Morgunblaðið - 07.05.2000, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2000 39
hann sífellt að mennta sig meira til
þess að vera betur í stakk búinn til
þess að hjálpa öðrum. Hann lagði
sig allan fram í starfi, enda naut
hann þess að geta látið gott af sér
leiða. Og hann var alltaf fyrstur til
þess að bjóða fram hjálp ef eitt-
hvað bjátaði á hjá ættingjum hans
eða vinum.
Því skal engan undra að hann
hafi verið vinamargur og vel liðinn
af öllum sem honum kynntust.
Hann skilur eftir sig stórt skarð í
tilveru allra sinna ættingja og
vina, og enginn getur nokkurn tím-
ann komið í hans stað. Hann var
mjög barngóður og átti alltaf mikið
í okkur frændsystkinunum. Berg-
ný var auðvitað alltaf hans upp-
áhald og sá maður augljóslega á
þeirra samskiptum að sambandið á
milli þeirra var gott og var auðséð
hvað þeim þótti vænt hvoru um
annað.
Baddi var alltaf glaðlegur,
hreinskilinn og opinn, tók hann
ósjaldan utan um okkur krakkana
og sýndi okkur mikla væntum-
þykju sem svo sannarlega var
gagnkvæm. Þessar ásamt svo
mörgum öðrum góðum minningum
eigum við eftir um hann frænda
okkar sem við munum aldrei
gleyma, og er hans sárt saknað.
Elsku Iða Brá, Bergný, amma
og aðrir ástvinir, við vottum ykkur
okkar dýpstu samúð.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur i verki var gjðf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
Elsku Baddi, við viljum þakka
þér innilega fyrir allar þær góðu
stundir sem þú hefur gefið okkur í
gegnum tíðina, og fyrir allar góðu
minningarnar sem við munum
geyma í hjörtum okkar svo lengi
sem við lifum.
Sandra og Oddný Ósk.
Elsku Baldur minn. Það er ótrú-
legt að það skuli vera kominn tími
til að kveðja þig, en aðeins á blaði.
Því þó að við sjáumst ekki munt þú
alltaf vera til staðar og minningin
um þig mun lifa áfram í hjörtum
okkar allra sem þekktum þig. Það
er sjaldan á ævinni sem maður
hittir einhvern og finnst vænt um
þá strax. Þú varst einn af þeim og
þegar ég var í kringum þig og fjöl-
skylduna þína leið mér virkilega
vel. Ég hélt að vinskapur okkar
allra væri rétt að byrja. Enda vor-
um við að plana sumarfríin okkar
fyrir svo stuttu. Ég og Ásgeir vor-
um staðráðin í því að reyna að
hitta ykkur í Danmörku og jafnvel
reyna að draga ykkur í sólarlanda-
ferð með okkur. Draumar um það
að þú og Ásgeir færuð að kafa og á
meðan myndum við stelpurnar
kíkja á markaði og versla saman.
Þú sem varst nýbúinn að kaupa
þér köfunargræjur agalega stoltur.
En slysin gera ekki boð á undan
sér og því kveð ég þig nú með sorg
og trega. Ég hugsa um góðu
stundirnar sem við áttum saman
og reyni að finna huggun í þeim.
Eg var virkilega heppin að fá að
kynnast þér og góðmennsku þinni.
Ég heiti þér því að ég og Ásgeir
munum gera allt sem í okkar valdi
stendur til þess að styrkja Iðu og
Bergnýju í gegnum þessa erfiðu
tíma. Megir þú hvíla í friði.
Elsku Iða Brá og Bergný vin-
konur mínar, ég bið fyrir ykkur og
hugur minn er stöðugt hjá ykkur.
Þið munuð alltaf eiga mig að. Ég
bið einnig fyrir fjölskyldunni hans
Baldurs og vona að þið finnið styrk
hjá hvert öðru og Guði til að takast
á við þennan mikla missi og votta
ykkur öllum mína dýpstu samúð.
Guðfinna Hinriksdóttir.
Engin orð fá því lýst hve þung
fréttin var af fráfalli þinu, Baddi
minn. í blóma lífsins. Fallinn frá.
En ótímabært. Fallinn frá Iðu þini
Brá yndislegri eiginkonu og Berg-
nýju dóttur þinni sem alla tið hef-
ur verið allra manna hugljúfi og
augasteinninn þinn. Þú sem alltaf
varst svo duglegur, jákvæður og
fram úr hófi fyndinn og orðhepp-
inn. Örlæti þínu, trausti og góð-
mennsku voru engin takmörk sett.
Þú varst alla tíð forvitinn og fróð-
leiksfús og settir markið hátt. Með
endalausum dugnaði og elju voruð
þið hjónin búin að byggja upp heil-
mikinn rekstur. En þótt þú hafi
þurft að vinna mikið hafðir þú allt-
af tíma fyrir vini og ástvini hvort
sem þeir þurftu á hjálp þinni að
halda eða bara skemmtilegum fé-
lagsskap.
Þegar ég læt hugann reika
minnist ég svo margra góðra
stunda með ykkur hjónum. Hvort
sem við sóttum ykkur heim eða þið
komuð til okkar, hvort sem það var
yfir lönd og höf eða bara í næstu
götu þá var gleðin yfir nærveru
þinni alltaf jafnmikil. Baddi minn,
þú kunnir að njóta lífsins en það
gerðirðu ávallt þannig að þú leyfð-
ir öðrum að njóta þess með þér.
Þú lifðir lífinu vel, fórst vel með
tíma þinn, mér finnst að þú hafir
lifað lífinu eins og hver dagur væri
þinn síðasti því allt sem þú gerðir
var af hinu góða, þú sýndir öllum
áhuga, lést fólki finnast það skipta
þig máli og lést aldrei tækifæri úr
höndum renna ef þú gast látið því
líða vel og síðast en ekki síst þá
tókst þér alltaf að koma öllum til
að hlæja.
Elsku Baddi minn, þakka þér
fyrir vináttu þína og félagsskap.
Minningin um öðlingsdreng sem
féll alltof fljótt frá mun lifa í hjört-
um okkar á meðan okkur endist
ævin og jafnvel lengur því sagan af
góðum dreng ferðast víða og lifir
lengi.
Elsku Iða Brá og Bergný, um
leið og við vottum ykkur okkar
dýpstu samúð biðjum við góðan
guð að styrkja ykkur í þessari
miklu sorg.
Sigríður, Jóhannes og Iðunn.
Kveðja frá Landssambandi
slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamanna
Það er sárt að kveðja góðan vin
og starfsfélaga eins og Baldur var
en við vitum að hann mun áfram
verða meðal vor í anda. Baldur hóf
störf hjá Brunavörnum Suðurnesja
árið 1983 og fór snemma að hafa
afskipti af félagsmálum. Á fyrstu
árum Landssambands slökkviliðs-
manna var Baldur kosinn í stjórn
félagsins og starfaði hann í henni í
nokkur ár. Hugur Baldurs leitaði
mjög til sjúkraflutninga og árið
1993 var Baldur kosinn í stjórn
Landssambands sjúkraflutninga-
manna. Síðan hefur Baldur starfað
ötullega að baráttumálum sjúkra-
flutningamanna, verið í stjórn
Sjúkraflutningaskólans fyrir
sjúkraflutningamenn og verið einn
af kennurum skólans. Á þeim vett-
vangi hefur Baldur skapað sér afar
gott orð og verið virtur af félögun-
um. Á síðasta ári sameinuðust
Landssamband slökkviliðsmanna
og Landssamband sjúkraflutninga-
manna og var Baldur einn af
hvatamönnum þeirrar sameining-
ar. Við andlát Baldurs vann hann
að trúnaðarstörfum fyrir félagið,
meðal annars í stjórn Fagdeildar
sjúkraflutningamanna.
Baldur var mjög úrræðagóður
og rökfastur, það var gott að leita
til hans og hann var alltaf tilbúinn
til starfa þegar eftir var leitað.
Þegar erfið verkefni blöstu við
bauðst Baldur iðulega til að taka
þau að sér. Baldur sá um útgáfu á
blaði sjúkraflutningamanna, Spelk-
unni, og var mjög annt um að blað-
ið væri í senn fræðandi og mál-
svari sjúkraflutningamanna. Eru
honum þökkuð sérstaklega þau
störf. Baldur hætti störfum hjá
Brunavörnum Suðurnesja nú í vet-
ur en hann var þá í starfi vara-
slökkviliðsstjóra. Þrátt fyrir það
hafði hann boðist til að vinna
áfram fyrir landssambandið eins
og kostur var. Við sjúkraflutninga-
menn og slökkviliðsmenn færum
Baldri þakkir fyrir það mikla og
fórnfúsa starf sem hann hefur unn-
ið fýrir okkur.
Við sendum eiginkonu hans,
dóttur og öðrum aðstandendum
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Megi drottinn blessa ykkur og
varðveita.
Knútur Halldórsson.
Ég var á leiðinni heim úr sumar-
bústað og var glöð og hress eftir
góða og afslappaða helgi, þegar
hringt var í mig og mér tilkynnt að
það hefði orðið slys og að Baldur
væri dáinn. Hressleikinn og gleðin
hvarf eins og dögg fyrir sólu og yf-
ir mann þyrmdi skuggahliðin. Af
hverju í ósköpunum Baldur? Leið-
in heim til Keílavíkur var löng og
þögul. Minningarnar streymdu
fram og allt hringsnerist. Ég sem
var nýbúin að ræða við hann um
sumarið. Hann sem var svo
spenntur fyrir sumrinu, það átti að
gera svo margt. Hann var t.d.
búinn að ákveða að bjóða kúnnun-
um sínum í Lífsstíl upp á nýjan
óvissutíma sem hann áætlaði að
byrja með núna um helgina. Það
leikur enginn vafi á því að það
hefði verið líf og fjör í þeim tíma.
Ég kynnist Baldri fyrir tæpum
tveimur árum, í Lífsstíl. Hann var
einn af þeim kúnnum, sem manni
fannst frábært að fá í tíma hjá sér,
því hann var ávallt í stuði og til-
búinn til að taka vel á. Skömmu
síðar fór hann að kenna sjálfur
spinning og að sjálfsögðu var það
gert 100%. Það er enginn kennari
sem er eins og Baldur var. Baldur
var einstakur. Ennþá finnst manni
þetta vera hálf óraunverulegt.
Maður á mjög auðvelt með að telja
sér trú um það, að þú sért bara í
fríi og þú eigir eftir að birtast inn
um dyrnar í Lífsstíl, á leiðinni að
spinna svolítið. Baldur var svo
kraftmikill og ávallt allur af vilja
gerður til að gera allt fyrir mann.
Það var sama hvenær maður
hringdi í hann, alltaf var svarið já-
kvætt. Síðasta sumar fórum við í
hópferð niður Hvítá og tjölduðum
svo í Þrastarskógi, það var hreint
frábær ferð. Baldur, Iða og Berg-
ný voru að sjálfsögðu með í ferð-
inni. Þar var mikið spjallað, hlegið,
dansað, farið á trampólín og svo
punkturinn yfir i-ið var auðvitað
sumarbústaðarkakóið hans Bald-
urs. Baldur var mjög lánsamur að
eiga Iðu Brá og Bergnýju að. Oft
talaði maður um það hversu frá-
bær fjölskylda þau væru.
Elsku Iða Brá og Bergný, að
ganga í gegnum slíka þrautagöngu
tekur mikið á. En dugnaður ykkar
og sú jákvæðni og góðmennska
sem þið búið yfir, hjálpar ykkur að
komast aftur á rétta braut. Baldur
lifir áfram í minningu okkar allra,
því sá sem kynntist Baldri, gleym-
ir honum aldrei.
Fjölskyldum ykkar, Kidda og
öllum öðrum sem þekktu Baldur,
sendi ég samúðarkveðjur.
Elsku Baldur! Ég veit að við
sjáumst síðar, hvenær sem það
verður, en það er eitt sem víst er,
að það verða fagnaðarfundir. Hvíl
þú í friði.
Kristjana H. Gunnarsdóttir.
Það er stórt skarð höggvið í
okkar hóp hér í líkamsræktarstöð-
inni Lífsstíl. Erfitt verður að fylla í
það.
Baldur var spinningkennari hjá
okkur. Reyndar er ekki rétt að
segja að hann hafi aðeins verið
spinningkennari hjá okkur, því
hann var svo miklu meira. Ef upp
komu vandamál í tölvunum hjá
okkur, þá bjargaði Baldur ekki svo
sjaldan hlutunum. Ef okkur vant-
aði eitthvað, þá var alltaf svo gott
að ræða málin við Baldur, þvl hann
hafði ávallt skýr svör á reiðum
höndum. Jákvæður, duglegur, blíð-
ur, hress, eru lýsingarorð sem lýsa
Baldri vel.
Baldur var hér áður það sem
maður kallar anti-sportisti, en síð-
an kynnist hann spinning og þá
varð ekki aftur snúið. Á hjólinu gat
hann verið lengur en nokkur ann-
ar. Hann munaði sko ekki um það
að hjóla í nokkra tíma og alltaf var
hann til í að taka eitt lag enn, ef
einhver óskaði þess. Hann var
starfsmaður sem alla vinnuveit-
endur dreymir um, því hann var
ávallt tilbúinn að gera eilítið meira
en ætlast var til af honum. Það eru
ófáir sem hann hefur náð að draga
inn í líkamsræktina. Það var mjög
gott að senda nýja viðskiptavini til
Baldurs, því hann hafði svo ein-
stakt lag á því að nálgast nýtt fólk.
Iðu Brá, Bergnýju og fjölskyld-
um sendum við innilegar samúðar-
kveðjur, missir ykkar er mikill. Við
alla þá sem Baldur hefur liðsinnt
hér í Lífsstíl viljum við segja:
„Geymum þá góðu minningar sem
við eigum um Baldur, verum já-
kvæð, þó á móti blási, það hefði
Baldur gert!“.
Baldur, við þökkum þér sam-
fylgdina. Kveðja.
Starfsfólk Líkamsrækt-
arst. Lífsstfis.
Okkur langar að kveðja kæran
vin og vinnufélaga, hann Baldur
„okkar“,
sem hvarf svo sviplega úr lífl
okkar langt um aldur fram og skil-
ur eftir sig stórt skarð og tóma-
rúm.
Það má segja að Baldur hafi
leitt okkur inn í tölvuöldina á sín-
um tíma þegar stofnunin tölvu-
væddist árið 1994 og allar götur
síðan höfum við leitað til hans með
öll okkar vandamál hvað tölvu og
hugbúnað varðar og nýlega tókum
við því fagnandi þegar hann réð
sig í fasta stöðu hér við stofnunina
sem „yfirtölvunörd“, eins og hann
gjarnan kallaði sig.
Baldur var maður sem geislaði
af lífsgleði og starfsorku. Oft velt-
um við því fyrir okkur hversu
margar klst. væru í hans sólar-
hring. Aldrei var hann óþolinmóð-
ur, sama hve mörg verkefni hann
þurfti að leysa af hendi og alltaf
glaðvær.
Okkur finnst enn að hann eigi
eftir að svipta upp hurðinni hjá
okkur, setjast á næsta skrifborðs-
horn og segja: „Jæja, stelpur, er
ekki allt í lagi hér?“
Við kveðjum Baldur nú með
söknuði og þökkum honum sam-
fylgdina en minningin um þennan
góða, glaðværa dreng mun lengi
lifa í huga okkar.
Iðu Brá, Bergnýju og öllum
aðstandendum sendum við okkar
innilegustu samúðarkveðjur. Megi
Guð styrkja ykkur á þessari sorg-
arstundu.
Læknaritarar hjá Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja.
Fallinn er frá langt um aldur
fram góður félagi og samstarfs-
maður, Baldur Baldursson, sjúkra-
flutningamaður. Það er mér bæði
ljúft og skylt að minnast hans með
hlýhug og þakka um leið fyrir öll
þau góðu störf er hann innti af
hendi í tengslum við menntunar-
mál sjúkraflutningamanna.
Stórt skarð er höggvið í hóp
leiðbeinenda Sjúkraflutningaskól-
ans en Baldur var hluti af þeim
hópi allt frá stofnun skólans árið
1996 og sat hann einnig í stjórn
skólans frá 1999. Baldur var alla
tíð trúr og tryggur þeim markmið-
um sem skólinn setti í upphafi, að
efla og bæta menntun þeirra sem
starfa við sjúkraflutninga, og
starfaði ötullega og af fagmennsku
að þeim markmiðum alla tíð. Sjálf-. .
ur vann hann við sjúkraílutninga í
mörg ár og gat því miðlað af þeirri
reynslu sem hann bjó yfir. Það
hafa ófáir nemendur skólans notið
góðs af þeirri þekkingu sem hann
hafði fram að færa. Störf Baldurs
einkenndust af áhuga og eljusemi.
Til kennslu kom hann ávallt vel
undirbúinn og lagði metnað sinn í
öll þau störf sem honum voru falin.
Mun framlag hans til menntunar-
mála sjúkraflutningamanna lifa
innan veggja skólans um ókomna
tíð.
Fjölskyldu Baldurs eru færðar
innilegar samúðarkveðjur.
Fyrir hönd RKÍ,
Svanhildur Þengilsdótt-
ir, skólastjóri Sjúkra-
flutningaskólans.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl-
ingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar
til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á net-
fang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt
er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Pað eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal-
línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. A
Kafl Vesturgöt ÓSKA Bjargræð Ómars R Sun. 7. n Mið. 10. Kvöldveré iLeihhasið u 5 ■■:ivdiv/dii7d«unB
LÖG LANDANS liskvartettinn með lög agnarssonar. naí kl. 21. maí og fim. 18.5 kl. 21 I urkl. 19.30
MIÐAPANTANIR í S. 551 9055 Miðasala opin fös.-sun. kl. 16-19
LEGSTEINAR
Komið og skoðið
í sýningarsal okkar eða
fáið sendan myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
sími: 587 1960, fax: 587 1986
%>
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþjónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
Baldur
Frederiksen
úlfararsljóri,
simi 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
..............—.■■«■■■■■■■.. ............. .................■■■■