Morgunblaðið - 25.05.2000, Blaðsíða 58
58 ' FIMMTUDAGÚR 25. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Sannleikurinn um
byggingarfram-
kvæmdir í Reykjavík
í NÝÚTKOMNU yf-
irliti Byggingarfulltrú-
ans í Reykjavík um
byggingarframkvæmd-
ir í höfuðborginni árið
1999 kemur margt afar
fróðlegt í ljós. í yfirlit-
■inu eru teknar saman
tölulegar upplýsingar
um það sem raunveru-
lega er að gerast á reyk-
vískum byggingarmark-
aði m.a. hvað varðar
fjölda, umfang, tegundir
og byggingarefni þess
húsnæðis sem byggt er í
Reykjavík. Óhætt er að
segja að yfirlitið sýnir
glöggt að mikil gróska
er á reykvískum byggingarmarkaði
um þessar mundir og hefur bygging-
armagn í fermetrum talið aðeins
einu sinni verið meira í
Reykjavík síðastliðna
tvo áratugi a.m.k.
Uppsveifla í
íbúðarhúsnæði
Þá er það einkar at-
hyglisvert í ljósi þeirr-
ar miklu umræðu sem
átt hefur sér stað um
ástæður hækkandi
íbúðarverðs, að fram-
kvæmdir við nýtt íbúð-
arhúsnæði í Reykjavík
hafa sjaldan verið
meiri á þessum ára-
tug. Á síðasta ári voru
589 fullgerðar íbúðir í
Reykjavík og hefur
fjöldi þeirra vaxið jafnt og þétt allan
valdatíma Reykjvíkurlistans. Árið
1994 var fjöldi fullgerðra íbúða 690
og er það í eina skiptið á þessum ára-
tug sem fullgerðar íbúðir voru fleiri
en á síðasta ári. Það sama er uppi á
teningnum hvað varðar hafna smíði á
nýjum íbúðum í Reykjavik. í fyrra
voru slíkar íbúðir 565 en á þessum
áratug hafa þær aðeins einu sinni
verið fleiri, árið 1997 þegar þær voru
611 talsins.
Jöfn og stöðug
uppbygging
Yfirlit Byggingarfulltrúans í
Reykjavík sýnir svo ekki verður um
villst að stefna Reykjavíkurlistans í
lóða- og byggingarmálum er að skila
góðum árangri. Uppbyggingin hefur
verið jöfn og stöðug og hún hefur
Framkvæmdir
Það er því bjart yfír
byggingarmálum í borg-
inni, segir Hrannar
Björn Arnarson, og
í þeim efnum fá böl-
móðsraddir í engu
breytt þeim tölulegu
staðreyndum sem um
sannleikann vitna.
orðið án þeirrar stórfelldu skulda-
söfnunar sem átti sér stað fyrr á ára-
tugnum í valdatíð Sjálfstæðismanna.
Mörg af eldri hverfum borgarinnar
hafa á undanförnum ái-um gengið í
endurnýjun lífdaga, byggðin hefur
þést og styrkst og framundan er
mikil uppbygging í nýjasta hverfi
borgarinnar í Grafarholti. Það er því
bjart yfir byggingarmálum í borg-
inni og í þeim efnum fá bölmóðsradd-
ir í engu breytt þeim tölulegu stað-
reyndum sem um sannleikann vitna.
Tafla:
Sraíði íbúða 1991-199
9*
Ár Fullgerðar Hafin smíði á
íbúðir nýjum fbúðum
1999 589 565
1998 551 328
1997 549 611
1996 519 526
1995 450 294
1994 690 546
1993 579 373
1992 518 278
1991 527 443
* Byggt á yfirliti Byggingarfulitrúans í
Reykjavík um byggingarframkvæmdir í
Reykjavík 1999.
Höfundur er borgarfulltrúi
Reykjavíkurlistans.
Hrannar Björn
Amarson
Aðstoð til
reykleysis
AÐSTOÐ við fólk
sem vill hætta að
reykja hefur fleygt
fram á undanfömum
árum og fram hafa
komið margvíslegar
leiðir sem reynst hafa
gagnlegar í baráttunni
við tóbaksfíknina.
Skipulögð meðferð til
reykleysis er í boði á
nokkrum stöðum á ís-
landi. Má þar nefna
Krabbameinsfélag
Reykjavíkur, Heilsu-
stofnun Náttúrulækn-
ingafélags Islands í
Hveragerði, Reykja-
lund og Landspítala
Vífilsstöðum. Auk þessa hefur í um
10 ár verið veitt meðferð til reyk-
leysis á lungna- og berklavarnar-
deild Heilsuverndarstöðvar Reykja-
víkur, sem Þorsteinn Blöndal læknir
hefur þróað. Byggt á meginforsend-
um þeirrar meðferðar hefur Dagmar
Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur þró-
að frekar meðferð þá sem hér er lýst.
Meðferð til reykleysis byggist á
því að reykingar eru flókið fyrirbæri
sem flokka má í líffræðilega, and-
lega, félagslega og efnahagslega
þætti. Með þessa þætti þarf að vinna
saman til að árangur verði sem mest-
ur. í ljós hefur komið að fæstum
tekst að hætta að reykja í fyrstu til-
raun og gerir fólk að meðaltali þrjár
til fjórar tilraunir áður en varanleg-
ur árangur næst. Hins vegar er mik-
ilvægt að líta á fall í reykbindindi
sem tækifæri til að læra um sjálfan
sig og viðbrögð sín. Sá einstaklingur
sem reynt hefur að hætta að reykja
er þannig reynslunni ríkari og betur
í stakk búinn til að takast á við næstu
tilraun.
Mikill fjöldi rannsókna hefur verið
gerður á árangri meðferðarforma til
reykleysis. Tilkoma nikótínlyfja olli
straumhvörfum í árangri meðferðar
til reykleysis og hefur nikótínlyfja-
meðferð mikið verið rannsökuð.
Notkun nikótínlyfja dregur úr frá-
hvarfseinkennum nikótíns og vinnur
jafnframt gegn þyngdaraukningu.
Nikótínlyf ein og sér eru hins vegar
ekki fullnægjandi.
Samhliða þeim þarf
einstaklingurinn að
breyta hegðun, hugsun
og tilfinningum og því
eru heilbrigðisfræðsla,
einstaklings- og hóp-
ráðgjöf mikilvægir
þættir meðferðar.
Stuðningm- fjölskyldu
og vina er einnig
áhrifamikill og þarf
einstaklingurinn að
leita leiða til að nýta sér
hann.
Dagana 25.-27. maí
verður haldin í Há-
skólabíói alþjóðleg ráð-
stefna hjúkrunarfræð-
inga sem stunda rannsóknarstörf og
þar verða m.a. kynntar niðurstöður
Reykingar
Mikilvægt er að líta
á fall í reykbindindi,
segir Helga Jónsdóttir,
sem tækifærí til að
læra um sjálfan sig
og viðbrögð sín.
úr rannsókn sem gerð hefur verið á
ofangreindri meðferð. í rannsókn-
inni var árangur meðferðararinnar
borinn saman við meðferð sem veitt
var á líkamsræktarstöð þar sem
skipulagðri líkamsrækt var bætt við
meðferðina. Þó fjöldi þátttakenda í
meðferðarhópunum hafi ekki verið
nægur til að niðurstöður reyndust
marktækar sýndu niðurstöður að
tæplega 40% þátttakenda í meðferð-
inni á líkamsræktarstöðinni voru
reyklaus við lok eins árs meðferðar,
en rúmlega 20% í meðferðinni á
heilsugæslustöðinni.
Höfundur er dósent í hjúkrunar-
fræði í Háskóla íslands og stoð-
hjúkrunarfræðingur á Landspítala
Vífilsstöðum.
//
Helga
Jónsdóttir
jvynimg 1 dag
Stanislas Bohic garðhönnuður
veitir ráðgjöf í timbursölu Súðarvogi
25. maí frá kl. 14-18
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Helgi Hálfdanarson
Mynsters-hugleiðingar
MEÐAL þeirra íslendinga, sem
búsettir voru í Danmörku á tíð
Fjölnismanna, var Þorgeir Guð-
mundsson prestur í Glólundi.
Hann var um skeið forseti Hafnar-
deildar Bókmenntafélagsins og
löngum athafnasamur um íslenzk
málefni. Meðal annars lét hann sig
nokkru skipta hvaða erlent lestrar-
efni skyldi valið til þýðingar handa
íslendingum.
Um þessar mundir kom út bók
eftir J.P. Mynster Sjálandsbiskup
og nefndist Betragtninger over de
christelige Troeslærdomme. Varð
sú bók afar vinsæl í Danmörku og
víðar um Norðuriönd. Síra Þorgeir
fékk mikinn áhuga á riti þessu og
sneri sér til þeirra þriggja Fjölnis-
manna sem þá voru í Kaupmanna-
höfn, Brynjólfs, Jónasar og Kon-
ráðs, og hvatti þá til að þýða bókina
á íslenzku; það skyldi vera á hans
kostnað og í hans umsjá til útgáfu.
Ætla mætti að þeir félagar hafi
haft nóg á sinni könnu, og ekki er
með öllu ljóst hvað þeim hefur
gengið til að taka þessu boði síra
Þorgeirs, hvort það var öðru frem-
ur áhugi á þeirri stefnu í trúmálum
sem Mynster biskup boðaði, eða sí-
felldur knýjandi fjárskortur, nema
þeir hafi ef til vill séð sér þar leik á
borði að hefja íslenzkt mál til vegs
að nýju á vegum kirkjunnar. En
verkið tóku þeir að sér, og þýðing
þeirra kom út undir heitinu Hug-
leiðingar um höfuðatriði kristinnar
trúar samdar af dr. J.P. Mynster,
allmikið rit, hátt í 600 blaðsíður í
áttablaðabroti, og stóð síra Þorgeir
þar vel að öllu.
Bók Mynsters hefst á orðunum
Min Hu er træt, og sú saga er sögð,
að þeir Jónas og Konráð hafi legið
daglangt úti í skógi og brotið um
það heilann, hvernig þetta skyldi
hljóða á íslenzku, og undir kvöld
hafi Jónas sprottið upp og sagt: Ég
hef það; þetta á að vera Ond mín er
þreytt. Hér á að vera fólgið það
sannleikskom, að vandlega hafi
verið unnið að verki þessu af þeim
gæfumönnum sem komu einmitt
þegar þörfin var brýnust.
Þeir þremenningar virðast hafa
skipt með sér verkum þannig að
þeir þýddu sinn þriðjung bókarinn-
ar hver. Má þá nærri geta að þeir
hafa haft auga hver með annars
vinnubrögðum, svo sem þein-a var
vandi. Og þá var ekki að spyrja að
árangrinum. í hugann kemur hið
hnyttilega tilsvar Sigurðar Nor-
dals, þegar hann var spurður,
hvort eitthvert tiltekið orð Jónasar
Hallgrímssonar væri i raun og
veru íslenzka, og hann svaraði:
„Það er nú svo, að það sem Jónas
hefur sagt og Konráð látið gott
heita, það hefur til þessa verið kall-
að íslenzka."
Andrés Kristjánsson hefur á
góðum stað bent á þau ummæli
Konráðs, að hann hafi ásamt
tveimur vinum sínum íslenzkað
Hugleiðingar Mynsters biskups og
þýðingin orðið vinsæl á Islandi og
íslenzku kirkjumáli til vegsauka.
Allmikið hefur verið rætt og rit-
að um þátt Fjölnismanna í því sem
stundum er kallað „endurreisn ís-
lenzkrar tungu“. Meðal annars
hefur þýðing Jónasar á Stjömu-
fræði Úrsins verið könnuð með til-
liti til orðafars og nýyrða sérstak-
lega, þar sem komið hefur í ljós
mikilvæg orðasmíð á vettvangi
raunvísinda. En þau víðtæku áhrif
af ýmsu tagi, sem þeir Fjölnis-
menn hafa efalaust haft á almennt
íslenzkt málfar með hinni merku
þýðingu sinni á Hugleiðingum
Mynsters, bíða enn rækilegrar
rannsóknar. Og tilgangurinn með
þessum fáu línum er sá að hvetja til
þess að góður fræðimaður bæti þar
úr.
Til fróðleiks um allt þetta efni
vísast einkum til tveggja öndvegis-
rita, bókar Andrésar Kristjánsson-
ar, Nú heilsar þér á Hafnarslóð, og
ævisögu Jónasar Hallgrímssonar
eftir Pál Valsson; en hér hefur
einkum verið höfð hliðsjón af þeim.