Morgunblaðið - 07.05.2000, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2000 55
FÓLK í FRÉTTUM
Miðasala á Tónlistarhátíðina í Reykjavík hefst á morgun
Fyrsta flokks tónlistarhá-
tíð á alþjóða mælikvarða
Miðasala hefst á morgun fyrir Tónlistar-
hátíðina í Reykjavík sem haldin verður um
hvítasunnuhelgina 10. og 11. júni Skarp-
héðinn Guðmundsson fékk tvo af aðstand-
endum hátíðarinnar, þá Steinar Berg frá
Norðurljósum hf. og Skúla Helgason frá
menningarborginni, til þess að lýsa því sem
í boði verður.
Morgunblaðið/Árni Sæberg ,
Steinar Berg og Skúli Helgason eru mjög sáttir við Laugardalinn sem
vettvang fyrir tónlistarhátíð.
„HUGMYNDIN að þessari fyrstu
alþjóðlegu tónlistarhátíð í Reykjavík
varð til fyrir um ári eftir að menn-
ingarborgin leitaði samstarfs við fólk
úr tónlistariðnaðinum um að gera
eitthvað veglegt á sviði dægurtónl-
istar á menningarárinu,“ segir Skúli.
Varalltafhorft til Laugardalsins?
Skúli: „Við höfum fyrirmyndir að
tónlistarhátíðum utan úr heimi en
við urðum vitanlega að taka tillit til
íslenskra aðstæðna og þá varð strax
ljóst að hentugustu aðstöðuna var að
finna í Laugardalnum, sérstaklega
með tilkomu Skautahallarinnar.“
Þarf að hafa áhyggjuraf veðrinu ?
Skúli: „Veðrið mun ekki skipta
neinu lykilmáli. Tónleikarnir sjálfir
munu alfarið fara fram innandyra, í
höllunum og tjaldinu Síðan er spum-
ingin hvað gerist á opnu svæðunum.“
Þar fer kannski leðjuslagurinn
fram sem tíðkastjafnan á öllum betri
tónlistarhátíðum ?
Skúli: Glottir. „Ja, kannski, hver
veit.“
Steinar: „Svæðið er reyndar alveg
afskaplega gróið í heild sinni og vel
frá gengið. Því tel ég litla möguleika
á því að við munum verða vitni að
leðjuböðum á borð við hin frægu á
Woodstock og Glastonbury.“
Hugsiðþiðþetta sem annars kon-
ar hátíð en t.d. þær eða mega menn
búast við slíkri stemmningu?
Steinar: „Það er ekkert því til fyr-
irstöðu að menn taki með tjaldið og
gisti í dalnum. Það má t.d. búast við
að gestir utan af landi og erlendis frá
muni nýta sér það. Þannig að það
verður vissulega „alvöru" hátíðar-
stemmning."
Hvernig verður dagskrá ogmiða-
sölunni háttað?
Skúli: „Verðinu hefur verið stillt
mjög í hóf miðað við allt það sem er í
boði. Það kostar 3.900 kr. hvem dag,
sem er svipað og hefur kostað inn á
tónleika með einni erlendri sveit, en
7.000 kr. fyrir báða dagana. Síðan
verður bryddað upp á þeirri nýjung
að hafa sérstakt verð, 1.900 kr., fyrir
börn innan 12 ára.“
Steinar: „Við höfðum að markmiði
að finna eitthvað við allra hæfi báða
dagana. Það verður einhver áherslu-
munur milli daganna og milli tón-
leikastaðanna en þó ætíð að því gætt
að fjölbreytnin ráði ríkjum."
Nýtt og ferskt efni skilyrði
Höfðuðþið einhverja stefnu til
hliðsjónar við val tónlistarmanna?
Skúli: „Við settum upp dagskrárn-
efnd sem komst að þeirri niðurstöðu
að halda bæri fjölbreytta tónlistar-
hátíð þar sem öllum helstu tónlistar-
stefnum samtímans yrðu gerð skil.
Einnig yrði lögð rík áhersla á að fá
listamenn sem getið hafa sér gott
orð um heiminn fyrir tónleikahald og
hefðu nýtt og ferskt efni í farteskinu.
I stuttu máli var markmiðið að halda
fyrsta flokks hátíð á alþjóðlegan
mælikvarða."
Hvað um íslcnsku listamennina
semkomafram?
Steinar: „Við vildum gjaman gefa
innsýn í fortíð, nútíð og framtíð.
Flestir em fulltrúar nútíðar og fram-
tíðar, ungir og upprennandi lista-
menn. Þursaflokkurinn er síðan aug-
ljós skýrskotun til fortíðarinnar en
jafnframt nútíðar því Egill Ólafsson
er með nýtt efni í farteskinu. Sálin
hans Jóns míns vísar síðan í allar tíð-
ir en hún mun flytja sína ótrúlega
vinsælu órafmögnuðu dagskrá í
hinsta sinn.“
Skúli: „Það er jafnframt söguleg-
ur viðburður að Þursaflokkurinn
kemur saman og áhuginn fyrir því er
gríðarlegur. Við lögðum mjög mikið
upp úr sterku, íslensku sjónarhorni.
Hópur erlendra fjölmiðlamanna mun
sækja hátíðina og því mikilvægt að
geta boðið upp á brot af því besta í ís-
lenskri tónlist."
Hvað verðurfleira í boði en títt-
nefnd tónlistarveisla?
Skúli: „Það verður sett upp tjald á
milli hallanna tveggja þar sem gras-
rótin í íslenskri tónlist fær að njóta
sín til fulls. Síðan verður haldið al-
þjóðlegt hjólabrettamót þar sem
þátt taka nokkrir að frægustu hjóla-
brettaköppum heims. Við reynum að
nýta alla þá aðstöðu sem dalurinn
býður upp á til hlítar, eins og Fjöl-
skyldugarðinn og Húsdýragarðinn.
Þessi aðstaða gerir okkur kleift að
vera með ýmsar uppákomur eins t.d.
götuleikhús, hina og þessa tónlistar-
menn sem munu koma fram í görð-
unum, andlitsmálningu fyrir börnin
margt margt fleira. Dalurinn mun
því allur iða af hátíðarstemmningu."
Nú er þetta alþjóðleg hátíð; hver
hefur áhuginn verið erlendis?
Fleira á döfinni síðar á árinu
Er Tónlistarhátíðin íReykjavík
komin til að vera?
Steinar: „Það er sannarleg von
okkar en veltur vissulega á viðtökun-
um sem við fáum við þeirri fyrstu.“
Skúli: „Það er kannski vert að
geta þess í þessu samhengi að af
hálfu menningarborgarinnar var
lykilatriðið að taka þátt í að skapa
eitthvað nýtt sem gæti blómstrað á
næstu árum. Ég lít því að sumu leyti á
hátíðina sem fjárfestingu til framtíðar
og er sannfærður um að ef vel gengur
verðihinar næstu enn blómlegri."
Stendur eitthvað meira til íinn-
flutningi erlendra listamanna?
Steinar: „Þau sambönd sem við
höfum náð við undirbúning hátíðar-
innar munu án efa nýtast okkur til
þess að efna til fleiri tónlistar-
viðburða síðar á þessu ári og því
næsta.“
Að lokum. Hverja eru þiðpers-
ónulega spenntastir að sjá?
Skúli: „Ég hef fylgst með Youssou
N’Dour lengi og er ny'ög spenntur að
sjá hann í fyrsta sinn. Asian Dub
Fondation þykir eitt albesta tón-
leikabandið í heiminum í dag og ég
er spenntur að sjá það. Svo má ekki
gleyma Kent sem virðist vera að slá í
gegn hér heima.“
Steinar: „Ég hef séð Ray Davies,
Chumbawamba og Youssou N’Dour
og get sagt fyrir mína parta að þar
eru á ferð frábærir tónleikahaldarar.
Af því sem ég hef ekki séð er ég
spenntastur fyrir Asian Dub
Foundation og Laurent Garnier."
Misstu ekki af þessu tækifæri - aðeins örfáar sýningar
Leikhópurinn Á senunni
f iii Jinn
fullkomni
jafningi
snýr aftur
- í síðasta sinn á íslandi!
Höfundur og leikari Felix Bergsson
Leikstjóri Kolbrún Halldórsdóttir
Verkið er sýnt í íslensku óperunni
*Föstud. 12.maí kl. 20.00
*Laugard. 13. maí_____kl. 16.00
Miðvikud. 17. maí kl. 20.00
» Fimmtud. 18.maí kl. 20.00
* Laugard. 27. maí kl. 20.00
Hátíðarsýning í tilefni
Hinsegin daga í Reykjavík
♦ Sunnud. 28. maí kl. 20.00
Sýningin ieikin á ensku
Að loknum sýningum verður boðið
______sýning______________
upp á umræður á Sólon íslandus.
Kíktu á heimasíðurnar
www.on-the-scene.net
og www.this.is/gaypride
Úr erlendum dómum:
„Textinn er beittur og skemmtilegur ... Leikstjórn
(Kolbrúnar) er áreynslulaus og frumleg... Felix leikur ÖU
hlutverkin af smekkvísi og skiptir á milli þess að ögra,
sýna sársauka og skemmta áhorfendum."
Hettie Judah, Evening Standard, London
„Leikrit sem hittir beint í mark... Felix leikur hlutverkin
fimm af snilld..."
Simon Button, Attitude, London
„Felix hefur fullt vald á frásagnartækninni og túlkar vel
hverja persónu. í tvær kiukkustundir tekst þessum
íslenska leikara, einum á sviðinu, að halda áhorfendum
föngnum á glæsilegan hátt... höfundur segir söguna af
þessum fimm mönnum með húmor, kærleika, hnyttni,
sorg og hæðni...“
Stein Fredriksen, Nordlys, Noregi
„Þetta er ögrandi Ieikhús!“
Stuart Who, Time Out, London
Miðasala í íslensku óperunni, sími 551 1475. Miðaverð 1.800 kr.
v-
y