Morgunblaðið - 20.04.2000, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ
76 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000
" FÓLK í FRÉTTUM
I
Fimm íslenskar kvikmyndir sýndar á markaðnum
Kvikmynd með Björk í
aðalkeppni í Cannes
Morgunblaðið, Berlín.
ÞAÐ fór eins og flestir höfðu
spáð að kvikmynd danska
leikstjórans Lars von
Trier, Dancer in the Dark, verður í
aðalkeppninni í Cannes. í aðalhlut-
verkum eru Catherine Deneuve og
Björk, sem flytur og semur auk
þess tónlistina.
Myndin er styrkt af Kvikmynda-
sjóði Islands og á meðal framleið-
enda er íslenska kvikmyndasam-
steypan. Fimm íslenskar kvik-
myndir verða sýndar á markaðn-
um í Cannes, Englar alheimsins,
101 Reykjavík, Fíaskó, Myrkra-
höfðinginn og Ungfrúin góða og
húsið.
Opnunarmynd hátíðarinnar
verður Vatel úr smiðju breska leik-
stjórans Rolands Joffe og loka-
myndin _ Stardom eftir Denys
Arcand. I keppnisflokki eru nokk-
ur gamalkunnug andlit á borð við
Joel Coen, sem vann gullpálmann
árið 1991 fyrir Barton Fink, breska
ieikstjórann Ken Loach og sænsku
leikkonuna og leikstjórann Liv
Ullman. Þau etja kappi við yngsta
leikstjóra sem hleypt hefur verið í
aðalkeppnina í sögu kvikmyndahá-
tíðarinnar, hinn tvítuga íranska
leikstjóra Samiru Makhmalbaf.
Kvikmynd hennar, Svarta
myndin, fjallar um íranskan kenn-
Catherine Deneuve, Björk Guðmundsdóttir og Lars von Trier við æf-
ingar fyrir tökur á myndinni Daneer in the Dark.
ara sem reynir að kenna krökkum
á afskekktum stöðum að lesa.
Framlag Coens að þessu sinni er
gamanmyndin 0 Brother, Where
Art Thou með George Clooney,
Holly Hunter, John Turturro og
John Goodman í aðalhlutverkum.
Sögulegum myndum er gert hátt
undir höfði. Þar á meðal eru Vatel,
með Gerard Depardieu og Umu
Thurman í aðalhlutverkum, sem
byggist á sannri sögu um fyrsta
kokkinn sem varð frægur í Frakk-
Kvikmyndahátíðin í CANNES
Leikstjórar
Kvikmyndir i aðalkeppni
RoyANDERSSON
AOYAMA Shinji
Joe! C0EN
Amos GITAI
James GRAY
SÁNGER FRÁN ANDRA VÁNINGEN
EUREKA
0 BR0THER, WHERE ART TH0U?
KIPPUR
THE YARDS
RuyGUERRA EST0RV0
IM Kwon Taek CHUNHYANG
James IV0RY THE GOLDEN B0WL
JIANG Wen GUIZI LAI LE
Amos K0LLEK FAST F00D FAST W(
Neil LABUTE NURSE BETTY
KenL0ACH SmL BREAD& R0SES
Pavel L0UNGUINE
Samira MAKHMALBAF
Nagisa OSHIMA
Liv ULLMANN
Lars V0N TRIER
W0NG Kar-wai
Edward YANG
LA N0CE
TAKHTÉ SIAH
G0HATT0
TR0LÖSA
DANCER IN THE DARK
UNTITLED / SANS TITRE
Yl Yl
landi, The Golden Bowl frá James
Ivory, og tvær af fjórum frönskum
myndum í keppninni Esther Kahn,
frá Arnaud Desplechin, og Senti-
mental Destinies, frá Olivier Ass-
ayas.
Það verður að teljast til tíðinda
þegar sænski leikstjórinn Roy
Andersson málar aftur á hvíta
tjaldið eftir aldarfjórðungshlé
myndina Söngvar af annarri hæð.
ísraelski leikstjórinn Amos Gitai,
sem var með fyrsta framlag Israels
til aðalkeppninnar í aldarfjórðung í
fyrra, Kadosh, gerir sig aftur
heimakominn með Kippur. Micha-
el Haneke, austurríski leikstjórinn
sem olli mikilli hneykslan í Cannes
fyrir þremur árum með myndinni
ofbeldisfullu Funny Games, er að
þessu sinni með franska mynd ut-
an keppni á hátíðinni, Unknown
Code, með Juliette Binoche.
Hátíðin stendur yfir frá 10. til
21. maí, en þá verður verðlaunaaf-
hendingin. Franski leikstjórinn
Luc Besson er forseti dómnefndar-
innar sem samanstendur af
frönsku leikkonunni Nicole Garcia,
indverska rithöfundinum Arundh-
ati Roy, spænsku leikkonunni Ait-
ana Sanchez-Gijon, ensku leikkon-
unni Kristin Scott-Thomas, þýsku
leikkonunni Barböru Sukowu,
bandaríska leikstjóranum Jon-
athan Demme, ítalska leikstjóran-
um Mario Martone, franska rithöf-
undinum Patrick Modiano og
breska leikaranum Jeremy Irons.
Sporlaust sýnd í Sjónvarpinu annan í páskum
Jddsson ieiKsyoii. „oc. * •> „
n af því að kynna ný andlit til sogunnar.
Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikur eitt aðalhlut-
verkanna í Sporlaust.
MYNDIN var gerð að frum-
kvæði Sveinbjörns I.
Baldvinssonar, sem er höf-
undur handritsins. Hann fékk styrk
frá Norræna kvikmyndasjóðnum til
þess að skrifa handrit að kvikmynd
sem bar að höfða sérstaklega til
yngri áhorfenda. Hann fékk mig í lið
með sér og útkoman varð Spor-
laust,“ segir Hilmar Oddsson, leik-
stjóri myndarinnar. Myndin fjallar
um vinahóp í Reykjavík nútímans
sem kemst í hann krappan þegar
þau sitja uppi með ókunnugt lík eftir
gleðskap í foreldrahúsum eins
þeiina. Þar með hefst örvæntingar-
full tilraun þeirra til þess að losa sig
við líkið, sanna sakleysi sitt og fínna
rnorðingjann.
Hvað vakti áhuga þinn á þessu
verkefni?
„Eg hafði þangað til aðeins feng-
ist við stærri verkefni sem höfðu
hlotið langa meðgöngu innra með
mér. Því þótti mér spennandi að tak-
ast á við hugmynd og handrit sem
var nánast var fullskapað.“
Vildi forðast samanburð
við Tár úr steini
Myndin er mjög ólík öðru sem þú
hefur gert.
„Já, mér fannst gott að geta fylgt
'jl’ári úr steini eftir með gjörólíkri
mynd þannig að fólk gæti ekki borið
verkin saman, sem reyndar kom
ekki á daginn því menn féllu samt of
djúpt í þá gryfju. Þessar myndir eru
samt ekki sambærilegar. Sporlaust
var unnin á mun skemmri tíma. Hún
var þar að auki mun ódýrari og í
raun eins ólík og hugsast getur.
Þetta er lítil og heiðarleg mynd úr-
Heiðarleg
mynd úr
Reykjavík
samtimans
Reykjavík samtímans."
Hvernig fannst þér að gera svona
nútíma krimma?
„Það var mjög gaman. Samstarfs-
fólkið var bæði áhugasamt og
skemmtilegt og tökustaðir voru
óvenjulegir að því leytinu til að við
notuðumst við hið raunverulega um-
hverfí en ekki einhverjar sviðs-
myndir. Það gefur myndinni
skemmtilegan hráleika og raunveru-
legri blæ. Þetta er spennumynd í
víðri merkingu því spennan og hrað-
inn einskorðaðist ekki við sjálf efnis-
tökin heldur réði einnig ríkjum við
gerð hennar. Tökutíminn var stutt-
ur og ákvarðanir allar mjög skjótar
og tilfinningabundnar. Vonandi skil-
aði sá andi sér í sjálfa myndina."
Myndin skartar leikaraliði sem þá
var bæði ungt og nær óreynt; hvers
vegna?
„Já og sumir voru meira að segja
óútskrifaðir. Vanalega reyni ég að
vinna með fagfólki en í þessu tilfelli
kölluðu hlutverkin á unga leikara og
því varð ég að velja þennan máta.
Þar að auki hef ég sem leikstjóri
gaman af því að kynna ný andlit til
sögunnar en þó einungis ef viðkom-
andi standa undir því.“
Heldurðu að Sporlaust komi vel
útí sjónvarpi?
„Ég verð að viðurkenna það að ég
hef ekki enn séð hana í sjónvarpi en
já, ég hef frekar trú á því. Þegar
maður horfír á sjónvarp þá skiptir
mjög miklu máli í hvaða stellingar
maður setur sig. Þótt hið sanna
heimili kvikmyndarinnar verði
ávallt bíósalurinn þá komast sumir
þættir hennar stundum betur til
skila í sjónvarpi. Einhverjum þótti
söguþráðurinn í Tári úr steini t.d.
skýrast þegar þeir sáu hana í sjón-
varpinu.“
Ætlarðu að horfa á myndina ann-
an í páskum ?
„Eg var reyndar búinn að gera
aðrar ráðstafanir en verða að viður-
kenna að ég er nokkuð spenntur fyr-
ir því að sjá hvernig hún kemur út.“
Hvað ertu með í farvatninu þessa
dagana?
„Maður er náttúrlega alltaf að
undirbúa næstu mynd og núna er ég
með þrjár myndir í maganum. En
þetta er eins og að leggja út net,
maður veit aldrei hvar fiskast. Ég
hef líka verið að þreifa fyrir mér í
leikhúsinu sem er afar lærdómsrík
reynsla. Nærtækasta verkefnið er
þó heimildarmynd sem er einhver sú
viðamesta sem gerð hefur verið hér-
lendis. Þetta er myndaflokkur sem
saminn er og framleiddur af Páli
Benediktssyni og kallast Aldahvörf,
en þar fjallar Páll um okkar helsta
atvinnuveg, sjávarútveginn, stöðu
hans á mótum alda og framtíð. Það
hefur verið lögð gríðarmikil vinna í
þessa mynd og upptökur farið fram í
um 20 löndum. Afraksturinn eru
átta þættir sem sýndir verða í
Sjónvarpinu í október og nóvember
á þessu ári.“
Hljómsveit með sérþarfir
„VIÐ viljum hvetja áhorfendur
til að henda hlutum í okkur,“
segir Conrad Keely einn með-
lima hljómsveitarinnar „You
Will Know Us By The Trail Of
Dead“ sem er á leiðinni hingað
til lands og spilar í Þjóðleikhús-
kjallaranum annan í páskum.
„I heimabænum okkar Austin í
Texas er það að spýta bjór upp
á svið leið fyrir áhorfendur til
að sýna að þeir séu sáttir við
hljómsveitina. Við reynum allt-
af að kynna þennan sið á þeim
stöðum fyrir utan Texas sem
við spilum á. Svo ef þeir eru
virkilega ánægðir þá fara þeir
að kasta hlutum upp á svið.“
Það er greinilegt að Conrad
gerir sér enga grein íýrir því
hvað bjórinn er dýr hér á ís-
landi. En hafa hljómsveitar-
meðlimir aldrei fengið hluti of
harkalega í sig?
„Við höfum aldrei fengið neina
hluti í okkur, áhorfendumir kasta
bara hlutum upp á svið.“
Þegar hljómsveitin er að spila á
tónleikum skipta meðlimir sveitar-
innar nokkrum sinnum um hljóðfæri.
„Þrír okkar eru trommuleikarar og
við kunnum líka að spila á gítar og
syngja. Lögin eru þess eðlis að við
verðum sífellt að skipta um hljóðfæri.
Við erum allir lagasmiðir og sá sem
semur eitthvert ákveðið lag vill alltaf
fá að syngja það. Því það getur eng-
inn túlkað lagið betur en lagahöfund-
urinn.“
Nýjasta plata þeirra félaga er skírð
í höfuðið á poppgyðjunni Madonnu.
„Hún er vinkona okkar og við veðjuð-
um við hana að Spice Girls stúlkunum
myndi ganga betur sem einstakling-
um en hljómsveit. Sá sem tapaði
þyrfti svo að skíra næstu plötu sína í
höfúðið á sigurvegaranum. Við töpuð-
um,“ segir Conrad Keely að lokum.
Morgunblaðið/Golli
Jóna Heiðar var kát í Perlunni á afmælisdaginn. Henni á hægri hönd
sátu Guðrún dóttir hennar og Jónina Hermannsdóttir stórvinkona.
Jóna Heiðar frá Stóru-Vatnsleysu 99 ára
ÞAÐ VAR glatt á
hjalla í Perlunni í
fyrradag þar sem
Jóna Heiðar frá
Stóru-Vatnsleysu
fagnaði í faðmi
vina og ættingja
99 ára afmæli
sínu. Jóna býr nú á clliheimilinu
Grund en hún fluttist aftur heim
fyrir 12 árum eftir að hafa búið í
Ameríku í heil 30 ár þar sem
bæði börn hennar, Guðrún og
Helgi Heiðar læknir og fiðluleik-
ari, eru búsett. Á
sinum yngri árum
gat Jóna sér gott
orð fyrir mynda-
saum. Hún lifir
eiginmann sinn
Salómon Heiðar
sem féil frá árið
1967. Það var sérlega létt yfir af-
mælisbarninu á deginum góða en
dóttirin Guðrún Heiðar kom
séstaklega til landsins frá Banda-
ríkjunum til þess að samgleðjast
móður sinni.
Fagnaði
afmælinu í
Perlunni