Morgunblaðið - 19.08.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.08.2000, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Leit ekki borið árangur LEITIN að konunni sem hvarf af heimili sínu í fyrrakvöld hafði ekki borið árangur seint í gærkvöld. Leit var hætt um ellefuleytið en til stóð að hefja takmarkaða leit með hundum klukkan eitt í nótt í grennd við heim- ili konunnar í Fossvogi. Stefnt var að því að leit hæfist af fullum krafti á ný í birtingu. Milli 70 og 100 björgunarsveitar- Maðurinn sem brenndist í Straumsvík á batavegi MAÐURINN sem brenndist illa er hann var við vinnu í álverinu í Straumsvík er á batavegi, að sögn Hrannars Péturssonar, upplýsinga- fulltrúa ÍSAL. Maðurinn hlaut þriðja stigs bruna á höndum og á maga eftir að feikna heitt ál slettist á hann og lítur út fyrir að maðurinn þurfi að fara í húðgræðingu, þar sem húð annars staðar af líkamanum er tekin og grædd á sárin. Að sögn Hrannars var það lán í ólani að maðurinn var klæddur í reglubundinn hh'fðarfatnað sem starfsmönnum álversins er gert skylt að vera í. „Pað hefði getað farið verr,“ sagði Hrannar. „Óryggisbún- aðurinn verndaði andlit mannsins og starfsfélagar hans brugðust rétt við. Það hafði mikið að segja,“ sagði Hrannar, en líklegt þykir að spreng- ing hafi orðið við hreinsun á sérstakri rennu vegna þess að rakt verkfæri var notað og álið því slettst á mann- inn með fyrrgreindum afleiðingum. menn tóku þátt í leit að konunni í gærdag. Búist er við að enn fleiri taki þátt í leitinni í dag verði konan ófundin. Leitin er undir stjóm lög- reglunnar í Reykjavík auk þess sem lögreglan í Kópavogi aðstoðar við leitina. Einnig flaug þyrla Landhelg- isgæslunnar yfir leitarsvæðið í gær en sjónum hefur einkum verið beint að Fossvogi auk þess sem leitað hef- ur verið í Elliðaárdal, Öskjuhlíð og víðar á þessum slóðum. Að sögn lög- reglu er heilsa konunnar ekki þannig að talið sé líklegt að hún hafi farið mjög langt og var því hafin nákvæm leit með hundum í húsum í nágrenni við heimili konunnar auk þess sem Skógræktin verður fínkembd. Lögreglunni í Reykjavík var gert viðvart um hvarf konunnar rúmlega níu í fyrrakvöld. Upp úr miðnætti var kallað eftir aðstoð björgunar- sveita af höfuðborgarsvæðinu. Kon- an er liðlega áttræður alzheimer- sjúklingur. Hún var klædd í ljósbrúnar buxur og jakka og með pijónahúfu þegar hún sást síðast. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Kristján Þórðarson, Steinar V. Þórhallsson og Sigurður Gýmir Bjartmarsson leggja út með nýjan slöngubát björgunarsveitarinnar Víkverja í gærkvöld. Messað í helli við Hella BISKUP íslands, Karl Sigur- björnsson, predikar við messu í stærsta manngerða helli landsins við bæinn Hella í Landsveit 1 dag kl. 11. Er messan liður í kristnihá- tíð Rangárvallaprófastsdæmis. Séra Halldóra Þorvarðardóttir, prófastur Rangárvallaprófasts- dæmis, annast messugjörðina en biskup predikar. Messan fer fram í manngerðum helli í landi Hella og segir sr. Halldóra Þorvarðardóttir að hellarnir séu taldir þeir stærstu manngerðu í landinu og telja menn þar að finna megi ýmis ummerki um kristið helgihald. Hún segir messuna síðasta lið í kristnihátíð prófastsdæmisins og ákveðið hafi verið að tengja hana svonefndum töðugjöldum sem fram fara í sveitinni nú um helg- ina. Kirkjukór Skarðskirkju syngur við messuna og að henni lokinni verður boðið upp á súkkulaði og kleinur. Siglt út með rafgeymi ÞRÍR menn úr björgunarsveitinni Vfkverja í Vík í Mýrdal aðstoðuðu í gærkvöld bátinn Maron frá Grinda- vík, sem orðið hafði rafmagnslaus rétt undan ströndinni. Var nýr raf- geymir sóttur til Reykjavíkur og sigldu björgunarsveitarmenn út með hann. Besta var á þessum slóð- um í gærkvöld og gengu aðgerðir vel. Skipverjar á Maroni voru aldrei í hættu og nauðsynlegt raf- magn höfðu þeir um borð með því að færa neyslugeyminn. Engin ákvörðun um útboð á þriðju kynslóð farsímakerfa Samgönguráðherra segir að vandlega verði farið yfir málið STURLA Böðvarsson samgönguráð- herra sagði í gær að ekki hefði verið tekin ákvörðun um það hvort hér á landi yrði haldið uppboð á rekstrar- kerfum svokallaðrar þriðju kynslóð- ar farsímakerfa eða ÚMTS-farsíma- kerfis, en ljóst væri af reynslunni í Þýskalandi og Bretlandi að mikið fé væri í húfi. Uppboði þýska ríkisins á rekstrar- kerfum í hinu væntanlega UMTS- farsímakerfi lauk á fimmtudag og skilaði það ríkinu um 3.660 milljörð- um króna og hefur verið kallað gull- náma fyrir þýskan ríkissjóð. Ríkis- sjóður Breta fékk einnig miklar fjárhæðir í sinn hlut af útboði á þessu kerfi á Bretlandi. „Útboðin í Bretlandi og Þýska- landi vekja mikla athygli og bendir allt til þess að menn geri ráð fyrir miklum hagnaði af þessari þjónustu," sagði Sturla. „Við höfum verið að fara yfir þetta í ráðuneytinu og búa okkur undir það að taka ákvarðanir." Hann sagði að ekki væri kominn mikill þrýstingur frá símafyrirtækj- unum um að setja upp þriðju kynslóð farsímakerfis, enda enn verið að sækja um GSM-900. „Það gefst því ennþá tími til að undirbúa málið,“ sagði hann. „Það er augljóst að það eru þarna heilmiklir möguleikar á tekjuöflun, en ég hef vakið athygli á því og sagt sem svo að við verðum að velja milli tveggja kosta, annars vegar að beita sömu aðferð og Bretar og Þjóðverjai’ með þessum feiknarlega góða árangri fyr- ir ríkissjóð og hins vegar þeirri leið að hafa eins konar fegurðarsam- keppni og bjóða upp á að símafyrir- tækin keppist um að bjóða sem mesta og besta þjónustu í þeirri von að neytendur njóti þess í mjög lágu verði á GSM-símagjöldum þegar kemur að því að selja þetta. Hins vegar er engin trygging fyrir því hjá okkur að sú von muni rætast." Sturla kvaðst ekki vilja kveða upp úr um það hvor leiðin yrði valin fyrr en farið hefði verið ofan í kjölinn á þessum kostum. „En við ætlum okkur að vera í fremstu röð og munum ekki láta standa á samgönguráðuneytinu eða stjórnvöldum að taka ákvörðun þeg- ar símafyrirtækin eru tilbúin til þess að byrja að keppa um þessi leyfi,“ sagði hann. Sturla kvaðst ekki vilja segja að hvorum kostinum hann hallaðist í ljósi niðurstöðunnar úr útboðinu í Þýskalandi, en bætti við: „Það er al- veg Ijóst að það eru miklar vænting- ar til þessarar þriðju kynslóðar og menn gera ráð fyrir að þarna verði alveg ótæmandi möguleikar á við- skiptum í gegn um GSM-síma, sem nánast hver einasti borgari er með á eyranu og þar af leiðandi fyrir aug- unum. Þama era möguleikar, sem ég held að við eigum að nýta okkur og símafyrirtækin sjá fyrir. En það kann vel að vera að þetta séu nú að einhverju leyti óraunhæfar vænting- ar, en ég hef enga forsendu til að meta að svo sé.“ Samgönguráðherra kvaðst vilja undirstrika að hann væri ekki að hafna því að velja útboðsleið, en hann vildi sjá allt dæmið fyrir sér með að- stoð sinna sérfræðinga. Sturla sagði að allar líkur væru á að útboð kallaði á breytingar bæði á fjarskiptalöggjöf og lögum um póst- og fjarskiptastofnun. Reyndar væri ekkert í lögum, sem bannaði uppboð, en Sturla taldi að ramma þyrfti þetta inn í lögin. Hann gerði því ráð fyrir því að Alþingi fengi færi á að taka þátt í að móta þessa stefnu. Grunaður um skart- gripaþjófnað ERLENDUR maður er í haldi rann- sóknarlögreglunnar í Reykjavík grunaður um að vera stórtækur skartgripaþjófur. Að sögn lögreglu var maðurinn handtekinn í fyrradag. Við húsleit hjá honum fannst hluti þýfis úr einu af mörgum innbrotum í skartgripaverslanii’ á höfðuborgar- svæðinu síðustu vikur. Fimm sinnum hefur verið brotist inn í skartgripa- verslanir frá þvi i lok júií. Maðurinn hefur verið úrskurðaður í gæslu- varðhald til 8. september. Ránstilraun á tannlæknastofu RÁNSFERÐ á tannlæknastofu á Höfn á Hornafirði skilaði ekki tilætl- uðum árangri því þjófurinn varð að skilja pokann með þýfinu eftir þegar hann forðaði sér á hlaupum undan laganna vörðum aðfaranótt fimmtu- dags. Rannsókn málsins stendur yfir en maðurinn reyndi að hafa með sér á brott hljómflutningstæki og bréf- síma auk ýmissa lauslegra hluta. Tækin eru óskemmd. Fisvél hrapaði tiljarðar VÉLARBILUN varð í fisvél með þeim afleiðingum að vélin sveif til jarðar við Úlfarsfell. Það varð flug- manninum, sem er á fertugsaldri, til happs að vélin hafnaði í lúpínubeði og slapp hann því ómeiddur úr hild- arleiknum að sögn lögreglunnai’ í Reykjavík. Óhappið varð um þrjú- leytið í gær. ttthu ••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• IÆSBÖí€ ALAUGARDOGU Guðrún Arnardóttir í 3. sæti í Mónakó / B1 Hermann Hreiðarsson í byrjunarliði Ipswich / B1 Morgunblaðinu í dagfylgir aukablað um Reykjavík menningarborg Evrópu 2000.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.