Morgunblaðið - 25.05.2000, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ
BRIDS
llmsjún
(ínrtni. IMII Aiimrxmi
Þegar litið er á hendur NS
sést að sex spaðar er besta
slemman, en með hálfþéttan
tígullit og öll spilin við borðið
reyndist erfitt fyrir norður
að sætta sig við spaðann sem
tromplit þegar spilið kom
upp á landsliðsæfmgu í síð-
ustu viku:
Suður gefur; enginn
hættu.
Nofður
* A9
v<?3
♦ AKD1083
* AKD
á
Vestur Austur
* 85 * DG7
v D1075 v K94
* G952 ♦ 64
* 853 * G10962
Suður
♦ K106432
VÁ862
♦ 7
+ 74
Spilað var á þremur borð-
um, en hvergi var opnað á
veikum tveimur í spaða í suð-
ur. Astæðan var auðvitað
fjórliturinn til hliðar í hjarta,
en mörgum er meinilla við að
jarða slíkan hliðarlit á móti
makker sem á eftir að tjá sig.
Um þá sagnspeki má deila
endalaust og líklega án nið-
urstöðu. Á einu borði voru
Ásmundur Pálsson og Ragn-
ar Hermannsson í NS gegn
Sverri Armannssyni og Að-
alsteini Jörgensen. Ragnar
var í suður og passaði í byrj-
un, en síðan vakti Ásmundur
á Standard alkröfu:
Vestur Norður Austur Suður
Sverrir Ásmundur Aðalsteinn Ragnar
- _ - Pass
Pass 21auf Pass 2tíglar
Pass 3 tíglar Pass 3spaðar
Pass 4 tíglar Pass 4 björtu
Dobl 6 tíglar Allirpass
Ragnar gat ekki sagt
frjálst tvo spaða við alkröf-
unni, því það hefði lofað
tveimur af þremur efstu í
litnum. Hann varð því að
sýna spaðann í fyrsta sinn á
þriðja þrepi, sem var alls
ekki nóg til að vekja áhuga
Ásmundar og hann hélt þvi
tíglinum til streitu. Sverrir
doblaði fyrirstöðusögnina á
fjórum hjörtum, enda lá ekki
Ijóst fyrir hver myndi á end-
anum eiga útspilið, en þegar
til kom, reyndist Sverrir
sjálfui- þurfa að hefja leikinn
gegn slemmunni. Tígulinn
var nefnilega komin í hendur
Ragnars í suður eftir tveggja
tígla biðsögnina.
Sverrir hefði betur tekið
eigin ábendingu og komið
með hjarta út, þvi það er eina
skotið sem setur slemmuna í
hættu. En hann valdi lauf.
Ragnar gat þá toppað tígul-
inn og trompað út spaðann.
Síðan fór hann heim á
hjartaás og henti hjarta nið-
ur í fríspaða. Vörnin fékk þar
með aðeins einn slag á tíg-
ulgosa. Með hjartaútkomu
er eina vinningsleið sagnhafa
að svina strax tígultíu, sem
er verri íferð en toppunin
samkvæmt líkindafræðinni.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sinum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/cða nafn
ábyrgðarmanns og síman-
úmer. Fólk getur hringt í
sima 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavfk
FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 2000 73
I DAG
Arnað heilla
f* ÁRA afmæli. í dag,
O t) fimmtudaginn 25.
maí, verður sextíu og fimm
ára Sigmar Jónsson, for-
stjóri, Austurgerði 3,
Reykjavík. í tilefni dags-
ins hafa hann og eiginkona
hans, Hlíf Jóhannsdóttir,
opið hús í kvöld frá kl. 20 í
Drangey, Stakkahlíð 17.
Boðið er upp á léttar veit-
ingar.
A ÁRA afmæli. f dag
D V/ fimmtudaginn 25.
maí verður fimmtugur
Benedikt Rúnar Stein-
grímsson, húsasmiða-
meistari. Af því tilefni mun
Benedikt og eiginkona
hans, Kolbrún Sigurðar-
dóttir, taka á móti ættingj-
um og vinum föstudaginn
26. maí kl. 20 á efstu hæð í
vestari turninum í verslun-
armiðstöðinni Firði.
Með morgunkaffinu
Hvenær skipt-
irðu siðast um
vatn, Margrét
mín?
SKAK
Linxjóii llelgi Áss
Grétarsson
milli franska stórmeistarans
Christans Bauer (2517),
hvítt, og armenska stór-
meistarans Artashes
Minasian (2598) á opna mót-
inu í New York sem lauk
fyrr í mánuðinum. Svartur
er langt á eftir í liðskipan
ásamt því að peðakeðja hans
d6-c5-b4 er brothætt í meira
lagi. Þess vegna var
16.Hxe7! rökrétt skipta-
munsfórn sem brýtur allar
varnir svarts á bak aftur.
16.. .Kxe7 17.Hel+ Kd7
17.. .KÍ8 18.Bxd6+ Kg8
19.Bxc5 er einnig tapað á
svart. 18.RÍ5! He8 19.Rxd6
Hxel+ 20.Kxel Ba6
21.R2e4! Rxe4 22.Rxe4 Bc8
23.Rxc5+ Ke8 24.Re4 Bd7
25.c5 a5 26.RÓ6+ Ke7
27.Rc4 Ra6 28x6 Be8
29.Rb6 Rc5 30.Bc4 og svart-
ur gafst upp saddur lífdaga.
Raddir framtíðar
Hvað er loft?
Loftið er kalt.
Þegar ég var að hósta kom loft úr mér.
Prump er loft.
Börn frá Völvuborg.
LJOÐABROT
DETTIFOSS
Þar sem aldrei á gijóti gráu
gullin mót sólu hlæja blóm
og ginnhvítar öldur gljúfrin háu
grimmefldum nísta heljarklóm,
kveður þú foss, minn forni vinur,
með fimbulrómi sí og æ.
Undir þér bergið sterka stynur
sem strá í nætur kuldablæ.
Kveður þú ljóð um hali horfna
og hetjulíf á fyrri öld.
Talar þú margt um frelsið forna
og frægðarinnar dapra kvöld.
Ljósgeislar á þér leika skærir,
liðnir frá sól í gegnum ský.
Regnbogalitir titra tærir
tröllauknum bárum þínum í.
Blunda vil ég í bárum þínum
þá bleikur loksins hníg ég nár,
þar sem að enginn yfir mínu
önduðu líki fellir tár.
Og þegar sveit með sorgarhljóði
syngur döpur of ann’rra ná,
í jörmunefldum ítuiTnóði
yfir mér skaltu hlæja þá.
Krístján Jónsson
STJÖRIVUSPA
eftir Franees Ilrake
4«f/ %JI 1ÆSI BÆI R
TVIBURAR
Þú ert harðgerður, en átt til
tillitssemi og umhyggju sem
hjálpa þér að umgangast
aðra erfiðislaust.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Láttu ekki neikvæðni ann-
arra draga úr þér kjarkinn.
Haltu þínu striki og þá fer
allt vel, því hugmyndir þínar
um lausn mála eru réttar.
Naut
(20. apríl - 20. maí) í*t
Það eru einhver átök í kring
um þig á vinnustað. Reyndu
að blandast ekki í þau, þótt
erfitt sé, því þér ríður á að
enginn blettur falli á þinn
málstað.
Tvíburar . ^
(21. maí - 20. júní) Art
Það er engan veginn svo að
þú þurfir að hlaupa til eftir
hugmyndum annarra. Kurt-
eisleg neitun á að koma öðr-
um í skilning um sjálfstæði
þitt.
Krobbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú er fremstur meðal jafn-
ingja og það þýðir að ákvarð-
anatakan fellur þér í skaut.
Mundu bara að taka eðlilegt
tillit til skoðana félaga þinna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú leggur starfsheiður þinn
að veði, þegar þú mælir fyrir
ákveðnu máli. Tékkaðu af
staðreyndir málsins áður en
þú lætur til skarar skríða.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) H,
Allt hefur sinn stað og tíma.
Listin er bara að vita, hvað á
við hverju sinni! Leyfðu eðl-
isávísun þinni að hjálpa þér í
bland við rökhyggjuna.
'tCTX
(23.sept.-22.okt.)
Viljir þú kynnast nýju fólki
er ágæt leið að finna sér nýtt
áhugamál. En mundu, að það
er gott að vera á varðbergi
svo vonbrigði verði ekki ofan
á.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Eitthvað kann að setja allt
úr skorðum hjá þér í dag.
Láttu það ekki reita þig til
reiði, heldur sýndu þolin-
mæði á meðan öldurnar h'ða
hjá.
Bogmaður a ^
(22. nóv.-21.des.) ítSr
Enginn veit að óreyndu
hvern mann annar hefur að
geyma. Farðu þér því hægt í
kynnum af nýju fólki og
gefðu þér svigrúm til að velja
og hafna að viid.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) 4K
Enn og aftur þurfa fjármálin
sérstakrar aðgæzlu við.
Spurðu þig þrisvar hvort þú
þurfir á viðkomandi hlut að
halda áður en þú opnar
budduna.
Vatnsberi
(20. jan. -18. febr.) ws\í
Til þín berast sterkir
straumar í dag. Vertu skjót-
ur til og notfærðu þér með-
byrinn á meðan hann stend-
ur. Allt verður þetta þér til
framdráttar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Reyndu að skipuleggja tíma
þinn þannig, að þú verjir
honum til þess sem gerir þér
og öðrum mest gagn. Leyfðu
þér svo að njóta verka þinna.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
n
Graco
Glæsilegar kerrur
með svuntu!
Urvalið er zízfx*
hjá okkur! jgw
SÍMI 553 3366
Opið á laugardögum frá kl. 11.00 til 16.00.
Til 20. maí
I Glæsibæ & Hafnarfirði
Sjónarhóll bvður TOKAI,
léttasta plastglerjaefni í heimi.
www.sjonarholl. is
SUMARSKÓR!
Margar geröir á frábæru verði
20% afsláttur af stökum pörum
SKOBUÐIN
Sími 568 4452
E T R I L í Ð A N
0PIÐ
alla virka daga 9:00-19:00
Lau 10:00-14:00
Opið í Lyf & heitsu, Ausfurveri
allan sólarhringinn og
Lyf & heilsu, Domus Medica
alla virka daga 9:00-22:00
VLyf&heilsa
GLÆSIBÆ
*<JHÆSIBÆR
-með úrvalið íbænum!