Morgunblaðið - 19.08.2000, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.08.2000, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Húseigendur á Hraunbrún 16 fengu viðurkenningu fyrir fallega útfærslu á garði þar sem hraunið fær að njúta sín. lega aðkomu og garð þar sem gijótið fær að njóta sín. Eigendur eru Guðmundur Leifsson og Kristrún Run- ólfsdóttir. Þúfubarð 8, fyrir fallegan og rótgróinn garð í áraraðir. Eigendur eru Nikólina Ein- arsdóttir og Sigfús Svavars- son. Hjallabraut 96, fyrir fal- Iegan og hlýlegan garð, en húsið eiga Baldur Ólafsson og Halla Guðmundsdóttir. Furuhlíð 3, fyrir fallegan og vel skipulagðan garð. Húseigendur eru Arnbjörn Leifsson og Sjöfn Jóhanns- dóttir. Lækjarberg 8, fyrir falleg- an garð í uppbyggingu. Eig- endur eru Guðmundur Rún- ar Ólafsson og Linda Björk Magnúsdóttir. Klapparholt Fegrunarnefnd Hafnarfjarðar Víðivangur stjörnugata ársins FEGRUNARNEFND Hafn- arfjarðar veitti á fimmtudag 14 aðilum viðurkenningu fyrir fegurstu lóðir og garða í bænum og tilkynnti auk þess um val á Víðivangi sem stjörnugötu Hafnarfjarðar 2000. Ekki var valinn fegursti garðurinn heldur valdir nokkrir garðar, gamlir og nýir og mismunandi að gerð og uppbyggingu, sem þóttu verðir viðurkenningar fyrir fegurð, fegrun og snyrti- mennsku. Eigendur 12 íbúðarhúsa hlutu viðurkenningu: Þrúðvangur 2, fyrir fjöl- breyttan, vel hirtan og rót- gróinn garð. Eigendur eru Ægir Bessason og Guðný Sigríður Arnbergsdóttir. Norðurvangur 26, fyrir fallegan og vel hirtan garð. Eigendur eru Ragnar Karls- son og Oddný Þórisdóttir. Hraunbrún 16, fyrir fal- lega útfærslu á garði þar sem hraunið fær að njóta sín. Eigendur: Hallgrímur Guð- mundsson og Erla Friðleifs- dóttir. Einiberg 27, fyrir fallega Víðivangur er stjörnu- gata Hafnarfjarðar árið 2000. aðkomu og fjölbreytt sumar- blóm, ræktuð af húsráðend- um, Valdemar Pálssyni og Ingibjörgu Sigmundsdóttur. Háaberg 17, fyrir fallegan og fjölskylduvænan garð með miklum og fjölbreyttum gróðri en húsið er í eigu Benedikts R. Steingrímsson- ar og Kolbrúnar Sigurðar- dóttur. Lækjarberg 14, fyrir fal- Hafnarfjörður Morgunblaðið/Ásdís Raðhúsalengjan við Vörðuberg 20-24 hlaut viðurkenningu fyrir fallega aðkomu, frágang og samvinnu húseigenda. Þúfubarð 8 hlaut viðurkenningu fyrir fallegan og rótgró- inn garð í áraraðir. 10-12, fyrir fallega og snyrtilega lóð við fjölbýlis- hús. Vörðuberg 20-22-24, fyrir fallega aðkomu, frágang og samvinnu við raðhúsalengju en eigendur eru Eiríkur Þor- Ieifsson og Þóra Erlendsdótt- ir, Þröstur Björgvinsson og Þuríður Þórólfsdóttir og Sig- urður Ketilsson og Guðrún Hjálmarsdóttir. Tvö fyrirtæki fengu viðurkenningu Þá hlaut Gámaþjónustan, Berghellu 1, viðurkenningu fyrir snyrtilega umgengni sem er talin til fyrirmyndar vegna aðstæðna og Skútan, Hólshrauni 3, fékk viður- kenningu fyrir fallega og snyrtilega aðkomu að fyrir- tæki. Nytjajurta- garður í Laugardal Laugardalur NYTJAJURTAGARÐUR hefur verið opnaður í Grasa- garði Reykjavíkur. Þetta er ný safndeild í garðinum sem er ætlað að gefa sýnishorn af þeim nytjajurtum sem hægt er að rækta hér á landi. í garðinum eru um áttatíu tegundir og yrki af margvís- legum nytjajurtum; káli, rófum, rabbarbara, kartöfl- um, salati, berjarunnum, kryddtegundum og korni. Nytjajurtagarðurinn stendur austan við Lauga- tungu, sem er lítið hús við aðalinngang Grasagarðsins. Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir, borgarstjóri, oþnaði garðinn með því að klippa á borða. Ungling'ar skemmta leikskóla- börnum Hafnarfjörður LISTAHÓPUR Vinnuskól- ans í Hafnarfirði heimsótti leikskóla bæjarins á þriðju- dag og skemmti leikskóla- börnunum með frumsömdu leikriti sem heitir Benni bangsi. Framan af sumri voru 15- 16 ára unglingar í listahópn- um og stóðu þeir fyrir mörg- um uppákomum í bænum, skemmtu t.d. á 17. júní hátíð- arhöldum og Víkingahátíð- inni. Nú hafa 14 ára unglingar tekið við starfsemi listahóps- ins og fóru á þriðjudag í leik- skólana að sýna leikritið Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Benna bangsa sem þau hafa sett saman og æft. Flokks- stjóri hópsins og leikstjóri er Sara Guðmundsdóttrr. Skotmenn krefjast frestunar framkvæmda Grafarholt GUÐMUNDUR Kr. Gísla- son, gjaldkeri Skotfélags Reykjavíkur, segir að félagið missi æfingasvæði sitt á mánudag þegar vegurinn upp að Leirdal, þar sem reykvískir skotmenn hafa stundað æfingar frá 1950, verður rofinn. Félagið verð- ur að víkja af svæðinu vegna uppbyggingar í Grafarholti en hefur ekki fengið nýtt svæði til afnota. Guðmundur segir að fram- kvæmdirnar muni leiða til þess að einn íslensku Ólymp- íufaranna, Alfreð Karl Al- freðsson, missi æfingaað- stöðu sína síðustu 10 dagana fyrir brottför til Sydney í Ástralíu. Hann vill að fram- kvæmdirnar verði stöðvaðar þar til hægt verður að flytja starfsemi skotmanna á ann- að svæði. Guðmundur sendi borgar- fulltrúum bréf í gær þar sem aðgerðarleysi borgaryfir- valda er kennt um það að starfsemi þessa elsta íþróttafélags landsins lamist um óákveðinn tíma frá og með mánudeginum. „Við- ræður um framtíðarsvæði fé- lagsins hafa nú staðið í 4 ár án þess að landsvæði finnist í borgarlandinu. Embætti borgarverkfræðings hefur haft með málið að gera en lausn ekki fundist. Ljóst er að mál þetta er hið alvarleg- asta en ýmsir fleiri aðilar en Skotfélagið hafa fengið afnot af svæðinu. Sem dæmi má nefna að eini löglegi staður- inn til að skjóta af rifflum er hjá Skotfélaginu og við lok- un þess munu skotvopna- námskeið lögreglunnar í Reykjavík falla niður. Enn fremur hefur embætti Ríkis- lögreglustjórans haft þar að- stöðu fyrir innra starf sitt,“ segir í bréfi Guðmundar. Elsta íþróttafélag Iandsins 766 félagsmenn eru í Skotfélagi Reykjavíkur, sem upphaflega var stofnað 1867 og er því elst íþróttafélaga í landinu. Félagsmenn hafa frá 1950 æft í Leirdal og hafa staðið þar fyrir mikilli uppbyggingu. Þar eru nú þrír „skeet“-vellir, þ.e. vellir fyrir leirdúfuskotfimi, sem er Ólympíuíþrótt. Tveir vall- anna eru enn í notkun. Þar hafa einnig verið reistir þrír upphitaðir turnar utan um vélarnar sem skjóta leirdúf- um út á skotvellina. Þá stendur á svæðinu þriggja ára gamalt 100 fermetra fé- lagsheimili og annað nýlegt 55 fermetra heilsárshús. Einnig eru skotmenn með um 20 fermetra hús þar sem félagsmenn hlaða riffilskot sín og loks er skammbyssu- húsið þaðan sem skotið er með rifflum eða skammbyss- um út á skotmörk í 25-500 metra færi. Varlega áætlað er matsverð eignanna, að sögn Guðmundar, 40-50 m.kr. I máli hans kemur fram að skotmenn séu sérstaklega ósáttir við að borgaryfirvöld hafi ekki sent formlega upp- sögn á lóðarleigunni til fé- lagsins heldur hafi félagið fyrst frétt af fyrirhuguðum framkvæmdum í Grafarholti þegar hönnunarsamkeppni um skipulag svæðisins var auglýst 1996. Skotmenn hafi þá snúið sér til borgarinnar með ósk um nýtt félagssvæði en sú málaleitun hafi engan árangur borið. Að vísu hafi verið unnið í málinu á vegum borgarverkfræðings en án niðurstöðu. Um tíma voru skotmenn með augastað á landi í Sólheimakoti, einka- jörð í grennd við Rauðavatn og landi við Kollafjörð en það leiddi ekki til niður- stöpu. Á sama hátt segir Guð- mundur skotmenn ósátta við að hafa ekki fengið fregnir frá borgaryfirvöldum um að svæði þeirra yrði ónothæft á mánudag heldur hefðu þeir frétt það frá verktökum. Það orð hefur farið af skotæfingum að þeim fylgi blýmengun í jarðvegi, auk hávaða, en Guðmundur segir skotmenn reiðubúnna að stunda einungis æfingar með stálskotum í stað blýskota, auk þess sem þannig verði gengið frá nýju æfingasvæði að hreinsun jarðvegs verði auðveld og mengun berist ekki jarðlög. Þá segir hann að ný heilbrigðisreglugerð setji skilyrði sem geri skot- svæði afar umhverfisvæn og hentug til staðsetningar í jaðri byggðar hvar sem er á höfuðborgarsvæðinu. Guðmundur segir for- svarsmenn Skotfélagsins muni fljótlega ganga á fund borgarstjóra „og fá á hreint hvert hennar hugur stefnir,“ segir hann. Þótt unnið hafi verið í málinu komi ekkert út úr vinnunni og taka þurfi ákvarðanir. Margir félagsmenn Skot- félagsins stunda æfingar með alþjóðlega keppni í huga. Um þessar mundir eju sex félagsmenn í hópi sjö ís- lendinga á Norðurlandamóti í Finnlandi, sem fram fer um helgina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.