Morgunblaðið - 07.05.2000, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 07.05.2000, Qupperneq 48
48 SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens ÆJLARW Ab ETA HANA Et)A SKAUTA HENNI? Hundalíf Smáfólk Bon soir monsieur flugás úr fyrri „Steiktar heimstyrjöldinni. Á matseðlinum f froska- dag er „Des Cuisses de Grenouilles lappir". Sautées". Hmm, Guð minn... Áttu ekki morgunkorn ? BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Sumarvinna í prentverki fyrir ungt fólk Frá Hirti Guðnasyni: í SUMAR verður ungu fólki boðið að kynna sér störf í prentun og bókb- andi með sumarvinnu, samhliða skipulagðri kynningu á möguleikum í námi í prentiðnaði. Þetta átak sem er samvinnuverkefni Prenttækni- stofnunar, Samtaka iðnaðarins og Félags bókagerðarmanna er skipu- lagt þannig að nokkrar prentsmiðjur á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri bjóða sumarstörf fyrir takmarkaðan fjölda þátttakenda, sem verða að hafa náð 18 ára aldri. Hinir ungu sumarstarfsmenn verða í sérstakri umsjón bæði fulltrúa fyrirtækisins og Prenttæknistofnunar og er hug- myndin að þeir kynnist sem flestum þáttum bókbands og prentunar. Tilgangurinn með þessu er sá að kynna ungu fólki prentiðnaðinn og þá með það í huga að það geti hugsað sér að starfa þar í framtíðinni. Þetta átak er sem sagt til að opna augu ungs fólks fyrir því að í prent- iðnaðinum eru spennandi tækifæri og framtíðarstörf. Þrátt fyrir allt umtal um að tölvutækni sé að gleypa allt er ekkert sem bendir til annars en að prentverk eigi eftir að lifa góðu lífl um ókomin ár. Prentun og bók- band krefst sífellt betur menntaðs fólks því að þar eins og í mörgum öðrum iðngreinum er góð grunn- menntun ásamt góðu verklagi nauð- synlegur þáttur í starfinu. Prentverk á íslandi er mjög vand- að og getur státað af sérlega vönduð- um vinnubrögðum sem hafa hlotið viðurkenningar og verðlaun erlend- is. Til að sá gæðastaðall haldist er nauðsynlegt að fá starfsfólk í grein- ina sem er tilbúið að leggja á sig nám og síðan að viðhalda þeirri menntun með sí- og endurmenntun. Prent- verkið er gífurlega fjölbreytt og er ekki bara bundið við bækur og blöð. Ekki þarf nema að líta í kringum sig til að sjá allskonar prentverk sem er orðið daglegur þáttur í lífi fólks án þess að það taki beinlínis eftir því. Stafræn prentun er í miklum upp- gangi og verður spennandi að sjá hvaða áhrif hún kemur til með að hafa á prentverk. Þar leynast vafalaust tækifæri sem ekki er búið að sjá fyrir og lík- legast að þar bætist við fleiri og fjöl- breyttari starfsmöguleikar. Næsta haust verður væntanlega hleypt af stokkunum nýju námi í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum í nokkrum framhaldsskólum og er þar m.a. boðið upp á nám í prentun og bókbandi. Það er því tilvalið að nota sumarið til að kynnast prentverki. Umsóknarfrestur er til 15. maí og hjá Prenttæknistofnun er hægt að fá nánari upplýsingar. HJÖRTUR GUÐNASON, framkvæmdastjóri Prenttækni- stofnunar. Vegna umræðu um stjúpættleiðingar samkynhneigðra Frá áhugamannahópi um velferð bama: „í tilefni af ummælum formanns samtakanna 78, þriðjudaginn 2. maí í Kastljósi Ríkissjónvarpsins, skal eftirfarandi tekið fram. Þorvaldur Kristinsson hélt því fram í umræddum þætti að and- stæðingar stjúpættleiðinga sam- kynhneigðra kæmu með rakalausar fullyrðingar um samkynhneigða sem foreldra. Hann sagði þá vitna í rannsóknir sem bentu til neikvæðra áhrifa þess á börn að alast upp hjá samkynhneigðum. Þegar þeir væru beðnir um að koma fram með þess- ar rannsóknir, gætu þeir það ekki. Þessar fullyrðingar Þorvalds eru ósannindi. Mikið er til af greinum eftir sálfræðinga, lækna og aðra sérfræðinga sem fullyrða að í sam- búð samkynhneigðra séu börnum ekki sköpuð æskileg uppeldisskil- yrði. Einnig eru til rannsóknir sem benda til þess sama. Nýverið sendi Áhugamannahóp- ur um velferð barna öllum alþingis- mönnum Islands eina slíka rann- sókn, Homosexual parents, eftir Dr. Kirk Cameron et al. Þessi rann- sókn var birt í Adolescence, Vol. 31, No. 124, Winther 1996. Í þessari rannsókn kemur fram að börn þurfi á foreldrum af báðum kynjum að halda til að geta mótað sér heil- brigða kynferðislega sjálfsmynd og kynímynd. Einnig var þingmönnum send greinargóð umfjöllun um þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á samkynhneigðum og börnum þeirra: „Homosexual parenting: Bad for children, bad for society" http://www.frc.org/insight/is94e3- hs.html. Þessi grein er gefin út af einum virtustu fjölskyldusamtök- um í Bandaríkjunum, Family Res- earch Council. í henni kemur m.a. fram að 47% barna sem ólust upp hjá samkynhneigðu foreldri sögð- ust ekki vera alfarið gagnkyn- hneigð. Vonandi munu fjölmiðlar lands- ins sjá sér fært að fjalla faglega um þetta mál sem og önnur hagsmuna- mál barna.“ F.h. Ahugamannahóps um vel- ferð barna, HELGA S. SIGURÐARDÓTTIR. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.