Morgunblaðið - 19.08.2000, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Spár f im hagnað <3g rafmvanjíarjtjr hagnaðfjr
f> fyrri fííriRí ÍTCfrrc fifí fjrrírfTCfrjr/m cnm mynrí,-, Urvmfnvínifnfrr Vfif
Upphæðir I milljónum króna Meðalspá Raun- Hagnaður Frávik
verðbréfa- verulegur mínus meðalspár
Félag fyrirtækjanna hagnaður meðalspá fráhagnaði
Baugur hf. Búnaðarbanki íslands hf. 334 393 Ekki búið að skiia uppgjöri 339 -54 16%
Flugleiðir hf. -1274 -1197 77 6%
Grandi hf. 268 Ekki húið aö skila unnniöri
Hf. Eimskipafélag islands 660 523 -137 26%
Íslandsbanki-FBA hf. 1264 750 -514 69%
Landsbanki íslands hf. 573 503 -70 14%
Marel hf. 155 98 -57 58%
Opin kerfi hf. 180 137 -43 31%
Samherji hf. 394 Ekki þúið að skila uppgjöri Ekkibúið að skila uDoaiöri
-49
Skeljungur hf. 236 158 -78 49%
Tryggingamiðstöðin hf. 111 99 -12 12%
Þormóður rammi-Sæberg hf. 165 20 -145 723%
Össur hf. -2122 -3553 -1431 40%
Meðalspá Búnaðarbankans verðbréfa, Islandsbanka-FBA, Islenskra verðbréfa, Kaupþings, Landsbankans
viðskiptastofu og Landsbréfa
Of mikil bjartsýni
í spám verðbréfa-
fyrirtækj anna
ELLEFU fyrirtæki af þeim flmm-
tán sem mynda úrvalsvísitölu Verð-
bréfaþings íslands hf. (VÞÍ) hafa nú
skilað milliuppgjörum sínum. Fyrsta
júlí sl. birti Morgunblaðið spár nokk-
urra verðbréfafyrirtækja um af-
komu þessara félaga og sú niður-
staða sem nú liggur fyrir er töluvert
lakari en fram kom í spánum.
Eins og sjá má í meðfylgjandi
töflu skila öll fyrirtækin, að Flugleið-
um hf. undanskildum, verri afkomu
en verðbréfafyrirtækin spáðu og
munar að meðaltali 32% ef Þormóð-
ur rammi-Sæberg er tekinn út úr, en
skekkjan þar er afar mikiL Þessi fyr-
irtæki skila líka öll verri afkomu en í
fyrra, að undanskildum Opnum kerf-
um.
Skýringin á því að Flugleiðir eru
með betri niðurstöðu en verðbréfa-
fyrirtækin gerðu ráð fyrir er líklega
sú að í uppgjöri þess er skattskuld-
binding upp á 537 milljónir króna
sem komin er til af sölu eigna. Ef
þessi óreglulega tekjufærsla er tekin
út úr rekstrarreikningi félagsins er
tap þess 1.734 milljónir króna í stað
1.256 milljóna. Tap er þá 460 milljón-
um króna undir meðalspá sem þýðir
að frávik meðalspár írá hagnaði er
þá 27%.
fatnaði
Rýmum til
fyrir nýjum
vörum.
Aðeins
fjögur verð
f rá 500
NATAMA
TÍSKWÖRWVERSLWN - LAÖQAVEQI 87 - SÍMI 511 6665
30% minni hagnaður
Landsbanka Islands
HAGNAÐUR Landsbanka íslands
hf. minnkaði um 30% á fyrri helmingi
þessa árs frá sama tíma í fyrra og
var 503 milljónir króna nú en 722
milljónir þá. Eiginfjárhlutfall miðað
við CAD-reglur lækkaði lítillega og
var 8,7% í lok júní, en arðsemi eigin
fjár fór úr 14,8% í fyrra í 8,8% nú.
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, sagði í samtali
við Morgunblaðið að afkoma af hefð-
bundinni bankastarfsemi hefði batn-
að verulega. Hann taldi að þessi bati
væri um hálfur milljarður króna ef
tekin væri saman aukning í hreinum
vaxtatekjum og þóknunartekjum. Á
móti sagði hann bankann hafa orðið
fyrir tapi af markaðsskuldabréfa-
eign upp á svipaða tölu og þess
vegna sæist þessi bati ekki í hefð-
bundnu starfseminni.
Halldór sagði einnig að mikill
árangur væri að nást í lækkun
rekstrarkostnaðar og að það sæist
best á því að rekstrargjöldin á tíma-
bilinu hækkuðu um 10% en heildar-
eignir bankans ykjust um 20% frá
sama tímabili í fyrra. Halldór sagðist
telja að þetta sýndi að verið væri að
bæta grunnrekstur bankans veru-
lega milli ára.
Markaðsskuldabréf bókfærð á
660 m.kr. yfir markaðsverði
f Landsbanki íslands m. ÆLm Úr milliuppgjöri samstæðu 2000
Rekstrarreikningur jan. -júni 2000 1999 Breyting
Vaxtatekjur Milljónir króna Vaxtagjöld Hreinar vaxtatekjur Aðrar rekstrartekjur Hreinar rekstrartekjur Rekstrargjöld Framlag á afskriftarreikning Skattar Hagnaður af reglulegri starfsemi 9.640,4 6.721.7 2.918.7 1.576,0 4.494.7 3.287,0 526.3 178.3 503,1 7.025,0 4.467.3 2.557,8 1.720.4 4.278,2 2.974,7 565,1 16,6 721,8 +37,2% +50,5% +14,1% -8,4% +5,1% +10,5% -6,9% +974,1% -30,3%
Hagnaður tímabilsins 503,1 721,8 -30,3%
Efnahagsreikningur 30.06.OO 31.12.99 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 216.477,2 193.139,8 +12,1%
Eigið fé 11.602,7 11.436,2 +1,5%
Skuldir 204.874,5 181.703,6 +12,8%
Skuldir og eigið fé samtals 216.477,2 193.139,8 +12,1%
Kennitölur jan. -júní 2000 1999 Breyting
Arðsemi eigin fjár 8,8% 14,8%
Eiginfjártilutfall 8,7% 8,8%
Vaxtamunur 2,9% 3,0%
Vaxtahækkun á fyrri hluta ársins
gerði það að verkum að markaðs-
skuldabréf féllu í verði og sést þessa
stað í eignasöfnum fjármálafyrir-
tækja. Landsbankinn átti í lok júní
samanlagt 25,7 milljarða króna í
markaðsskuldabréfum, þar af 10,3
milljarða í veltubók en 15,4 milljarða
í fjárfestingarbók. Þau bréf sem
færð eru í fjárfestingarbók þarf ekki
að færa á markaðsverði og var bók-
fært verð þeirra 660 milljónum
króna yfir markaðsverði. Þetta þýðir
með öðrum orðum að hefðu þessi
bréf verið lækkuð niður að markaðs-
verði og færð til gjalda í rekstrar-
reikningi hefði bankinn verið rekinn
með tapi á fyrri helmingi ársins. Á
móti má nefna að bankinn á töluvert
af skráðum hlutabréfum í fjárfest-
ingarbók og eru þau vanmetin um
407 milljónir króna í reikningum
bankans.
Gæði útlána að aukast
Landsbankinn greiddi 550 milljón-
ir króna inn á afskriftareikning í ár
en 570 milljónir fyrir sama tímabil í
fyrra. Spurður um þessa lækkun og
útlán bankans almennt sagðist Hall-
dór teija að gæði þeirra hefðu aukist
á fyrstu sex mánuðum ársins. Út-
lánaaukningin hefði aðallega verið í
gegnum fjárfestingarbankastarf-
semina til stórra fyrirtækja vegna
fjárfestinga, en aukningin hefði verið
mun minni til almennings í gegnum
almenna viðskiptabankakerfið.
Halldór var spurður hvort ástæða
væri til að hafa áhyggjur af að eigin-
fjárhlutfallið hefur lækkað úr 9,6%
um áramót í 8,7% um mitt ár. Hann
sagðist ekki telja svo vera, því á fyrri
hluta ársins hefði verið greiddur út
arður og hlutfallið mundi hækka á
seinni hluta ársins. Stefna bankans
væri að vera með eiginfjárhlutfall á
bilinu 9-10%.
Á fundi bankaráðs Landsbankans
í gær var samþykkt að koma á kaup-
aukakerfi fyrir starfsmenn. Kerfið
er tvíþætt, annars vegar kaupauki
sem byggist á því að rekstrar-
markmiðum bankans hafi verið náð
og hins vegar kaupréttur að hluta-
bréfum í bankanum.
Morgunblaðið/Sverrir
Landsbanki íslands tapaði um hálfum milljarði króna af markaðsskuldabrófaeign á fyrri hluta ársins.
Mikil viðskipti með hlutabréf
deCODE á formarkaði í gær
GENGI á hlutabréfum deCODE
genetics hækkaði um 2,5 Banda-
ríkjadali í viðskiptum á Nasdaq í
gær og var lokagengið 27,06, en
hæst fór gengið í 30,50 í gærmorg-
un. Lokagengið í fyrradag var
24,56 Bandaríkjadalir.
Benedikt Pálmason, sérfræðing-
ur hjá Búnaðarbanka íslands-
Verðbréfum, segir að mikil við-
skipti hafi verið á formarkaðnum í
Bandaríkjunum. Það séu viðskipti
sem eigi sér stað utan hefðbundins
tíma, þ.e. áður en opnað er. Hann
segir að viðskiptin á formarkaðnum
hefðu verið með tæplega 80 þúsund
hlutabréf, sem sé mun meira en
venjulega. Á hádegi vestanhafs hafi
veltan verið komin í 1,8 milljónir
bréfa. „Þetta er feikilega mikil
velta en hún nemur um 51 milljón
Bandaríkjadala og er mesta velta
sem orðið hefur með bréf í
deCODE hingað til fyrir utan
fyrstu tvo dagana er bréfin voru
boðin til kaups. Ég tel að íslend-
ingar eigi einhvern þátt í þessum
viðskiptum. Gengið var svo að
trappast niður eftir því sem leið á
daginn,“ segir Benedikt.
Islensk erfðagreining og F. Hoff-
mann-La Roche tilkynntu í gær að
vísindamenn íslenskrar erfðagrein-
ingar hefðu kortlagt erfðavísi sem
leggur nokkuð af mörkum til
myndunar alzheimer-sjúkdómsins.