Morgunblaðið - 07.05.2000, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2000 25
LISTIR
Ulrika Davidsson í hlutverki Fríðu í Grandavegi 7. Benedikt Erlingsson og Magnea Valdimarsdóttir í Sölku-ástarsögu.
Hilmar Jónsson leikstjóri ekki við eina fiölina felldur á leiksviðum
Tvær sýningar í Stokkhólmi
SÝNING Hilmar Jónssonar á
leikgerð Kjartans Ragnarssonar
og Sigríðar Margrétar Guðmunds-
dóttir á skáldsögunni Grandavegi
7 eftir Vigdísi Grímsdóttur hefur
vakið mikla athygli í Svíþjóð í vor.
Hilmar setti sýninguna upp með
fyrsta útskriftarárgangi nýs leik-
listarháskóla í Luleá í Norður-Sví-
þjóð og voru margir spenntir að
fylgjast með hvernig til hefði tek-
ist með skólun fyrsta árgangsins
að sögn Hilmars. Höfundur leik-
myndar og lýsingar er Sven-Erik
Liljegren, búninga gerði Mona
Knutsdotter og tónlist samdi
Christer Engberg.
„Það er ekkert annað hægt að
segja en að sýningin hafi slegið í
gegn. Við frumsýndum í byrjun
mars og þau sýndu fyrir fullu húsi
nær 30 sýningar fram að páskum.
Borgarleikhúsið í Stokkhólmi
bauð svo skólanum að koma með
sýninguna til höfuðborgarinnar og
þar sýna þau tvisvar nú um helg-
ina, 7. og 8. maí,“ segir Hilmar.
Þegar litið er á heimasíðu
Stadsteatern í Stokkhólmi kemur í
ljós að löngu er uppselt á báðar
sýningar og hafa færri komist að
en vildu.
„Þetta var mjög skemmtilegt
verkefni og gaman að hafa svona
gott íslenskt verk til að vinna með
erlendis. Verk Vigdísar Gríms-
dóttur eru mjög vel þekkt í Sví-
þjóð og áhugi er mikill fyrir
þeim.“
Aðspurður segir Hilmar að vel-
gengni þessarar sýningar hafi
þegar skilað sér í tilboðum um
önnur verkefni og hann sé að velta
þeim fyrir sér. „Þetta var óvænt
tækifæri sem nýttist vel og nú er
að skoða sinn gang og vinna úr af-
rakstrinum,“ segir hann.
Salka-ástarsaga í Stokkhólmi
Hilmar er þó ekki við eina fjöl-
ina felldur á leiksviðum Stokk-
hólms í næstu viku því Hafnar-
fjarðarleikhúsið Hermóður og
Háðvör mun sýna Sölku-ástarsögu
á Sænskum leiklistardögum sem
Riksteatern stendur fyrir árlega.
Þetta er orðin ein stærsta nor-
ræna leiklistarhátíðin þar sem
stefnt er saman því besta og for-
vitnilegasta úr leikhúsum Norður-
landanna ásamt úrvali af sænsk-
um leiksýningum sem vakið hafa
athygli í vetur. Á leiklistardögun-
um verða einnig námskeið og um-
ræður um leikhús og tengd efni
alla dagana, frá miðvikudegi til
sunnudags og m.a. mun Kjartan
Ragnarsson leikstjóri og leikskáld
taka þátt í umræðum um leikgerð-
ir fyrir leiksvið. Ásamt honum
mun sænski leikritahöfundurinn
Per-Olof Enquist taka þátt í um-
ræðunum. Sýningarnar á Sölku-
ástarsögu verða í Riksteatern
fimmtudaginn 11. og föstudaginn
12. maí.
Tákn um ljósið
og vonina
I nýrri kapellu bráða-
móttöku Landspítalans í
Fossvogi hefur verið
sett upp glerlistaverk
eftir Ingunni
Benediktsdóttur.
Á DÖGUNUM var vígð ný kapella,
bænahús, á bráðamóttöku Land-
spítalans í Fossvogi. Biskupinn yfir
íslandi, herra Karl Sigurbjömsson,
vígði kapelluna og flutti blessunar-
orð en við þetta tækifæri var af-
hjúpað glerlistaverk eftir Ingunni
Benediktsdóttur sem hún vann sér-
staklega í glugga kapellunnar.
„Ég var beðin um að vinna þetta
verk á haustdögum 1999 og sá strax
að mér væri mikill vandi á höndum,"
sagði Ingunn Benediktsdóttir gler-
listamaður í samtali við Morgun-
blaðið. „Á bráðamóttökunni er tekið
á móti slösuðum og sjúkum og þar
er linun sársauka bæði af líkamleg-
um og tilfinningalegum toga dag-
legt hlutskipti þeirra sem þar
starfa. Þessi vettvangur reynir því
mjög á sjúklinga, aðstandendur og
starfsfólk og vandi minn mótaðist af
þessu. I kapellu sjúkrahússins leitar
fólk sér hugkyrrðar og friðar, það
leitar að ljósi í myrkri og sorg og ég
var að leita leiðar til huggunar og
nýrrar vonar með þessu verki."
Hún kveðst hafa haft ákveðnar
ritningargreinar í huga við gerð
verksins. Ég er ljós heimsins. Hver
sem fylgir mér mun ekki ganga í
myrkrinu heldur hafa Ijós lífsins.
(Jóh. 8.12) og hin ritningargreinin
mun standa hjá verkinu. Ég trúi,
hjálpa þú vantrú minni. (Markús
9.24.)
Um verkið sjálft segir Ingunn að
litir þess séu hefðbundnir í samspili
birtu dags og nætur og í innra formi
verksins má finna hringinn sem
tákn eilífðar og um leið sólar og
Morgunblaðið/Golli
Biskup Islands, herra Karl
Sigurbjörnsson, vígir kapellu
Landspítalans í Fossvogi. Lista-
verk Ingunnar Benediktsdóttur
er að baki honum.
Ijóss. „Krossinn yfir verkinu er úr
tæru gleri svo segja má að horft sé í
gegnum tákn þjáningarinnar á ljós-
ið og vonina. Krossinn er líka tákn
upprisunnar."
Kársneskórinn með tónleika í Salnum, Kópavogi
Drengjakór Kársnesskóla ásamt stjómandanum Þórunni Björasdóttur.
Vorhátíð 280 ungra söngradda
KÁRSNESKÓRINN heldur
tvenna tónleika f Salnum, Tónlist-
arhási Kópavogs í dag, sunnudag.
Kl. 14 syngja börn úr Litla kór,
Miðkór og Stúlknakór Kársnes-
skóla en kl.17 syngur Drengjakór
Kársnesskóla og Skólakór Kárs-
ness.
Á tónleikunum koma fram um
280 börn á nldrinum 8-16 ára.
Skólakór Kársness flytur hluta af
dagskrá sem kórinn mun syngja í
Kanada í sumar og m.a. verða
fjögur ný tónverk sungin á þess-
um tónleikum. Stúlknakórinn tek-
ur þátt í norrænu barnakóramóti
sem haldið verður hér á landi um
næstu mánaðamót og er af því til-
efni með mörg norræn lög á efn-
isskránni.
Litli kór mun spreyta sig á fs-
lenskum söngperlum og Miðkór
er að feta sín fyrstu skref í rödd-
uðum söng, og flytur keðjusöngva
og fjölbreytta gleðisöngva. Á efn-
isskrá Drengjakórsins má heyra
hefðbundna karlakóratónlist.
Þetta mun vera í 24. sinn sem
Kársneskórinn efnir til vortón-
leika. Verð aðgöngumiða er kr.
1000, ókeypis fyrir börn yngri en
12 ára. Aðgöngumiði sem gildir á
hvora tveggju tónleikana kostar
1.500. Stjórnandi Kársneskórsins
er Þórunn Björnsdóttir og undir-
leikari Marteinn H. Friðriksson.
Sértilboð til
Costa del Sol
25. maí
frá kr. 29.955
I Flug alla
mánudaga og
fimmtudaga
Aðeins
ibúðlr
10
iboði
i sumar
Heimsferðir hafa nú tryggt sér
viðbótargistingu á hinu vinsæla
E1 Pinar hóteli á hreint frábæru
verði. Hér getur þú valið um stúdíóíbúðir eða íbúðir með 1 eða
2 svefnherbergjum. Allar með eldhúsi, baði, stofu, sjónvarpi og
síma, einfaldar og þægilegar íbúðir. Sameiginleg þjónusta er
rnikil á hótelinu. 3 veitingastaðir, stór og góður garður, 2 sund-
laugar, tennisvellir, íþróttaaðstaða og bamaleiksvæði. Og að
sjálfsögðu nýmr þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða
allan tímann.
Verð kr.
29.955
M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára,
25. maí, vikuferð, íbúð með 1
svefnherbergi.
Verð kr.
39.990
E1 Pinar
Hvenær er laust
M.v. 2 í studíó, 25. maí, vikuferð.
Verð kr.
49.990
M.v. 2 í studio, 25. maí, 2 vikur.
18. ma(
22. maí
25. maí
29. maí
1. júní
5. júní
8. júní
6 sæti
8 sæti
28 sæti
uppselt
11 sæti
18 sæti
14 sætí
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is