Morgunblaðið - 20.04.2000, Síða 40
40 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Reuters
Erró á vinnustofu sinni í París.
Heimildamynd um Erró sýnd á Stöð 2
„Hefur allt sem til
þarf í myndlist“
Tónleikar og námskeið í Salnum í júní
Söngveisla til heiðurs
Halldóri Hansen
Halldór Hansen Violet Chang Elly Ameling
Dalton Baldwin Olivera Miljakovic Lorraine Nubar
HEIMILDAMYNDIN „Erró -
norður-suður-austur-vestur“ verður
sýnd á Stöð 2 kl. 20.50 á föstudaginn
langa. Leikstjóri myndarinnar, sem
fjallar, svo sem nafnið gefur til
kynna, um líf og störf Errós, er Ari
Alexander Ergis Magnússon en
framleiðendur eru auk hans, Friðrik
Þór Friðriksson og Anna María
Karlsdóttir.
Útgangspunktur myndarinnar er
sýningin sem Erró hélt í hinu nafn-
kunna safni Jeu de Paume í París og
gekk yfir aldamótin. Segir Ari sýn-
inguna hafa verið enn eina staðfest-
inguna á stöðu Errós sem lista-
manns á alþjóðamælikvarða.
„íslendingar virðast ekki hafa gert
sér grein fyrir mikilvægi þessarar
sýningar. Það kemur svo sem ekki á
óvart því Islendingar skilja upp til
hópa ekki hvílíkrar virðingar Erró
nýtur í myndlistarheiminum. Hann
hefur allt sem þarf til að ná árangri í
myndlist - heiðarleika, vinnusemi,
foryitni og ástríðu fyrir lífinu."
í myndinni er ferill Errós rakinn,
eins og hann blasir við listamannin-
um sjálfum, helstu vinum hans og
fjölskyldu, gagnrýnendum og safn-
stjórum. Alls koma átján manns við
sögu.
Þegar upp var staðið voru Ari og
félagar, Óttarr Proppé og Þorgeir
Guðmundsson, með 28 klukkustund-
ir af „mjög traustu, frábærlega flottu
efni,“ eins og hann kemst að orði.
„Það var mikið stríð að stytta þetta
niður í sextíu mínútur."
Hinar stundirnar 27 munu þó ekki
lenda milli stafs og hurðar því Ari
hefur gert samning við Listasafn
Reykjavíkur-Errósafn um að efnið
muni í heild sinni verða tiltækt á
safninu í stafrænu formi í framtíð-
inni. Þar mun almenningur hafa að-
gang að því.
Næsta skref er, að sögn Ara, að
koma myndinni í alþjóðadreifmgu og
verður henni dreift til margra landa.
„Myndin er frá upphafi hugsuð fyrh-
alþjóðamarkað og unnin út frá því.“
En þar með er ekki öll sagan sögð
því Ari og Friðrik Þór Friðriksson
hjá íslensku kvikmyndasamsteyp-
unni hafa ákveðið að fylgja Erró
áfram eftir á stórum sýningum víða
um heim. „Við ætlum með öðrum
orðum að halda áfram að klippa úr
og bæta í myndina. Stóri draumur
minn er að gera þriggja klukku-
stunda langa heimildamynd fyrir
Listasafn Reykjavíkur-Errósafn.
Fara á allsherjar hugmyndafyllerí.
Af nógu er að taka. Myndin eins og
hún er núna er því bara fyrsti áfangi
á langri leið.“
Sæll, ég heiti Ari
Ari kynntist Erró í París fyrir níu
árum, þar sem hann var í mynd-
listarnámi. „Erró hafði heillað mig
frá því ég sá sýningu á verkum hans
á Kjarvalsstöðum þegar ég var tíu
ára en ég var ekki málkunnugur hon-
um. Síðan gerist það, þar sem ég sit
ásamt vinkonu minni á kaffihúsi, að
Erró gengur framhjá. „Þarna labbar
mesti maður íslenskrar myndlistar,"
segi ég og vinkona mín spyr hvort ég
þekki hann ekki. Það gerði ég ekki
en lét mig hafa það, hljóp á eftir hon-
um og kynnti mig: „Sæll, Ari
Alexander heiti ég, myndlistarnemi,
og langar mikið til að fá að heim-
sækja þig á vinnustofuna þína.“ Það
var ekki að sökum að spyrja, Erró
tók mér opnum örmum, gaf mér
símanúmer sitt og sagði að við þyrft-
um endilega að hittast. Þetta var
mjög skemmtilegt og lýsir mannin-
um vel. Erró er einhver hreinasti og
beinasti maður sem ég hef fyrir hitt.
Hann hefur einhver gen sem eru af-
ar sjaldgæf í þessari veröld."
Ari komst að raun um að vinnu-
stofa Errós var í næsta húsi við lista-
háskólann sem hann sótti, þannig að
þeir hittust oft á þessum árum. Mál
æxluðust meira að segja þannig að
Ari skrifaði lokaritgerð sína um
Erró. „Ári eftir að ég útskrifaðist
hélt ég síðan sýningu í París og lét
setja Erró á gestalistann. Hann er
auðvitað mjög frægur í París og
menn brostu bara að mér, tóku
þessu sem hverju öðru gríni. Nema
hvað? Fyrsti maðurinn sem mætti
við opnunina var Erró með stóra
sjaldgæfa viskíflösku."
Samstarfsaðilar við gerð myndar-
innar um Erró eru ríkisstjórn ís-
lands, Reykjavíkurborg, menningar-
borg Evrópu árið 2000 og Flugleiðir.
EFNT verður til mikillar söng-
veislu í Salnum í Kópavogi dagana
18. -20. júní næstkomandi til heið-
urs listunnandanum og barnalækn-
inum Halldóri Hansen. Hugmynd-
in að veislu þessari er runnin
undan rifjum hins kunna píanó-
leikara Daltons Baldwin en þeir
Halldór eru miklir vinir.
Hápunktur söngveislunnar eru
tónleikar sem haldnir verða Hall-
dóri til heiðurs mánudagskvöldið
19. júní og hefjast kl. 20. Ekki
verður um hefðbundna tónleika
með niðurritaðri efnisskrá að
ræða, heldur hafa tónlistarmenn-
irnir beðið um að fá að stíga á svið
og syngja og leika ýmsar af þekkt-
ustu perlum söngbókmenntanna
fyrir vin sinn Halldór.
Listamennirnir sem heimsækja
Island af þessu tilefni og koma
jafnframt fram á sönghátíðinni eru
Elly Ameling og Dalton Baldwin,
Lorraine Nubar, Margareta Hav-
erinen, Olivera Miljakovic, Simon
Chaussé og Violet Chang. Af
heimafólki eru það Bergþór Páls-
son, Finnur Bjarnason, Garðar
Cortes, Kristinn Sigmundsson,
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Sólrún Bragadótt-
ir og Jónas Ingimundarson. Kynn-
ir á sönghátíðinni verður Gunnar
Eyjólfsson leikari.
í meistara
höndum
Hátíðin hefst með námskeiði
(masterclass) Ellyar Ameling og
Daltons Baldwins, sunnudaginn
18. júní kl. 10 í Salnum. Alls verða
í boði fimm hálfsdagsnámskeið,
sem öll hafa hlotið heitið „I meist-
ara höndum". Aðrir meistarar sem
halda námskeið dagana 19. og 20.
júní eru þær Olivera Miljakovic
frá Júgóslavíu og Lorraine Nubar
frá Bandaríkjunum.
Stefnt er að því að flestir þátt-
takendur sæki um sem pör, þ.e.
söngvari og píanóleikari. Þó er
ekki útilokað að söngvarar sem og
píanóleikarar geti sótt um hvor í
sínu lagi og jafnvel myndað pör
fyrir námskeiðin. Þátttökugjald
fyrir heilsdagsnámskeið, með til-
sögn í hálftíma og áheyrn, er kr.
7.500 fyrir parið og hálfsdagsnám-
skeið er kr. 3.750 fyrir parið. Að-
eins er rúm fyrir 18 pör og ef þátt-
taka verður meiri en hægt er að
anna áskilja aðstandendur sér rétt
til að velja úr umsóknum.
Sérstakt tilboðsverð er fyrir
þátttakendur sem kaupa áheyrn á
öll hin námskeiðin og kostar þá
áheyrn hálfan dag kr. 1.000 fyrir
einn. Sama tilboð gildir fyrir
áheyrendur sem kaupa áheyrn á
öll námskeiðin í einu. Annars er
áheyrn á stök hálfsdagsnámskeið
kr. 1.250.
U msóknarfrestur
til 15. maí 2000
Umsóknareyðublöð um nám-
skeiðin „I meistara höndurn" og
allar nánari upplýsingar eru gefn-
ar í Salnum sem sér um skipulagn-
ingu og uppsetningu hátíðarinnar í
samvinnu við Tónlistarfélagið í
Reykjavík, en Halldór hefur lengi
verið þar félagi. Margir af þeim
listamönnum sem hér heiðra Hall-
dór komu fram á tónleikum Tón-
listarfélagsins á árum áður.
Nú standa vonir stjórnenda
Tónlistarfélagsins til þess, að fé-
lagið muni í framtíðinni hafa fjár-
hagslegt bolmagn til að endur-
vekja tónleikahald í einhverju
formi á komandi tímum.
Reyndir
listamenn
Bandaríski píanóleikarinn Dalt-
on Baldwin er í hópi þekktustu
undirleikara veraldar. Hann hefur
í áratugi ferðast um heiminn í för
með stórsöngvurum á borð við
Gérard Souzay, Elly Ameling,
Jessye Norman, Jose van Damm,
Frederica von Stade, Teresa Berg-
anza, Nicolai Gedda og svo mætti
áfram telja, auk þess sem hann
hefur leikið með ýmsum þekktum
hljóðfæraleikurum. Hann hefur
leikið inn á hundruð hljómplatna,
sem hvarvetna hafa hlotið lof og
verðlaun. Auk hljómleikaferðalaga
kennir Dalton Baldwin í West-
minster Choir College í Princeton,
New Jersey og heldur meistara-
námskeið í Bandaríkjunum,
Evrópu og Asíu. Dalton Baldwin
hlaut heiðursdoktorsnafnbót við
Tónlistarháskólann í Berlín og hef-
ur einnig hlotið æðstu viðurkenn-
ingu franskra stjórnvalda.
Hollenska söngkonan Elly Ame-
ling er virt um allan heim. Hún
hefur í áratugi verið í fremstu röð
söngvara í heiminum, sungið frá
Tansaníu til Islands og allt frá
Nairobi og Equador til Finnlands,
verið tíður gestur á listahátíðum
og unnið með hljómsveitarstjórum
á borð við Ernst Ansermet, Giul-
ini, Haitink, Previn og Osawa.
Upptökur með söng hennar eru
eftirsóttar um allan heim. Hún
hefur hlotið margvíslegar viður-
kenningar fyrir list sína, m.a. þeg-
ið æðstu viðurkenningu í heima-
landi sínu úr hendi
Hollandsdrottningar.
Olivera Miljakovic er fædd í
Júgóslavíu. Auk söngnáms tók hún
masterspróf í tungumálum og
listasögu frá Háskólanum í Belgr-
ad. Hún var fastráðin við Vínar-
óperuna, söng á öllum helstu söng-
hátíðum í Evrópu undir stjórn
Karls Böhm, Herberts von Kara-
jan, Leonards Bernstein o.fl.
Miljakovic söng í fjölmörgum óp-
erum, óperettum og kvikmyndum,
t.d. Carmen undir stjórn von
Karajan, Cosi fan tutte undir
stjórn Karls Böhm og svo mætti
áfram telja. Miljakovic var um
tíma nemandi Svanhvítar Egilsson.
Lorraine Nubar er sópransöng-
kona og þekktur söngkennari frá
Los Angeles. Hún var nemandi
Jennie Tourel, tók B.A. og mast-
ersgráðu frá Juilliard og hefur
kennt þar frá árinu 1980. Hún hef-
ur einnig starfað mikið í Frakk-
landi og er um þessar mundir i
gestakennari við Parísaróperuna
og óperuna í Lyon. Meistaranám-
skeið Nubar eru afar eftirsótt
bæði í Frakklandi, Japan, Svíþjóð
og víðar.
Heimildamynd um
Göggu Lund frumsýnd
HEIMILDAMYND um líf og störf
dansk-islensku söngkonunnar
Engel Lund verður frumsýnd á
Stöð 2 í kvöld kl. 20.55. Höfundur
handrits er Frank Ponzi en fram-
leiðandi Saga Film.
Myndin er að mestu tekin upp
árið 1977 og hefur, að sögn
Franks, að geyma einu
myndbandsupptökurnar sem til
eru af Engel, eða Göggu eins og
hún var jafnan kölluð. Ævi henn-
ar og söngferill eru rakin og rætt
við Göggu sjálfa og nokkra er-
Ienda samferðamenn hennar, svo
sem Ferdinand Rauter, Claire
Rauter, Martin Isepp, Ursulu
Vaughan Williams, Howard
Ferguson og Eileen MacLoud, en
sem kunnugt er átti Gagga mik-
illi velgengni að fagna erlendis
áður en hún settist að á Islandi
árið 1960.
Hún lést árið 1996, tæplega 96
ára að aldri.
„Gagga Lund var
einstök kona - goð-
sögn,“ segir Frank.
„Hún var heimsfræg
söngkona sem söng á
21 tungumáli en
gleymdi eigi að síður
aldrei rótum sínum
og lyfti grettistaki í
íslensku tónlistarlífi
eftir að hún sneri
heim. Það hefur eng-
inn einn listamaður
gert eins mikið fyrir
kynningu á íslcnskri
söngtónlist erlendis
og Gagga Lund.“
Frank segir líf
Gagga Lund á há-
tindi söngferils síns.
Göggu hafa ein-
kennst af hógværð,
hún hafi verið li'tið
fyrir sviðsljósið. „Eg
ætlaði aldrei að fá
hana til að sam-
þykkja gerð þessarar
myndar. Hún skildi
ekki að einhver vildi
gera heimildamynd
um sig. Ég lofaði
hins vegar að gera
þetta eins vel og ég
gæti - og hef staðið
við það. Vonandi
verður fólk ánægt.
Tilgangurinn er auð-
vitað að halda minn-
ingu Göggu á lofti og
reyna að sýna hve stór hún var -
bæði sem listamaður og mann-
eskja.“
Kynnt á kvikmynda-
hátiðinni í Cannes
Myndin var 22 ár í vinnslu.
Lokatökur fóru fram í Lundúnum
fyrir tveimur árum. Frank segir
margar ástæður liggja til þess að
ekki var unnt að ljúka gerð henn-
ar fyrr, en aðalatriðið sé að nú sé
myndin tilbúin til sýningar. Þakk-
ar hann Kolbrúnu Jarlsdóttur,
Agnesi Johansen og Saga Film
gott samstarf.
Myndin verður kynnt á kvik-
myndahátíðinni í Cannes í næstu
viku.