Morgunblaðið - 19.08.2000, Side 14
14 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ljósmynd/Snorri Snorrason
Horft til austurs í átt að Snæfelli frá svæðinu við Kringilsárrana. Utlit er fyrir að Töfrafoss í Kringilsá liverfi undir Hálslón.
yvldamótaskógar
- skógi’æktargjöf til þjóðaHnnai' -
Skógi'æktat'félag C^slands, aðlldat'féldg
þess og Bánaða»*bankl»m/ dsamt fleli'l
samstat'fsaðllum fæm þjóðinnl gjðf.
C^óðui'setta*1 venða alis 280 þósund t»ijdjí!ðntu»l á
flmm stððum á landinu í tllefnl 70 át'a afmælis félagsins,
ein planta fynV hvern nulifandi CTslending!
Fólk et1 hvatt tii þess að
taka þótt í gt'óðunsetningu
sem hefst almennt kl» IOíOO
laugardaglnn 19» ágúst,
VeHð veikomm!
Skógt'sektat'félag dsiands þakkan öllum elnstaklingam,
fyrlrtækjum og stofhwnMm, fyrir stuðning á liðnum órum,
- JVénari upplýsingar í s, 561-8150 -
SSS^SKÓGRÆKT
/ÖOC RírasiNS
® BÚNAÐARBANKINN
Tramtur banld
www.bi.is
jf*
%flt
Landgræðsla ríkisins
UIÍHVBiflSSJÓDUE
KtSlllHUilMI
Veitm^av í boði Ölgcvðav ísgils Skallagrímssonat1 og Mylimmav
Sm
VEGAGERÐIN
V
J
Töfrafoss í Kringilsá
undir lón?
HLUTI af svæðinu við Kringils-
árrana, sem er við Brúarjökul ny-
rst í Vatnajökli, fer undir Hálslón
komi til stíflugerðar vegna Kára-
hnjúkavirkjunar. Neðsti hluti
Kringilsár, sem rennur í Jökulsá
á Dal, lendir einnig undir vatni.
Lónið við Dimmugljúfur og
Kárahnjúka yrði 57 ferkflómetrar
að stærð og lægsta vatnsborð
þess í 550 metra hæð yfir sjó.
Lónið yrði nærri 20 km langt,
nær frá Kárahnjúkum í norðri og
suður að Vatnajökli.
I Kringilsá er fossinn Töfrafoss
sem ekki mjög margir hafa aug-
um litið og er útlit fyrir að hann
lendi undir Hálslóni ef til fram-
kvæmda kemur.
Forseti ISI um ferðakostnað sérfræðinga
Gagnrýnir
Ríkisútvarpid
ELLERT Schram, forseti íþrótta-
sambands íslands, sagði í gær að
hann gerði ekki athugasemdir við
það að Frjálsíþróttasamband Is-
lands og Sundsamband Islands
greiddu ferðakostnað Þráins Haf-
steinssonar og Guðmundar Harð-
arsonar á Ólympíuleikana í Sydney
í Ástralíu, þar sem þeir munu sem
sérfræðingar lýsa keppni í frjálsum
annars vegar og sundi hins vegar
ásamt íþróttafréttamönnum Sjón-
varps, en gagnrýnir Ríkisútvarpið.
„Ég hefði haldið að Ríkissjón-
varpið hefði metnað til að greiða
undir það fólk, sem það ætlar að
hafa í þjónustu sinni þarna úti,“
sagði Ellert. „En ég geri engar at-
hugasemdir að því er varðar
íþróttasamböndin ef þau vilja
leggja í þann kostnað. Ég hef ekki
afskipti af því.“
Hann játti því að þessi íþrótta-
sambönd hefðu verið í fjárkrögg-
um, en þau yrðu að velja og hafna
þegar ákveða þyrfti hvaða útgjöld
ætti að leggja út í.
„Ef þau meta það svo að þetta sé
mikilvægt fyrir þeirra hagsmuni er
það þeirra ákvörðun," sagði Ellert.
Listi yfír þá sem brotið
hafa af sér í Vatns-
fjarðarfriðlandi
ÞRÖSTUR Reynisson, landvörður í
Vatnsfjarðarfriðlandi, hefur brugðið
á það ráð að hengja upp lista með
bílnúmerum þeirra sem brotið hafa af
sér innan marka friðlandsins. Listinn
hangir uppi í sölutumi í Flókalundi.
Um tíu númer eru nú á listanum.
Þröstur segir að listinn hafi skilað
tilskildum árangri. Hann segir þá
sem þekkja til listans sýna betri um-
gengni í friðlandinu. Bflnúmer þeiiTa,
sem fara ekki fullkomlega eftir þeim
reglum sem vegfarendum friðlands-
ins eru settar, eru hiklaust ski'áð.
Algengasta hegðun sem kemur
ferðalöngum friðlandsins inn á Iist-
ann er akstur utan vega, slæm um-
gengni og að vera með eld á svæðinu
sem er stranglega bannað, segir
Þröstur. „Ef skilið er við svæðið
þannig að þess sjáist merki að ein-
hver hafi verið þar má búast við að
lenda á listanum."
Þröstur segii’ að hugmyndin hafi
einkum komið til vegna þess mikla
fjölda ferðamanna sem fór um svæðið
síðari hluta júlí. Erfitt hafi verið að
hafa eftirlit með þeim fjölda.