Morgunblaðið - 19.08.2000, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 19.08.2000, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Verulega aukínn hagnaður Delta hf. MIKIL umskipti hafa orðið á af- komu Delta hf. á þessu ári saman- borið við síðasta ár. Hagnaður fyrstu sex mánuði ársins 2000 eftir skatta var 134 milljónir króna sam- anborið við 25 milljóna króna tap á sama tímabili á síðasta ári. Veltufé frá rekstri nam 224 milljónum en var 29 milljónir í fyrra. Rekstrar- tekjur jukust um 69% milli ára og námu 1.044 milljónum. Inni í þeirri fjárhæð er 15 milljóna króna sölu- hagnaður. Rekstrartekjur á síðasta ári námu 619 milljónum. Rekstrar- gjöld tímabilsins námu 866 milljón- um en voru 624 milljónir á sama tíma í fyrra. Fjármagnsliðir hækk- uðu frá fyrra ári og námu 36 millj- ónum króna í stað 17 milljóna á sama tíma í fyrra. Ánægja með afkomuna og bjart fram undan Róbert Wessman, framkvæmda- stjóri Delta hf., segist ánægður með afkomu félagsins á fyrri helm- ingi ársins. Hann segir að þróunar- verkefnin sem félagið vinnur að stýri mikið vexti þess og að áhersla hafi verið lögð á að fjölga þeim. Með þróunarverkefnum sé átt við þróun á samheitalyfjum. Fjöldi þeirra nú sé meiri en nokkru sinni, eða samtals 19 á mismunandi stig- um. „Það sem skiptir meginmáli og skýrir góða afkomu Delta er að fé- lagið hefur náð að byggja upp góð- an orðstír erlendis fyrir mjög góða og mikla gæðavinnu og verið er að nýta þann styrk til að fjölga verk- efnunum verulega, úr þremur til fjórum á ári í allt að átta. En við stefnum að því að ná þeim fjölda á ári. Við erum bæði að selja lyfja- tengt hugvit og að gera samninga um að framleiða viðkomandi lyf fyrir viðkomandi viðskiptavini okk- ar. Þá hefur félagið verið að styrkj- ast í sölunni jafnt hér innanlands /\ DELTAi Œll Árshlutauppg hf. jör 2000 Rekstrarreikningur jan.-júni 2000 1999 Breyting Rekstrartekjur Milljónir króna Rekstrargjöld 1.044 866 619 624 +69% +39% Rekstrarhagnaður/tap Fjármagnsgjöld umfram fjárm.tekjur 179 -36 -5 -17 +112% Hagnaður/tap fyrir skatta Eignarskattur 141 7 -22 3 +133% Hagnaður/tap tímabilsins 134 -25 Efnahagsreikningur 30/6OO 31/12'99 Breyting Eignir samtals Milljónir króna 3.302 3.088 +7% Eigið fé 1.441 1.293 +11% Skuldir 1.861 1.795 +4% Skuldir og eigið fé samtals 3.302 3.088 +7% Kennitölur og sjóðstreymi jan.-júm 2000 1999 Breyting Eiginfjárhlutfall Veltufjárhlutfall Veltufé frá rekstri Milljónir króna 43,6% 1,38 224 42,0% 1,04 29 +672% og erlendis með því að taka inn nýja starfsmenn og ætlunin er að halda áfram að styrkja þann þátt í starfseminni.“ Róbert segir að Delta hafi gert samstarfssamning við kanadískt lyfjafyrirtæki, Pharmascience, sem er eitt af stærri lyfjafyrirtækjun- um þar í landi. „Það sem við gerum er að við tökum þeirra lyfjaþróun og nýtum hana að hluta en klárum síðan þeirra þróun fyrir Evrópu og sjáum jafnframt um framleiðslu og sölu á þeim lyfjum fyrir þann markað. Þetta mun styrkja félagið í því að ná auknum verkefnum. Þá höfum við ráðið einstakling inn til félagsins til að halda utan um Taktu blaðið með í bæinn svona samstarfssamninga og jafn- framt til að stýra uppbyggingu Delta inn á Bandaríkjamarkað, sem er stærsti lyfjamarkaður í heimi. Því er óhætt að segja að það sé bjart fram undan,“ segir Róbert. Líkur á að afkoman á árinu verði góð Sigurveig Hallsdóttir hjá grein- ingardeild Landsbréfa segir ljóst að rekstur Delta hf. hafi batnað umtalsvert miðað við sama tímabil í fyrra. Afkomubati félagsins komi að miklu leyti vegna söluaukningar á erlendum mörkuðum og vegna aukinnar framlegðar þar sem fast- ur kostnaður félagsins sé hlutfalls- lega hár. Einnig sé jákvætt að sjá veltufé frá rekstri aukast um tæp- ar 200 milljónir króna. „Gera má ráð fyrir að gengisþróun verði fé- laginu hagstæðari á síðari hluta árs. Ef sala á erlendum mörkuðum gengur samkvæmt áætlunum eru líkur á að afkoma Delta hf. á árinu 2000 verði góð. Verð á bréfum fé- lagsins hefur hækkað umtalsvert á árinu sem endurspeglar tiltrú fjár- festa á áframhaldandi vexti,“ segir Sigurveig. Úr milliuppgjöri 2000 Rekstrarreikningur jan. - jum Milljónir króna Rekstrartekjur Rekstrargjöld Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) Tekju- og eignarskattar Hagnaður af reglulegri starfsemi Hlutdeild minnihluta Hagnaður tímabilsins Efnahagsreikningur jan. -júni Eignir samtals Milljónir króna Eigið fé Skuldir Skuldir og eigið fé samtals Kennitölur og sjóðstreymi Arðsemi eigin fjár Eiginfjárhlutfall Veltufjárhlutfall Veltufé frá rekstri jan. - júni Millj. króna 2000 1.071 999 42 7 23 O 23 30.06'00 2.201 698 1503 2.201 30.06'00 6,86% 32% 1,41 110 1999 Breyting 354 309 11 16 18 3 21 +203% +223% +282% -56% +28% +10% 31.12'99 Breyting 2.101 +5% 669 1.432 +4% +5% 2.101 31.12'99 7,03% 32% 1,65 63 +5% Breyting +25% Hagnaður Sæ- plasts hf. svipað- ur og á síðasta ári HAGNAÐUR Sæplasts hf„ móð- urfélags og dótturfélaga, var 23 milljónir króna á fyrstu sex mán- uðum ársins 2000. Hagnaðurinn jókst um 2 milljónir miðað við sama tímabil á síðasta ári. Rekstr- artekjur Sæplasts hf. og dótturfé- laga í Kanada, Noregi og Indlandi voru 1.071 milljón króna á fyrstu sex mánuðum ársins en 354 millj- ónir á sama tímabili í fyrra. Veltu- aukningin er því 203% en nú gætir áhrifa tveggja nýrra dótturfyrir- tækja Sæplasts í Noregi, þ.e. Sæplasts Álasund A/S og Nordic Supply Containers A/S. Rekstrar- gjöld námu 999 milljónum í ár en 309 milljónum í fyrra og fjár- magnsgjöld hækkuðu úr 11 millj- ónum á síðasta ári í 42 milljónir í ár. Eignir félagsins í lok júní á þessu ári voru 2.201 milljón og höfðu hækkað um 100 milljónir frá fyrra ári. Á tímabilinu keypti fé- lagið tvö fyrirtæki, Nordic Supply Containers A/S og Atlantic Island ehf., en áhrifa frá því félagi gætir einungis í efnahagsreikningi fé- lagsins nú. Eigið fé var 698 millj- ónir og hafði hækkað um 28 millj- ónir frá áramótum og skuldir voru 1.504 milljónir en þær höfðu hækkað um 73 milljónir. Ekki tilefni til að endurskoða áætlanir í tilkynningu frá Sæplasti hf. segir að þrátt fyrir að verulegur kostnaður hafi fallið til á fyrstu sex mánuðum þessa árs vegna hagræðingar í rekstri hafi mark- mið rekstraráætlunar félagsins náðst og ekki þyki tilefni til að endurskoða rekstraráætlun fyrir allt árið. Þá segir að önnur dóttur- félög félagsins en þau sem sinna hverfisteypu í Noregi hafi skilað hagnaði. Einni verksmiðju félags- ins í Noregi, sem sinnir hverfi- steypu, hafi verið lokað og verið sé að sameina starfsemina öðrum verksmiðjum Sæplasts þar í landi. Unnið sé að hagræðingu í öllum verksmiðjum Sæplasts. Fram kemur í tilkynningunni að áætlanir félagsins vegna fjárfest- inga erlendis hafi að fullu gengið eftir en 93% tekna samstæðunnar verði nú til erlendis. Áhrifa fjár- festinganna muni gæta enn frekar á síðari hluta þessa árs og á því næsta. Islandsbanki - FBA Með Morgunblaðinu í gær fylgdi aukablað um Menningarnótt Reykjavíkurborgar. Netbanki fyrir ungt fólk opnaður í blaðinu má meðal annars finna dagskrá næturinnar. Muncfu eftir að taka blaðið með í bæinn! JBcreunbUöíb ME N NINGARNÓTT Hugeldar, furðufuglar og vatnadísir zH'.&vzSéZzríx ii. Blaö nwnningartrorgarársins 2000 ÍSLANDSBANKI-FBA hefur opn- að netbanka, XY.is, sem er ætlað- ur fyrir ungt fólk, 12 ára og eldra. Um leið var stofnaður nýr ungl- ingaklúbbur íslandsbanka en í honurn hafa unglingar aðgang að bankaviðskiptum í rafrænu formi. f fréttatilkynningu kemur fram að XY.is dragi nafn sitt af litninga- kerfí mannslíkamans og vísar bæði í litninga karla og kvenna. Unglingar sem eru komnir á 12. aldursár fá hraðbankakort sem er jafnframt félagskort klúbbsins og þeir sem eru komnir á 14. ár fá debetkort sem gildir jafnt í versl- unum og hraðbönkum. Bæði kort- in gilda á sama hátt í útlöndum. Þeir sem ganga í klúbbinn fá að- gang að netbanka þar sem hægt er að fá yfirlit, sb.oða stöðu reikn- inga, millifæra, fylla á TAL frelsi, stofna sparireikninga og fleira. Hægt er að senda ókeypis SMS Islandsbanki - FBA hefur opnað nýjan vefbanka fyrir ungt fólk. skilaboð af síðunni og auk þess verður TAL með sérkjör fyrir þá sem kaupa áfyllingu í Netbankan- um. í Netbankanum er að finna upp- lýsingar um fjármál og reiknivél sem reiknar út sparnað og eyðslu. Eins geta XY.is félagar fylgst þarna með gengi hlutabréfa og gjaldmiðla. iPulse samskiptabún- aður frá OZ.COM fylgir með en iPulse leitar fólk uppi og sendir skilaboð í GSM sima ef móttakandi er ekki við tölvuna sína. FóðringaeFni-legubrons SINDRI Borgartúni 31 • s. 575 0000 • www.sindri.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.