Morgunblaðið - 19.08.2000, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
URVERINU
Sumarstöðvar loðnu
. _ Isbrúnin i janúar
Hrygningarloðna
Síldar- og
loðnuseiði
Lirfurek, loðna
KAFBATURIN
KÚRSK
o
Lirfurek, sild
Gjöful fískimið í hættu
ENN hefur engrar geislunar orðið
vart frá kafbátnum Kursk sem sökk í
Barentshafi í upphafi vikunnar. í
Barentshafi eru ajfar gjöful fiskimið
og uppeldisstöðvar fiska. Norðmenn
og Rússar hafa því verulegar áhyggj-
ur af þessum málum, en engra við-
bragða hefur orðið vart á mörkuðum
fyrir fiskafurðir Norðmanna. Geislun
gæti haft gííúrlega neikvæð áhrif á líf-
ríkið í Barentshafi og lagt fiskistofna í
rúst. Þó geislun verði engin eða Mtíl og
áhrifin í samræmi við það, er hætta á
því að markaðurinn bregðist við með
þeim hætti að hann hafni fiski úr Bar-
entshafi um skemmri eða lengri tíma.
Norðmenn taka bróðurpartinn af
þorskafla sínum í Barentshafi og
sömu sögu er að segja af loðnunni, en
þarna eru einnig mikilvægar uppeld-
isstöðvar fyrir síld og loðnu.
Aukin þátttaka
Samherja í fískeldi
SAMHERJI hf. hefur fest kaup á
helmingi hlutafjár í íslandslaxi hf. í
Grindavík og 85% hlutafjár í Víkur-
laxi ehf. í Eyjafirði. Fjárfesting
Samherja í þessum félögum nemur
samtals um 215 milljónum króna.
Fyrir er Samherji næststærsti hlut-
hafinn í Fiskeldi Eyjafjarðar með
um 11% hlutafjár.
íslandslax hf. rekur strandeldis-
stöð við Grindavík og er framleiðslu-
geta hennar um 1.000 tonn á ári. Þá
rekur félagið seiðaeldisstöð við
Grindavík og eru núverandi afköst
stöðvarinnar um ein milljón seiða á
ári. Þá hefur íslandslax nú fest kaup
á seiðaeldisstöð að Núpum í Ölfusi
af Guðmundi A. Birgissyni. Fram-
leiðslugeta stöðvarinnar er tvær
- Félagið kaupir
50% hlut í íslands-
laxi og 85% hlut
í Víkurlaxi
milljónir seiða á ári. Víkurlax ehf. er
með fiskeldiskvíar í Grýtubakka-
hreppi í Eyjafírði og hefur verið
með laxeldi í sjó þar síðustu 11 ár.
Mikill vöxtur í fiskeldinu
„Það hefur verið mikill vöxtur í
fiskeldi í heiminum síðustu misseri
og við höfum trú á að sú þróun haldi
áfram. Aðstæður til fiskeldis hér
eru góðar og öll skilyrði fyrir hendi
til að atvinnugreinin eflist til muna í
náinni framtíð," segir Þorsteinn
Már Baldvinsson, forstjóri Sam-
herja.
Hann segir að margt bendi til
þess að á komandi árum muni æ
stærri hlutur þess fisks sem fer á
markað koma úr fiskeldisstöðvum.
„Það er yfirlýst stefna Samherja að
fylgjast ávallt sem best með þeirri
þróun sem á sér stað í sjávarútvegi
og svara kalli tímans. Áukin þátt-
taka félagsins í fiskeldi er liður í því.
Samherji hefur að undanförnu verið
með umfangsmikla starfsemi í
Grindavík og með kaupunum á hlut í
íslandslaxi eykur félagið þátttöku
sína í atvinnurekstri á svæðinu enn
frekar," segir Þorsteinn Már.
Lækkandi verð á þorskkvóta á Kvótaþingi
Verðið hefur ekki verið
lægra í 10 mánuði
VERÐ á þorskaflamarki á Kvóta-
þingi Islands hefur lækkað töluvert
að undanfömu og er nú komið nið-
ur fyrir 100 krónur í fyrsta sinn í
nærri heilt ár.
Þorskkvóti á Kvótaþingi fór nið-
ur fyrir 100 krónur á fimmtudag
eða í 98,22 krónur en í gær seldist
kflóið á 96,75 krónur en þá voru
viðskipti með alls 92.760 kíló. Verð-
ið fór síðast undir 100 krónur þann
25. október í fyrra, þegar kílóið fór
á 99,25 krónur, en þá voru viðskipti
með alls 10 tonn. Hæst hefur verðið
farið í 126,26 krónur þann 27. apríl
sl. en lægsta verð sem greitt hefur
verið fyrir þorskaflamark á Kvóta-
þingi er 84 krónur, 18. september
1998, á fyrsta starfsmánuði þings-
ins.
Alls urðu viðskipti með alls
380.946 kíló af þorskaflamarki á
Kvótaþingi íslands í vikunni og var
meðalverðið 101,12 krónur.
Verð á þorskaflamarki fór einnig
niður fyrir 100 krónur undir lok
síðasta fiskveiðiárs og segir Björn
Jónsson, fulltrúi hjá Landssam-
bandi íslenskra útvegsmanna, þessa
þróun eðlilega á þessum árstíma.
Töluvert framboð er af þorskkvóta
á þinginu en í gær seldust ekki tæp
250 tonn sem voru í boði. Nú þegar
aðeins eru tvær vikur eftir af fisk-
veiðiárinu eru alls 7.504 tonn eftir
af heildarþorskkvótanum.
Lítið framboð af ýsu og ufsa
„Það var mikil hreyfing á þorsk-
kvóta um og eftir páska og þá fór
verðið hátt. Síðan hefur hins vegar
verið tregari veiði en menn bjugg-
ust við og framboðið því aukist og
verðið lækkað. Útgerðarmenn eru
því margir að laga kvótastöðuna
hjá sér en þeir sem þurfa að kaupa
eru þolinmóðir og bíða eftir enn
frekari lækkun. Framboðið er
þannig meira en eftirspurnin," seg-
ir Björn.
Verð á ýsukvóta á Kvótaþingi
hefur aftur á móti hækkað lítillega
undanfarnar vikur, enda aðeins
rúm 1.700 tonn eftir af ýsukvótan-
um og útlit fyrir að hann klárist
fyrir fiskveiðiáramót. I gær voru
seld 57.693 kfló af ýsukvóta á
Kvótaþingi á 79,50 krónur og voru
þá enn ef'tir tilboð í tæp 48 tonn.
Ýsukvótínn hefur hæst farið í 91
krónu á Kvótaþingj en það var
þann 3. janúar sl. I vikunni urðu
viðskipti með alls 225.007 kíló af ýs-
ukvóta á Kvótaþingi og var meðal-
verðið 79,24 krónur.
Þá er einnig töluverð spurn eftir
ufsa á þinginu en í gær voru seld
rúm 15 tonn af ufsa á 41,02 krónur
en þá voru enn eftir tilboð í rúm
185 tonn. Alls voru viðskipti með
101.607 kfló af ufsakvóta í vikunni
og var meðalverðið 38,66 krónur.
Borunarheim-
ildum úthlutað
við Færeyjar
Tólf olíufyrirtæki mega hefja leit
Þórshöfn. Morgunblaðið.
ALLS fengu tólf fyrirtæki leyfi á
fimmtudag til að byrja að leita að ohu
á færeyska landgrunninu suðaustan
við eyjamar, nánar til tekið á svo-
nefndu Gullhomi. Eyðun Elttpr, sem
fer með olíumálin í landstjóminni, út-
hlutaði leyfunum en umsóknarfrest-
ur rann út 17. maí og höfðu þá 23 fyr-
irtæki sótt um. Af fyrirtækjunum 12
era tvö færeysk, Atlants Kolveltni og
Foroya Kolveltni, og geta þau nú leit-
að að olíu í samstarfi við alþjóðlegu
leitarfyrirtækin sem þau starfa með.
Mestar líkur era taldar á að oMa
finnist í Gullhominu sem er skammt
frá landgranni Hjaltlands. Úthlutun-
in fór fram við hátíðlega athöfn í Nor-
ræna húsinu í Þórshöfn á fimmtudag-
inn. Öll landstjórnin með Anfinn
Kallsberg lögmann í broddi fylkingar
var viðstödd ásamt fulltrúum á Lög-
þinginu.
Lokið var við fyrstu útboðslýsing-
una vegna olíuleitar 17. febrúar sl. og
fyrirtækin 23 lögðu fram samanlagt
17 umsóknir en mörg þeima eiga
þegar samstarf sín í milli. Úthlutað
var sjö leyfum að þessu sinni, þar af
fjóram í Gullhominu. Sunnan við lín-
una sem skiptir hafsvæðinu milli
Færeyja og Hjaltlands hefur fundist
mikið af olíu. Svæðin era misstór, frá
214 ferkílómetram upp í 1.278 fer-
kflómetra og gildistíminn einnig mis-
munandi, frá sex upp í níu ár.
Færeysku fyrirtækin starfa með
tveimur fyrirtækjum. Annars vegar
Faroese Partnership og vinna þar
saman Amerada Hess, British Gas,
DONG og Atlantic Petrolium en
síðastnefnda fyrirtækið er færeyskt.
Hins vegar Agip en þar starfa saman
ítalska fyrirtækið Agip og færeyska
fyrirtækið Atlants Kolveltni. Fengu
fyrirtækin tvö, sem Færeyingar eiga
sjálfir aðild að, úthlutað svæðunum
sem talin eru álitlegust, þau liggja
næst bresku svæðunum og Bretar
stunda þegar oMuvinnslu skammt
frá. Líkurnar á oMufundi eru taldar
verulegar vegna þess að hafsbotninn
þai' sem nú verður heimilað að bora
er svipaður botninum þar sem Bretar
stunda vinnsluna.
Norsk Hydro og Texaco hafnað
Önnur fyrirtæki sem fengu leitar-
leyfi era norska Statoil, PhilMps, Ent-
erprice, Veba, BP Amoco og Anarda-
ko. Meðal fyrirtækjanna sem ekki
fengu leitarheimild era Norsk Hydro
og Texaco. Er talið sennilegt að þau
muni draga sig alveg út úr áætlunum
um oMuleit við Færeyjar en Elttpr
segist samt vona að þau muni taka
þátt í næsta útboði sem Mklega verð-
ur eftir nokkur ár. Við úthlutunina
var þeim fyrirtækjum hyglað sem
hafa látið í Ijós eindreginn vflja til að
kanna fleiri svæði en Gullhornið og
nýta færeyskt vinnuafl.
Að sögn Herálvs Joensen, yfir-
manns olíumálaráðs Færeyja, munu
fyrirtækin 12 verja um hálfum öðram
milljarði danskra króna, sem svarar
14 milljörðum ísl. kr., í fyrstu tilraun-
imar til að finna olíu á færeysku
svæði. Einnig munu þau veija 100
milljónum, tæpum milljarði ísl. kr., í
að þjálfa færeyskt starfsfólk til
starfavið olíuleitina. Samkvæmtfær-
eyskum lögum ber fyrirtækjunum að
nýta sér aðstöðu í höfnum landsins
við leitina og færeyskt vinnuafl og
fyrirtæki eftir mætti. Telur Joensen
að þau hafi hlítt þeim ákvæðum.
Joensen álítur að búast megi við að
fyrstu boranir hefjist í ágúst og sept-
ember á næsta ári. Beri leitin árang-
ur er gert ráð fyrir að raunveraleg ol-
íuvinnsla muni hefjast eftir fimm ár.
Tekjur Færeyinga geta orðið miklar,
fyrirtækjunum er gert að greiða 27%
skatt auk sérstaks koltvísýrings-
katts.
Elttor varaði í ræðu sinni fólk við
of miklum væntingum um skyndilegt
olíuævintýii. „Sem stendur eram við
á stigi olíuleitarinnar, ekki olíu-
vinnslu,“ sagði hann.
Mistök við kynningu á lífeyrisreglum
Kostnaður talinn
nema milliörðum
Lundúnum. Reuters.
FYRIR mistök brezkra stjómvalda
hafa ekkjur og ekklar þar í landi ekki
verið upplýst um löngu ákveðnar
breytíngar á ellilífeyrisreglum og
munu mistökin valda brezka ríkis-
sjóðnum um 13 milljarða punda auka-
útgjöldum, andvirði um 1550 millj-
arða króna. Kemur þetta fram í nýrri
skýrslu þingnefndar, sem sinnir eft-
irUti með reikningshaldi ríkisins.
I skýrslunni era það sögð alvarleg
mistök af hálfu stjórnvalda, að hafa
ekki kynnt eins og vera bar niður-
skurð í ellilífeyriskerfi ííkisins (SER-
PS), sem fólst í því að greiðslur til
ekkna og ekkla hefðu lækkað um
helming þegar nýju reglurnar áttu að
taka gildi í aprfl sl.
Ákvörðun um reglubreytingarnar
var tekin árið 1986, þegar ríkisstjórn
íhaldsflokksins var við völd, en engin
tilraun var gerð til að kynna þeim
sem ákvörðunin snerti breytingam-
ar, allt fram á þetta ár. Eftir að upp-
víst varð um mistökin hét félagsmála-
ráðherra núverandi ríkisstjórnar
Verkamannaflokksins, Alistair Darl-
ing, því í marz sl. að gildistöku nýju
reglanna yrði frestað fram í október
2002. Vísaði Darling á fimmtudag
ábyrgðinni á mistökunum til íyi'ir-
rennara sinna í embætti.
Að sögn þingnefndarinnar má ætla
Brezkar ekkjur.
að mistökin hafi valdið því að þúsund-
ir brezkra borgara hafi gert áætlanir
um framtíðina á grandvelli þess að
þeir fengju greiddan að fullu lífeyri
látins maka. Segist nefndin reikna
með að tilraunir til að bæta úr mis-
tökunum og fresta gildistöku reglu-
breytinganna muni þegar upp verði
staðið kosta brezka skattborgara um
13 milljarða punda, eða 1550 millj-
ai'ða króna.