Morgunblaðið - 21.09.2000, Side 55

Morgunblaðið - 21.09.2000, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000 55 DAGURINN í dag, 21. september, er al- þjóðadagur alzheim- erssjúklinga. Dagurinn er haldinn til að minna á þennan vágest sem hrjáir um það bil 2000 íslendinga og um 18 milljónir manns um heim allan. Alzheimerssjúkdóm- urinn flokkast undir minnissjúkdóma sem er samheiti ýmissa heilasjúkdóma sem or- saka skert minni og minnkandi vitræna getu. FAAS, félag áhuga- fólks og aðstandenda alzheimers- sjúklinga og annarra minnissjúkra, varð 15 ára á þessu ári. Aðdraga- ndinn að stofnun félagsins var sá að Rauði kross íslands ásamt fleiri aðil- um opnaði dagvistunina Múlabæ fyr- ir aldraða árið 1980. Dagvistunin var hugsuð sem afdrep fyrir þá sem byggju einh- heima og væru í áhættuhópi hvað varðar einangrun. Fljótlega varð ljóst að stór hópur minnissjúkra dvaldi i heimahúsum í skjóli maka eða annarra nákominna ættingja. Það varð því fljótlega ljóst að brýnt var að veita sérhæfða dag- vistunarþjónustu fyrir alzheimers- sjúklinga og aðra minnissjúka. Aðst- andendur hinna minnissjúku mynduðu þrýstihóp og stofnuðu síð- an formlegt félag árið 1985. Það var síðan fyrir tilstilli þessa þrýstihóps að opnuð var dagvistunin Hlíðabær ári síðar. Hlutverk og mark- mið félagsins er að styðja við bakið á að- standendum minnis- sjúkra og gæta hags- muna þeirra. Að efla samvinnu og samheldni aðstandenda með fræðslufundum, út- gáfustarfsemi og fleiru. Að auka skilning stjórnvalda, heilbrigð- isstétta og almennings á þeim vandamálum sem sjúklingar og að- standendur þeirra eiga við að etja. Að minnis- sjúkir fái þá hjúkrun og félagslega aðstoð sem nauðsynleg er í okkar nútímaþjóðfé- lagi. Tímamót Öllum er frjálst að hafa samband við FAAS, segir Guðrún Kristin Þórsdóttir, og fá upp- lýsingar, ráðleggingar og stuðning. FAAS býður félagsmönnum sín- um símaþjónustu þar sem veittar eru leiðbeiningar og upplýsingar. Djákni er vígður til félagsins og er hann til stuðnings og aðstoðar fyrir aðstandendur jafnt sem sjúklingana sjálfa. Félagið býður jafnframt fé- lagsmönnum sínum heimastuðning, þ.e. tímabundna viðveru á heimili hins minnissjúka. Félagið býður aðstand- endum þátttöku í nærhópum þar sem aðstandendur hittast og ræða sín mál í trúnaði og kærleika. Félagið er með opna fræðslufundi reglulega yfir vetrarmánuðina og er t.d. fyrsti fundur vetrarins í kvöld í félagsmiðstöðinni Arskógum 4 þar sem læknarnir Kári Stefánsson og Jón Snædal segja frá nýjustu niður- stöðum rannsókna íslenskrar erfða- greiningar á alzheimerssjúkdómn- um. Pétur Símonarson frá Vatnskoti gaf félaginu húseign sína að Austur- brún 31. Hann gaf húsið í minningu um konu sína, Fríðu Ólafsdóttur ljósmyndara, og heitir húsið því Fríðuhús. Stjórn félagsins hefur ver- ið að láta endurbyggja húsið og hafa stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar sýnt félaginu mikinn velvilja í þeirri uppbyggingu og er skrifstofa félags- ins þegar flutt í húsið. Áætlað er að opna dagvistun með sveigjanlegum viðverutíma og jafnframt verður boðið upp á kvöld- og helgardvöl fyr- ir dagvistunarsjúklingana. Opnað verður fræðslusetur og upplýsinga- miðstöð fyrir aðstandendur og aðra umsjónaraðila minnissjúkra og að- stöðu fyrir stuðningshópavinnu og fjölskyldufundi. Öllum er frjálst að hafa samband við FAAS og fá upplýsingar, ráðleg- gingar og stuðning, sími félagsins er 533-1088. Sem betur fer horfa alzheimerssjúklingar og aðrir minn- issjúkir og aðstandendur þeirra til bjartari framtíðar með auknum rannsóknum og nýjum lyfjum. En meðan ekki er enn fundin lækning við minnissýki þá vonumst við, sem störfum fyrir FAAS, til að geta verið að sem mestu og bestu liði. Höfundur er framkvæmdastjóri og djákni félagsins. Alþjóðlegur alz heimersdagur Guðrún Kristín Þórsdóttir BLAÐAUKIIMIVI TÖLVUR OG TÆKNI í MORGUNBLAÐINU LAUGARDAGINN 30. SEPTEMBER MEÐAL EFIMIS: • Gagnagrunnstækni og rekstrarkerfi: Fjallað um nýjustu strauma í gagnagrunnstækni og rekstrarkerfum fyrirtækja • Netið: Farið í saumana á því hvernig Netið hefur breytt aðstæðum íslenskra fyrirtækja, Ijölgað sóknarfærum og dregið úr kostnaði • Farsímatækni: Sagt frá nýjum hugmyndum í farsímatækni, væntanlegum GPRS-kerfum og staðsetningar- möguleikum sem þau gefa • Kerfisveitur • Stórtölvur: Fjallað um aukna stórtölvuvæðingu • Þróun f örgjörvatækni og skammtatölvur • Linux: Þróun Linux innan fyrirtækja • O.fl. Pantið fyrir kl. 12 föstudaginn 22. september! Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar á auglýsingadeild í síma 569 1111. AUGLÝSINGADEILD Sími: 569 11 11 » Bréfastmi: 569 1110 • Netfang: augltfmbl.is Armúla 1, sími 588 2030 - fax 588 2033 LÆKIR - KLEPPSVEGUR Mjög góð 106 fm íbúð á 1. hæð í blokk sem snýr þvert á Kleppsveg- inn. íbúðin snýr í áttina að Rauða- læk með möguiegri aðkomu frá Brekkulæk. «0* Samsonite MS $ Fyrsta Samsonite verslunin á Islandi hefur opnað í Skeifunni 7 undir sama þaki og Metró. Bjóðum allar gerðir af Samsonite töskum, harðar og mjúkar, stuttar og langar, stórar og Vinnufélaginn frá Samsonite “toppurinn í töskum” smáar. METRO TÖSKU- OG SKÖVIÐGERÐIR Skeifan 7 • Sfmi 525 0800 6 Rauðvínsglös, 6 Kampavíns (eða hvítvínsglös), 6 Bjórglös (eða ölglös) \/Téfdc ^^KRISTALL Kringlunni - Faxafeni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.