Morgunblaðið - 25.05.2000, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. MAI2000
31
ERLENT
Jojic kallar
Del Ponte
„hóru“
DÓMSMÁLARÁÐHERRA
Júgóslavíu, Petar Jojic, hefur
ritað Cörlu Del Ponte, aðalsak-
sóknara Alþjóðlega stríðs-
glæpadómstólsins fyrir ríki
fyrrverandi Júgóslavíu (ICTY),
bréf sem er uppfullt af fúkyrð-
um í hennar garð. Bréfið var
stílað á „Hóruna Del Ponte“ og
bar opinberan stimpil ríkis-
stjórnarinnar í Belgrad, höfuð-
borg Júgóslavíu.
Bréfið er svar við beiðni
dómstólsins um samstarf við
júgóslavnesk stjórnvöld. Serb-
ar hafa neitað að viðurkenna
dómstólinn og var hann í bréf-
inu sagður vera „hryðjuverka-
samtök". Jojic kallar Del Ponte
og fyrirrennara hennar í emb-
ætti saksóknara, Louise Arb-
our, „táknmyndir vændis“.
Hormóna-
bann í ESB?
FRAMKVÆMDASTJÓRN
Evrópusambandsins (ESB)
hefur lagt til við ráðherraráðið
og Evrópuþingið að sett verði
lög sem banni algerlega notkun
vaxtarhormóna við kjötfram-
leiðslu í ESB-ríkjum. Tillagan
kemur í kjölfar álits ráðgjafar-
nefndar vísindamanna sem á
síðasta ári komst að þeirri nið-
urstöðu að hormónar í kjöti
yllu neytendum heilsutjóni.
ESB hefur átt í deilu við
Bandaríkin vegna innflutnings
á hormónaræktuðu bandarísku
nautakjöti. Deilan hefur farið
við úrskurðarnefnd Heimsvið-
skiptastofnunarinnar (WTO)
og sagði talsmaður fram-
kvæmdastjórnarinnar í gær að
væntanleg löggjöf yrði í sam-
ræmi við reglur WTO.
Rússar auka
vopnaútflutning
RÚSSAR fluttu á fyrsta fjórð-
ungi þessa árs út vopn fyrir 1,3
milljarða bandaríkjadollara,
jafnvirði um 99 milljarða ís-
lenskra króna, að því er aðstoð-
arforsætisráðherra Rússlands
sagði'í gær. Á síðasta ári nam
vopnaútflutningur Rússa 3,4
milljörðum dollara, eða jafn-
virði um 258 milljarða ís-
lenskra króna. Aðstoðarfor-
sætisráðherrann, Ilia
Klebanov, sagði að Rússar
vildu stefna að því að verða
næststærsti vopnaútflytjandi
heims á eftir Bandaríkjunum
innan fárra ára.
Nýr ritstjóri
Dagens
Nyheter
ANDERS Johnson var í gær
ráðinn nýr aðalritstjóri sænska
dagblaðsins Dagens Nyheter
(DN) og tekur við af Hans
Bergström 1. ágúst nk. John-
son er 46 ára hagfræðingur og
hefur lengi verið einn aðalhug-
myndafræðingur sænska Þjóð-
arflokksins (Folkpartiet).
Hann hefur m.a. setið á
sænska þinginu, Riksdagen, og
í borgarstjórn Stokkhólms.
Hann hefur einnig ritað nokkr-
ar bækur um stjórnmál og
samfélagsmál. Meðal annars
hefur Johnson, sem er bindind-
ismaður, ritað bók þar sem
hann reiknar út hversu háa
fjárhæð áfengisneysla kostar
sænskt samfélag á hverju ári.
Sumarbúðjrnar
Ævintýrabnd
Reykjunm, Hrútafírði
Upplýsingar og skráning í símum:
551
551
9160
9170
Grírougerd
Leiklist
Myndlist
Tónlist
íþróttir
PliinrimkanArA
sóigleraugu
LINBAN
Aðalstræti 9 • 55 1 5055
SamsfcpftVHaWör