Morgunblaðið - 19.08.2000, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 43
LISTIR
„Þær voru að fara út að dansa
þegar ég kom.“ Mynd frá
Viitasaari í Finnlandi.
nunna þótt hún væri að njóta
næturlífsins." Mynd frá
Baskalandi.
Ljósmynd/Halldór B. Runólfsson
Ein af myndunum á sýningunni í Galleríi Man.
V eröld sem var
Frásögn ljós-
myndarans
MYJVPLIST
Listasafn Reykja-
víkur / Halnarliús
RAX RINNEKANGAS
LJÓSMYNDIR
Sýningin er opin frá 10 til 18 og
stendur til 23. ágúst.
RAX Rinnekangas er fjölhæfur
listamaður og eftir hann liggja ekki
aðeins átta ljósmyndabækur heldur
einnig kvikmyndir, greinasöfn,
ljóðabækur, smásögur og skáldsög-
ur. Myndirnar sem hann sýnir nú í
Listasafni Reykjavíkur eru hluti af
afar metnaðarfullu verkefni sem
einnig hefur verið gefið út í stórri
Ijósmyndabók í folio-broti. Yfir-
ski-iftin er „Spiritus europæus" eða
hinn evrópski andi og myndirnar eru
teknar hér og þar í Evrópu, frá
Rússlandi suður til Spánar og meira
að segja er hér að finna myndir frá
Islandi, til dæmis mynd af þeim
Huldu Hákon og Jóni Oskari fyrir
framan málverk eftir Jón. í þessum
myndum reynir Rax að fanga kjarna
hins evrópska, ekki glansyfirborðið
sem fréttatilkynningar frá Brussell
sýna okkur eða einhverja hug-
myndafræði um hina sönnu Evrópu
heldur andann eins og hann birtist í
fólki, borgarlífi og landslagi. Fjöl-
breytileiki hins hversdagslega virð-
ist vera Rax efst í huga og myndir
hans eru ávallt yfirlætislausar og
kyi’rlátar. Mannamyndirnar eru
uppstilltar, þó án nokkurs tildurs, og
vandlega undirbúnar, lýstar og
hugsaðar út frá byggingu og lit-
brigðum.
Jafnvel götumyndir virðast vera
unnar eins og um stúdíóverk væri að
ræða.
Þessi vandvirkni og rólega nálgun
Fantasíur
og landslag
í Múlalundi
VALGARD Jörgensen sýnir nú í
kaffistofu Múlalundar, Hátúni lOc.
Myndirnar eru sextán að tölu og all-
ar til sölu. „Þær eru af ýmsum gerð-
um, bæði fantasíur og landslag,“ seg-
ir Valgard.
„Flestallar eru myndirnar gerðar
með olíupastel á flauelspappír, hann
er hálfloðinn og það gerir það að
verkum að myndirnar eru mikið lif-
andi. Ein þeirra, sem ég kalla Nafla
veraldar, er þó gerð á pastelpappír
með krítarpastel," heldur hann
áfram.
Þetta er fjórða sýning Valgards en
áður hefur hann sýnt tvisvar á
skilar sér í kyrrlátri yfirvegun, ekki
síst í mannamyndunum þar sem
fólkið stendur rólegt og kyrrt og
horfir gjarnan beint í myndavélina.
Svipbrigðin eru látlaus og yfir and-
litunum er einhver eilífðarró hvort
sem við sjáum gamla menn í baska-
landi halla sér fram á stafi sína eða
stúlkur í Finnlandi prúðbúnar á leið
á ball. Þessi andlit virðast horfa eitt-
hvað dýpra inn í veruleikann en
gengur og gerist.
Alla vega er eins og þau sjái í
gegnum glansmyndina og skynji
veröld sem á sér dýpri rætur og
lengri sögu, eitthvað sem stendur af
sér breytingar og stríð og verður
ekki kæft hvernig sem hugmynda-
fræðingar, braskarar og stríðsheiT-
ar hamast. Líkast til er það einmitt
hér sem Rax greinir hinn evrópska
anda, í þessari þolinmóðu samsömun
við hversdagsleikann.
Bak við hverja mynd er örstutt
saga eða hugdetta sem Rax skráir í
bók sína.
Þannig hefur hann orð á því við
myndina af Jóni Oskari og Huldu að
„hjónaband þeirra er eins og heima-
land þeirra" og um gömlu baskana
segir hann að „í hjarta mæðrasamfé-
lagsins sé hópur af körlum". Þessir
stuttu textar veita okkur innsýn í
ferðalag Rax og leit hans að hjarta
Evrópu. Á ferðum sínum er hann sí-
fellt að leita eftir svipmyndum sem
fanga það hversdagslega stolt sem
hann sækist eftir eða hið undursam-
lega augnablik í náttúrunni eða
borginni. Óvænta samsetningu
myndhluta sem þó mynda heild og
segja okkur eitthvað nýtt um veröld-
ina og okkur. Þannig verður þessi
ferðasaga í myndum að eins konar
frásögn sem er leit ljósmyndarans
og skáldsins að sínum eigin veru-
leika og sinni eigin sögu.
Jón Proppé
Vopnafirði, í fyrsta sinn árið 1966, og
einu sinni á Blönduósi. Sýninguna í
Múlalundi segir hann vera forsmekk
að stærri sýningu sem hann hyggst
halda í Reykjavík næsta haust.
Myndlistina hefur hann verið að
fást við í frístundum allt frá barns-
aldri en er annars lærður húsamálari
MYJVÐLIST
G a 11 e r í M a n,
Skólavöröuslíg 14
LEIRLIST & BLÖNDUÐ
TÆKNI
Margrét Kjartansdóttir & Sigur-
borg Jóhannsdóttir. Til 29. ágúst.
Opið á verslunartíma.
SAMSÝNING þein'a Margrétar
Kjartansdóttur og Sigurborgar Jó-
hannsdóttur á sér litlar forsendur
aðrar en praktískar, eftir því sem
best verður séð. Margrét sýnir raðir
af einföldum keramíkvösum sem eru
frjálslega mótaðir úr flöttum leir og
þaktir glerjungi. Þetta eni lífrænii’
Sigurrós Stefánsdóttir
Ágúst-
kvöld í
Lónkoti
SIGURRÓS Stefánsdóttir hef-
ur opnað sýningu í Galleríi
Sölva Helgasonar í Lónkoti í
Skagafirði.
Sýningin stendur til 31.
ágúst.
og hefur starfað við þá iðn. „Ég lærði
svolítið úti í Danmörku í kh’kju-
ski-eytingum og málverkaviðgerðum
en annars er ég að mestu leyti sjálf-
menntaður í myndlistinni,“ segh’
hann. Sýningin í Múlalundi stendm'
til föstudagsins 25. ágúst nk. og er
opin kl. 8-16.30 virka daga.
og líflegir vasar en helsti staðlaðir,
því ef það væri ekki fyrir mismun-
andi hæð væru þeir allir eins. Það er
spurning hvort hæðarmunurinn
nægir til að vega upp einsleitni
þeirra; hvort Margrét hefði ekki
gert betur að sýna fjölbreyttari ítem.
Verk Sigurborgai’ eru mun snún-
ari og því snöggtum athyglisverðari
út frá fagurfræðilegu sjónarmiði.
Það ei' nefnilega ekki alls kostar á
hreinu hvað listakonan ætlar sér
með verkum sínum. Ef þau eru ein-
göngu minni úr æsku eins og Sigur-
borg lætur í veðri vaka í meðfylgj-
andi tvíblöðungi er hætt við að þau
verði saknaðarsætsúpunni að bráð,
svona rétt eins og Húsið á sléttunni.
En þar sem Sigurborg býr yfir
prýðilegi'i tækni og leitar fanga í
jafnmerkilegu forðabúri og Baby
Dear - viktoríanskri myndaspilsbók
fyrir dagskólabörn - og millistríðs-
árgöngum hins sígilda danska vikur-
its Familie Journal - Bamse og
Dukke Lise - er engu líkara en hún
búi yfir meðvituðum grun um tak-
mörk þess barnalega saknaðaróðs
sem hún bregður upp á veggjum
sýningai'salarins. I þeim óljósa vend-
ipunkti sem liggur á mörkum
smekkleysu og smekkleysu sem
verðugra aðfanga - og vitnisburðar
um veröld sem var - hefur Sigurborg
kosið að staðsetja sig. Það verður
gaman að sjá hvorum megin hún fell-
ur þegar hún fer að hreyfa sig næst.
Halldór Björn Runólfsson
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Valgard Jörgensen og nokkur verkanna í kaffistofu Múlalundar.
Grófarhús
Tryggvagötu 15
1 01 Reykjavík
o piö 15-22
Menningarnótt
í Borgarbókasafni
Laugardaginn 19. ágúst gefst almenningi kostur á aö
skoöa nýtt aðalsafn Borgarbókasafns í Grófarhúsi,
|Tryggvagötu 15.
Kynning á tillögum að deiliskipulagi miðborgarinnar
kl. 15 og 20
Magga Stína og hr.ingi.r spila kl. 18 og 19
Sindri Freysson og Vilborg Dagbjartsdóttir
lesa í bamadeildinni kl. 19:30.
Athugið að safnefni verður ekki lánað út.
Starfsemi aöalsafns hefst innan skamms og veröur þaö
auglýst síöar.
RS
BORGARBÓKASAFN
REYKJAVÍICUR