Morgunblaðið - 20.04.2000, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 20.04.2000, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000 51 MINNINGAR + Ástkaer eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, mágur, afi og langafi, DANÍEL GUNNAR JÓNSSON, Borgarnesi, lést mánudaginn 17. apríl sl. Útförin verður gerð frá Borgarneskirkju laugar- daginn 22. apríl kl. 14.00 Hrefna Sigurðardóttir, Bjarnlaug H. Daníelsdóttir, Karl Eron Sigurðsson, Sigurður Daníelsson, Jón V. Daníelsson, Stefán G. Daníelsson, Edda I. Daníelsdóttir, Þór G. Daníelsson, Rut Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn Bjarney Ingadóttir, Guðbjörg Ágústsdóttir, Anna H. Jóhannesdóttir, Sigurbjörn Árnason, t Ástkær vinur, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, HARALDUR SIGURGEIRSSON, Spítalavegi 15, Akureyri, sem andaðist á dvalarheimiiinu Hlíð laugar- daginn 15. apríl, verður jarðsunginn frá Akur- eyrarkirkju miðvikudaginn 26. apríl kl. 13.30. Arnfríður Róbertsdóttir, Agnes Guðný Haraldsdóttir, Ólafur Bjarki Ragnarsson, Helga Haraldsdóttir, Alfreð Almarsson, Sigurgeir Haraldsson, Lára Ólafsdóttir, Jón Sigurgeirsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær móðir okkar, amma og langamma, RÓSA SÓLVEG DANÍELSDÓTTIR YOUNG, lést á heimili sínu í Las Cruuses laugardaginn 15. apríl sl. Jarðarförin verður í Las Cruses, New Mexico, í dag, fimmtudaginn 20. apríl. Hans Árnason, Helga Hannesdóttir, Sigríður Pingatore, Daníel Young, Mark Leaf, barnabörn og barnabarnabörn. + Við þökkum að heilum hug öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför, ÁRNA HALLDÓRSSONAR hæstaréttarlögmanns, Egilsstöðum, Kristín Gissurardóttir, Gissur Þór Árnason, Stefanía Steinþórsdóttir, Halldór Árnason, Þórunn S. Einarsdóttir, Þórhallur Árnason, Guðlaug Backmann, Gunnar Árnason, Jóhanna Pálmadóttir, Anna Guðný Árnadóttir, Rannveig Árnadóttir. + Þökkum innilega samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, K. HAUKS PJETURSSONAR mælingaverkfræðings, Sólvallagötu 22, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilsugæslu- stöðvar Miðbæjar og Droplaugarstaða fyrir góða aðstoð í veikindum hans. Jytte Lis Ostrup Björg 0. Hauksdóttir, Rúnar I. Sigfússon, Inga Lis 0. Hauksdóttir, Jón Egill Egilsson, Björn Óli 0. Hauksson, Kristjana Barðadóttir og barnabörn. ÁSA ÞURÍÐUR GISS URARDÓTTIR + Ása Þuríður Giss- urardóttir fædd- ist á Gljúfri í Ölvesi 27. aprfl 1901, ein af sex systkinum, og hefði því orðið 99 ára í þessum mánuði. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 8. aprfl siðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru: Giss- ur Sigurðsson frá Krossi í Ölvesi og Jónína Ásgrímsdóttir frá Stærra-Bæ í Grímsnesi, (ein 22 systkina). Systur- dóttir Jónínu, Guðmunda Lilja Ól- afsdóttir, ólst upp með systkinun- um og var sem eitt barnanna. Hún er nú ein eftir af hópnum og dvelst í Seljahlíð í Reykjavík. Ása giftist Helga Eyleifssyni frá Hólakoti í Stafneshverfi á Miðnesi 4. janúar 1930. Einkadóttir þeirra, Ásbjörg, er gift Óskari Þ. Þorgeirssyni. Þau eiga þrjár dætur: 1) Helgu Ragnheiði, gift Pétri Guðjóns- syni og eiga þau þrjá syni, Ragnar, Gunn- ar og Aríel. Áður eignaðist Helga dótturina Jóhönnu Dögg Pétursdóttur og soninn Sigur- björn Búa Baldvins- son. 2) Kolbrúnu Ósk, hennar dóttir er Ásrún Hildur Kol- brúnardóttir. 3) Sig- urbjörgu Ásu, gift Kristmundi Rafnssyni. Þeirra son- ur er Baldur Már. Ása Þuríður og Helgi bjuggu lengst af á Grettisgötu 32 og Snorrabraut 35. Helgi lést á Hrafnistu 8. janúar 1998. Útför Ásu Þuríðar fór fram frá Fossvogskapellu 14. aprfl í kyrr- Þey. Elsku amma okkar, Ása Þuríður Gissurardóttir, er látin. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn 8. apríl síðastliðinn, umvafin elsku sinna nánustu. Okkur systur langar til að minnast ömmu nokkrum orð- um. Amma hefði orðið 99 ára núna 27. apríl og upplifði því ótrúlega miklar þjóðfélagsbreytingar á sinni löngu ævi. Hún ólst upp í Ölfusinu, bjó þar í torfbæ ásamt foreldrum, systkinum og vinnufólki. Þar gekk hún ung að árum í flest verk með fullorðnum. Hún lýsti fyrir okkur björtum sum- amóttum, þegar unnið var að engja- slætti alla nóttina og fólkið stóð í vatni upp fyrir ökkla. Marga merkis- viðburði tuttugustu aldarinnar upp- Skilafrest- ur minn- ingar- greina EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. lifðum við systurnar gegnum frá- sagnir hennar, m.a. Suðurlandsskjálftann, spænsku veikina, frostaveturinn mikla og heimsstyrjaldirnar tvær. Amma eyddi löngum stundum við lestur. Ljóðmæli Jónasar Hallgríms- sonar voru henni hugleikin, svo og Þjóðsögur Jóns Árnasonar og Pass- íusálmar Hallgríms Péturssonar. Ása amma gegndi stóru hlutverki í h'fi okkar allt frá barnæsku. Hún var iðin við að segja okkur ævintýri og sögur og seinna bömunum okkar. Hún kunni ógrynni sagna og ævin- týra, og ekki voru þær síðri frásagn- irnar af samferðafólki hennar. Þá var hún snjöll við að semja sjálf spennandi ævintýri handa okkur sysýrum. Ása amma unni landinu sínu og þær voru ófáar ferðirnar sem við fór- um með henni og afa í útilegur. Við minnumst allra berjaferðanna, sem farnar voru á hverju hausti. Svo var sultað og saftað og alltaf séð til þess að nóg væri til fram að næstu berja- ferð. Við minnumst allra skiptanna sem við komum til hennar, þegar hún var að baka pönnukökur og kleinur og oft fengum við að hjálpa til, en aðallega fólst sú hjálp í þvi að innbyrða góðgætið. Þá fengum við að taka þátt í sláturgerð og laufa- brauðsbakstri með henni og þótti okkur alltaf mikið til koma. Ása amma var gift Helga Eyleifs- syni í tæp 70 ár. Þau voru samrýnd hjón, ekki síst á efri árum. Afi lést fyrir rúmum tveim árum og var ömmu mikil eftirsjá að honum. Hún trúði því staðfastlega að þau myndu hittast aftur og við systur erum sannfærðar um að nú séu þau saman áný. Amma lifði og dó með reisn og hélt skýrri hugsun allt til loka. Hún fylgdist með öllum fréttum, innlend- um sem erlendum, og varð oft til þess að segja okkur frá framvindu mála, sem efst voru á baugi. Góð kona er gengin. Við þökkum þér elsku amma, fyrir samfylgdina, allan fróðleikinn, sem þú miðlaðir + Þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, RAGNARS SIGURÐSSONAR, Kópavogsbraut 1A, Kópavogi. Sérstakar þakkir til heimahjúkrunar Heilsu- gæslustöðvar Kópavogs og starfsfólks deild- ar B7 á Landspítalanum Fossvogi. Mikael Ragnarsson, Emil Ragnarsson, Birna Bergsdóttir, Gunnlaug Hanna Ragnarsdóttir, Gísli Guðjónsson, Brynja Ragnarsdóttir, Ragna Kristín Ragnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. okkur, og síðast, en ekki síst, fyrir óendanlegan kærleik þinn. Helga, Kolbrún og Sigurbjörg. Mig langar til að minnast lang- ömmu minnar, Ásu Þuríðar, með nokkrum orðum. Langamma mín fæddist á fyrsta ári síðustu aldar og upplifði því mikl- ar breytingar í þjóðfélaginu, t.d. Suðurlandsskjálftann og heims- styrjaldirnar báðar. Það var alltaf gott að koma í heim- sókn til langömmu og langafa, fyrst á Snorrabrautina og seinna Hrafn- istu. Ása amma var alltaf svo hress og góð við okkur langömmubörnin, sagði okkur sögur frá fyrri hluta ald-f arinnar og auðvitað frá álfunum og tröllunum í fjöllunum. Oft laumaði hún eplum og appelsínum í vasana okkar, svo við yrðum nú stór og sterk. Já, hún var alveg sérstök hún amma og skemmtileg. Mig langar til að þakka þér amma Ása fyrir að hafa verið til, og að þú skulir hafa átt þátt í því að gera mig að þeirri manneskju sem ég er í dag. Elsku amma, ég ætla að kveðja þig með uppáhaldsbæninni okkar: Vertu yfir og allt um kring, með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring, sænginniyfirminni. Þín, * Ásrún Hildur. ' Ég á margar góðar minningar um hana Ásu ömmu, langömmu mína. Hún var kona sem bjó yfir einstakri góðmennsku og hjartahlýju sem hún umvafði hvern þann sem kynntist henni. Fyrstu æviárin mín var ég mikið á heimili hennar og Helga langafa á Snorrabrautinni. Þótt hún langamma mín hafi verið komin á efri ár var gamanið aldrei langt und- an. Hún var glaðvær og bjó yfir ríkrí- kímnigáfu og vorum við iðnar við að bregða á leik með hinum ýmsu uppá- tækjum. Hún varðveitti bamið í sjálfri sér og þreyttist ekki á að segja okkur sögur af músafjölskyld- unni, Siríkan og Mógli, sem munu öðlast áframhaldandi líf með kom- andi kynslóðum. Bænirnar kenndi hún mér hverja af annarri. Ég fór með þær árum saman áður en ég fór að sofa án þess að neina vantaði. Sem bam man ég eftir að hafa í sífellu slitið lopann fyr- ir henni þegar hún sat og prjónaði sokka og vettlinga handa öllum í fjöl- skyldunni. Aldrei skammaði hún mig heldur hélt hægð sinni og þolin- mæði. Á heitum sumardögum töltum^. við amma upp að Kjarvalsstöðum, breiddum úr teppi og nutum veður- blíðunnar. Það var ýmislegt brallað með henni ömmu Ásu og eiga vinkonur mínar flestar Ijúfar minningar um kringluvatn og opna arma á Snorra- brautinni. Það eru svo margar hversdagsleg- ar minningar sem koma upp í hug- ann en hver þeirra og ein er eins og fjársjóður sem ég geymi frá liðinni tíð. Við amma urðum góðar vinkonur með árunum og áttum oft góð samtöl um lífið og tilveruna. Hún hafði ætíð áhuga á framgangi mála hjá vinum mínum og fjölskyldu og spurði frétta^ af öllum hvert sinn sem við hittumst. Hún fylgdist vel með veröldinni fyrir utan. Við göntuðumst oft með það saman að hún yrði hátt yfir hundrað ára því forvitnin, áhuginn og neist- inn fyrir lífinu var svo sterkur. Hún langamma mín var orðin nærri 99 ára þegar hún kvaddi okkur sátt við Guð og menn. Það er fegurð fólgin í lífi hennar ömmu minnar og mun hún ávallt vera mér Ijós á veginum. Öll fegurð hlutanna stafar affegurðinni í sálinni. Þannig leiðir sköpunarverkið okkurábraut til hins fagra til Guðs. (Ágústínus.) JóhannaDögg. "íi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.