Morgunblaðið - 19.08.2000, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 19.08.2000, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 31 ERLENT Hugmyndir um nýja kynslóð Concorde fá dræmar undirtektir Kostnaður og mengun helstu hindranir París. AFP. Reuters Concorde-þota sést hér taka á loft. Könnun er nú hafin á möguleikum á að þróa nýjan, umhverfisvænan arftaka hennar. KÖNNUN er hafin á möguleikum á að þróa nýjan, umhverfisvænan arf- taka Concorde-þotunnar sem vai' farin á nálgast úreldingu nokkru áð- ur en þota Air France fórst við París með þeim afleiðingum að 113 manns létust. „Þetta markar ekki endalokin á hljóðfráu flugi,“ sagði Jean-Claude Gayssot, samgönguráðherra Frakk- lands, eftir að bresk og frönsk flug- málayfirvöld settu flugbann á Concorde af öryggisástæðum fyrr í vikunni. Áætlað var að Concorde yrði tekin úr notkun eftir sjö ár og voru frum- athuganir hafnar á möguleikanum á smíði nýrrar gerðar áður en slysið varð í París. í september í fyrra skip- aði franska stjómin nefnd til að skoða „möguleikana á að þróa fjár- hagslega raunhæfa hljóðfráa flugvél sem tæki tillit til umhverfisreglu- gerða og gæti tekið við af Concorde." Enn fremur hafa frönsku og þýsku flugvélaframleiðendurnir Áero- spatiale og DASA, sem nú eru hluti af evrópsku flugvélasamsteypunni EADS, ásamt breska fyrirtækinu British Aerospace, unnið við þróun arftaka Concorde síðan 1994. Er nú miðað að því að hanna nýja þotu sem gæti um 250, og haft sama far- flugshraða, tvöfaldan hljóðhraða, en tvöfalt meira flugþol, allt að 10 þús- und km en eyddi helmingi minna eldsneyti, sagði Jean-Claude Pilon, yfirmaður þróunarverkefnisins hjá EADS. Nýja Concorde-þotan myndi engu að síður geta flutt mun færri farþega en hefðbundnar farþegaþotur nútím- ans en hún myndi geta flogið yfir Kyrrahafið sem gamla Concorde gat ekki. En helsta áhyggjuefnið er kostnaðurinn og áhrifin á umhverfið þar eð „grænir" þættir eru nú mun veigameiri en þeir voru fyrir 24 árum þegar Concorde rauf í fyrsta sinn hljóðmúrinn. En jafnvel þá urðu mótmæli vegna hávaða og mengunar og fékkst ekki leyfi til að fljúga þot- unni til New York í heilt ár eftir að farþegaflug hófst. í fyrra hótuðu bandarísk yfirvöld á ný aðbanna þot- una á þarlendum flugvöllum. Evrópskt samvinnuverkefni EADS segir að þróun nýrrar þotu miðað við eftirspum eftir 500 til 1.000 vélum fyrir 2020 myndi kosta um 15 milljarða dollara eða sem svarar um tólf hundruð milljörðum íslenskra króna. Gayssot sagði að Frakkar myndu ekki ráða við verk- efnið einir og að það yrði að verða evrópskt samvinnuverkefni „eða jafnvel alheimsverkefni, kannski með þátttöku Bandaríkjamanna.“ En Dan Solon hjá flugmálaráð- gjafafyrirtækinu Ávmark Inter- national, sagði að það væri „ná- kvæmlega enginn áhugi hjá stjómvöldum í Evrópu eða G7-ríkj- um fyrir því að eyða peningum skatt- borgaranna í verkefni sem hefði svona þröngt markaða arðsemi." Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing hefur nú engin áform uppi um þróun hljóðfrárrar þotu. „Þetta er auðvitað tæknilega mögulegt en gengur ekki upp fjár- hagslega," sagði Seddik Belyamani, markaðsstjóri farþegaflugsdeildar Boeing. „Það væri mjög dýrt að reka þotuna og það væra ekki nógu marg- ir farþegar reiðubúnir að borga þetta háa fargjald.“ Menn eru ekki eins svartsýnir þegar rætt er um möguleikann á hljóðfráum einkaþotum sem myndu bera átta til tíu farþega og verða smíðaðar fyrir strangt skilgreindan markað. Franski flugvélaframleið- andinn Dassault og bandarísku fyr- irtækin Gulfstream og Lockheed- Martin em að íhuga slíka þotu þótt enn sé ekkert komið á teikniborðið. Solon sagði að framtíðin væri lík- lega fólgin í stóram einkaþotum, þrjátíu til fjörutíu sæta, í sameign og sameiginlegum rekstri nokkurra fyr- irtækja. Jafnvel þótt kostnaðar- og stærðarþættir yrðu yfirstignir myndu „grænu“ öflin á endanum koma í veg fyrir að ný kynslóð hljóð- frárra þotna kæmist í loftið. „Nú er aðalmálið að leysa þann vanda sem snýr að umhverfisþáttum, hávaðann, hljóðhöggið, mengun,“ sagði Pilon. Hyggjast krefjast bóta Þýskur lögfræðingur fómarlamba slyssins í París sagði á föstudaginn að hann hyggðist krefjast bóta fyrir hönd skjólstæðinga sinna, og yrði krafan lögð fram í Bandaríkjunum, þar sem skaðabótagreiðslur eru yfir- leitt mun hærri en þekkist í Evrópu. Lögfræðingurinn býst við að hefja samningaviðræður við tryggingafé- lög Air France innan skamms, í þvi augnamiði að höfða mál í Bandaríkj- unum. Einn farþega þotunnar var Bandaríkjamaður, og segir lögfræð- ingurinn það gera sér kleift að höfða mál fyrir hönd allra skjólstæðinga sinna, sem eru fjölskyldur 15 þeirra 97 þjóðverja sem fórust með þotunni. Frakkland Kvenna- skortur á þingi París. The Daily Telegraph. FRÖNSK löggjöf sem kveður á um jafnt hlutfall kynjanna í kosningum hefur ekki haft áhrif sem skyldi þar eð franskar kon- ur virðast tregar til að gegna pólitískum stöðum. Eftir að löggjöfin var loks samþykkt, eftir miklar deilur á þingi, var henni lýst af Nicole Pery, ráðherra sem fer með málefni kvenna, sem „söguleg- um áfanga fyrir konur til jafn- réttis“. Þeir sem hafa hom í síðu þessara laga hafa þó gagnrýnt framkvæmdina og segja hana óframkvæmanlega. Stjómmála- flokkar í landinu eru í ríkara mæli að komast á þá skoðun en talið er að samanlagt þurfi stjómmálaflokkamir að leita fanga hjá 40.000 konum sem gegnt geta embættum hjá sveit- arstjóraum fyrir kosningamar á næsta ári. Ef þetta mun ekki takast verða flokkamir sektaðir. Anne Hidalgo, ráðgjafi Perys, sagði flokkana verða að leita til kosningastjóra og stuðnings- manna í grasrótinni. „Það fer fjöllum hærra að þrýst sé á eig- inkonur stjómmálamanna um að gefa kost á sér,“ sagði Hid- algo. Sagði hún að reynt væri að leita fanga hjá konum í atvinnu- Ufinu en að þeim hugnist alls ekki að komast til metorða í stjómmálum. Á þinginu sitja 557 þingmenn, þar af 62 konur. Mazda 323 F Fyrir aðeins 19.884 kr. Opið laugardaga frá kl. 12-16 á. ttiánuöi* veröur Afuzíiii 323 F þinn bíll U ABS hemlalæsivörn.TCS spólvörn • Útvarp, geislaspilari og fjórir hátalarar • Framsætisbak sem breyta má í hentugt borb • Upphitabir og rafstýrbir hlibarspeglar • Þriggja ára eba 100.000 km ábyrgb SkúlagÖtu 59, slmi 540 5400 www.raesir.is isafjöröur: Bilatangi ehf. Akurcyri: BSA hf. Egilsstaöir: Bilasalan Fell Selfoss: Betri öllasalan Vestmannaeyjar: Bifreiöaverkstæöi Muggs Akranes: Bilis Keflaylk: Bilasala Keflavlkur Hornafjörður: Véismiöja Hornafjarðar •Mazda 323 F. Verb 1.5S0.000 kr. Me&algrei&sla á mánu&i m.v. 10.8.2000, 500.000 kr. útborgun/uppitöku, bílalán f 84 mánu&i, 8,3% vexti og 5% ver&bólgu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.