Morgunblaðið - 19.08.2000, Side 50
MORGUNBLAÐIÐ
50 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000
..... ............
UMRÆÐAN
Lifrarbólga C - sjúkdómur
ungra vímuefnaneytenda
500 virkir sprautu-
fíklar á Islandi
Lifrarbólga C er
fyrst og fremst sjúk-
dómur sprautufíkla og
orðin býsna algeng hér
á landi. Alls hafa fund-
ist 385 tilfelli af lifrar-
bólgu C á síðustu níu
>arum á Vogi og þar af
fundust 40 ný tilfelli á
síðasta ári.
Sprautufíklar sáust
ekki á íslandi fyrir en
eftir 1980 en með inn-
flutningi og sölu ólög-
legs amfetamíns frá
fyrirheitna landinu
Hollandi sem hófst 1983 byrjuðu
kannabisneytendur hér heima að
sprauta sig í æð og síðan þá hefur
sprautufíklum á Islandi stöðugt
fjölgað.
Á síðustu níu árum (1991-1999)
hafa greinst 967 einstaklingar á
Smitsjúkdómar
Leggja ber áherslu á
forvarnir, segir Þór-
arinn Tyrfíngsson, sem
koma í veg fyrir að fólk
fari að sprauta sig í æð
með vímuefnum.
^Sjúkrahúsinu Vogi sem hafa spraut-
að vímuefnum í æð. Á síðustu þrem-
ur árum 1997-1999 komu 615 slíkir
einstaklingar og af þeim höfðu 387
sprautað sig reglulega. Það er því
varla ofmetið að álykta að á fslandi
séu um þessar mundir 500 virkir
sprautufíklar.
200 sprautufíklar smitberar
fyrir lifrarbólgu C
Úr sjúklingabókhaldinu á Vogi
fyrir árið 1999 má lesa að 15 %
þeirra sem hafa sprautað sig einu til
tíu sinnum í æð hafa smitast af lifr-
arbólgu C. Meðal þeirra sem
sprauta sig reglulega í æð hafa 50 %
fengið sýkinguna. Um 200 virkir
sprautufíklar, flestir á Reykjavík-
úrsvæðinu, eru því sýktir af C lifr-
arbólgu og eru að smita aðra.
Það sorglegasta er þó er að ung-
um sprautufíklum fjölgar stöðugt á
íslandi (sjá mynd). Af
því leiðir að þeir sem
fá þennan sjúkdóm
verða yngri og yngri
og árið 1999 voru tíu
einstaklingar 19 ára
eða yngri með C-lifrar-
bólgu á sjúkrahúsinu
Vogi. Slíkt var óþekkt
meðal svo ungra neyt-
enda fyrir 1995.
Óhreinar sprautur
mestur skaðvaldur
Islendingar smitast
nær eingöngu af lifrar-
bólgu C með því að
sprauta sig í æð með
áhöldum sem sprautuf-
íklar með langvinna lifrarbólgu C
hafa notað. Óhreinar sprautur eru
aðalskaðvaldurinn en nálarnai' og
ílátið eða skeiðin sem amfetamínið
er leyst upp í áður en því er spraut-
að getur líka haft veiruna að geyma.
Fyrir þá sem sprauta sig er hættan
mest þegar þeir sprauta sig í fyrstu
skiptin. Nær enginn gerir slíkt einn
og án aðstoðar og sú aðstoð sem
fæst er oft veitt af smitandi spraut-
ufíkli.
Hættan er líka mikil að sýkjast
þegar sprautufíklar eru að falla eftir
meðferð og geta ekki gripið til
áhaldanna sem þeir losuðu sig við
eftir meðferðina. Það er því mikil
forvörn í því að auðvelt sé fyrir
sprautufíkla að ná í hreinar spraut-
ur og nálar hjá lyfsölum svo að þeir
sprauti sig ekki með óhreinum
áhöldum.
Aðrar smitleiðir sem eru fátíðari
eru þegar óhrein áhöld eru notuð
við tattóveringu eða til að gera göt í
eyru og andlit. Einnig þegar notað
er sama sogrörið til að sjúga vímu-
efni í nef. Lifrarbólga C getur lík-
lega smitast við kynmök en hættan
er umdeild og langt innan við 1%.
Nær engin hætta er nú orðin á að fá
sýkinguna við blóðgjöf þó að slíkt
hafi þekkst fyrir 1990. Lifrarbólga
C fer frá móður með langvinna lifr-
arbólgu C um fylgju yfir í barn í 6%
tilvika.
Sjúkdómurinn ein-
kennalaus í fyrstu
Lifrarbólga C er oftar en ekki al-
veg einkennalaus eða einkennalítil í
fyrstu. Fólk veit ekki hvort það hef-
ur fengið sjúkdóminn eða ekki. Því
þarf að gera skimunarpróf hjá öllum
sem hugsanlega gætu hafa fengið
Þórarinn
Tyrfingsson
VrmtrefiraTieyterrtfcfr á ijufcraffúsírnj Vtfgf
Hlutfall amfetamínfíkla
og sprautufíkla
'83 '85 '87 '89 '91 '93 '95 '97 '99
Hepatítis C hjá þeim
sem hafa sprautað
sig í æð
Samtals 967 einstakl.
sem komu á Vog
Hafa ekki
lifrarbólgu
Fengu bata eftir
315 T7 lifrarbólgu C
Hafa langvinna
lifrarbólgu C
Fjöidi Aldursdreifing Stórneytendur
30 sprautufíkla með----- ólöglegra vímuefna
lifrarbólgu C _ 19áraogyngri Fjöidi
------------------» 200
Strákar
Stelpur
150
100
50
Sprautað í æð
<20 20-24 25-29 30-34 35-39 >39
'91 '92 '93 '94 '95 '98 '97 '98 '99
Fjöldi unglinga 19 ára Fjöldi ungra vímuefna-
og yngri sem hafa neytenda sem sprauta
prófað kókaín, LSD
150 eða helsælu-------------
Fjöldi
sig í æð
Fjöldi
92 '93 '94 '95 '96 '97 '98 '99
sjúkdóminn. Slíkar rannsóknir og
frekari greining er gerð með blóðr-
annsóknum sem gerðar eru á rann-
sóknarstofu Háskólans í veirufræði.
Hægt er að fá blóð dregið til slíkra
rannsókna á öllum heilsugæslu-
stöðvum og sjúkrahúsum þessa
lands og líka á sjúkrahúsinu Vogi.
Þó að flestir með lifrarbólgu C
virðist fá vægan sjúkdóm fær hluti
sjúklinganna, um 10 til 20%, þó
meiri bólgur í lifrina og hún eyði-
leggst smám saman ef ekkert er að
gert, oftast á 10-15 árum. Með nú-
verandi þekkingu er erfítt að spá
fyrir um framvinduna eða í hvorn
hópinn sjúklingar fara. Sjúklingarn-
ir verða því að vera undir stöðugu
lækniseftirliti svo að hægt sé að
grípa inn í ef í óefni stefnir.
Meðferð við lifrar-
bólgu C flókin og dýr
Það er einungis á færi sérfróðra
lækna að meta hvenær beita á lyfja-
meðferð gegn lifrarbólgu C. Áður
en meðferðin hefst þarf að gera ít-
arlegar rannsóknir og meta stöð-
una. Ef ástæða þykir til að hefja
slíka meðferð er hún dýr og getur
tekið allt að eitt ári. Framfarir hafa
orðið nokkrar í meðferðinni þótt
enn sé bati alls ekki tryggður þótt
meðferð sé hafin.
C lifrarbólga er þegar orðið stór-
kostlegt heilbrigðisvandamál á ís-
landi sem mun á komandi árum
aukast verulega frá því sem nú er í
tilfellum af skorpulifur og lifrar-
krabbameini. Til að takast á við
þennan vanda hafa læknar Land-
spítala - háskólasjúkrahúss, fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri og
SAA tekið höndum saman um að
meðhöndla með lyfjum þá sem hafa
þörf fyrir slíkt og halda uppi nauð-
synlegu eftirliti og rannsóknum með
hinum. Nú standa þessir sömu aðil-
ar og landlæknisembættið að
fræðsluátaki um lifrarbólgu C.
Barátta gegn kannabis-
neyslu besta forvörnin
Til að stemma stigu við frekari
útbreiðslu þessa sjúkdóms er nauð-
synlegt að auka aðhald að sprautu-
fíklum og koma þeim í meðferð um
leið og þeir eru fræddir um smitleið-
ir. Mikið er í húfi því að sprautufíkl-
um með langvinna lifrarbólgu C má
ekki fjölga mikið frá því sem nú er
til þess að sjúkdómurinn breiðist frá
þeim til annarra í þjóðfélaginu.
Leggja ber áherslu á forvarnir
sem koma í veg fyrir að fólk fari að
sprauta sig í æð með vímuefnum. I
því efni er affarasælast að halda
uppi lögum sem nú gilda um vímu-
efni. Sporna gegn unglingadrykkju
og ólöglegri vímuefnaneyslu einkum
kannabisneyslu.
Á árunum 1996-1999 komu 222
einstaklingar í meðferð til SÁÁ sem
voru að byrja að sprauta sig í æð og
voru 24 ára eða yngri. I sögu þeirra
kom fram að 139 þeirra voru búnir
að nota hass daglega í méira en
hálft ár og aðrir 64 höfðu notað efn-
ið reglulega í yfir hálft ár. Aðeins 19
þessara amfetamínneytenda sem
voru að byrja að sprauta sig voru
tilraunaneytendur á hass. Kannab-
isneysla er því grunnurinn sem am-
fetamínneysla og sprautufíkn er
reist á. Þannig verður rúmlega
helmingur stórneytenda kannabis á
íslandi um þessar mundir einnig
stórneytendur amfetamíns og rúm-
lega helmingur amfetamínneytenda
fer að sprauta sig í æð.
Höfundur er yfirlæknir SÁÁ.
Þjóðhagslegar afleið-
ingar lifrarbólgu C
LIFRARBÓLGA C
felur í sér þjáningar
úg útgjöld fyrir ein-
staklinga. Samfélagið
verður hins vegar fyr-
ir búsifjum af hennar
völdum, m.a. vegna
aukinna útgjalda og
minni tekna. Hér á
eftir verður leitast við
að fjalla um þjóðhags-
legar afleiðingar lifr-
arbólgu C.
Þegar nýr sjúkdóm-
ur skýtur upp kollin-
um í samfélaginu
|iurfa heilbrigðisyfir-
•^kild að ákvarða hverju
skuli til kosta hans
vegna. Lifrarbólga C er nýlega
uppgötvaður sjúkdómur. Hann
leggst einkum á ungt fólk og getur
haft alvarlegar afleiðingar síðar á
ævi þess. Heilbrigðisyfirvöldum ber
að meta afleiðingar hans til lengri
og skemmri tíma, hvort aðgerðir
-«éu til, hversu árangursríkar þær
séu og hvað þær muni
kosta samfélagið. Það
varðar því miklu að
þau verji með skyn-
sömum hætti tak-
mörkuðum fjármun-
um, einkum með tilliti
til lifrarbólgu C.
Hverjir eru
útgjaldaliðir
vegna
lifrarbólgu C?
Þar sem lifrarbólgu-
veira C berst á milli
manna einkum með
blóð- og vessasmiti
hafa blóðbankar þurft
að skima allar sínar af-
urðir m.t.t. veirunnar. Þetta er
kostnaðarsamt (aðstaða + hvar-
fefni + starfsfólk + upplýsinga-
varsla) fyrir samfélagið. Engum
sjúklingi má gefa blóð, blóðhluta
eða önnur líffæri fyrr en að aflokn-
um prófum gegn öllum þekktum
sjúkdómum er berast með blóðgjöf
Smitsjúkdómur
I ágústmánuði vekur
landlæknir sérstaka at-
hygli, segir Már Krist-
jánsson, á lifrarbólgu C
sem samfélagsvanda.
milli manna. Á þessari stundu er
vitað um 600 landsmenn sem hafa
sýkst af lifrarbólgu C. Mikill kostn-
aður hlýst af læknisheimsóknum,
rannsóknum og vinnutapi þessara
einstaklinga sem allur greiðist af
samfélaginu. Afleiðingar langvinnr-
ar lifrarbólgu C-sýkingar eru m.a.
skorpulifur og krabbamein í lifur.
Slíkir sjúkdómar eru hverju samfé-
lagi afar kostnaðarsamir, m.a.
vegna aukins sjúkrahúskostnaðar
og skerts vinnuframlags viðkom-
andi einstaklings til þjóðarbúsins.
Már
Kristjánsson
Á sama tíma eykst kostnaður af
sömu orsökum annarsstaðar, s.s. í
félagslega kerfi samfélagsins. Enn
er ótalinn kostnaður er hlýst af
þjáningum viðkomandi sem ekki
verður metinn til fjár.
Hverju þarf samfélagið til að
kosta vegna lifrarbólgu C?
Heilbrigðisyfirvöld þurfa einkum
að hafa þrennt hugfast við ákvörð;
un útgjalda til þessa málaflokks. í
fyrsta lagi er skynsamlegt að verja
fé til fyrirbyggjandi aðgerða. Dæmi
um fyrirbyggjandi aðgerð er
fræðsla almennings og heilbrigðis-
starfsfólks um sjúkdóminn, út-
breiðslu hans, smitleiðir, greiningu,
meðferð og afleiðingar. Þessi leið er
ódýr en getur skilað árangri. í öðru
lagi þarf að verja fé til rannsókna á
sjúkdómnum, meingerð hans, út-
breiðslu, meðferðarárangri og þjóð-
hagslegum afleiðingum hans svo
nokkuð sé nefnt. A vegum Rann-
sóknastofu Háskólans í veirufræði,
smitsjúkdómadeildar Landspítala,
SÁÁ og sóttvarnalæknis hafa verið
gerðar kannanir á útbreiðslu og
arfgerð veirunnar hér á landi. Lítið
er vitað um þjóðhagslegar afleið-
ingar sýkingar sem lifrarbólgu C
og enn er langt í land með að hægt
verði að koma í veg fyrir sýkingu
með ónæmisaðgerð og svo má lengi
telja. Þekking á þessum þáttum
leiðir oftast til þess að dregur úr
útbreiðslu sjúkdóma. Þarna er mik-
ið verk óunnið. í þriðja lagi þarf að
verja fé til að glíma við aðsteðjandi
vanda, þ.e.a.s. draga þarf úr líkum
á langtímafylgikvillum sýkingarinn-
ar sem eru skorpulifur og lifrar-
krabbamein. í dag er beitt meðferð
sem talin er kjörmeðferð gegn
langvinnum sýkingum vegna lifrar-
bólguveiru C. Um er að ræða tvö
lyf (interferón og ribavirin) sem
kosta á bilinu 750.000 til 1.500.000
krónur eftir meðferðarlengd. Með-
ferðin ber árangur í u.þ.b. helmingi
tilfella og dregur verulega úr líkum
á skorpulifur og lifrarkrabbameini.
Hafa verður í huga að meðferð í
dag við lifrarbilun af völdum
skorpulifrar er lifrarbrottnám og
ígræðsla nýrrar lifrar. Kostnaður
við hverja slíka meðferð er u.þ.b. 15
milljónir króna (200.000 banda-
ríkjadalir) en dæmi eru um að
Tryggingastofnun ríkisins hafi
þurft að greiða 39 milljónir fyrir
eina slíka aðgerð.
Hvað vinnst í baráttunni
við lifrarbólgu C?
Með skynsamlegri nýtingu fjár-
muna í baráttunni við lifrarbólgu C
má:
• draga úr útbreiðslu sýkingarinn-
ar
• draga úr kostnaði heilbrigðis-