Morgunblaðið - 20.04.2000, Side 84
Ptarjgmiliffifeifr
Traust,
ELGO)| íslenska
I
CM^
ZJ
muruarui
Siðan 1972
Leitið tilboða!
steinpi
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNl 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
Tölvunefnd svarar Ljósmyndasafni Reykjavíkur um mannamyndir á Netinu
Einkamál sem
fara eiga leynt
TOLVUNEFND telur að sú hug-
mynd Ljósmyndasafns Reykjavíkur
að gera mannamyndir aðgengilegar
á Netinu teljist til upplýsinga um
einkamálefni sem sanngjamt sé að
. ■•leynt fari. Leggur hún til að Ljós-
myndasafnið geri mannamyndir
ekki aðgengilegar á Netinu. For-
stöðumaður safnsins og deildar-
stjóri myndadeildar Þjóðminja-
safnsins hyggjast leita álits
Lagastofnunar Háskóla Islands á
málinu.
Forsaga málsins er sú að Ljós-
myndasafn Reykjavíkur óskaði eftir
áliti Tölvunefndar á aðgangi al-
mennings að myndrænum gögnum.
„Ætlunin er að gera textalegar
skrár aðgengilegar í leitargrunni á
heimasíðu safnsins, sem og að bjóða
upp á leit að ljósmyndum í gagna-
gmnni. Þessir gmnnar em tvenns-
konar, annars vegar mannamyndir
og hins vegar mannlífsmyndir," seg-
ir m.a. í bréfi Sigurjóns Baldurs
Hafsteinssonar, fyrrverandi for-
stöðumanns safnsins.
Mat Tölvunefndar er að manna-
myndir, svo sem passamyndir,
fermingarmyndir, brúðkaupsmynd-
ir og þess háttar, teljist til upplýs-
inga um einkamálefni sem sann-
gjarnt sé og eðlilegt að leynt fari og
vísar í lög um skráningu og meðferð
persónuupplýsinga. Leggur Tölvu-
nefnd til með hliðsjón af því og
grundvallarreglu stjórnarskrárinn-
ar um friðhelgi einkalífs að manna-
myndir verði ekki gerðar aðgengi-
legar með þessum hætti nema að
aflað hafi verið samþykkis viðkom-
andi manna séu þeir á lífi.
María Karen Sigurðardóttir, sem
nýlega tók við forstöðu Ljósmynda-
safnsins, tjáði Morgunblaðinu að í
samráði við Ingu Láru Baldvins-
dóttur, deildarstjóra myndadeildar
Þjóðminjasafnsins, hefði verið
ákveðið að leita sameiginlega eftir
áliti Lagastofnunar Háskóla ís-
lands.
Þjóðminjasafnið á gífurlegt magn
mannamynda og þar hefur verið
uppi hugmynd um að skrá þær í
gagnagrunninn Sarp. Þær María
Karen og Inga Lára segja að fá
þurfi skýrt fram hvernig fara eigi
með höfundarrétt ljósmyndara í
þessum tilvikum. Svo virðist sem
höfundarréttarlög gætu stangast á
við lögin um skráningu og meðferð
persónuupplýsinga.
Hafnar-
húsið
opnað
FYRSTI áfangi húsakynna Lista-
safns Reykjavíkur í Hafnarhúsinu
við Tryggvagötu var tekinn í notk-
un í gær við hátíðlega athöfn og
fyrstu tvær sýningamar í húsinu
opnaðar. Áætlaður kostnaður við
hönnun, hús og búnað er 665 millj-
ónir miðað við verðlag í nóvember
1999. Arkitektar breytinganna eru
Margrét Harðardóttir og Steve
Christer, Studio Granda, og aðal-
verktakar eru ístak.
■ Pakkhús breytist/36
17 manns
ákærðir
fyrir fíkni-
efnalaga-
brot
■■ftÍKISSAKSÓKNARI hefur gefið
út ákæru á hendur sautján sak-
borningum í hinu svokallaða stóra
fíkniefnamáli eftir sex vikna ákæru-
meðferð. Allar ákærurnar varða
fíkniefnalagabrot en þær hafa ekki
verið birtar sakborningunum. Lög-
reglan í Reykjavík kærði 20 manns
til ríkissaksóknara og að auki sættu
9 manns kæru eftir rannsókn efna-
hagsbrotadeildar ríkislögreglu-
stjórans á stórfelldum eignatil-
færslum.
Ríkissaksóknari fékk málið til
meðferðar í byrjun marsmánaðar
að lokinni 10 mánaða rannsókn lög-
reglunnar í Reykjavík. Rannsókn
málsins hófst hjá lögreglunni í maí
^^^999 og leiddi til þess að tollgæslan
og lögreglan lögðu hald á sex þús-
und e-töflur, 24 kg af hassi, 4 kg af
amfetamíni og eitt kg af kókaíni
sem átti að smygla til landsins með
tyrknesku leiguskipi Samskipa.
Talið er að smyglleiðin sem notuð
var hafi verið opin i eitt ár áður en
lögreglan og tollgæslan lokuðu
henni. Á þeim tíma er líklegt að á
annað hundrað kg af ýmiss konar
fíkniefnum hafi verið smyglað inn í
landið.
Morgunblaðið/Kristinn
Hjörleifur Sveinbjörnsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Eiríkur Þorláksson, Olafur Ragnar Grímsson, Rut Ingólfsdóttir og Björn Bjarnason viröa fyrir
sér verk Katrínar Sigurðardóttur, The Green Grass of Ilome, á sýningunni Myndir á sýningu í Hafnarhúsinu.
Formaður samninganefndar flugvirkja segir höfnun ekki koma á óvart
MORGUNBLAÐIÐ kemur
næst út miðvikudaginn 26.
apríl.
Yfír páskana verður frétta-
þjónusta á fréttavef Morgun-
blaðsins, www.mbl.is.
Sumum fínnst ekki nóg
greitt fyrir hagræðingu
Frelsið er yndislegt
- fyrir atvinnulífið
Láttu ekki ferðakostnaðinn
sliga fyrirtækið þitt.
Bókunarsfmi 569 1010 www.samvinn.is
Samvinnuferðir
Landsýn
A vmrOJ fyrlr þlgl
FLUGVIRKJAR hjá Flugleiðum
felldu kjarasamning sem skrifað var
undir hjá ríkissáttasemjara að
kvöldi miðvikudags 12. apríl. Kemur
verkfall þeirra því til framkvæmda
kl. 11 að morgni 3. maí, hafi ekki
samist þá. Samningafundir hófust
strax í gær og annar fundur milli
deiluaðila hefur verið boðaður næst-
komandi þriðjudag og á miðvikudag
er ráðgert að fundur verði hjá ríkis-
sáttasemjara.
Alls höfðu 156 flugvirkjar hjá
Flugleiðum kosningarétt við at-
kvæðagreiðslu um samninginn og
kusu 132. Af þeim sögðu 79 nei en 53
já. Engir seðlar voru auðir eða
ógildir.
Emil Þór Eyjólfsson, formaður
samninganefndar Flugvirkjafélags
íslands, sagði niðurstöðu atkvæða-
greiðslunnar ekki endilega hafa
komið sér á óvart en hún væri hon-
um vonbrigði. „Ýmsum atriðum í
kjarasamningi okkar var breytt og
við samþykktum að taka á okkur
ákveðna hagræðinu sem var erfitt
fyrir suma að kyngja og finnst þeir
ekki fá nóg greitt fyrir,“ sagði Emil.
Hann sagði launalið samninganna
hafa verið í samræmi við aðra samn-
inga stéttarfélaga að undanförnu og
væri hér fyrst og fremst verið að
tala um ýmis sératriði varðandi
vinnutilhögun og hagræðingu.
Einar Sigurðsson, aðstoðarfor-
stjóri Flugleiða, sagði það vera von-
brigði að flugvirkjar hefðu ekki
samþykkt kjarasamninginn. Að-
spurður um það hvort hann sæi ein-
hvern samningsflöt í málinu nú
sagði hann enga leið að segja nokk-
uð um það.
„Við munum hitta fulltrúa flug-
virkja eftir helgina og þá verður far-
ið yfir málin sameiginlega,“ sagði
Einar. „Við töldum okkur hafa teygt
okkur langt í þeim samningi sem var
lagður fyrir, en við sjáum til hvað
gerist eftir helgina."
Samningur flugvirkja hjá Flugfé-
lagi íslands verður kynntur félags-
mönnum á Akureyri og í Reykjavík
á fundum næstkomandi þriðjudag.
Verða greidd atkvæði um samning-
ana að loknum þeim fundum. Verk-
falli þess hóps var frestað til 8. maí.