Morgunblaðið - 19.08.2000, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000
HJÁLMAR
KRISTIANSEN
+ Hjálmar Krist-
iansen fæddist í
Reykjavík 26. sept-
ember 1931. Hann
lést á heimili sínu 12.
ágúst siðastliðinn.
Poreldrar hans voru
Óskar Wilhelm
Kristiansen, f. 21.
júní 1901 í Noregi, d.
13. október 1939 og
Sigríður Hjáhnars-
dóttir, f. 23. apríl
1910 á Hrafnaflöt á
Blönduósi, d. 7. maí
1986 í Hvammi,
Húsavík. Systkini
hans: Sigríður Kristín, f. 7. júní
1929 og andvana drengur, f. 26.
september 1931.
Hjálmar kvæntist eftirlifandi
eiginkonu sinni 10. júní 1962, Guð-
rúnu Steindórsdóttur, f. 19. jan-
úar 1940 í Hólshúsum, Gaulverja-
bæjarhreppi. Foreldrar hennar,
Steindór Gíslason, f. 22. júní 1912
á Rútsstöðum, Gaulverjabæjar-
hreppi, d. 22. desember 1971 og
Margrét Ingibjörg Elíasdóttir, f.
25. maí 1914 á Selfossi. Börn
Hjálmars og Guðrúnar: 1) Stúlka,
f. 13. janúar 1962, dáin sama dag.
2) Gunnar Svanur Hjálmarsson, f.
30. apríl 1963, kvæntur Guðrúnu
Kötlu Kristjánsdóttur, f. 22. sept-
ember 1961. Barn
þeirra er Kristjana
Ósk, f. 28. febrúar
1983. 3) Margrét
Anna, f. 31. október
1966, gift Jóni Rún-
ari Gíslasyni, f. 20.
ágúst 1963. Börn
þeirra eru Hjálmar,
f. 28. nóvember
1984, Elva Rún, f. 29.
mars 1990 og Dagný
Sif, f. 13. júlí 1996. 4)
Dóra Kristfn, f. 28.
nóvember 1967, gift
Magnúsi Hafsteins-
syni, f. 12. nóvember
1968. Börn þeirra eru Guðrún
Björk, f. 20. febrúar 1986, Magnús
Már, f. 3. maí 1992, Ómar Ingi, f.
12. mars 1997 og Karen María, f.
3. desember 1998. Áður átti
Hjálmar Ingibjörgu Ármann, f.
19. ágúst 1954, gift Jóni Stefáni
Árnasyni, f. 31. mars 1953. Börn
þeirra eru Árni Þór, f. 12. septem-
ber 1974, Eiríkur, f. 27. apríl 1977
og Bryndís, f. 7. september 1988.
Hjálmar lauk almennri skóla-
göngu þess tíma og hefur lengst
af starfað sem bifreiðasljóri bæði
á rútum og vörubifreiðum.
Útför Hjálmars fer fram frá
Selfosskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Elsku pabbi. Það er erfitt að hugsa
um að þú eigir aldrei eftir að koma til
okkar eins og þú gerðir á hverjum
degi.
Margar góðar minningar koma
upp í hugann á svona stundu. Minn-
ingar frá því að við krakkarnir vorum
litlir þegar við fórum í útilegur. Þá
var stundum farið að veiða, kveiktur
varðeldur eða vaðið í lækjarspræn-
um.
Þú hafði ferðast mikið um landið
sem rútubílstjóri og var gaman að
ferðast með þér, þú þekktir nánast
hveija þúfu.
Börnin mín spyrja um þig og
sakna þín. Allra bíltúrana sem þú
fórst með strákana að skoða bíla eða
lömbin og folöldin á vorin. Þeim þótti
alltaf gaman að fá að fara í afa bíl.
Þú varst mikill ljóðamaður og ligg-
ur eftir þig fjöldinn allur af vísum.
Það er sérstaklega ein vísa sem ég
hef alla tíð munað sem þú ortir um
okkur systkinin þegar við vorum lítil.
Bömin mín litlu ljóshærðu þijú
lífsgötu fara að ganga
veiti þeim alfarið visku og trú
á veginum grýtta og stranga.
(Hjálmar Kristiansen.)
Ég kveð þig með söknuðu elsku
pabbi minn.
Minningin um þig lifi.
Þín,
Dóra Kristín.
Elsku afi minn. Ég trúi ekki enn
þá að þú sért horfinn út úr mínu lífí.
Á laugardagsmorguninn fékk ég þær
sorglegu fréttir að þú hafir kvatt
þennan heim snemma um morgun-
inn. Það var mikið áfall fyrir mig en
eins og þú veist þótti mér alveg gífur-
lega vænt um þig og verður það mikil
breyting á að þú skulir aldrei koma
aftur í heimsókn til að fá þér tíu
dropa af kaffi og spjalla við okkur.
En núna veit ég að þú ert í góðúm
höndum uppi hjá guði og ekkert get-
ur hent þig þar.
það eru svo margar góðar minn-
ingar sem koma upp í huga mér að ég
gæti haldið áfram að skrifa í allan
dag en það er margt sem stendur
upp úr, t.d. allar ferðirnar okkar
saman norður með ömmu og Guð-
rúnu Björk, það kom varla það sum-
ar að við færum ekki norður að heim-
sækja hana Ingibjörgu Bergmann á
Blönduósi, það var mjög gaman þar
til að ég fór að vinna á sumrin og
komst ekki með ykkur.
Fyrir nokkrum árum fórum við á
200 ára minningarafmæli fræga
Ijóðaskáldsins Hjálmars Jónssonar
frá Bólu og gleymi ég ekki þegar þú
samdir eina vísu og lést mig fara upp
á svið og lesa hana, þessa vísu man
ég enn þá og hún gleymist trúlega
aldrei. Hún hljóðar svona:
Allt er til að létta lund,
og laða best úr geði.
Þakka mæddan frændafund,
er fyllir hugann gleði.
Þú varst mikið fyrir að semja ljóð
og geymdi ég alltaf afmæliskortin
sem þú og amma gáfu mér því alltaf
voru ljóð inni í kortunum.
Þegar ég var pínulítill fór ég oft
með þér í vörubflinn sem þú keyrðir
og útbjóstu öryggisbelti í vörubflinn
til að ég gæti farið með þér. Það voi-u
afskaplega góðar stundir hjá okkur
saman.
En allra leiðinlegast fannst mér
fyrir þig að þú gætir ekki tekið æf-
ingaleyfi á bfl fyrir mig, þú varst
búinn að ákveða það fyrir löngu en
samt sem áður tek ég bflprófið og ég
veit að þú hjálpar mér með það.
Jæja, elsku afi minn núna er komið
að því að kveðja. Ég kveð þig með
söknuði og varðveiti þig ávallt í
hjarta mínu. Guð geymi þig.
Þinn afastrákur og nafni,
Hjálmar Jónsson.
Elsku afi. Mér finnst erfitt að trúa
því að þú sért ekki hjá okkur lengur
og ég sjái þig heldur ekki á hverjum
degi. En mér líður betur að vita að
þér líður vel hjá Guði.
Við áttum margar góðar stundir
saman og erfitt að velja á milli þeirra.
Það var mjög gaman að ferðast með
ykkur ömmu og Hjálmari norður í
land á sumrin, og ég gleymi aldrei
hitanum sem við fengum eitt sinn
þegar við vorum á leiðinni heim. Það
var alveg óbærilegt að sitja í bílnum
og við fórum að einhverju litlu vatni
+ Björg Þórorms-
dóttir fæddist á
Sævarenda í Fá-
skrúðsfirði 26. febr-
úar 1919. Hún lést í
fj ór ðungssj úkrahús-
inu Neskaupsstað 14.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Stefanía Indr-
iðadóttir fædd 4. maí
1890 dáin 7. nóvem-
ber 1959 og Þórorm-
ur Stefánsson fædd-
ur 23. aprfl 1894
dáinn 12. maí 1981.
Björg var elst fjórtán
systkina, á lífi eru Oddný, Þóra
Karolína og Aðalheiður. Látin eru
Þór, Óskar, Steinþór, Margeir,
Páll, Ingibjörg, Flosi, Indriði, Ind-
íana og Steinþór.
Björg giftist Magnúsi Guð-
mundssyni fæddum 10. júlí 1924.
Foreldrar hans voru Guðmundur
Magnússon fæddur 30. júlí 1885
dáinn 14. september 1931 og Ingi-
björg Guðmundsdóttir fædd 1.
ágúst 1894 dáin 24. mars 1967.
Björg og Magnús eignuðust þrjá
syni, Guðmund Inga, Hákon og
Elsku besta amma, nú ert þú farin
frá okkur en minning þín mun ávallt
lifa í hjörtum okkar. Söknuðurinn er
mikill og tómarúmið einnig. Okkur
Stefán Þórorm. Guð-
mundur Ingi fæddur
16. mars 1954
kvæntur Dagbjörtu
Sigrúnu Sigurðar-
dóttur og eiga þau
þrjár dætur, Björgu,
Sigríði og Kristínu.
Eiginmaður Bjargar
er Kjartan Viðars-
son og eiga þau tvo
syni, Guðmund Inga
og Viðar. Sambýlis-
maður Sigríðar er
Gunnar Már Gunn-
arsson og eiga þau
einn son, Dag Inga,
auk þess sem Gunnar Már á dótt-
urina Súsönnu Margréti. Hákon
fæddur 14. ágúst 1957 ókvæntur.
Stefán Þórormur fæddur 22. maí
1960 vistmaður á sambýlinu
Stekkjatröð 1, Egilsstöðum.
Björg og Magnús bjuggu mest
allan sinn búskap í Bæ, Fáskrúðs-
firði, en síðustu tvö árin bjuggu
þau á dvalarheimilinu Uppsölum,
Fáskrúðsfirði.
Útför Bjargar fer fram frá Fá-
skrúðsfjarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 11.
systurnar langar að þakka þér kær-
lega allar yndislegu stundirnar sem
þú veittir okkur, þú og afi. Þið voruð
alltaf fastur punktur í uppvexti okk-
ar, afi og amma í Bæ. Þú varst alltaf
með eitthvað i höndunum og þú varst
vön að bjóða alla nýja einstaklinga
sem fæddust í fjölskylduna vel-
komna með teppi sem þú prjónaðir,
við eigum öll, ömmubörnin og lang-
ömmubörnin, teppi sem þú prjónaðir
handa okkur. Það eru einnig ófáir
sokkarnir og vettlingarnir sem við
höfum slitið í gegnum tíðina sem þú
prjónaðir handa okkur, engum mátti
verða kalt. Elsku amma, takk fvrir
allt og guð geymi þig.
Elskulegaammanjóttu
eilíflega Guði hjá,
umbunar þess, er við hlutum
ávallt þinni hendi frá.
Þú varst okkar ungu hjörtum,
eins og þegar sólin hlý,
vorblómin með vorsins geislum
vefur sumarfegurð í.
Hjartkær amma, far þú í friði,
fóðurlandið himneskt á,
þúsundfaldar þakkir hljóttu
þínumlitluvinumfrá.
Vertusæl umallaraldir,
alvaldshendifalinver,
inn á landið unaðshjarta,
englar Drottins fvlgi þér.
(Höf. ók.)
Elsku afi, megi Guð styrkja þig í
þinni miklu sorg.
Björg, Sigríður og Kristín.
Þökk þér allt og (júl't þér taki,
englar himins þér yfir vaki,
ljós þér lýsi um Drottins vegi,
það bjarmar upp á nýjum degi.
Hvfl í friði, elsku langamma.
Langömmudrengirnir.
BJÖRG
ÞÓRORMSDÓTTIR
og fórum að vaða og busla þar til að
kæla okkur.
Ég man að oftast þegar ég átti af-
mæli fékk ég ljóð, sem þú hafðir sam-
ið handa mér, í afmæliskortinu frá
þér og ömmu. Þetta er það sem helst
stendur upp úr af þeim:
Vertþúalltaf.vinamín,
visku og láni falin,
þá skulu verða sporin þín
sönn og hrein um dalinn.
Takk fyrir þetta og að vera svona
góður afi, alltaf til í að spjalla við
mann um lífið og tilveruna. Þú varst
mjög góður sagnamaður og ég man
sögumar sem þú sagðir mér frá því
ég var lítil, t.d. þegar við tvö fórum
saman í smá labbitúra á morgnana
þegar við áttum bæði heima í Smára-
túninu. Þaðan á ég góðar minningar.
Takk fyrir, elsku afi, fyrir allt sem
þú hefur gefið mér. Ég kveð þig með
söknuði.
Þín,
Guðrún Björk.
Elsku afi.
Mérlíðurekkiilla
ogekkiheldurvel,
þvíævineráþrotum
og ekki gull í skel.
Egheffeiauðinnelskað
og aldrei tíl þess fann;
egeríættvið soninn
en ekki hinn ríka mann.
Enbezterorðaðefna,
þótt engan hafi dal;
og byrja bók að skrifa
með bara skal, eg skal!
Því fýrir frægð og heiður
egframtíðmínasel.
Mér líður ekki illa
ogekkiheldurvel.
(Káinn.)
Þakka fyrir góðar samverustund-
ir, afi minn, ég á eftir að sakna þín
mikið.
Kristjana Ósk.
Hann Hjálmar vinur minn er allur,
fréttina af fráfalli hans fékk ég á
ferðalagi austur á Héraði, síðastlið-
inn laugai’dag akandi um blómum
skrýdd héruð angandi af töðuilm,
mig setti hljóðan, alltaf kemur lát
vinar óvænt, þó svo að ég vissi að
Hjalli, eins og við félagar hans köll-
uðum hann, hefði átt við erfið veik-
indi að stríða um margra ára skeið.
Ég held að það hafi verið 1963 eða 4
sem ég kynntist Hjalla fyrst, þá
unglingur austur í Flóa, allar götur
síðan höfum við vitað hvor af öðrum.
Er ég fór að gera út bfla var Hjalli oft
í vinnu hjá mér í lengri eða skemmri
tíma, en hans aðalævistarf var bif-
reiðastjóm, bæði á rútum og vörubfl-
um, margar nætur áttum við saman í
vegavinnuskúrum sem og fleiii
vinnustöðum víðs vegar um Suður-
land og víðai’. Hjalli var mikill sögu-
og kvæðamaður, hagyrðingur góður
eins og nafni hans og forfaðir Hjálm-
ar á Bólu. Ég á margar góðar minn-
ingai’ er Hjalli gekk skáldagyðjunni
á vald og þuldi heilu kvæðabálkana
utanað bæði eftir sjálfan sig og aðra.
Sérlega er mér minnisstæð ferð á
Hveravelli fyrir allmörgum árum í
sólskini og blíðskaparveðri ásamt
sameiginlegum félaga okkar SigurfP-'
Boga blaðamanni á Degi, við skiluð-
um farminum á tilsettan stað og
héldum af stað heim. Er komið var
fram undir kvöld, eitthvað minnir
mig að hafi fundist á bak við sætis-
bakið hægra megin, og ekki er að
orðlengja það að aldrei hefur mér
fundist Hjalli fara á öðrum eins kost-
um í kveðskap og sögnum eins og í
þeim frjálsa fjallasal, frjáls eins og
fuglinn er hann svífur þöndum
vængjum á vit örlaga sinna, aldrei
fyrr eins stutt heim að loknu dags-
verki. Oft ræddum við um lífið og tfl-
veruna og duldist manni ekki aW--
Hjalli bar ör á sálu eftir sína æsku,
en hann fór sem barn frá sínu fólki,
og ólst upp á mörgum stöðum á hálf-
gerðum hrakhólum og bar hann
nokkra beiskju í brjósti til æskuár-
anna. Sennilega verður ekki sagt að
Hjalli hafi safnað auði efnishyggj-
unnar en hann var því auðugri til
andans, og gaf mér og mínum líkum
mammonsþjónkurum tilefni til að
hugsa sitt ráð, og velta fyrir okkur
tflgangi lífsins og öllu því marg-
breytflega litrófi sem því fylgir.
Ég er þakklátur fyrir að hafa feng-
ið að vera samferðarmaður Hjalla
vinar míns í um 40 ár og kveð hann
með þökk og hrærðum hug, og éjr
veit og vona að nú ekur hann sinn veg '
á blómum skrýddum grundum með
töðuilm, tilbúinn að kasta á mig vísu
þá ég mæti.
Farðu heill kæri vin.
Guðrúnu konu þinni, börnum,
tengdabörnum og bamabömum bið
ég blessunar á sorgarstundu.
Sigurður Karlsson.
Elsku Hjálmar. Að allt sé í lagi
þegar maður vaknar á morgnana er
ekki sjálfgefið, því kynntumst vi^.
laugardaginn 12. ágúst þegar Anna
hringdi í okkur.
Ekki datt okkur í hug að við vær-
um að sjá þig í síðasta sinn á fimmtu-
deginum. Þú varst svo hress. Karpað
var um frystikistuna en mest hlegið.
Svo var kvatt með sjáumst fljótlega.
Eitt af þínum áhugamálum voru
ferðalög um landið, að ferðast með
þér var eins og að hafa lifandi landa-
kort meðferðis, hver þúfa, hver
steinn, þú gast alltaf sagt okkur
nöfnin og oftast einhverja sögu með.
Aldrei heyrði maður þig kvarta
vegna veikinda þinna. Bara hress í
dag var svarað þegar spurt var þó
maður sæi vel hversu þjáður þú
varst. Eins og á brúðkaupsdaginn
okkar Svans kom ekkert annað
greina en að mæta þó einungis væm
ekki nema tveir dagar í þína stærstu
aðgerð.
Hafðu þökk fyrir okkar viðkynni.
Mínirvinirfarafjöld
feigðin þessa heinita köld.
Eg kem eftir, kannske í kvöld,
með klofinn hjálm og rofinn skjöld,
brynju slitna, sundrað sverð og syndagjöld.
(Bólu-Hjálmar.)
G. Katla Kristjánsdóttir.
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í
Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer
höfundar/sendanda fylgi.
Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða Ijóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar em beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undii' greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein-
ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir
ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru
nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect
einnig auðveld í úrvinnslu.