Morgunblaðið - 07.05.2000, Page 22

Morgunblaðið - 07.05.2000, Page 22
22 SUNNUDAGUR 7: MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Skráning: 0 533 4567 - www.stjornun.is íbúðatánasjóður verður lokaður mánudaginn 8. mai vegna flutninga. Vió opnum dyrnar á nýjum stað, Borgartúni 21r þriðjudaginn 9. maí. Verið velkomin. LISTIR s Ibúðalánasjóður Borgartúni 21, 105 Reykjavík Sími: 569 6900 - 800 6969 Fax: 569 6800 www.ibudalanasjodur.is Stálsleginn Stamp Arnaldur Indriðason KVIKMYIVPIR BÍðBORGINN „The Limey“ ★ ★ ★ 'h Leiksljóri: Steven Soderbergh. Handrit: Lem Dobbs. Aðalhlutverk: Terence Stamp, Peter Fonda, Les- Iey Ann Warren. Artisan 1999. SÍÐASTA helgi var helgi Steven Soderberghs í bíóhúsunum. Frum- sýndar voru tvær myndir eftir hann, metsölumyndin Erin Brochovich með Julia Roberts, og þessi, „The Limey“, með Terence Stamp; ef þú nennir ekki að horfa á Roberts er hún nákvæmlega rétta myndin fyrir þig. „The Limey“ er einstaklega safarík og frábærlega samansett frásögn af gömlum krimma sem setið hefur inni í Bretlandi meiri hluta ævinnar en heldur til Los Angeles vegna þess að dóttirin, sem hann alltaf vanrækti, dó þar fyrir skemmstu við dularfullar kringumstæður. I eðli sínu er myndin aðeins enn eitt ódýrt hefndardramað og kallar fram í hugann fjölda slíkra frá blóma- skeiði hefndardramans á áttunda áratugnum. Þannig flokkast hún undir b-myndir en Soderbergh og handritshöfundurinn Lem Dobbs taka klisjuna og vinna með hana á undursamlegan hátt þar til á ein- hvem hátt hefndin verður minna at- riði en sjálft lífshlaup hefnandans og hvemig hann hefur spilað úr því til góðs eða iils þangað til eftir stendur spumingin: Hvar liggur ábyrgð hans sjálfs í því hvernig fór? Kannski helsti kosturinn við myndina, fyrir utan góðan leik Ter- ence Stamps, sé sá að Soderbergh er óhræddur að leika sér með frásagn- arformið. Það er eins og hann hafi sett atburðarásina í spilastokk, hrært ærlega í honum og raðað svo atriðunum saman eins og þau komu upp úr stokknum. Hann fer fram og aftur í tíma og ekki aðeins innan þess tíma sem myndin gerist á heldur klippir hann sig langt aftur í lífshlaup mannsins. Svo langt reyndar að hann getur notað svart/hvíta filmubúta úr gamalli Ken Loach-mynd þar sem Stamp, ungur mjög, fór með aðal- hlutverkið, hét Wilson, eins og per- sóna hans í „The Limey“, átti dóttur og sat í fangelsi. Þetta gerir hann af kunnáttu- ogútsjónarsemi án þess að áhorfandinn missi nokkm sinni þráð- inn þar til heildarmyndin skellur á okkur í sínum dramatíska þunga. Aðferðin á mjög vel við í þessu til- felli vegna þess að myndin fjallar um tíma mannsævinnar og jafnvel sóun hennar án þess að höfundunum detti þó nokkumtíma í hug að predika. Það er lítið pláss fyrir þjáninguna. Ter- ence Stamp gefur ekki upp tilfmning- ar sínar nema í einstaka brosgrettu, hann ætlar ekki að fara að sjá eftir neinu kominn á gamals aldur. Örlög- in hafa sent hann í þessa för vestur um haf og hann hikar aldrei. Stamp er stálsleginn í hlutverkinu, meira að segja skallinn fer honum vel, og tygg- ur upp hverja senuna á fætur annarri eins og forsöguleg skepna sem á hvergi heima í nútímanum. Lesley Ann Warren er ágæt sem hjálparkokkur og Peter Fonda, sem aldrei hefur getað leikið neitt, skemmir engin atriði. Eftir stendur glæsileg, brotakennd og blúsuð frá- sögn af lífi sem kannski hefði mátt lifa betur en hverjum er ekki sama? Námstefna á Hótel Loftleiðum 12. maí kl. 9:00 - 11:00: STÖRF STJÓRNARMANNA - hlutverk, skyldur, ábyrgð Hvert er hlutverk stjórnarmanna? Er þeirra eina hlutverk að ráða og reka framkvæmdastjórann? Hvernig geta stjórnir haft áhrif til aukins árangurs? Má draga stjórnarmenn til ábyrgðar ef illa fer? Hver er siðferðileg skylda stjórnarmanna? Fyrirlesarar: • Frosti Bergsson.stjórnarformaður Opinna kerfa hf. • Páll Skúlason, lögmaður • Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Eimskipafélags íslands hf. • Dr. Bjarki Brynjarsson, framkvæmdastjóri nýsköpunarsviðs Nýherja Almennt verð kr. 12.900, SFl verð kr. 9.900. Innifalin í námstefnugjaldi er bók Páls Skúlasonar, Hugvekja, handbók fyrir stjórnarmenn og framkvæmdastjóra í félögum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.