fundui'inn var sóttur
af ráðherrum og emb-
ættismönnum frá
þrjátíu löndum víðs-
vegar að úr heiminum,
m.a. Japan, Banda-
ríkjunum, Hollandi,
Póllandi og Úganda.
Tilefni fundarins
var að fjalla um land-
græðslu sem bindileið koltvísýrings
og er þar um nánari útfærslu á
Kyoto-bókuninni að ræða. I dag er
aðeins gert ráð fyrir skógrækt sem
bindileið innan Kyoto-bókunarinnar
þó sá möguleiki sé hafður fyrir
hendi að fleiri bindileiðir koltvísýr-
ings bætist þar við.
„Við erum að berjast fyrir því,
ásamt fleiri löndum, að fá land-
græðslu inn sem bindileið,“ segir
Siv, sem lagði í ávarpi sínu á fundin-
um áherslu á mikilvægi þess að
landgræðsla yrði viðurkennd sem
mótvægisaðgerð gegn gróðurhúsa-
áhrifum til jafns við
skógrækt. „Sá mál-
flutningur fékk góðan
hljómgrunn meðal ráð-
herra frá þróunarríkj-
unum sem eiga við
jarðvegseyðingar-
vanda að stríða líkt og
við á íslandi. Hluti iðn-
ríkjanna var einnig á
sama máli,“ segir Siv
og kveður það hafa
verið ánægjulegt að
finna hve víðtækur
stuðningur kom fram
meðal umhverfisráð-
herra á mikilvægi gróð-
urbindingarinnar.
„Það er hægt að binda koltvísýr-
ing með mjög hagkvæmum og góð-
um leiðum, ekki einungis með skóg-
rækt,“ segir Siv og nefnir
landgræðslu sem eina þessara leiða.
Hún segir slíkt vera Islendingum
mikilvægt, en þó ekki síður fjöl-
mörgum öðrum ríkjum, m.a. þróun-
arríkjum og Ástralíu. „Fyrir marga
er þetta mjög mikilvægt og að því
marki jafnvel að þeir geta ekki
hugsað sér að samþykkja Kyoto-
samkomulagið nema komið verði til
móts við hugmyndir þeirra um bind-
ingu.“ Siv segir það til að mynda
hafa vakið athygli sína að ríki á borð
við Bandaríkin og Kanada hafi lýst
því yfir að þau sæju sér síður fært
að staðfesta Kyoto-bókunina ef ekki
yrði tekið fullnægjandi tillit til bind-
ingar með ræktun.
Bjartsýn á að
samkomulag náist
„Það er mikilvægt að binda kol-
tvísýring,“ segir Siv og kveður það
ekki síður mikilvægt en að minnka
losun. „Aðalatriðið er að minnka
koltvísýring í andrúmsloftinu og þar
útilokar önnur leiðin ekki hina.“
Hún segir að sínu mati það til að
mynda vera mikilvægt að leggja
áherslu á landgræðslu og skógrækt
sem mótvægisaðgerð gegn uppsöfn-
un gróðurhúsalofttegunda í and-
rúmsloftinu, en á fundinum kom
fram almenn samstaða um að bind-
ing komi til viðbótar aðgerðum til að
draga úr losun.
„Á þessum fundi fannst mér vera
mjög mikill áhugi á að reyna að ná
niðurstöðu á fundinum sem haldinn
verður í Haag í Hollandi nú í nóv-
ernber," segir Siv og nefnir sem
dæmi að Jan Szysko, forseti aðildar-
ríkjaþings loftslagssamningsins og
aðstoðarforsætisráðherra Póllands,
hafi í lokaávarpi sínu lagt áherslu á
mikilvægi þess að skynsamlegar
ákvarðanir um bindinguna yrðu
teknar á þeim fundi. Halldór Þor-
geirsson, skrifstofustjóri umhverf-
isráðuneytisins, er annar formanna
vinnunefndar sem sér um útfærslu
ákvæða um bindinguna.
„Það er því naumur tími til
stefnu," segir Siv og kvað menn
hafa verið nokkuð uggandi vegna
þessa þar sem drög að samkomulagi
um gróðurbindingu muni ekki liggja
fyrir fyrr en í september.
„Það var hins vegar mikill vilji
hjá þessum löndum sem þarna voru
að fá í gegn nánari útfærslu,“ segir
Siv og kveðst því bjartsýn á að land-
græðslan náist inn sem bindileið
þrátt fyrir knappan tíma.
Gullfundur í Rúmeníu
Búkarest. AFP.
MIKIL gullnáma hefur fundist í
Rúmeníu í grennd við borgina
Rosia-Montana og er áætlað að
magnið sé um 250 tonn. Einnig eru
á svæðinu hátt í 1400 tonn af silfri.
í skýrslu bandaríska fyrirtæk-
isins Pincock Allen and Holt er
haft eftir talsmanni kanadísks
námufyrirtækis sem á meirihluta í
samsteypunni er ætlar að vinna
málmana, að hægt verði að vinna
13,5 tonn af gulli á ári en gullfram-
leiðsla Rúmena er nú um 1,7 tonn
áári.
Rúmenskt ríkisfyrirtæki á
þriðjungshlut í vinnslufyrirtæk-
inu. Búist er við að 2000 manns fái
vinnu við gullvinnsluna en mikið
atvinnuleysi er á svæðinu. Fyrir-
tækið heitir að taka tillit til um-
hverfissjónarmiða en nýlega drap
blásýrumengun mikið af fiski í ám
í Rúmeníu og Ungveijalandi.
Blásýra er notuð við gullvinnslu.
Siv Friðleifsdóttir
Reuters
Hans Eichel, fjármálaráðherra Þýskalands (fyrir miðju), í heimsókn í
kauphöllinni í Frankfurt fyrr í vikunni.
Fjármálaráðherra vill loka sendiráðum
Deilt um tillögur
Eichels um
ESB-sendiráð
Berlín. Morgunblaðið.
ÞYZKA utanríkisráðuneytið hefur
lýst andstöðu við tillögur fjármála-
ráðherrans Hans Eichels um að
loka mætti sendiráðum Þýzkalands
og láta sameiginleg sendiráð ESB;
ríkjanna taka við hlutverki þeirra. I
yfirlýsingu frá utanríkisráðuneyt-
inu segir, að utanríkispólitískar
ákvarðanir væri „ekki hægt að taka
fyrst og fremst á grundvelli sparn-
aðarsjónarmiða“. Auk þess væru
mál af þessu tagi á verksviði utan-
ríkisráðuneytisins eins.
Ráðuneytið brást með þessu við
fréttum þýzku vikuritanna Der
Stern og Focus-Money um tillögur
Eichels að þessu lútandi. Talsmenn
fjármálaráðuneytisins staðfestu
fréttirnar í megindráttum, en lögðu
áherzlu á að það vildi alls ekki
skipta sér af málum sem heyrðu
undir önnur ráðuneyti.
Að sögn Stern er það skoðun
Eichels, að hefðbundinn rekstur
sendiráða og sendiskrifstofa
Þýzkalands væri að miklu leyti orð-
inn óþarfur. ESB-ríkin ættu þess í
stað að sameinast um sendiskrif-
stofur og þau gætu hætt að reka
sendiráð hvert hjá öðru. Joschka
Fischer utanríkisráðherra væri hins
vegar ekki samþykkur þessum hug-
myndum og hann hygðist fá fjár-
málaráðherra annarra ESB-ríkja í
lið með sér gegn þeim. „í Suður-
Amerikulöndum nægði að hafa sam-
eiginlegt evrópskt sendiráð,“ hefur
Focus-Money eftir Eichel.
Rætt í ríkisstjórn
Torsten Albig, talsmaður Eichels,
staðfesti að fjármálaráðherrann
hefði á vettvangi ríkisstjórnarinnar
vakið máls á slíkum hugmyndum
fyrir allnokkru. Þeim hefði verið
tekið vel í utanríkisráðuneytinu.
Hins vegar sé það hlutverk
fjánnálaráðuneytisins að leggja lín-
una hvað varðar fjárhagsrammann
fyrir önnur ráðuneyti, en það skipti
sér annars ekki af því hvernig við-
komandi ráðuneyti ákveða að ráð-
stafa því sem þeim er úthlutað.
Sabine Sparwasser, talsmaður
Fischers utanríkisráðherra, sagði
þær breytingar sem væru í gangi á
starfsemi sendiráða í öðrum ESB-
ríkjum vegna Evrópusamrunans
þýddu ekki að það væri skynsam-
legt að leggja þau niður.
íekur eingöngu TAL símkixt,
2000
ERICS
A1018
utgáfur
afvinsælasta
Microsoft hug-
búnaðinum
fylgja Fuiitsu
Simens
draumavélinni
FUÍÍTSUco™
SIEMENS
Þyngd 163 grömm
Dual Band (900/1800)
Klukka, vekjara klukka.
5M5 og símanúmerabirtir
Biðtími rafhlöðu allt
að100klst I ”
Taltími rafhlöðu 1
allt að 4 klst 1
Chatboard A —^
Símanúmer
TAL frelsiskort 4 9Ó
lOOO.kr inneign * • <
- .- -- |,L„ f >
m ' ** "■ 1 ■
Margmiðlunaryel sem er
draumi llkust Öflugur
600MHz örgjörvi, innbyggt
DVD drif með sjónvarps-
útgangi, alvöm hljóðkort,
mikið minni og stór 7200
snúninga harður diskur eru
kostir sem vert er að athuga
• *•• •Aá
•••••fll
pentium®
— Uppfærsla
í 19“ skjá aðeins kr. 12.990,-
• 17" vandaður skjár
• 600MHz IntelPentium III
• ASUS móðurborð
• 128MB innra minni
• 32MB Ati 2000 3D
skjákort meðTV-out
• 13GB harðurdiskur
DVD mynddiskadrrf
SB LiveValue hljóðkort
3,5" disklingadrif /
56K innbyggt fax mótald
Margmiðlunarlyklaborð,
Vönduð mús með lijóli,
Fujitsu hátalarar §
Frír aðgangur að þjónustuborði
Tölvusfmans fylgir öllum tölvum.
Opið í öllum verslunum laugardag 10:00-16:00
BT Skeifunni - S: 550-4444 • BT Hafnarfirði - S: 550-4020 • BT Kringlunni - S: 550-4499 • BT Reykjanesbæ - S: 421-4040 • BT Akureyri - S: 461-5500