Morgunblaðið - 20.04.2000, Blaðsíða 72
72 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HUGVEKJA í DAG
Enginn dauði
án lífs
Árið 2000 hljómar ákall Þjóðkirkjunn-
ar um frelsun barna úr þrældóms-
fjötrum. Stefán Friðbjarnarson
minnir á þetta ákall í tengslum við
páskana, sem minna okkur á sigur
lífsins yfír dauðanum.
ÞAÐ er ekkert líf án
dauða. Það veit hver
þroskaður maður.
Það er enginn
dauði án lífs. Það er
sannfæring trúaðs
fólks. Það er trú
þeirra sem líta á
dauðann sem hlið að
nýrri tilveru.
Það er síður en svo
að allir séu sammála
um þessi efni. Þeir
eru ófáir sem líta á
dauðann sem endalok
lífsins - sálar sem lík-
ama - og punktinn
aftan við persónulegt
líf og tílveru einstakl-
ingsins.
En sé nú fram-
haldslíf, sem Kristur
boðar, til, hinum meg-
in dauðans, þá er það í
sjálfu sér ekkert ótrú-
legra en það líf, sem
við lifum hér á jörðu, í
öllum þess marg-
breytiíeika og mikil-
leika. Lífríki jarðar,
veruleikinn sjálfur, sem við lifum
og þekkjum, tekur fram öllum
skáldskap ef grannt er gáð. Þetta
á bæði við um fegurð og ljótleika
jarðlífsins.
Sigurbjöm biskup Einarsson
segir m.a. í páskaerindi, fluttu í
KFUM
1985, birtu í bók hans Haust-
dreifum:
„En nú hefur það verið almenn
trú mannkyns um óralangan ald-
ur, ef til vill frá upphafi mann-
legrar hugsunar, að líf mannsins
haldi áiram í einhverri mynd eftir
dauðann. Hugmyndimar um til-
veruna eftir dauðann hafa ekki
alltaf verið fagnaðarríkar. Því fer
fjarri. En hin æðri trúarbrögð
hafa hvert á sinn hátt gefið útsýn
yfir mæri lífs og dauða, þar sem
alvara dauðans fékk stóraukna
dýpt í ljósi mikilla fyrirheita."
Fjrr í sama erindi segir Sigur-
björn biskup:
„Og nú gerizt það dögum oftar
á sjúkrahúsum, að menn, sem eft-
ir venjulegum merkjum má telja
dauða, eru lífgaðir aftur. Þeir
telja sig sumir hafa lifað andlát
sitt. Það era til nýjar bækur um
reynslu manna, sem finnst þeir
hafa komizt yfir þau mæri, sem
skilja milli lífs og dauða.“
Maðurinn er eina jarðneska
líftegundin, sem veit fyrirfram, að
dauðinn hremmir hann. Og frá
upphafi mannlegrar hugsunar
hefur hann brotið heilann um það,
hvemig alheimurinn varð til,
hvernig líf kviknaði hér á jörðu,
hvemig persónulegur hugar-
heimur hans er til orðinn og sam-
ansettur, hvert hlutverk hans
sem einstaklings sé í tilveranni -
og um möguleikann á lífi eftir
líkamsdauða.
Páskafrásögnin um píslar-
göngu Krists, krossfestingu og
upprisu - það er um sigur lífsins
yfir dauðanum - er stórkostleg-
asta frásögn biblíunnar. Það er
því ekkert eðlilegra á páskum, há-
tíð lífsins, en að staldra við æva-
foma trú mannkynsins á Iíf eftir
dauðann, sem rekur rætur til
upphafs mannlegrar hugsunar.
Við höldum páska í minningu um
upprisu Krists - sigur lífsins yfir
dauðanum. Og „það er trú, kristin
trú, páskatrú, að taka sigur Guðs
gildan og láta sigrast af honum,
sem hefur lykla dauðans og heljar
og lifir um aldir alda“, segir Sig-
urbjöm biskup í tilvitnuðu erindi.
Það má lesa út úr táknmáli
páskanna, sem og annarra kirlq'u-
hátíða, að við eigum að rækta með
okkur bjartsýni og jákvætt hug-
arfar, jákvæð viðhorf, jákvæða af-
stöðu til umhverfis okkar og sam-
ferðafólks. - Megi páskasólin
skína í sinni okkar og hugur okk-
ar verða vermireitir jákvæðra
viðhorfa, ekki sízt í garð þeirra
mörgu, sem af ýmsum ástæðum
standa höllum fæti í lífinu.
Rétt er að undirstrika ákall
biskupsins okkar, herra Karls
Sigurbjörnssonar, til þjóðarinnar
á þúsund ára kristnitökuafmæli
íslendinga. Ákall um stuðning ís-
lendinga - einstaklinga, heimila
og fyrirtækja - við indversk böm
í þrældómsfjötram. Hjálparstofn-
un kirkjunnar vill leggja sitt af
mörkum til að kaupa böm „hinna
stéttlausu" á Indlandi úr fjötram
bamaþrælkunar og vísa þeim veg
til menntunar, sjálfsvirðingar og
sjálfsbjargar. Það er verðugt
verkefni á afmælis- og tímamóta-
árinu 2000 - og reyndar hvert
sem árið væri - að bjarga ánauð-
ugu ungviði af krossi þrælkunar,
svo það megi rísa upp til nýs,
betra og fegurra lífs.
Gleðilega páskahátíð.
VELVAKAMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Frábær þjónusta
hjá ég C
KONA hafði samband við
Velvakanda og vildi koma á
framfæri þökkum til versl-
unarinnar ég C í Hamra-
borg í Kópavogi. Hún hafði
farið þangað í nóvember sl.
og keypt hjá þeim barna-
gleraugu. Fyrir stuttu
þurfti að stilla gleraugun,
því að þau sátu ekki rétt og
þá kom í ljós að þau voru
brotin. Skipti engum togum
að starfsmaður verslunar-
innar skiptí hreinlega um
umgjörð mér að kostnaðar-
lausu. Langar mig að þakka
þeim fyrir frábæra þjón-
ustu og mikla þjónustu-
lund. Mínar bestu þakkir.
Þakklátur viðskiptavin-
ur.
5-D í Miðbæjar-
skólanum
AGNAR hafði samband við
Velvakanda og vildi láta
það koma fram að hann
væri bróðursonur Gunnars
Jakobsens, sem var að leita
eftir upplýsingum varðandi
skólamynd og myndir, sem
birtust í Velvakanda
sunnudaginn 16. apríl sl. Ef
einhver hefur upplýsingar
varðandi þessar myndir er
hægt að hafa samband við
Agnar Breiðfjörð K.
Jacobsen í síma 557-3234
eða 868-0144.
Tapað/fundió
Fjallahjól fannst
í Vesturbænum
LÍTIÐ stúlknafjallahjól
fannst í vesturbæ Reykja-
víkur. Upplýsingar í síma
551-6244.
Gullnisti fannst
GULLNISTI með mynd
fannst mánudaginn 17. apr-
íl sl. fyrir utan Bónus í
Skeifunni. Upplýsingar í
síma 553-5997.
Barnaskíðaskór
gleymdust
NORDICA svartir barna-
skíðaskór gleymdust á bíla-
planinu í Skálafelli mið-
vikudaginn 11. apríl sl.
Upplýsingar í síma 554-
4999 eða 863-8099.
Pioneer DEH-700
Leiðarvísirinn að bflútvarp-
inu mínu, Pioneer
DEH-700 í Pajero 1997, er
týndur. Getur einhver
hjálpað, t.d. með ljósriti af
sínum? Vinsamlegast hafið
samband í síma 565-2155
eftir kl. 19 eða reynir-
ey@mmedia.is. Launum
heitið.
Dýrahald
Pomeranian-tík
týndist
KONÍAKSGUL pomerani-
an-tík, átta mánaða, fauk út
í veður og vind í rokinu sem
var austur á Skeiðum
fimmtudaginn 23. mars sl.
Það er talið að hún hafi
kannski farið í átt að þjóð-
veginum. Það voru þrjár
tíkur sem fuku og tvær eru
fundnar. Tíkarinnar er
ákaflega sárt saknað af
heimilinu og er fólk beðið
að hafa augun hjá sér. Ef
einhver getur gefið upplýs-
ingar um tíkina er hann
beðinn að hafa samband við
Hrafnhildi í síma 486-5540
eða 486-5670.
Perla er týnd
PERLA er týnd. Hún á
heima að Hraunteigi 23,
Reykjavík. Perla er grá og
hvít og týndist um mánaða-
mótin febrúar/mars. Þeir
sem gætu gefið upplýsing-
ar um hana, vinsamlegast
hafi samband í síma 588-
1067.
Svartur fress
týndist í Mosfellsbæ
SVARTUR tveggja ára
geldur fress, með hvíta
bringu og hvítar hosur,
hvarf frá heimili sínu í
Mosfellsbæ, nálægt Blik-
astöðum, fyrir um það bil
10 dögum. Hann er eyrna-
merktur en ekki með hál-
sól. Þarna í nágrenninu er
verið að byggja og er fólk
beðið að athuga hvort hann
gæti hafa lokast einhvers
staðar inni. Ef einhver hef-
ur orðið hans var, er sá
hinn sami vinsamlegast
beðinn að hafa samband í
síma 566-7919, 862-6447
eða 553-7272.
Kettlingar fást gefins
SEX vikna kettlingar fást
gefins á gott heimili. Kas-
savanir. Upplýsingar í síma
557-5919.
Læða og kettlingar
fást gefins
ÁRSGÖMUL hvít læða og
fjórir ljósgráir og hvítir
kettlingar óska eftir góðu
heimili. Upplýsingar í síma
699-5680, Jóhanna.
Prins er týndur
Svartur og hvítur kettling-
ur týndist frá Nökkvavogi
48, kjallara, fyrri part laug-
ardagsins 25. mars. Hann
er að verða fjögurra mán-
aða, merktur með ljós-lilla-
blárri hálsól með dökk-
blárri merkiplötu. Þeir sem
hafa orðið hans varir hafi
samband í síma 568-1407.
Hans er sárt saknað.
BRIDS
llmsjón Guðmundur
Páll Arnarson
Víxltrompun er algengust í
4-4 eða 5-4 samlegu, enda
þarf tromp á báðum hönd-
um til að geta stungið á
víxl. En þegar Vietor Mollo
á í hlut getur eitt og annað
gerst. Hér er það persónu-
gervingur hans, Gölturinn
grimmi, sem situr við stýr-
ið í sjö spöðum og víxl-
trompar með áttlit á móti
einspili!
Norður gefur; allir á
hættu. „ ,
Noj-our
*A
v DG987
♦ AK
+ AK543
Vestur Austur
+- +G652
vÁKl065432 v-
♦ 10987 ♦DG63
+G +D10987
Suður
+KD1098743
v-
♦ 542
+62
Vestur Norður Austur Suður
- llauf Pass 4 spaðar
öhjörtu Pass Dobl 7spaðar Pass Allirpass 5 spaðar
Þetta era dæmigerðar
sagnir í spilaklúbbi Ljón-
gammanna. Norður var
svo fúll yfir því að fá ekki
að spila vömina í fimm
hjörtum dobluðum að hann
ákvað að refsa makker með
því að lyfta í alslemmu.
Hjartaásinn kom út og
Gölturinn taldi strax upp í
tólf slagi að því gefnu að
hann fengi átta á spaða.
Sem var reyndar engan
veginn víst, því skiptíngin
var greinilega villt. Austur
hentí tígli í fyrsta slag og
Gölturinn taldi það benda
tfl að hann ætti a.m.k.
fimmlit í laufi og því væri
vonlaust að reyna að frí-
spila þann lit. Svo hann fór
aðra leið:
Hann spilaði tígli í öðr-
um slag og trompaði
hjarta. Aftur henti austur
tígli, en átti þó enn einn tfl
þegar Gölturinn spilaði
tígli í annað sinn og stakk
hjarta. Hann notaði svo
innkomur blinds í laufi til
að stinga hjarta tvisvar í
viðbót og þá var staðan
orðinþes^
A Á
V -
♦ -
+ 543
Vestur
vKlO
♦ 109
*--
Austur
+G652
v-
♦--
+~
Suður
+KD10
v—
♦ 2
*-
Tígultvisturinn var tromp-
aður með ásnum og lauf til
baka með tíunni. Og austur
varð þess heiðurs aðnjót-
andi að undirtrompa tvisv-
ar.
„Óvenjuleg víxltrompun
á einspilið í borði,“ sagði
einn úr hópi áhorfenda.
í austur var óheppnasti
spilari klúbbsins og hann
lét sér fátt um finnast,
enda ýmsu vanur: „Gegn
mér væri hægt að víxl-
trompa á eyðu.“
Víkverji skrifar...
Handboltinn á Netinu ^mbl.is
/KLLTAF^ GfTTHVA£? /VÝTJ
AGLI Helgasyni hefur tekist að
hrinda af stað áhugaverðum
vettvangi fyrir umræðu um íslensk
stjórnmál í þætti sínum Silfur Egils
á Skjá einum. Agli er lagið að velja í
þættina áhugaverða viðmælendur og
spyrja áleitinna spurninga. Ríkisút-
varpið mun á sínum tíma hafa boðið
Agli að vera með umræðuþætti, en
hann hafnaði því. Ólíklegt er að sú
svipa sem hangiryfir dagskrárgerð-
armönnum á RtJV um „hlutleysi"
hefði gert Agli kleift að vera með
jafn opinn og frjálslegan þátt og hon-
um hefur tekist að búa til á Skjá ein-
um, en Egill er óhræddur við að láta
sínar eigin skoðanir á málefnum
koma fram í þáttunum.
í síðasta þætti fór fram umræða
um byggðamál í Silfri Egils og þar
kom fram það sjónarmið, sem stund-
um heyrist, að við þurfum að skipu-
leggja byggð með nýjum hætti og
leggja af byggð þar sem ekki er
grandvöllur fyrir áframhaldandi
búsetu.
Einhvern veginn verður Víkverja
alltaf hugsað til Stalíns þegar menn
fara að tala um að „skipuleggja
byggð“. Stalín fylgdi mjög ákveðinni
byggðastefnu sem gekk út á að
skipuleggja byggð og flytja fólk frá
heimilum sínum til nýrra heim-
kynna. Hér á landi hefur mönnum
dottið í hug að hægt sé að leysa hinn
svokallaða byggðavanda með því að
leggja af tilteknar byggðir og
styrkja aðrar. Það hefur verið nefnt
að vanda hefðbundinna greina land-
búnaðarins mætti leysa með því að
hætta sauðfjárbúskap á tilteknum
svæðum og skipuleggja mjólkur-
framleiðslu með nýjum hætti. Vík-
verji hefur aldrei skilið hvernig á að
standa að þessum breytingum.
Halda menn, sem era þessarar skoð-
unar, að skattborgararnir séu tilbún-
ir til að kaupa upp eignir fólks sem
gert er að flytja burt? Kannski er
hugmyndin að þvinga fólk til að yfir-
gefa eignir sínar og flytja á ný svæði.
Hver á að taka að sér að flytja fólkið í
burtu, fólk sem hugsanlega vill ekki
fara? Nei, hér verður hver að fá að
ráða sínum næturstað. Byggðin
verður að fá að þróast og fólk verður
sjálft að taka sínar ákvarðanir um
hvort það flytur frá einum stað til
annars. Stjórnvöld geta að sjálf-
sögðu haft áhrif á byggðaþróun með
ákvörðunum sínum, en Víkverji von-
ar að ekki komi til þess að sett verði
lög sem banna fólki að búa á Vest-
fjörðum eða lög um að allir sem búa í
Dalasýslu skuli flytja til Akureyrar.
Það er raunar umhugsunarefni í
allri þessari umræðu um byggðamál
og að styrkja beri byggðakjarna á
landsbyggðinni að fólki fjölgar ekk-
ert á Akureyri. Samkvæmt síðustu
tölum Hagstofunnar fækkaði íbúum
Akureyrar.