Morgunblaðið - 07.05.2000, Page 18
18 SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNFUNDUR SAMFYLKINGARINNAR
Miklar umræður um stjórnmálaályktun og ESB-tillÖRu frjálslyndra og ungra jafnaðarmanna
Morgunblaðið/Porkell
Fjöldi þingfulltrúa fylgdist með umræðum í gær um stjórnrnálaályktun og tók þátt í kosningu ritara, fulltrúa í framkvæmdastjórn og flokksstjórn á
stofnfundi Samfylkingarinnar en fundinum lauk síðdegis í gær.
Leggja til mildara orða-
lag um aðild að ESB
UMRÆÐUR hófust um stjórn-
málaályktun Samfylkingarinnar á
stofnfndinum í gærmorgun. 8
breytingartillögur komu fram við
tillöguna, m.a. frá Félagi frjáls-
lyndra jafnaðarmanna og Ungum
jafnaðarmönnum sem leggja nú til
mildara orðalag um aðild að
Evrópusambandinu en gert var í
þeim tillögum félögin lögðu upp-
haflega fyrir fundinn.
Hófust miklar umræður um
stjórnmálaályktunina og Evrópu-
mál skömmu fyrir hádegi á fundin-
um í gær og var þeim ekki lokið
þegar Morgunblaðið fór í prentun.
Nauðsynlegt að hefja
þann feril að sækja um
aðild að ESB
Auk upphaflegrar tillögu FFJ
um að Samfylkingin taki af tví-
mæli um að sótt verði um aðild að
ESB lá fyrir tillaga frá Ungum
jafnaðarmönnum sem gengur í
sömu átt og yfirlýsing frá Gísla
Gunnarssyni og Kristni Karlssyni
um að þeir styddu þessar tillögur.
Mikill ágreiningur er um hversu
langt fundurinn á að ganga í
Evrópumálinu en við upphaf um-
ræðunnar í gær kom hins vegar
fram í máli Eiríks B. Einarssonar,
formanns FFJ, að félagið hefði
ákveðið að milda orðalag tillögunn-
ar.
„Við höfum orðið vör við að
sumum finnst þetta bera heldur
brátt að,“ sagði Eiríkur. Hann
benti á að þrotlaus umræða hefði
farið fram um Evrópumálin und-
anfarin 11 ár og ekkert nýtt kæmi
fram í skýrslu utanríkisráðherra.
„Ég geri mér fyllilega grein fyrir
því að þetta er mjög viðkvæmt mál
í þessum hópi og því leggjum við
til að í stað þess að sagt verði
hreint út að sækja skuli um aðild,
þá höfum við í Félagi frjálslyndra
jafnaðarmanna og ungir jafnaðar-
menn komist að því samkomulagi
að vera heldur hógværari," sagði
Eiríkur. Leggja FFJ og Ungir
jafnaðarmenn nú til að í stað setn-
ingar um að stjórnvöldum beri að
sækja um fulla aðild að ESB komi
eftirfarandi setning: „í ljósi þess
er Islendingum nauðsynlegt að
hefja þann feril að sækja um aðild
að Evrópusambandinu. Niður-
stöður samninga verði lagðar fyrir
þjóðina í atkvgæðagreiðslu."
„Þegar við tölum um að hefja
þann feril að sækja um aðild að
Evrópusambandinu, þá eigum við
það, eins og formaðurinn [Össur
Skarphéðinsson] sagði, að fara að
skilgreina samningsmarkmiðin, en
við bætum því við að við viljum að
endapunkturinn verði aðild Islands
að Evrópusambandinu, ef um
semst og ef þessi undirbúnings-
ferill leiðir til þeirrar niðurstöðu.
við verðum að þora að taka afstöðu
til stórmálanna," sagði Eiríkur.
Andstæðingar komnir
í mikla vörn
Ari Skúlason, framkvæmdastjóri
ASÍ, lýsti yfir ánægju með kafla
stjórnmálaályktunarinnar um Evr-
ópumál og jafnframt andstöðu
sinni við að strax yrði sótt um að-
ild. „Við sjáum strax að andstæð-
ingar okkar eru komnir í mjög
mikla vörn. Leiðari Morgunblaðs-
ins í morgun fjallar um að Sam-
fylkingin sé með eitt sérmál sem
sé öðruvísi en hjá öðrum stjórn-
málaflokkum. Og þeir segja i
Morgunblaðinu, og Styrmir hefur
greinilega verið spurður þar,
Evrópumálin eru átakapunktur.
Ég held að þetta bendi til þess að
okkur er mjög mikill vandi á hönd-
um að fara vel með þennan mála-
flokk, vegna þess að þetta er og
verður okkar málaflokkur," sagði
Ari.
„Við eigum að láta koma fram
hér frá þessum fundi jákvæðan tón
í þessu sambandi en jafnframt að
geta um nauðsyn mikillar kynning-
ar og umræðu. Ég hef í mörg ár
skilið orð Margareth Thatcher vel
þegar hún hélt því fram að
Evrópusambandsaðild væri tilraun
til þess að smygla sósíalismanum
um bakdyrnar í Bretlandi. Glenda
Jackson var spurð um þetta í mál-
stofu í gær og hún lýsti sig al-
gerlega sammála þessu og sagði að
ESB-aðild skipti miklu máli fyrir
vinnandi fólk og almenning í Bret-
landi. Ég veit það líka vel að aðild
okkar að Evrópska efnahagssvæð-
inu hefur skipt mjög miklu máli
fyrir vinnandi fólk, almenning og
neytendur hér á landi. Við sjáum
það líka, sérstaklega í dag, að
Morgunblaðið er sammála þessu
sjónarmiði Thatcher. Sjálfstæðis-
flokkurinn er líka sammála þessu
sjónarmiði Thatcher,“ sagði Ari.
Stærsti hluti aldraðra
er stóreignafólk
Stefán Jón Hafstein fjallaði m.a.
í ræðu sinni um endurnýjun jafn-
aðarstefnunnar og sagði m.a. að
Samfylkingin þyrfti að stilla sér
upp við hlið fólksins gegn kerfinu
og gegn því að einstakir litlir hóp-
ar væru útilokaðir frá megin-
straumi samfélagsins. „Við vitum
að það er smáhópur sem á undir
högg að sækja. Við eigum að
standast þá pólitísku freistingu að
tala um þetta sem risavaxið vanda-
mál og tengja saman aldraða og
öryrkja í einhverjum klisum um að
þetta fólk búi við óendalega mikla
fátækt. Svo er ekki. Stærsti hluti
aldraðra í okkar samfélagi er stór-
eignafólk," sagði Stefán Jón.
Hann sagði að leggja ætti
áherslu á jöfn tækifæri fyrir alla
og að engin réttindi væru án
ábyrgðar. „Við eigum að gera þá
kröfu í velferðarþjóðfélaginu að
fólk taki sig á. Við eigum að skapa
því farveg til að njóta menntunar,
heilsugæslu o.s.frv. en innbyggður
í þetta kerfi á að vera möguleikinn
til að taka sig á og standa á eigin
fótum. Annað skapar ölmusukerfi.
Við erum á móti því. Sjálfsbjarg-
arviðleitni er mikilvæg og við eig-
um ekki að tala sífellt um jöfnuð á
kostnað hennar," sagði Stefán Jón
m.a.
Drögin að stjórnmálaályktun og
breytingartillögur sem fram komu
var vísað til umfjöllunar í stjórn-
málanefnd þar sem leita átti sam-
komulags um endanlegan texta
eftir hádegi í gær. Var síðan gert
ráð fyrir að umræður héldu áfram
og að stjórnmálaályktun stofn-
fundarins yrði afgreidd í lok þings-
ins síðdegis. Á fimmta hundrað
fulltrúa tók þátt í kosningum á
stofnfundinum í gær en skv. upp-
lýsingum aðstanenda fundarins
hafa nálægt 600 þingfulltrúar
skráð sig á fundinn.
Sighvatur Björgvinsson og Margrét Frímannsdóttir bera fram stefnulýsingu Samfylkingar
Viljum beita almanna-
valdinu með hófsemd
TILLAGA um stefnulýsingu var
lögð fram á stofnfundi Samfylking-
arinnar í gær og átti að samþykkja
hana síðdegis. Þar segir að flokkur-
inn aðhyllist markmið og leiðir jafn-
aðarstefnunnar og byggist stefna
hans og störf á frelsi og lýðræði,
kvenfrelsi, jafnrétti og samábyrgð. I
samræmi við þá stefnu hyggist
flokkurinn eiga náið samstarf við
verkalýðshreyfinguna og fijáls fé-
lagasamtök og vinna með öðrum
jafnaðarmannaflokkum á alþjóða-
vettvangi. Sérstaklega er til þess
tekið að almannavaldinu skuli beita
með hófsemd.
Margrét Frímannsdóttir, varafor-
maður Samfylkingarinnar, og Sig-
hvatur Björgvinsson þingmaður
báru stefnulýsinguna fram og mælti
Ágúst Einarsson, formaður fram-
kvæmdastjómar flokksins, fyrir
henni. Þegar komu fram breytingar-
tillögur, en gert er ráð fyrir að af-
greiða stefnulýsinguna og fjalla um
breytingar fram að fyrsta landsfundi
hins nýja flokks.
Frelsi
einstaklingsins
í stefnulýsingunni segir að það sé
grundvallarsjónarmið Samfylking-
arinnar að sérhverjum einstaklingi
verði tryggð skilyrði til að rækta
hæfileika sína og nýta í þágu eigin
velferðar, samfélags síns og komandi
kynslóða.
„Við viljum frelsi einstaklingsins
sem frelsi allra einstaklinga, óháð
kyni, kynþætti, trúar- og stjórn-
málaskoðunum, félagslegum upp-
runa eða öðrum mun manna,“ segir
þar. „Við teljum að frelsi fylgi
ábyrgð gagnvart frelsi annarra,
ábyrgð sem ber að tryggja með mót-
un heilbrigðra félagstengsla. Við
viljum samfélag sem gerir sérhverj-
um einstaklingi kleift að njóta fjöl-
breyttra lífstækifæra og að læra um
leið að veita öðrum slíkt hið sama.“
Segir að jöfnuð skuli tryggja með
samhjálp og „allir þegnar samfélags-
ins [eigi] rétt á heilbrigðisþjónustu,
menntun og annarri samfélagslegri
þjónustu óháð efnahag11. Öllum þurfi
að tryggja mannsæmandi lífsviður-
væri óháð möguleikum til tekjuöfl-
unar: „Samhjálp á aldrei að vera
ölmusa og á ekki að gera þá sem
hana þiggja að annars flokks samfé-
lagsþegnum, heldur efla sérhvem
einstakling til að nýta hæfileika sína
sér og öðrum til hagsbóta."
I stefnulýsingunni segir að Sam-
íylkingin vilji „beita almannavaldinu
með hófsemd, með áherslu á að
tryggja mannréttindi og lífstækifæri
allra einstaklinga og gegn hvers kon-
ar misrétti“.
Þá er lögð áhersla á fyrirheit um
að „hver einstaklingur geti notið sín
á samleið með áherslu á efnahags-
legar framfarir", mannauður sé lyk-
ilatriði á öllum sviðum samfélagsins
og menntakerfi framtíðarinnar eigi
því að þjóna hlutverki nýs jöfnunar-
tækis.
Stefnulýsingunni er skipt niður í
nokkra kafla sem bera nöfn á borð
við „Opin sýn til umheimsins“, „Jafn-
rétti", „Frelsi“ og „Samábyrgð".
í niðurlagi, sem ber heitið „Grunn-
gildi á nýjum tímum“ segir að grund-
völlurinn sé baráttan fyrir frelsi,
jafnrétti og bræðralagi, en Samfylk-
ingin muni móta aðferðafræði sína
og afstöðu í einstökum atriðum í
samræmi við aðstæður, framfarir í
þekkingu, vísindum og tækni og
samkvæmt tiltækum úrræðum
hverju sinni og síðan er klykkt út
með: „Grunngildi okkar verða hins
vegar ávallt þau sömu.“
:
I
P
f
i