Morgunblaðið - 21.09.2000, Síða 1
STOFNAÐ 1913
216. TBL. 88. ARG.
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Spreng-
ingí
London
London. Reuters, AFP.
LÖGREGLAN í London lokaði
hluta miðborgarinnar, nálægt höfuð-
stöðvum bresku leyniþjónustunnar
MI6, eftir að skýrt var frá spreng-
ingu á svæðinu í gærkvöld.
Talsmaður lögreglunnar sagði að
ekki væri vitað til þess að sprenging-
in hefði valdið manntjóni og kvaðst
ekki geta veitt frekari upplýsingar.
Slökkviliðsmenn og sprengjusér-
fræðingar hersins voru sendir á
staðinn. Ljósmyndari Reuters var í
grennd við höfuðstöðvar MI6 og
sagði að lögreglan hefði lokað svæð-
inu, meðal annars nálægri brú.
Hann kvaðst ekki hafa séð nein
merki um sprengingu en Sky-sjón-
varpið sagði að nokkrir sjónarvottar
hefðu heyrt tvær sprengingar og séð
reyk yfir byggingu MI6 við suður-
bakka Thames. Að sögn sjónarvott-
anna varð a.m.k. önnur sprengingin
inni í byggingu leyniþjónustunnar.
Sky hafði eftir hátt settum lög-
regluforingja að ekki hefðu orðið
miklar skemmdir á byggingunni.
Höfuðstöðvar MI6 eru um það bil
kílómetra frá þinghúsinu.
Nokkrum sprengjum var komið
fyrir í London fyrr á árinu og ein
þeirra sprakk undir Hammersmith-
brú. Lögreglan sagði að skæruliðar
úr röðum norður-írskra lýðveldis-
sinna, sem leggjast gegn friðar-
samningnum á Norður-írlandi,
hefðu verið að verki.
----------------
Whitewater
Clinton-
hjónin ekki
ákærð
Washington. Reuters.
ROBERT Ray, óháður saksóknari í
Bandaríkjunum, sagði í gær að Bill
Clinton Bandaríkjaforseti og eigin-
kona hans, Hillary, yrðu ekki sótt
til saka vegna Whitewater-málsins
sem snýst um lóðaviðskipti þeirra í
Arkansas þegar Clinton var þar rík-
isstjóri.
Ray kvaðst hafa komist að þeirri
niðurstöðu að ekki bæri að ákæra
Clinton-hjónin, vegna ónógra sann-
ana. Rannsóknin beindist að því
hvort hjónin hefðu gerst sek um
lögbrot af ásettu ráði í Whitewater-
málinu, m.a. meinsæri eða tilraun
til að hindra framgang réttvísinnar.
Saksóknarinn kvaðst ætla að
senda þremur dómurum áfrýjunar-
dómstóls lokaskýrslu sína um málið.
Þeir sem nefndir væru í skýrslunni
fengju tækifæri til að gera athuga-
semdir við hana á næstu mánuðum.
Ray á næst að ákveða hvort
ákæra eigi Clinton forseta, eftir að
hann lætur af embætti, í tengslum
við rannsóknina á sambandi hans
við Monicu Lewinsky, fyrrverandi
starfsstúlku í Hvíta húsinu.
MORGUNBLAÐIÐ 21. SEPTEMBER 2000
5 690900 090000
Milosevic Júgóslavíuforseti á kosningafundi í Svartfjallalandi
Segir framtíð Júgóslavíu
í veði í kosningunum
Berane, Belgrad. Reuters, AP.
Svartfellskir lögreglumenn fylgjast með hópi stuðningsmanna Slobodans Milosevics, forseta Júgóslavíu, sam-
bandsríkis Serbíu og Svartfjallalands, fyrir kosningafund hans á herflugvelli í Svartfjallalandi í gær.
SLOBODAN Milosevie, forseti
Júgóslavíu, fiutti ávarp á kosninga-
fundi 1 Svartfjallalandi í gær og
lagði áherslu á að úrslit forseta- og
þingkosninganna í Júgóslavíu á
sunnudag réðu úrslitum um hvort
sambandsríkið héldi velli. Er þetta í
fyrsta sinn í fjögur ár sem Milosevic
fer til Svartfjallalands.
Kosningafundurinn var haldinn á
herflugvelli nálægt bænum Berane
í norðurhluta Svartfjallalands.
Milosevic var fluttur þangað með
þyrlu og um 400 serbneskir her- og
lögreglumenn frá Belgrad gættu
hans á flugvellinum. Vopnaðir lög-
reglumenn og hermenn, sem styðja
stjórn Svartfjallalands, voru hins
vegar á varðbergi í Berane, nokkra
kflómetra frá flugvellinum.
Eftir ávarpið hélt Milosevic strax
aftur til Belgrad og sú ákvörðun
forsetans að takmarka heimsóknina
við herflugvöll endurspeglar vax-
andi spennu í Svartfjallalandi fyrir
kosningarnar á sunnudag.
Svartfellska stjórnin hefur hótað
aðskilnaði og rofið nánast öll tengsl
sín við stjórnvöld í Belgrad. Hún
hefur ákveðið að taka ekki þátt í
kosningunum en leyfa íbúunum að
greiða atkvæði.
Óttast að Milosevic steypi
svartfellsku stjórninni
íbúar Svartfjallalands eru klofnir
í afstöðunni til þess hvort landið
eigi að lýsa yfir sjálfstæði eða vera
áfram hluti af júgóslavneska sam-
bandsríkinu.
Ráðamenn á Vesturlöndum óttast
að Milosevic kunni að beita valdi til
að steypa svartfellsku stjórninni,
sem gæti leitt til borgarastyrjaldar,
bíði hann ósigur í kosningunum.
Milosevic fordæmdi leiðtoga
Svartfjallalands og serbnesku
stjórnarandstöðunnar, lýsti þeim
sem „kanínum, rottum og jafnvel
híenum sem vilja breyta þessari
stóru þjóð í kjölturakka eftir duttl-
ungum erlendra húsbænda sinna“.
„Það ræðst af serbnesku og
svartfellsku þjóðinni hvort sam-
bandsríkið heldur velli,“ sagði
Milosevic. „Umheimurinn hefur
ekkert betra að gera en að valda
átökum milli Serba og Svartfell-
inga.“
Milo Djukanovic, forseti Svart-
fjallalands, sakaði Milosevic um að
reyna að hræða Svartfellinga fyrir
kosningarnar þar sem hann vissi að
sigurlíkur hans væru litlar. „Ef
Milosevic ákveður að stofna til
hernaðarlegra átaka við Svartfjalla-
land þá eigum við ekki annars úr-
kosti en að verja ríki okkar og
frelsi,“ sagði Djukanovic.
Um 20.000 stuðningsmenn Milos-
evic voru á fundinum í Svartfjalla-
landi. Rúmlega 100.000 manns sóttu
kosningafund helsta keppinautar
forsetans, Vojislavs Kostunica, í
miðborg Belgrad í gærkvöld.
Klofningur í
röðum danskra
evrusinna
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
KLOFNINGUR er kominn upp
milli dönsku stjórnmálaflokkanna
sem berjast fyrir aðild Danmerkur
að evrópska myntbandalaginu.
Anders Fogh Rasmussen, formað-
ur Vinstriflokksins, og Uffe Elle-
mann-Jensen, fyrrverandi formað-
ur flokksins og utanríkisráðherra,
gagnrýna Poul Nyrup Rasmussen
forsætisráðherra harðlega og
segja hann hafa eyðilagt fyrir fylg-
ismönnum evrunnar.
Lars Lokke Rasmussen, vara-
formaður Vinstriflokksins, bað í
gær kjósendur um að greiða ekki
atkvæði gegn evrunni í því skyni
að refsa forsætisráðherranum.
Hann benti á að það kæmi einnig
borgaralegu flokkunum illa ef að-
ild að myntbandalaginu yrði felld,
og því væri betra að bíða með að
refsa forsætisráðherranum fram
að kosningum.
Jafnaðarmenn, íhaldsmenn og
miðdemókratar saka Vinstriflokk-
inn um hentistefnu og að reyna að
koma ábyrgðinni á ósigri yfir á
aðra til þess að koma vel út í
næstu þingkosningum.
Rasmussen forsætisráðherra
segist enn hafa trú á að fylgis-
menn evrunnar geti haft betur í
þjóðaratkvæðagreiðslunni 28. sept-
ember. Jafnaðarmannaflokkurinn
hefur boðað að í dag verði birtir
útreikningar sem eigi að sýna
svart á hvítu hvaða efnahagslegu
áhrif það hefur fyrir danska ríkið,
einstaklinga og fyrirtæki ef aðild
að myntbandalaginu verður felld.
■ Sjálfstæðið/26
Ráðgast um viðbrögð
við mótmælum
S AMGÖN GURÁÐHERRAR ríkja
Evrópusambandsins efndu til
skyndifundar í Lúxemborg í gær til
þess að ræða mótmæli sem blossað
hafa upp víða í Evrópu gegn háu
bensínverði. Nokkur ESB-ríkjanna
hafa látið undan kröfum mótmæl-
endanna um að lækka álögur á
eldsneyti en önnur neitað að gefa
eftir og á fundinum var reynt að ná
samkomulagi um að samræma við-
brögð landanna við háu olfuverði.
Mótmælunum var haldið áfram á
Spáni, Irlandi, í Svíþjóð og Þýska-
landi í gær. Spænskir bændur aka
hér dráttarvélum um miðborg Ler-
ida á Norður-Spáni til að mótmæla
hækkunum á olíu- og bensínverði.